Íslenski boltinn

Vestri vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu
Vestri vann í dag sinn fyrsta leik á tímabilinu í Lengjudeild karla er Njarðvík kíkti í heimsókn á Olísvöllinn á Ísafirði. Lokatölur 2-0 sigur Vestra.

Dramatískar lokamínútur er Víkingur tyllti sér aftur á toppinn
Dramatískt sigurmark undir lok leiks sá til þess að Víkingur Reykjavík endurheimti toppsætið í Lengjudeild kvenna í leik gegn Fylki í dag. Leikið var á Wurth-vellinum í Árbænum.

„Ein og hálf fokking mínúta“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, var verulega ósáttur með dómgæsluna í 2-2 jafntefli Breiðabliks og Víkings á Kópavogsvelli í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik 2-2 Víkingur | Hádramatík á Kópavogsvelli
Breiðablik og Víkingur skildu jöfn 2-2 í dramatískum leik á Kópavogsvelli í tíundu umferð Bestu deildar karla. Víkingar komust í tveggja marka forystu og virtust vera að vinna öruggan sigur. Blikar skoruðu hins vegar tvö mörk í uppbótartíma og fögnuðu jafnteflinu vel og innilega.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - Keflavík 4-1 | Fred frábær þegar Fram komst úr fallsæti
Fram hífði sig frá fallsvæði Bestu deildar karla í fótbolta með 4-1 sigri sínum gegn Keflavík í 10. umferð deildarinnar á Framvellinum í Úlfarsárdal í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan 4 -0 KA | Stjarnan lyftir sér úr fallsæti með stórsigri
Stjarnan fór með 4-0 sigur af hólmi er liðið mætti KA í Bestu deild karla í kvöld.

„Þetta verður önnur íþrótt“
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta, segir sína menn klára í slaginn fyrir leik kvöldsins við Víking á Kópavogsvelli. Blikar geta minnkað forskot Víkings á toppi Bestu deildarinnar.

„Þú fyrirgefur að ég fari ekki að ljóstra því upp“
„Ég held það megi færa góð rök fyrir því að þetta sé einn af stórleikjum sumarsins. Það er mikil eftirvænting hjá öllum,“ segir Arnar Gunnlaugsson um leik hans manna í Víkingi við Breiðablik í Bestu deild karla í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld.

Kjóstu besta leikmann maí í Bestu deildinni
Fjórir leikmenn eru tilnefndir sem besti leikmaður maí í Bestu deild kvenna í fótbolta og nú geta lesendur Vísis kosið um hver þeirra skaraði fram úr.

Rúnar Páll: Fannst við rændir þessum sigri
Fylkir gerði 3-3 jafntefli í hádramatískum leik við KR fyrr í kvöld. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, var mjög ósáttur í leikslok.

Hermann: Fengum Kjartan Másson inn í klefa hjá okkur fyrir leik
„Þetta var frábær leikur og ég er hrikalega stoltur af liðinu,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV eftir öruggan sigur á HK í Bestu deildinni í kvöld.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fylkir - KR 3-3 | Jafnt í markaleik í Árbænum
Fylkir og KR skildu jöfn þegar liðin mættust í Bestu deildinni í Árbænum í kvöld. Lokatölur 3-3 í markaleik og hvorugu liðinu tókst því að taka skrefið upp í efri hluta deildarinnar.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - FH 0-2 | Hafnfirðingar gerðu góða ferð norður
FH vann sinn annan sigur í Bestu deild kvenna á tímabilinu þegar liðið vann 2-0 sigur á Þór/KA fyrir norðan í kvöld. FH fer úr fallsæti með sigrinum.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - HK 3-0 | Langþráður sigur Eyjamanna
ÍBV vann öruggan 3-0 sigur á HK þegar liðin mættust í Bestu deild karla á Hásteinsvelli í kvöld. Þetta var fyrsti sigur ÍBV í deildinni síðan í lok apríl.

Einn besti leikmaður kvennaliðs Blika sleit líklega hásin í gær
Það var ekki eintóm gleði hjá Blikakonum í gær þrátt fyrir flottan sigur.

