Körfubolti

Viðar: „Helvíti vont þegar ég kúka svona ærlega á bitann“
Hattarmenn voru grátlega nálægt því að vinna frækinn sigur í Grindavík í kvöld í Subway-deild karla en leikurinn réðst á þriggja stiga körfu frá Damier Pitts þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka.

Grátlegt tap hjá Tryggva og félögum
Tryggvi Snær Hlinason og leikmenn Zaragoza máttu þola grátlegt tap gegn Monbus Obra í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld.

Jón Axel stigalaus í tapi Pesaro
Jón Axel Guðmundsson og félagar hans í Pesaro töpuðu mikilvægum leik í ítölsku deildinni í körfuknattleik nú í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Höttur 87-86 | Háspenna lífshætta í ótrúlegum sigri Grindvíkinga
Dramatíkin var allsráðandi í Grindavík í kvöld þegar heimamenn unnu ótrúlegan 87-86 sigur á Hetti í Subway-deildinni. Þristur frá Damier Pitts þegar þrjár sekúndur voru eftir tryggði heimamönnum stigin tvö.

Hilmar með 9 stig í sigri
Hilmar Pétursson og félagar hans í Munster unnu fimm stiga heimasigur á Nurnberg Falcons í kvöld.

Lakers á siglingu og Embiid frábær í naumum sigri
Mikil spenna ríkir í NBA deildinni nú þegar úrslitakeppnin er skammt undan og leikir næturinnar voru flestir æsispennandi allt til loka.

„Finnur vill að ég skjóti“
Kristófer Acox, leikmaður Vals, gat leyft sér að brosa eftir 31 stiga stórsigur liðsins á Keflavík í Keflavík, 80-111. Kirstófer skoraði sína fyrstu þriggja stiga körfu á tímabilinu í leiknum.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík 80 - 111 Valur | Valsmenn ekki í vandræðum í Keflavík
Valur átti ekki í miklum vandræðum með lánlausa Keflvíkinga í Keflavík í kvöld. Íslandsmeistararnir unnu öruggan 31 stiga sigur, 80-111. Valur fer með sigrinum í efsta sæti Subway-deildar karla á meðan Keflavík er áfram í 3. sæti deildarinnar eftir fjórða tapleikinn í röð.

Óttast að Durant verði fjarri góðu gamni fram að úrslitakeppni
Kevin Durant, leikmaður Phoenix Suns í NBA-deildinni í körfubolta, meiddist í upphitun fyrir það sem hefði verið hans fyrsti heimaleikur fyrir félagið. Óttast er að hann verði frá þangað til úrslitakeppnin fari af stað.

Shawn Kemp sleppt úr fangelsi
Shawn Kemp, sem var ein skærasta stjarna NBA-deildarinnar á sínum tíma, hefur verið sleppt úr fangelsi og allar ákærur á hendur honum felldar niður.

Gamli skólinn rak Ewing
Gamla New York Knicks hetjan Patrick Ewing hefur verið rekinn úr starfi þjálfara Georgetown háskólans.

Garnett: Fólk áttar sig ekki á því en Kobe var að skjóta á Jordan
Gamla NBA súperstjarnan Kevin Garnett hefur sína skoðun á því af hverju Kobe Bryant ákvað að spila í treyju númer 24 í NBA-deildinni.

Allt um leikjamet Sigrúnar: „Geggjað að vera með henni í liði“
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir bætti leikjametið í efstu deild kvenna í körfubolta í leik með Haukum í síðustu umferð Subway deild kvenna og afrek hennar var tekið fyrir í Körfuboltakvöldi kvenna.

Utan vallar: Hvernig getur félag unnið sex titla í röð og fallið svo fjórum árum síðar?
KR féll í gær úr efstu deild í körfubolta og það í miðjum sínum leik. KR hefði fallið með tapi á móti Keflavík í síðustu umferð en vann þann leik. Sigur Stjörnunnar á Blikum í gær þýðir aftur á móti að Íslandsmeistararnir á sex af síðustu níu tímabilum spila ekki lengur í hópi þeirra bestu á næstu leiktíð.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 117-113 | Níu í röð hjá Njarðvík eftir tvíframlengdan spennutrylli
Sigurganga Njarðvíkur heldur áfram í Subway-deildinni í körfuknattleik en liðið vann sigur á Þór frá Þorlákshöfn í tvíframlengdum leik í kvöld.

