
Golf

Johnson tryggði sér sigur eftir bráðabana
Bandaríski kylfingurinn Zach Johnson fagnaði sigri á John Deere meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi í gær. Johnnson hafði betur gegn landa sínum Troy Matteson í bráðabana en þeir voru báðir 20 höggum undir pari að loknum 72 holum.

Enginn yfirburðamaður á Íslandi
Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari í golfi, segir jákvæða þróun vera í íslenska golfinu. Það sé ekki lengur einn yfirburðamaður á landinu og breiddin sé orðin það mikil að menn þurfi að vera á tánum til þess að fá sæti í landsliðinu.

Íslenska golflandsliðið fer ekki á EM
Íslenska landsliðið í golfi náði ekki að tryggja sér þátttökurétt á EM í golfi en forkeppni mótsins lauk á Hvaleyrarvelli í dag.

Golflandsliðið í erfiðum málum
Íslenska karlalandsliðið í golfi er að missa af lestinni í baráttu um laust sæti á EM á næsta ári. Íslenska liðið er tólf höggum frá sæti í mótinu en annar dagur undankeppninnar fór fram í dag.

Ísland í 3.-4. sæti að loknum fyrsta hring
Íslenska karlalandsliðið í golfi hefur lokið leik á fyrsta degi í undankeppni Evrópumóts áhugamanna sem leikin er á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði.

Þúsundkallar í vasa Stefáns og Þórðar
Atvinnukylfingarnir Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson, báðir úr Golfklúbbi Reykjavíkur, hafa lokið keppni á Bayreuth Open mótinu í Þýskalandi. Mótið er hluti af EPD mótaröðinni.

Stefán Már og Þórður Rafn í gegnum niðurskurðinn
Atvinnukylfingarnir Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson, báðir úr Golfklúbbi Reykjavíkur, komust í gegnum niðurskurðinn á Bayreuth Open mótinu í Þýskalandi en mótið er hluti af EPD mótaröðinni.

Choi fagnaði sigri á Opna bandaríska
Choi Na-yeon vann í kvöld sigur á opna bandaríska meistaramótinu í golfi kvenna sem fór fram í Wisconsin-fylki um helgina. Þetta er hennar fyrsti sigur á stórmóti.

Kristján vann í Hvaleyrinni eftir dramatískan bráðabana | Ólafur Björn á -25
Meistaramótum golfklúbba lauk víða í gær. Kristján Þór Einarsson vann hjá GK eftir bráðabana og vallarmet. Úrslit í meistaraflokki karla hjá GR réðust einnig í bráðabana.

Woods féll úr leik
Tiger Woods komst ekki í gegnum niðurskurðinn á móti á PGA-mótaröðinni sem nú stendur yfir í Vestur-Virgínufylki í Bandaríkjunum.

Gott skor á meistaramótunum | Rúnar lék 24 holur 10 höggum undir pari
Meistaramót stærstu golfklúbba landsins standa nú sem hæst og er keppni hálfnuð hjá flestum þeirra. Úrslitin ráðast á laugardaginn þegar lokahringurinn fer fram. Skor kylfinga er mjög gott, og efstu kylfingar eru allir töluvert undir pari, enda hefur veðrið leikið við keppendur það sem af er.

Woods tók fram úr Nicklaus
Tiger Woods sigraði á AT&T mótinu á Congressional-vellinum sem lauk í Los Angeles í gær. Woods komst með sigrinum upp fyrir Jack Nicklaus með næstflesta sigra á PGA-mótaröðinni frá upphafi.

Úlfar búinn að velja golflandsliðið fyrir Evrópumót landsliða
Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari í golfi, hefur valið þá sex kylfinga sem munu leika fyrir Íslands hönd í forkeppni fyrir Evrópumót landsliða sem fram fer á Hvaleyrarvelli 12.-14. júlí næstkomandi.

Íslensku unglingarnir fara vel af stað í Finnlandi
Birgir Björn Magnússon úr Keili er í fimmta sæti í flokki drengja 16 ára og yngri að loknum fyrsta hring á Alþjóðlega finnska meistaramóti unglinga sem fram fer í Vierumäki í Finnlandi.

Tvöfaldur skolli: Afrekskylfingar slógu blint högg í Mosfellsbæ
Logi Bergmann Eiðsson og Þorsteinn Hallgrímsson eru með ýmsar skemmtilega "leiki“ og þrautir í golfþættinum Tvöföldum skolla sem sýndur er á Stöð 2 sport. Þeir fengu þrjá afrekskylfinga til þess að spreyta sig á "blindu“ höggi á fyrstu braut á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ.

Tvöfaldur skolli: Arnar leikari ræðir um Haukadalsvöll við Geysi
Logi Bergmann Eiðsson og Þorsteinn Hallgrímsson ætla að fara víða í sumar í golfþættinum Tvöföldum skolla sem sýndur er á Stöð 2 sport. Þeir félagar fóru í heimsókn á Haukadalsvöllinn við Geysi og þar ræddu þeir við Arnar Jónsson leikara – sem spilar nánast allt sitt golf á þessum magnaða golfvelli.

