

Fegurðarsamkeppnin Ungfrú Ísland hefur snúið aftur en nú í breyttri mynd. Mæður, giftar og ófrískar konur mega nú taka þátt í keppninni í fyrsta sinn. Manuela Ósk Harðardóttir, framkvæmdarstjóri keppninnar, fagnar þessum tímabæru breytingum.
Helga Lóa Kristjánsdóttir og Valgerður Jóhannsdóttir voru fasteignaleitendur vikunnar í Draumaheimilinu á Stöð 2 og fékk Hugrún Halldórsdóttir að fylgjast með þeim skoða þrjár eignir í Kópavogi.
Þrjátíu hljóðbækur eru tilnefndar í sex flokkum til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna, Storytel Awards 2023. Verðlaunahátíðin er árlegur viðburður þar sem hljóðbókaunnendur og framleiðendur fagna saman útgáfu vönduðustu hljóðbóka undangengins árs.
Þrátt fyrir að stórbrotið hálfleiksatriði Rihönnu á Ofurskálinni hafi verið það næstmest áhorfða frá upphafi, fékk Rihanna ekki krónu fyrir það, ekki frekar en flytjendur fyrri ára.
Hann ætlaði í listaháskóla en valdi svo hagfræði. Hann elskar starfið sitt og að rökræða við Sólveigu Önnu. Sindri Sindrason heimsótti Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, í morgunkaffi.
Kona sem sá um að túlka hálfleiksatriði söngkonunnar Rihönnu á Ofurskálinni á táknmáli hefur slegið í gegn á internetinu í dag. Sumir hafa kallað eftir því að túlkurinn fái verðlaun fyrir frammistöðu sína.
Vivian Ólafsdóttir fer með aðalhlutverk í kvikmyndinni Napóleonsskjölin en hún var viðmælandi í síðasta þætti af Körrent.
Ný þáttaröð af þáttunum Samstarf fer af stað á fimmtudag á Stöð 2. Í þáttunum fá áhorfendur að fylgjast með vinkonunum Sunnevu Einars og Jóhönnu Helgu tækla fjölbreytt verkefni á vinnumarkaði.
Eins og vart hefur farið framhjá neinum var Saga Matthildur krýnd ný Idolstjarna Íslands á föstudaginn. Það ætlaði allt um koll að keyra þegar forveri hennar, Kalli Bjarni, var kynntur inn á svið sem óvænt skemmtiatriði.
Útlit er fyrir að nokkuð góður hópur Íslendinga hafi vaknað með nokkurs konar þynnku í dag. Í mörgum tilfellum hefur það ekki verið vegna drykkju heldur mikils áts, langt fram á nótt.
Stór vika er að baki en á föstudaginn eignaðist þjóðin sína fimmtu Idolstjörnu, hana Sögu Matthildi. Idol einkenndi því vikuna hjá mörgum á meðan aðrir flúðu febrúarlægðina og ferðuðust út fyrir landsteinana.
Leikkonan Blake Lively hefur eignast sitt fjórða barn með eiginmanni sínum til tíu ára, leikaranum Ryan Reynolds. Blake tilkynnti um komu barnsins á Instagram í gær, þó á afar lúmskulegan hátt.
Bandaríski tónlistarmaðurinn David Jolicoeur, einnig þekktur sem Trugoy the Dove, er látinn, 54 ára að aldri. Hann var liðsmaður hiphop-sveitarinnar De La Soul.
Netheimar loguðu þegar tónlistarkonan Rihanna steig á svið í hálfleik Ofurskálarinnar í gær. Tónlistarkonan steig síðast á svið fyrir fimm árum síðan og því mikil eftirvænting meðal aðdáenda hennar. Ekki bara það heldur skartaði hún óléttubumbu en aðeins níu mánuðir er síðan frumburður hennar og A$AP Rocky kom í heiminn.
Í nýju myndbandi Geðhjálpar er það heldur betur ólíklegt dúó sem fer á kostum, þeir Vilhelm Neto grínisti og Kristján Óli Sigurðsson, fótboltaspekúlant. Vilhelm segir að heimurinn hafi orðið örlítið jákvæðari eftir að hafa hitt Kristján Óla.
Knattspyrnuhetjan Messi og átrúnaðargoð margra er nú mættur á Hvolsvöll, reyndar ekki í eigin persónu en níu ára strákur á staðnum fékk málverk af honum í afmælisgjöf, sem mamma hans málaði. Verkið hefur vakið mikla athygli.
