
Lífið

Myndaveisla: Mögnuð tilþrif á meistaramótinu í götubolta
Íslandsmeistaramótið í götubolta í boði X-ins 977 fór fram um helgina á Klambratúni í Reykjavík. Tuttugu lið tóku þátt og spiluðu upp á verðlaunafé sem samtals nam 242 þúsund krónum.

Stjörnulífið: Brúðkaupsgestir klæddust sem Gummi kíró, nærfatamódel og barnalán
Liðin vika var sannkölluð tímamótavika hjá stjörnum landsins sem einkenndist af suðrænum brúðkaupum, barneignum og nafngiftum. Auk þess lögðu margir land undir fót og nærðu hina almennu útlandaþrá þar sem íslenska sumarið virðist ætla að láta bíða eftir sér, sérstaklega á suðvesturlandinu.

Hildur Björnsdóttir og Jón Skaftason eignuðust stúlku
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Jón Skaftason, stjórnarformaður Sýnar, eignuðust stúlku laugardagskvöldið 10. júní.

Dimma gæðir sér á pönnuköku úr munni eiganda síns
Pönnukökur eru í mestu uppáhaldi hjá Dimmu, sem er taminn hrafn, sem býr í Heiðmörk í Reykjavík. Dimma er ánægðust þegar eigandinn heldur á henni og biður hana að gera ýmsar æfingar. Á heimilinu er líka risa hundur, sem heitir Rjúpa.

Einstakar myndir sýna sögu Háskólabíós í gegnum tíðina
Nýlega var tilkynnt um að hætt verði rekstri kvikmyndahúss í Háskólabíó en þar með lýkur rúmlega 60 ára sögu bíósýninga í þessu sögufræga húsi. Ef marka má viðbrögð á samfélagsmiðlum er ljóst að Háskólabíó skipar stóran sess í huga marga Íslendinga.

„Þetta skip fer aldrei út aftur“
Í mars árið 1983 strandaði skipið Hafrún við Stigahlíð á Vestfjörðum. RAX fékk að fara með Landhelgisgæslunni að bjarga skipverjunum en hann fékk að sitja í franskri Puma þyrlu sem verið var að kynna fyrir gæslumönnum. Það var farið að dimma þegar leiðangurinn kom að Stigahlíð í hríðarbyl og vondu skyggni. Loks komu björgunarmenn auga á blys.

Bónorðið eins og úr bíómynd
Dansarinn og fasteignasalinn, Tara Sif Birgisdóttir trúlofaðist ástmanni sínum Elfari Elí Schweitz Jakobsson, lögfræðingi, í lok árs 2021. Parið gifti sig svo í Vegas nokkrum mánuðum síðar en þau stefna á að halda veglega veislu á Ítalíu fyrir vini og ættingja í haust.

Svona endast karlmenn lengur í rúminu
Ótímabært sáðlát (e. Premature ejaculation) gerist innan við sextíu sekúndum eftir að samfarir hefjast, eða áður en þú eða maki þinn eruð tilbúin að ljúka athöfninni. Um 40 prósent karlmanna á öllum aldri glíma við vandann.

Litli naglbíturinn kominn með nafn
Ljósmyndarinn og listakonan Saga Sigurðardóttir eignaðist sitt fyrsta barn nú fyrir stuttu með ástmanni sínum Vilhelm Antoni Jónssyni, söngvara og þáttagerðamanni.

„Reyndu að segja mér að þetta sé ekki sexist“
„Ég er búin að vera að berjast með kjafti og klóm frá því ég var í Ísland Got Talent [12 ára]. Ég ætlaði að ná langt. Mér líður eins og ég sé búin að vera allsstaðar af því ég er búin að setja alla lífsorkuna mína í þetta.“ segir Diljá Pétursdóttir sem segist loksins hafa fengið tækifæri til að skína fyrir framan alþjóð, og heiminn allan, í Söngvakeppninni og svo sem fulltrúi Íslands í Eurovision. Diljá segir frá þessu í viðtali í hlaðvarpinu Karlmennskan.

Úrslitaþáttur Kökukasts: Allt í köku þegar úrslitin réðust
Úrslitin ráðast í æsispennandi einvígi í lokaþætti fyrstu þáttaraðarinnar af Kökukasti. Allt fer í köku og sykurpúðum rignir yfir keppendur sem reyna hvað þau geta til að skreyta flottustu kökuna á mettíma. Pressan hefur aldrei verið meiri en í þessum lokaslag.

Fréttakviss vikunnar: Ástarmál Shakiru, rostungurinn og Grímuverðlaun
Fréttafíklar landsins sameinist! Nú er komið að því að spreyta sig í fréttakvissi vikunnar þar sem víða er komið við sögu.

Garpur bugaður á Kerlingu
Garpur og félagar hans, Jónas og Andri Már fóru í leiðangur í Svarfaðadal í klifur upp Kerlingareld. Kerlingareldur er veggur í miðju fjalli sem heitir Kerling sem gnæfir yfir dalnum. Veggurinn er 200 metra hár og hafa ekki margir klifrarar farið þar upp.

„Þú verður að vera djörf og það er ekki í boði að upplifa loddaralíðan“
„Ástríða mín fyrir fólki hefur alltaf verið miklu stærri en fyrir vinnunni endilega sem slíkri. Það er svo mikilvægt að láta manneskjunni líða eins vel og henni getur liðið í stólnum hjá manni,“ segir förðunarfræðingurinn Auður Jónsdóttir, sem hefur verið búsett í Los Angeles síðastliðið sjö og hálft ár og unnið þar að fjölbreyttum og spennandi verkefnum. Blaðamaður hitti hana í kaffi og fékk að heyra nánar frá hennar lífi.