Pavel: Þetta gerðist full auðveldlega fyrir minn smekk
Pavel Ermolinskij var gríðarlega ánægður með sigur lærisveina sinna í Tindastól gegn Haukum í kvöld. Stólarnir voru þar með að vinna sinn fjórða leik í röð.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - KR 82-85 | Fallnir KR-ingar settu stórt strik í reikninginn hjá Breiðhyltingum
KR vann þriggja stiga sigur á ÍR í Subway-deild karla í kvöld. Áður en leiknum lauk var ljóst að KR væri fallið úr deildinni en Vesturbæingar létu það ekki á sig fá og unnu súrsætan sigur.

Martin í fyrsta skipti í leikmannahópi Valencia sem tapaði fyrir Real Madrid
Martin Hermannsson var í kvöld í fyrsta skipti í leikmannahópi Valencia síðan hann sleit krossband í maí á síðasta ári. Valencia beið lægri hlut gegn Real Madrid í leiknum.

Lárus: „Þarna voru einhverjir aðrir sem vildu taka í taumana og ákvarða leikinn“
Það var boðið upp á alvöru naglbít í Njarðvík í kvöld þar sem heimamenn fóru með sigur af hólmi í tvíframlengdum leik gegn Þórsurum í Subway-deild karla. Lárus Jónsson, þjálfari Þórsara, var nokkuð rólegur eftir leik þrátt fyrir hátt spennustig í leiknum.

Umfjöllun og viðtal: Stjarnan - Breiðablik 112-97 | Stjarnan vann og felldi KR-inga úr Subway-deildinni
KR er fallið úr Subway-deildinni í körfuknattleik eftir 112-97 sigur Stjörnunnar á Breiðabliki í kvöld. KR á þar með engan möguleika á að ná Stjörnumönnum og verða að bíta í það súra epli að spila í næstefstu deild á næsta ári.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Haukar 84-82 | Fjórði sigur Stólanna í röð sem nálgast sætin sem gefa heimavallarétt
Tindastóll vann fjórða leik sinn í röð í Subway-deild karla í körfuknattleik þegar liðið lagði Hauka í æsispennandi leik á Sauðárkróki.

Draymond fór í fýlu inn á vellinum í miðjum NBA-leik
Draymond Green á að vera einn reyndasti leikmaður Golden State Warriors en gerðist sekur um að hafa sér eins og smákrakki í tapleik liðsins á móti Oklahoma City Thunder í NBA-deildinni í körfubolta.

Valdi bestu liðin skipuð uppöldum leikmönnum
Þrjú félög gætu sett saman mjög öflug fimm mannna lið ef þau fengju að kalla til alla sína uppöldu stráka.

Martin snýr aftur í stórleik í kvöld
Körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson spilar í kvöld sinn fyrsta leik fyrir Valencia eftir krossbandsslit.

NBA hetja handtekin vegna skotárásar
Fyrrum NBA-stjarnan Shawn Kemp, sem lék lengst af með Seattle SuperSonics, var handtekinn í gær í tengslum við skotárás í Tacoma í Washington-fylki.

Vilja binda enda á tímabundna lausn sem staðið hefur í níu ár
Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur lagt fram tillögu til breytinga á lögum KKÍ er varða stöðu formanns og framkvæmdastjóra sambandsins. Hannes S. Jónsson er sem stendur bæði framkvæmdastjóri og formaður KKÍ en kosið verður um tillöguna á komandi ársþingi.

Durant rann í upphitun og missti af fyrsta heimaleiknum sínum
Ekkert varð af því að Kevin Durant spilaði fyrsta heimaleikinn sinn með Phoenix Suns í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Keflavík 64-85 | Keflavík styrkti stöðu sína á toppnum með stórsigri
Efstu liðin í Subway-deild kvenna í körfubolta áttust við í Ólafssal í Hafnarfirði þegar Haukar og Keflavík mættust. Keflavík vann verðskuldaðan 21 stiga sigur.

Ja Morant sleppur án ákæru eftir byssumyndbandið
Ja Morant leikmaður Memphis Grizzlies verður ekki ákærður fyrir að hafa borið byssu á næsturklúbbi í Colorado umm síðastliðna helgi. Lögreglan greindi frá þessu í tilkynningu og segist ekki hafa nægar sannanir.

Tap hjá liði Söru Rúnar eftir framlengingu
Sara Rún Hinriksdóttir mátti þola tap með liði sínu Faenza í efstu deild ítalska körfuboltans í kvöld.