Haraldur og Signý Íslandsmeistarar
Veðrið lék við kylfinga í Leirdalnum í Kópavogi um helgina þegar Íslandsmótið í holukeppni fór fram. Margar skemmtilegar rimmur fóru fram en Haraldur Franklín Magnús og Signý Arnórsdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar.

Arnar Már fékk gullmerki GSÍ
Arnar Már Ólafsson hlaut í gær gullmerki GSÍ en Jón Ásgeir Eyjólfsson forseti GSÍ sæmdi Arnar Má þann heiður á útskriftarhófi golfkennaraskóla PGA og GSÍ.

Haraldur: Það geta allir unnið alla í holukeppni
Haraldur Franklín Magnús úr Golfklúbbi Reykjavíkur var ánægður með sigurinn á Íslandsmótinu í holukeppni en þetta er í fyrsta sinn sem hann sigrar á þessu móti.

Signý: Atvinnumennskan ekki heillandi
Signý Arnórsdóttir úr Keili fagnaði sínum öðrum Íslandsmeistaratitli í holukeppni á ferlinum í dag með 2/1 sigri gegn Önnu Sólveigu Snorradóttur sem er einnig er úr Keili.

Haraldur Franklín og Signý Íslandsmeistarar í holukeppni
Haraldur Franklín Magnús og Signý Arnórsdóttir eru Íslandsmeistarar í holukeppni árið 2012 en mótinu var að ljúka í Leirdalnum í Kópavogi.

Birgir Leifur og Ingunn fengu brons
Birgir Leifur Hafþórsson tók bronsverðlaunin á Íslandsmótinu í holukeppni. Birgir Leifur hafði betur gegn Rúnari Arnórssyni í bronsleiknum, 2/1.

Hlynur Geir: Fínt að vera með heimsmeistara á pokanum
Hlynur Geir Hjartarson er með heimsmeistara sem aðstoðarmann á Íslandsmótinu í holukeppni og er Hlynur ekki í vafa um að kraftlyftingamaðurinn Benedikt Magnússon hafi haft góð áhrif á sig á undanförnum dögum.

Keiliskonurnar Anna og Signý mætast í úrslitum
Anna Sólveig Snorradóttir úr Keili og Signý Arnórsdóttir úr Keili mætast í úrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fer á Leirdalsvelli, heimavelli GKG. Anna hefur komið gríðarlega á óvart á þessu móti en þetta er í fyrsta sinn sem hún tekur þátt, Signý sigraði á þessu móti árið 2009 og hún lék til úrslita í fyrra en tapaði þeim leik gegn Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur úr

Haraldur Franklín: Hlynur er búinn með bensínið
Haraldur Franklín Magnús úr GR er að leika í fyrsta sinn í úrslitum á Íslandsmótin í holukeppni en hann sigraði Rúnar Arnórsson úr Keili 1/0 í undanúrslitum í morgun á Leirdalsvelli. Haraldur lék gríðarlega vel í morgun og fékk 5 fugla. Hlynur Geir Hjartarson úr Golfklúbbi Selfoss verður mótherji Haraldar í úrslitaleiknum.

Hlynur Geir: Besta golfhögg sumarsins
"Birgir Leifur hefur alltaf rúllað mér upp í holukeppni fram til þessa og einnig í sveitakeppninni þegar við höfum mæst. Þetta er stór áfangi fyrir mig að vinna langbesta kylfing Íslands,“ sagði Hlynur Geir Hjartarson kylfingur úr Golfklúbbi Selfoss eftir að hann lagði Birgi Leif Hafþórsson úr GKG í undanúrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fer á Leirdalsvelli, heimavelli GKG.

Styttist í úrslitaleikina í holukeppninni | Birgir Leifur úr leik
Það verða þeir Hlynur Geir Hjartarson og og Haraldur Franklín Magnús sem leika til úrslita á Íslandsmótinu í holukeppni en undanúrslitin fóru fram í morgun. Í kvennaflokki mætast Anna Sólveig Snorradóttir og Signý Arnórsdóttir í úrslitum.

Birgir Leifur: Ég hafði heppnina með mér
"Þetta er heilmikil törn og mikið álag sem fylgir þessu móti. Ég er ánægður með margt hjá mér, tveir leikir af fjórum hafa fram til þessa verið mjög góðir,“ sagði Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG í dag eftir að hann komst í undanúrslit Íslandsmótsins í holukeppni.

Undanúrslit karla og kvenna | Birgir Leifur og Hlynur Geir mætast
Í kvöld lá fyrir hvaða keppendur mætast í undanúrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fer rjómablíðu í Leirdalnum í Kópavogi.

Íslandsmótið í holukeppni: Aðeins fjórir eftir í karlaflokki
Það er nú ljóst hvaða kylfingar í karlaflokki spila í undanúrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni en átta manna úrslitin fóru fram nú síðdegis.