„Þú getur bragðað óheiðarleikann, hann umlykur andardrátt þinn,“ skrifar leikkonan Megan Fox við nýjustu mynd sína á Instagram. Hún hefur einnig eytt öllum Instagram-myndum af unnusta sínum, rapparanum Machine Gun Kelly, og þannig kynt rækilega undir orðróm um sambandsslit þeirra tveggja.
Óhætt er að segja að tónlistarmaðurinn Harry Styles hafi verið sigurvegari Bresku tónlistarverðlaunanna sem haldin voru í gærkvöldi.
Aníta Briem var aðeins 16 ára gömul þegar hún lagði út í hinn stóra heim til þess að gerast leikkona. Hún bjó lengst af í Los Angeles þar sem gylliboð voru á hverju strái. Þegar hún kom hingað til lands til þess að taka upp sjónvarpsþætti fyrir nokkrum árum síðan, fann hún hvernig Íslendingurinn innra með henni öskraði á hana.
Um helgina og fram á Valentínusardag, sem er næsta þriðjudag, verður sérstakur hjartapóstkassi staðsettur í Kringlunni þar sem fólk getur skrifað eldheita ástarkveðju og póstlagt frítt með Póstinum.
Jakob Birgisson grínisti var álitsgjafi Íslands í dag á miðvikudag, þar sem hvaðeina markvert úr fjölmiðlaumræðu að undanförnu var til umræðu. Á meðal þess var atvinnuauglýsing Reykjavíkurborgar fyrir hinn svonefnda verkefnastjóra framtíðarinnar. Sjá má innslagið hér að ofan en viðtal við Jakob er strax í upphafi þáttar.
„Það sem mér finnst sárast í þessu er þegar fólk talar í kringum þetta, og vill ekki ræða þetta, af því að það heldur að það sé að særa mig. En það er akkúrat öfugt,“ segir Harpa Þöll Gísladóttir sem varð fyrir miklu áfalli þegar Þröstur sonur hennar fæddist andvana á tuttugustu viku meðgöngu. Hún segir reynsluna hafa verið lífsmarkandi.
Það var mikið um dýrðir í Idolhöllinni í gærkvöldi þegar Saga Matthildur og Kjalar kepptu í úrslitum. Saga Matthildur bar sigur úr býtum og er ný Idol-stjarna Íslands.
Hversu vel fylgist þú með fréttum og líðandi stund? Taktu þátt í Fréttakvissi vikunnar sem er í boði á Vísi á laugardögum.
Þau eru sem betur fer af ólíku tagi og misalvarleg hitamálin í þjóðfélagsumræðunni. Þó svo að eðlilega fari kannski mest fyrir veðurviðvörunum, verðhækkunum og verkalýðsbaráttu þessa dagana er algjör óþarfi að gleyma litlu hlutunum. Þessum litlu-stóru hlutum sem oft á tíðum geta skapað hressilegar og bráðnauðsynlegar umræður.
Í þessum fyrsta þætti af nýrri þáttaröð af Okkar eigið Ísland fara ævintýramaðurinn Garpur I Elísabetarson og klifrarinn Andri Már Ómarsson í leiðangur upp Hraundranga í Öxnadal.
Saga Matthildur sigurvegari Idolsins segist alls ekki hafa búist við sigri í Idolinu en Kjalar, sem keppti á móti henni á úrslitakvöldinu, var viss um að hún myndi bera sigur úr býtum. Bæði segjast þau ótrúlega þakklát.
Saga Matthildur er Idol-stjarna Íslands. Hún keppti til úrslita í kvöld á móti Kjalari og bar sigur úr býtum.
Spennan er orðin áþreifanleg. Úrslitakvöld Idol er nefnilega á Stöð 2 í kvöld. Tvö keppa til úrslita, þau Kjalar og Saga Matthildur, sem bæði hafa fangað hjörtu þjóðarinnar. Við fylgjumst auðvitað með úrslitakvöldinu og lýsum framvindunni í Vaktinni á Vísi.
Idol úrslitin eru í kvöld. Kjalar og Saga Matthildur eru á leið í einvígi og að því tilefni ákvað Gústi B að hita þau upp með öðruvísi keppni og útkoman var skrautleg.