Lífið

Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum?

Connor Storrie og François Arnaud, leikararnir sem eru að gera allt vitlaust með stjörnuleik í kanadísku þáttunum Heated Rivalry, hafa sést nokkrum sinnum opinberlega saman síðustu vikur. Aðdáendur velta því fyrir sér hvort leikararnir séu í sambandi. 

Lífið

Mótor­hjól eru bönnuð í Græn­landi

Íbúi á Eyrarbakka, sem hefur heimsótt Grænland nokkrum sinnum hvetur Íslendinga til að heimsækja landið því fólkið þar sé svo blítt, gestrisið og stolt af landi sínu. Mótorhjól eru hins vegar alveg bönnuð í Grænlandi.

Lífið

Gerði leigu­samning við krabba­meinið

Allir sem komnir eru til vits og ára þekkja Magnús Þór Sigmundsson. Maðurinn er goðsögn. Tónlistarmaðurinn síungi er nú 78 ára gamall og þótt hann segist vanda sig við að vinna alls ekki neitt stenst það illa skoðun því Magnús Þór er sískapandi. Magnús Þór er með krabbamein en hefur gert leigusamning við meinið, svo framarlega sem það hefur hægt um sig má það vera.

Lífið

Alaska og Birnir sigur­sæl

Tónlistarverðlaun Reykjavík Grapevine voru haldin á skemmtistaðnum Lemmy í gærkvöldi og var hiphop-senan sigursæl. Alaska1867 var valin listamaður ársin, Dyrnar eftir Birni var valin plata ársins og „eh plan“ með Digital Ísland valið lag ársins.

Menning

Karl­mennskan rís úr öskunni

Kynjafræðingurinn Þorsteinn V. Einarsson hefur endurvakið Karlmennskuna rúmum fjórtán mánuðum eftir að hann tilkynnti að ekki yrðu teknir upp fleiri þættir af hlaðvarpinu. Áður hafði hann velt því fyrir sér hvort hann væri dottinn úr tísku. Hann segist endurvekja hlaðvarpið til að bregðast við upplýsingaóreiðu og afbökun í umræðunni.

Lífið

Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025

Fasteignasalinn Páll Heiðar Pálsson tók saman sjö af dýrustu eignunum sem seldust á Íslandi árið 2025. Ódýrasta eignin af þeim seldist á 365 milljónir á meðan sú dýrasta seldist á 550 milljónir.

Lífið

Alan Carr á Ís­landi

Breski grínistinn og sjónvarpsmaðurinn Alan Carr er staddur á Íslandi og hefur ferðast víða um landið undanfarna daga.

Lífið

Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin

Guðmundur Emil Jóhannsson, einkaþjálfari og áhrifavaldur, ætlar sér út í fæðubótarefnabransann og hefur sótt um skráningu vörumerkisins VÍKINGAR VAKNA hjá Hugverkastofu.

Lífið

„Ég er að heiðra litla Aron“

„Ég var klárlega búinn að fá einhver merki um að ég þyrfti aðeins að hægja á mér. Þessi pása lét mig einfaldlega elska þetta meira og ég saknaði tónlistarinnar,“ segir tónlistarmaðurinn og stjarnan Aron Can. 

Tónlist

Viðar Örn hefur störf á Sól­heimum

Knattspyrnumaðurinn Viðar Örn Kjartansson hóf störf á Sólheimum í Grímsnesi í síðustu viku. Hann nýtur starfsins og á von á því að næsta skref á knattspyrnuferlinum skýrist fljótlega. 

Lífið

Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri

Árleg vetrarhátíð hefst í kvöld á höfuðborgarsvæðinu þegar kveikt verður á ljóslistaverkum í miðborg Reykjavíkur. Viðburðarstjóri segir hátíðina aldrei hafa verið stærri, 150 viðburðir fara fram þar til á sunnudag en hátíðin samanstendur meðal annars af Safnanótt og Sundlauganótt.

Menning

Geoff og Ásta Margrét nýtt par

Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams, eigandi Priksins og tónlistarstjóri Sticky Records, hefur fundið ástina í örmum Ástu Margrétar Hafbergsdóttur, myndlistarkonu og sálfræðinema.

