Körfubolti

Var nálægt því að hætta en Adam Silver talaði hann af því
Draymond Green, leikmaður Golden State Warriors í NBA-deildinni í körfubolta, hefur viðurkennt að hann hafi næstum verið búinn að leggja skóna á hilluna eftir að hafa verið dæmdur í leikbann og misst af tólf leikjum.

Körfuboltakvöld: „Regla númer eitt í lífinu“
Keflavík lagði Hamar í Subway-deild karla í körfubolta á dögunum. Það var þó ekki það sem vakti athygli í Körfuboltakvöldi heldur þegar Keflavík brunaði upp völlinn en einn af starfsmönnum leiksins stóð á miðjum vellinum eftir að hafa verið að þrífa gólfið.

„Hann þolir ekki þegar ungir menn rífa kjaft“
Golden State Warriors liðið verður til umræðu í Lögmáli leiksins þættinum sem er á dagskránni á Stöð 2 Sport 3 í kvöld. Í þættinum fara sérfræðingarnir yfir síðustu viku í NBA deildinni í körfubolta.

Subway Körfuboltakvöld: Átti Milka að fara úr húsi?
Subway Körfuboltakvöld hélt áfram göngu sinni á föstudagskvöldið þar sem Stefán Árni og sérfræðingar hans fóru yfir 12. umferð deildarinnar.

Háleit markmið Hauka verða ekki að veruleika: „Leiðinleg og vond orka yfir þessu liði“
Haukar höfðu háleit markmið fyrir tímabilið í Subway deild karla en finna sig nú öllu nær botninum en toppinum. Sérfræðingar Subway Körfuboltakvölds sammæltust um að útlitið væri ekki bjart.

Draymond Green snýr aftur til æfinga í dag
Draymond Green mun snúa aftur til æfinga með Golden State Warriors í dag eftir að hafa tekið út bann vegna sífelldra ofbeldisbrota.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Njarðvík 60 - 79 | Fimm í röð hjá Njarðvík
Liðin í 2. og 3. sæti Subway-deildar kvenna, Stjarnan og Njarðvík, mættust í fyrsta leik umferðarinnar í Garðabænum. Njarðvíkingar náðu í sinn fimmta sigur í röð og það nokkuð örugglega.

„Ég held að þetta sé liðið til að vinna“
Arnar Guðjónsson tapaði tvo daga í röð gegn Njarðvík þessa helgina. Fyrst í gær með karlaliðið og nú aftur í dag með kvennaliðið en Njarðvík vann leikinn í dag nokkuð örugglega, lokatölur 60-79. Arnar var nú samt nokkuð léttur og sagði Njarðvíkinga alltaf vera velkomna í Garðabæinn þegar hann var spurður hvort þeim yrði boðið á Þrettándagleðina í kvöld.

Margra milljarða bónus til Mavericks starfsmanna
Mark Cuban sendi starfsmönnum Dallas Mavericks tölvupóst í gær þar sem tilkynnt var að hann, ásamt nýjum eigendum félagsins, myndi greiða út 35 milljón dollara bónus til starfsmanna.

Chris Paul brákaði bein og fer í aðgerð
Chris Paul, leikstjórnandi Golden State Warriors í NBA deildinni, brákaði bein í vinstri hönd og mun gangast undir aðgerð á næstu dögum.

Sigtryggur Arnar sá fyrsti til að skora þrist í hundrað leikjum í röð
Sigtryggur Arnar Björnsson náði mögnuðu afreki í leik Tindastóls á móti Álftanesliðinu í Subway deild karla í gærkvöldi.

„Við erum bara ömurlegir akkúrat núna“
Los Angeles Lakers töpuðu á heimavelli 113-127 gegn Memphis Grizzlies. Liðið hefur nú tapað fjórum leikjum í röð og hefur aðeins unnið þrjá af þrettán leikjum síðan þeir fögnuðu bikartitlinum í Las Vegas.

Hörður Axel orðinn stoðsendingahæsti leikmaður sögunnar
Hörður Axel Vilhjálmsson varð í gær stoðsendingahæsti leikmaður í sögu Úrvalsdeildarinnar í körfubolta þegar Álftanes vann frækinn sigur á Íslandsmeisturum Tindastóls.

Shaq aðstoðaði Barkley við nýársheitið
NBA goðsögnin Charles Barkley setti sér göfugt nýársmarkmið um áramótin: Að hætta að drekka Diet Coke.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Njarðvík 92 - 101 | Mjúkir Garðbæingar lágu fyrir öflugum Njarðvíkingum
Stjarnan og Njarðvík mættust í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ í kvöld. Lokaleikir tólftu umferðar í Subway-deild karla fóru fram í kvöld og í allri umhyggjunni voru það Njarðvíkingar sem tóku sigurinn með sér út á Reykjanesbrautina.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Álftanes 68 - 80 | Nýliðarnir lögðu Íslandsmeistarana
Íslandsmeistarar Tindastóls tóku á móti nýliðum Álftaness í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld en liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn.