Ofurpar í kortunum: Hadid og DiCaprio sjást enn og aftur saman
Leikarinn Leonardo DiCaprio og fyrirsætan Gigi Hadid borðuðu kvöldverð saman í Lundúnum á þriðjudag. Morguninn eftir sást til þeirra koma hvort í sínu lagi, með nokkurra mínútna millibili, á sama hótelið. Orðrómur um samband þeirra hefur fengið byr undir báða vængi.

Hræðist mest fiðrildi og fugla
Söngkonan Silva Þórðardóttir, eða Silva Love eins og hún kallar sig, er á öruggri leið upp stjörnuhimininn en hún gaf út plötuna More than you know ásamt Steingrími Teague síðastliðið sumar. Nú í júní er svo von á tónleikum með dúettinum ásamt glænýju tónlistarmyndbandi við lagið If it was.

Siggi Þór og Sonja eiga von á barni
Leikarinn Sigurður Þór Óskarsson, eða Siggi Þór eins og hann er kallaður, og unnusta hans Sonja Jónsdóttir vefhönnuður eiga von sínu fyrsta barni í nóvember.

Mjólkurhristingar Kelis fönguðu hjarta Bill Murray
Leikarinn Bill Murray og söngkonan Kelis, best þekkt fyrir söng sinn um mjólkurhristinga, eru byrjuð að slá sér upp.

Efnaðir vinir selja glæsilegt einbýli við Bergstaðastræti
Við Bergstaðastræti 78 í Þingholtunum í Reykjavík er einkar glæsilegt 270 fermetra einbýlishús til sölu. Húsið er byggt árið 1933 á um 500 fermetra lóð. Húsið er á þremur hæðum en þar af er auka íbúð á neðstu hæðinni með sér inngangi.

Tjölduðu á Arnarhóli í rigningunni fyrir dansgjörning
Hópur ungra kvenna sem í morgun voru búnar að slá upp tjaldi í rigningunni vakti athygli gangandi vegfaranda, ekki síst vegna óútileguvæns veðurs. Vissulega ræddi ekki um útilegu heldur undirbúning fyrir listgjörning á vegum Hins hússins sem stelpurnar flytja í miðbæ Reykjavíkur í sumar.

„Mikill heiður að vera treyst fyrir svona stóru verkefni“
Kraftur, stuðningsfélag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda þeirra tók nýverið höndum saman við skartgripalínuna Vera Design. Í kjölfarið hannaði Vera Design nýja fallega skartgripalínu fyrir Kraft og mun allur ágóði renna til félagsins.

Klámstjarna sakar tilvonandi föðurinn Zion um framhjáhald
Körfuboltamaðurinn Zion Williamson og kærasta hans greindu frá því í vikunni að þau ættu von á stúlku. Degi síðar greindi klámstjarna frá því að hún ætti í ástarsambandi við Zion og nú hefur önnur kona bæst við.

Bein útsending: Hlaupa allt upp í 161 kílómetra á Hengilssvæðinu
Salomon Hengill Ultra utanvegahlaupið fer fram í Hveragerði í dag og á morgun, 9. og 10. júní. Sérfræðingar Vísis stýra maraþonútsendingu frá keppninni, sem má sjá hér að neðan.

Nöfnin sem þekktir Íslendingar spara
Nöfn eru eitt helsta persónueinkenni fólks, einkum og sér í lagi þegar kemur að þjóðþekktum einstaklingum. Listamenn fara ýmsar leiðir til að skara fram úr eða vekja athygli með eftirminnilegum viðurnefnum en svo eru aðrir sem velja að sleppa for -eða millinafni sínu.

Bein útsending: Dikta órafmögnuð í Bjórgarðinum
Hljómsveitin Dikta spilar órafmagnað í Bjórgarðinum í kvöld kl. 20. Sýnt verður frá tónleikunum hér að neðan í beinni á Stöð 2 Vísi.

Leita að Íslendingum sem vilja finna milljón
Hrefna Björk Sverrisdóttir, höfundur bókarinnar Viltu finna milljón?, og Arnar Þór Ólafsson, annar stjórnenda hlaðvarpsins Pyngjunnar, taka nú höndum saman við gerð nýrra sjónvarpsþátta sem munu bera heitið Viltu finna milljón? og leita nú að pörum sem eru tilbúin að taka þátt.

Brynjan bognaði inn í búkinn
Í Bandaríkjunum er frekar stór hópur manna sem leika sér að því að skjóta alls konar hluti með alls konar byssum og birta myndbönd af því á Youtube. Þessi hlið myndbandaveitunnar kallast í daglegu tali GunTube en þar hefur fjölmörgum áhugaverðum spurningum verið svarað í gegnum árin.

Pólsk leiklistarperla í Þjóðleikhúsinu
Ein magnaðasta leiksýning Stefan Zeromski leikhússins í Póllandi, Gróskan í grasinu verður sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins á morgun, þann 9. júní.

Dóttir Arnhildar og Alfreðs komin í heiminn
Arnhildur Anna Árnadóttir kraftlyftingakona og kærasti hennar, Alfreð Már Hjaltalín, fyrrverandi knattspyrnumaður og heilsunuddari, eignuðust dóttur á dögunum.

Fundu meinvörp í heila eftir áralanga baráttu við brjóstakrabba
Leikkonan Shannen Doherty, sem er þekktust fyrir að hafa leikið í sjónvarpsþáttunum Beverly Hills 90210 og Charmed, hefur greint frá því að meinvörp hafi fundist í heila í janúar.