Lífið

Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári

Jóakim Danaprins og konan hans María prinsessa ætla að flytja heim til Danmerkur á næsta ári. Parið er búsett í Washington DC í Bandaríkjunum en stefna á flutninga heim þegar samningur Jóakims rennur út í ágúst á næsta ári, en hann starfar við danska sendiráðið í Bandaríkjunum.

Lífið

Vill 700 milljónir fyrir höllina

Margrét Ásgeirsdóttir, læknir og fjárfestir, er enn að reyna að selja höll sína við Skeljatanga 9 í Reykjavík. Húsið er 550 fermetrar, fasteignamatið 317 milljónir en ásett verð 700 milljónir.

Lífið

Drengurinn sem dó

Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir.

Lífið

Nakinn á kóræfingu

Fannar Sveinsson skellti sér á æfingu hjá karlakórnum Esju í síðasta þætti af Gott kvöld á Sýn.

Lífið

Lauf­ey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar

Feðginin Aura V og Harold Simmons II, betur þekktur undir listamannsnafninu Fyütch, unnu Grammy-verðlaun á dögunum fyrir bestu barnaplötu ársins fyrir plötuna Harmony. Aura V, sem er átta ára gömul, varð þannig yngsti handhafi Grammy-verðlauna í sögunni og sló þannig met Blue Ivy Carter. Aura V nýtti tækifærið í þakkarræðu sinni til að hrósa íslensku tónlistarkonunni Laufeyju og óskaði henni til hamingju með sín verðlaun.

Lífið

Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið

Maron Birnir, Helgi T og fleiri ungar poppstjörnur fara með aðalhlutverk í væntanlegri kvikmynd sem heitir Undir ísnum. Hópurinn hefur undanfarið unnið hörðum höndum að verkefninu og hlakka strákarnir mikið til að athjúpa afraksturinn á hvíta tjaldinu. Þeir frumsýna stiklu fyrir kvikmyndina hér fyrir neðan. 

Bíó og sjónvarp

„Skýið er bleikt og við erum sannar­lega enn þá á því skýi og í sjokki“

Í Þjóðleikhúsinu var frumsýnt glænýtt íslenskt verk fyrir skemmstu. Í raun er um að ræða óperu-rappsöngleik með þrjátíu lögum sem eru jafn fjölbreytt og þau eru grípandi. Í gærkvöldi fékk Tómas Arnar að skyggnast á bak við leikhústjöldin og fékk að heyra allt um hvernig þessi söngleikur, sem að hófst sem ástríðuverkefni á sviðshöfundabraut, varð að flaggskipi Þjóðleikhússins þennan leikveturinn.

Lífið

Síðasti leyni­gesturinn opin­beraður

Nýjasti, og jafnframt síðasti, leynigestur Bítisins í bílnum tók lagið Killing Me Softly í útgáfu The Fugees á rúntinum með Heimi, Lilju og Ómari í Bítinu á Bylgjunni og gerði það með sóma.

Lífið

Tók Indriða í pontu og upp­skar hláturs­kast í þing­sal

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, gerði verulegar athugasemdir við tæknibúnað Alþingis í umræðu um störf þingsins á Alþingi í dag. Jón kvartaði meðal annars yfir gömlum tæknibúnaði, atkvæðagreiðslutökkum sem eigi það til að klikka og lélegri hljóðvist sem komi sér afar illa fyrir fólk eins og hann sem heyrir illa. Tónninn í ræðunni minnti allnokkuð á persónuna Indriða, sem Jón Gnarr lék sjálfur í Fóstbræðrum á sínum tíma, en undir lok ræðunnar tók Jón líkindin alla leið og rifjaði upp þekktar línur Indriða um bank í ofnum. Ræða Jóns uppskar mikil hlátrasköll í þingsal og forseti þingsins kvaðst taka undir athugasemdirnar.

Lífið

X-ið bætir við sig Bolla

Útvarpsmaðurinn og grínistinn Bolli Már Bjarnason hefur hafið störf á X977 og verður þar í loftinu alla virka daga milli 12 og 16. Hann var í útvarpsþættinum Ísland vaknar á K100 frá 2024 til ársloka 2025.

Lífið