Lífið

„Ég var lengi bakari en skellti mér síðan í öryrkjann“
„Í tæpt ár fór ég þrisvar sinnum í viku í 4,5 klukkustundir í senn í nýrnavélina. Sem dældi blóðinu úr mér í gervinýra, sem síðan dældi blóðinu aftur inn í líkamann minn. Síðan var maður slappur á eftir,“ segir Gunnar Þór Guðmundsson nýrnaþegi.

„Manneskjan sem ég var dó með Alexöndru“
Hjón sem misstu tuttugu mánaða dóttur sína úr bráðri heilahimnubólgu fyrir rúmu ári hafa glímt við sorg, svartnætti, sjálfsvígshugsanir og ítrekaðan fósturmissi síðasta árið. Þau láta sig dreyma um Alexöndruróló, leikvöll til minningar um litlu stúlkuna þeirra, mesta stuðbolta sem hægt var að ímynda sér.

Íslensk frumraun og Cannes-verðlaunahafi keppa um Gullna lundann
Níu myndir keppa um Gullna lundan, aðalverðlaun RIFF, í ár. Meðal þátttakenda eru sigurvegarar á Cannes og Locarno en einnig er þar að finna fyrstu mynd íslenska leikstjórans Ninnu Pálmadóttur í fullri lengd.

Læknar sinntu hálsbrotinni risaeðlu og fótbrotnum Sonic
Fjórar heilsugæslur á höfuðborgarsvæðinu, sem breytt hafði verið í bangsaspítala, önnuðu vart eftirspurn í dag þegar þangað streymdu misslasaðir bangsar og áhyggjufullir eigendur þeirra

„Ég er búinn að vera á leiðinni í fimmtán ár“
Georg Holm, bassaleikari Sigur Rósar, ákvað að slá til og gerast nýliði hjá björgunarsveitinni Ársæli. Í honum hefur lengi blundað björgunarsveitarmaður en það hefur aldrei gefist tími fyrr en nú. Þó það sé rólegt hjá Sigur Rós þessa dagana getur vel verið að hljómsveitin þvælist fyrir nýliðastarfinu.

„Veistu ekki hver ég er?“
Rappsveitin Eldmóðir var að senda frá sér lagið Stefán Braga en lagið fjallar að sögn þeirra um óþolandi týpu á djamminu sem kann sig engan veginn. Stefán Braga var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957 fyrr í dag.

Varð vinsælasti söngvari í sögu Spánar í stað þess að verða atvinnumaður í fótbolta
Spænski hjartaknúsarinn Julio Iglesias er áttræður í dag. Hann er vinsælasti söngvari í sögu Spánar og enginn söngvari hefur gefið út plötur á eins mörgum tungumálum.

„Lífið er of stutt til að eyða miklum tíma fyrir framan spegilinn“
Töffarinn og lífskúnstnerinn Sóley Kristjánsdóttir starfar sem vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni ásamt því að vera plötusnúður. Hún elskar tjáningarmáta tískunnar og nýtur þess að geta verið alls konar í klæðaburði. Sóley er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Fréttakviss vikunnar: Björgvin, Birgitta og Breiðablik
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á fréttakvissinu til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.

„Það var eins og eitthvað hefði sprungið inni í mér“
Blaðakona dinglar árangurslaust á dyrabjöllu við fallegt einbýlishús í Garðabæ. Eftir kurteist bank lætur viðmælandinn á sér kræla. Unnur Ösp Stefánsdóttir hefur í svo mörgu öðru að snúast að það hefur setið á hakanum að skipta um bilaða dyrabjöllu. Blaðakona tengir enda með sama vandamál, blessuð bilaða dyrabjallan.

Skrímslið í bláa húsinu sem allir vissu af en enginn talaði um
Við Túngötu 21 í Vestmanneyjum stendur lítið einbýlishús. Evu Ólafsdóttur stendur stuggur af húsinu og hún er ekki ein um það. Húsið vekur upp vondar minningar.

Vissi að eltihrellirinn kæmi
Lögregla hafði afskipti af eltihrelli á viðburði sem leikarinn Matthew McConaughey stóð fyrir í vikunni. Leikaranum datt í hug að hrellirinn yrði til ama og sótti því um nálgunarbann áður en viðburðurinn fór fram.

Bríet og Binni Glee fögnuðu nýjum orkudrykk
Tónlistarkonan Bríet Isis Elfar þróaði nýja bragðtegund af virknidrykknum COLLAB þar sem hampur, sítrónur og nektarínur eru í aðalhlutverki.

Lítil baðherbergi með stóra drauma
Lítil rými þurfa ekki að vera látlaus ef okkur dreymir stórt. Heimilisþættirnir Bætt um betur eru stútfullir af hugmyndum fyrir fólk í framkvæmdum og í fjórða þætti er litlu, gluggalausu baðherbergi breytt í stórglæsilega marmarahöll.