Síðasta frétt Gaupa: Með Birki Má á heimavelli í Eskihlíðinni
Í síðustu frétt sinni fyrir Stöð 2 ræddi Guðjón Guðmundsson, Gaupi, við Valsmanninn Birki Már Sævarsson á heimavelli þeirra beggja í Eskihlíðinni.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Breiðablik 0-3 | Blikar sóttu þrjú stig yfir heiðina
Breiðablik er komið upp í annað sæti Bestu deildar kvenna eftir öruggan 3-0 sigur á Selfossi í kvöld. Selfoss er áfram í fallsæti deildarinnar.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 3-0 | Öruggt hjá Garðbæingum
Stjarnan vann öruggan 3-0 sigur á Keflavík á heimavelli sínum í kvöld þegar liðin mættust í Bestu deild kvenna. Stjarnan er nú komið upp í fjórða sæti deildarinnar.

Umfjöllun og viðtal: Þróttur - Valur 1-2 | Sigur Valskvenna í toppslagnum
Valur vann 2-1 útisigur á Þrótti í Bestu deild kvenna í kvöld. Valur er því áfram í efsta sæti deildarinnar en Þróttur fellur niður í það fimmta.

Umfjöllun: ÍBV - Tindastóll 1-2 | Norðankonur gerðu góða ferð til Eyja
Tindastóll vann í kvöld góðan útisigur á ÍBV þegar liðin mættust í Bestu deild kvenna í Vestmannaeyjum. Lokatölur 2-1 og Tindastóll nú komið upp fyrir ÍBV í töflunni.

Valur getur hefnt strax í kvöld
Það er skammt stórra högga á milli hjá Þrótti og Val en þessi tvö efstu lið Bestu deildar kvenna í fótbolta mætast í annað sinn á skömmum tíma í Laugardalnum í kvöld, þar sem Valskonur hafa harma að hefna.

Besta upphitunin: „Var farin að vera smá stressuð hvað ég ætti að gera um sumarið“
Þróttur og Valur mætast annað kvöld í annað sinn á fimm dögum. Af því tilefni fékk Helena Ólafsdóttir tvo af efnilegustu leikmönnum landsins til sín í Bestu upphitunina.

Kjóstu besta leikmanninn í maí
Sjö leikmenn eru tilnefndir sem leikmaður mánaðarins í Bestu deild karla í fótbolta. Það eru lesendur Vísis sem sjá um að kjósa þann besta.

Tökumaðurinn maður leiksins í Keflavík: „Hann var með alla klútana sína“
Tökumaður Stöðvar 2 Sports á leik Keflavíkur og Breiðabliks fékk sérstakt hrós frá Guðmundi Benediktssyni og félögum í Stúkunni í gær.

Stórleikur í Laugardalnum í Mjólkurbikarnum
Þróttur tekur á móti Breiðabliki í stórleik átta liða úrslita Mjólkurbikars kvenna í fótbolta.

Sjáðu Tryggva Hrafn halda lífi í titilbaráttu Bestu deildarinnar
Valsmenn urðu í gær fyrstir til að vinna Víkinga í Bestu deildinni í sumar og komu í veg fyrir að Fossvogsliðið stingi hreinlega af i deildinni.

„Lögðum upp með að halda hreinu“
Keflavík gerði markalaust jafntefli við Breiðablik í Bestu-deild karla í knattspyrnu fyrr í kvöld. Liðið hefur nú haldið marki sínu hreinu tvo leiki í röð og tekist að klífa upp úr botnsæti deildarinnar.

Arnar Grétarsson: Við setjum þetta aftur upp í mót
Arnari Grétarssyni, þjálfara Vals, var létt í leikslok eftir sigur síns liðs gegn Víkingum. Valsmenn átt erfiða leiki undanfarið og tókst nú að vera fyrsta liðið til þess að stoppa sigurgöngu Víkinga.

Myndband: Klæmint með klúður sem gleymist seint
Klæmint Olsen brenndi af því sem má fullyrða að sé færi aldarinnar þegar Breiðablik gerði markalaust jafntefli við Keflavík í 9. umferð Bestu deildar karla. Færið má sjá neðar í fréttinni.

Umfjöllun: Víkingur - Valur 2-3 | Sigurganga Víkinga á enda
Valur batt enda á sigurgöngu Víkings í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld. Fyrir leikinn höfðu Víkingar unnið níu leiki í röð á meðan Valur var í basli eftir að falla úr leik í Mjólkurbikarnum gegn Lengjudeildarliði Njarðvíkur og gera jafntefli við Keflavík. Það var ekki að sjá í kvöld þar sem Valur kom, sá og sigraði í Víkinni.