„Man ekki eftir að hafa lent í þessu áður“
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur, var nokkuð sáttur eftir níu stiga sigur gegn Stjörnunni í 12. umferð Subway-deildar karla. Njarðvík náði mest yfir 20 stiga forystu en bauð Stjörnunni upp í dans í á lokakaflanum og komust heimamenn í Stjörnunni yfir í Umhyggjuhöllinni. Njarðvíkurliðið reyndist þó sterkara liðið á svellinu undir lokin og landaði sigri.

„Mér hefur aldrei liðið jafnvel og í dag“
Álftnesingar sóttu góðan sigur norður yfir heiðar í kvöld gegn Íslandsmeisturum Tindastóls, lokatölur á Sauðarkróki 68-80. Haukur Helgi Pálsson fór fyrir stigaskori gestanna með 22 stig og virðist vera óðum að finna sitt gamla form eftir þrálát meiðsli.

„Fannst þér við alveg ömurlegir?“
Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, ræddi við Vísi eftir leikinn gegn Njarðvík í Subway-deild karla í kvöld. Njarðvík vann níu stiga sigur eftir mjög sveiflukenndan leik þar sem Njarðvík leiddi þó lengst af. Sigurliðið er nú einungis einum sigri á eftir toppliði Vals en tapliðið er einum sigurleik þar á eftir.

Flautukarfa rétt framan við miðju tryggði Nuggets sigur
NBA meistarar Denver Nuggets virðast óðum vera að finna taktinn en liðið lagði Golden State Warriors í nótt þar sem Nikola Jokic skoraði ótrúlega sigurkörfu.

Giannis dolfallinn yfir nýliðanum: „Hef aldrei séð neitt þessu líkt“
Victor Wembanyama hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína á sínu fyrsta tímabili í NBA-deildinni og mótherjar San Antonio Spurs halda vart vatni yfir honum.

Shaq sá fyrsti í sögu Orlando Magic
Bandarísku körfuboltagoðsögninni Shaquille O'Neal verður sýndur mikill heiður í næsta mánuði þegar treyja hans fer upp í rjáfur í höll Orlando Magic.

Njarðvíkurkonur vonast eftir að hafa unnið í kanalottóinu
Njarðvík hefur fundið sér nýjan bandarískan leikmann til að klára tímabilið með liðinu í Subway deild kvenna í körfubolta.

Með ríkisborgararétt en telst áfram erlendur leikmaður hjá KKÍ
Danielle Rodriguez er orðin íslenskur ríkisborgari og því gjaldgeng með íslenska landsliðinu. Hún telst samt áfram erlendur leikmaður samkvæmt reglum Körfuknattleikssambandsins.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Hamar 100-88 | Keflvíkingar höfðu betur gegn botnliðinu
Keflavík vann góðan tólf stiga sigur er liðið tók á móti botnliði Hamars í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 100-88.

„Bara einn sigur sama hvort maður niðurlægi andstæðingana eða ekki“
Keflavík fengu botnlið Hamars í heimsókn í Blue höllina þegar 13.umferð Subway deilda karla hóf göngu sína núna í kvöld.

Umfjöllun: Höttur - Grindavík 71-78 | Grindvíkingar upp að hlið Hattar
Grindvíkingar lyftu sér upp að hlið Hattar í áttunda sæti Subway-deildar karla í körfubolta með góðum sjö stiga sigri fyrir austan í kvöld, 71-78.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Breiðablik 86-95 | Mikilvægur sigur gestanna
Breiðablik vann afar mikilvægan níu stiga sigur er liðið heimsótti Hauka í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 86-95.

Leik lokið: Valur - Þór Þ. 90-82 | Valur hafði betur gegn Þór í toppslag deildarinnar
Valur lagði Þór Þorlákshöfn að velli, 90-82, þegar liðin leiddu saman hesta sína í toppslag Subway-deildar karla i körfubolta í Origo-höllinni að Hlíðarenda í kvöld.

Keflavík að landa Danero sem gæti mætt gamla liðinu sínu í kvöld
Körfuboltamaðurinn Danero Thomas hefur ákveðið að hætta við að leggja skóna á hilluna og allt útlit er fyrir að hann spili með Keflavík það sem eftir lifir leiktíðar.