Veit ekkert hvað er heitt
Það er keppni framundan, förðunarkeppni og heita þættirnir Útlit í umsjón Marínar Möndu Magnúsdóttur og eru þeir á dagskrá Stöðvar 2.

Michael Caine „eiginlega“ sestur í helgan stein
Breski stórleikarinn Michael Caine kveðst vera „eiginlega“ sestur í helgan stein. Heilsu leikarans fer versnandi og á hann erfitt með gang.

Skráning hafin í Krakkakviss
Langar þig að keppa í sjónvarpsþættinum Krakkakviss? Stöð 2 leitar að þátttakendum á aldrinum 11–12 ára (í 6.–7. bekk) fyrir nýja þáttaröð af spurningaþættinum Krakkakviss.

Palli var einn í heiminum í fyrsta sinn á sviði
„Sykursjokkið er uppáhaldið mitt, það er svo gaman að leika það atriði,“ segir Ólafur Ásgeirsson leikari en hann fer með aðal- og eina hlutverkið í glænýrri sýningu Palli var einn í heiminum eftir Bjarna Hauk Þórsson. Sýningar hefjast á laugardaginn í Hörpu.

„Hann hefur skrifað með mér fjórar seríur“
Karen Björg Eyfjörð Þorsteinsdóttir handritshöfundur og uppistandari hefur í mörg horn að líta en samhliða líflegum starfsvettvangi er hún líka móðir og unnusta. Sonurinn, Guðmundur hefur þrátt fyrir ungan aldur verið viðstaddur skrif á fjórum þáttaröðum. Sú nýjasta, Kennarastofan er væntanleg í Sjónvarp Símans í byrjun næsta árs.

Koma alla leið til Íslands til að hittast í fyrsta sinn
Tuttugu ár eru liðin síðan íslenski tölvuleikurinn Eve Online var gefinn út. Þessum áfanga er fagnað í Eve Fanfest hátíðinni sem fer fram í sextánda sinn þessa helgi. Í ár er uppselt á hátíðina, rúmlega tvö þúsund manns, og koma flestir að utan.

Björgvin Franz búinn að taka fram leðurbuxurnar
„Það er ótrúlegur heiður að fá að fá að syngja þessi lög og heiðra minningu söngvara sem ég hef elskað síðan ég var 14 ára,“ segir Björgvin Franz Gíslason sem um helgina bregður sér í hlutverk Jim Morrisson.

Ekki í stuði til að lýsa íþróttum eftir að hafa fengið fregnirnar
Dr. Sigurbjörn Árni Arngrímsson, skólastjóri Framhaldsskólans á Laugum og einn ástsælasti íþróttalýsandi þjóðarinnar, hefur glímt við sortuæxli síðastliðin ár. Sjálfur telur hann sig ekki gott dæmi um krabbameinssjúkling, vegna þess að hann hefur aldrei upplifað sig neitt sérstaklega veikan.

Fyrrverandi ráðherra selur glæsihús í Þingholtunum
Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, og Sigurmar Kristján Albertsson, lögmaður og eiginmaður hennar, hafa sett fallegt einbýlishús sitt í Þingholtunum í Reykjavík á sölu. Ásett verð er 215 milljónir.

„Bráðum verðum við fjögur“
Förðunarfræðingurinn og áhrifavaldurinn Thelma Dögg Guðmundsen og Kristinn Logi Sigmarsson eiga von á sínu öðru barni.

Auðveld gólfþrif og engin glasaför
Auðveld gólfþrif og engin glasaför hljóma eins og draumur í hvaða eldhúsi sem er. Í þáttunum Bætt um betur leynast ýmsar góðar lausnir fyrir fólk í framkvæmdahug.

„Hamingjusöm og hlakka til lífsins með þér“
Inga Tinna Sigurðardóttir stofnandi og framkvæmdarstjóri Dineout birti fyrstu paramyndirnar af sér og kærastanum, Loga Geirssyni fyrrverandi landsliðsmanni í handbolta og einkaþjálfara.

Tileinkar tónsmíðarnar látnum vini
Hljómsveitin SoundThing gaf fyrr í dag út smáskífuna Have You Seen The Place. Lagahöfundurinn og gítarleikari sveitarinnar, Hjörleifur Björnsson tileinkar tónsmíðarnar látnum vini sínum.

Tilfinningarnar báru Ástrós ofurliði í eigin steypiboði
Í síðasta þætti af LXS fór hópurinn í hina árlegu bústaðarferð þar sem sannarlega var allt til alls. Algjör lúxusferð.

Edda Lovísa hætt á OnlyFans eftir hótanir og eigið markaleysi
Edda Lovísa Björgvinsdóttir er hætt að framleiða klám á OnlyFans. Hún segist ekki geta farið lengur ein niðrí bæ og þá hefur hún þurft að flytja eftir að áskrifandi á síðunni komst að því hvar hún átti heima. Hún segist hafa verið hætt að virða eigin mörk.

Dómaraprufum Idol lokið
Fyrstu dómaraprufum Idol er lokið og hafa örlög þeirra sem komust áfram verið ráðin.