Innlent
295 296 297 298 299 300 301 302 303 … 334 ›
Eigum kröfu á að íslenska sé notuð þar sem hægt er Stjórnvöld hvetja landsmenn til að tilkynna auglýsingar hér á landi á öðrum tungumálum en íslensku. Fyrrverandi prófessor segir eðlilegt að auglýsa á ensku, svo lengi sem íslenskan sé líka til staðar. Innlent 21.11.2023 23:00
Fær milljónir því stofugólfið var ekki til friðs Héraðsdómur Reykjaness hefur gert verktaka að greiða konu rúmar 2,7 milljónir króna auk málskostnaðar vegna ófullkominnar lagningu hitalagna í stofugólfi í íbúð hennar í fjölbýlishúsi. Innlent 21.11.2023 22:32
Þurfa fleiri daga til að meta ástand leiðslunnar Erlendir sérfræðingar sem hafa neysluvatnslögn til Vestmannaeyja til skoðunar vegna tjóns telja sig þurfa fleiri daga til að meta ástand hennar. Innlent 21.11.2023 21:43
Telur að kvikugangurinn undir Grindavík sé hálfstorknaður Eldfjallafræðingurinn Haraldur Sigurðsson, einn kunnasti jarðvísindamaður Íslendinga, telur að kvikugangurinn undir Grindavík sé við það að storkna og að líkur á eldgosi hafi minnkað. Hann segir að ef hann byggi í Grindavík væri hann farinn heim fyrir jól. Innlent 21.11.2023 21:11
Tómas hafi reynt að myrða Steinþór áður en hann lést Í greinargerð verjanda Steinþórs Einarssonar, sem ákærður hefur verið fyrir að myrða Tómas Waagfjörð á Ólafsfirði í október í fyrra, segir að ótvírætt sé að Tómas hafi fyrst lagt til Steinþórs með stórum hnífi. Innlent 21.11.2023 21:01
Strandaglópar ýmist öskureiðir eða sultuslakir Veður hefur leikið íbúa á suðvesturhorninu og víðar grátt í dag. Ferðamenn hafa ekki heldur farið varhluta af veðrinu, og einhverjir þeirra orðið fyrir því að flugferðum þeirra var frestað eða þær felldar niður. Þeir eru misánægðir með gang mála. Innlent 21.11.2023 20:27
Allra leiða leitað til standa með Grindvíkingum Ráðherrar reikna með að Grindvíkingar fái einhver svör við lána- og húsnæðismálum sínum fyrir helgi. Unnið væri að lausnum til skamms og lengri tíma á mörgum vígstöðvum en Grindvíkingar geti treyst því að stjórnvöld muni standa með þeim á þeim óvissutímum sem nú ríki á Reykjanesi. Innlent 21.11.2023 19:21
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óvíst er hvort hægt verði að gera við um tuttugu hús sem nú eru heitavatns- eða rafmagnslaus í Grindavík vegna bilunar í dreifikerfi. Ráðist var í umfangsmiklar viðgerðir í gær og í dag en ástandið versnar áfram. Innlent 21.11.2023 18:00
Eldfjallafræðingurinn færi heim fyrir jól ef hann byggi í Grindavík Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur telur að kvikugangurinn undir Grindavík sé við það að storkna og líkur á eldgosi hafi minnkað. Hann segir að ef hann byggi í Grindavík væri hann farinn heim fyrir jól. Innlent 21.11.2023 17:47
Fólk þurfi að passa sig í „ruddaloftinu“ „Manni bregður kannski eftir alla þessa blíðu sem er búin að vera hjá okkur,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í samtali við Reykjavík síðdegis. Innlent 21.11.2023 16:38
Sendiherrann fær ekki vakthús á Sólvallagötu Sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi fær ekki að byggja vakthús fremst á lóð sinni við Sólvallagötu 14 í vesturbæ Reykjavíkur. Skipulagsfulltrúi borgarinnar er þó opinn fyrir ýmsum öðrum breytingum á lóðinni. Innlent 21.11.2023 15:41
Framlengd opnun kaffistofunnar ekki góð lausn fyrir heimilislausa Maður sem hefur glímt við heimilisleysi og mótmælt úrræðaleysi fyrir hópinn segir nýja dagdvöl í kaffistofu Samhjálpar ekki lausnina sem heimilislausir þurfa. Það þurfi alvöru dagsetur í sérstakt húsnæði. Innlent 21.11.2023 15:30
Vélinni líklega flogið heim frá Indlandi á næstu vikum Afturhluti vélar Icelandair straukst við flugbraut í lendingu á Lal Bahadur Shastri flugvellinum á Indlandi fyrr í mánuðinum. Gert er ráð fyrir því að hægt verði að fljúga vélinni aftur heim fljótlega. Flugvirkjar voru með í fluginu sem hófu strax vinnu við að meta tjónið. Innlent 21.11.2023 14:30
Vont veður gæti gert staðfestingu á eldgosi erfiða Erfiðar veðuraðstæður verða til þess að vöktun á Reykjanesskaganum með jarðhræringum og mögulegu eldgosi skerðist. Meðal annars sér þoka og dimm él til þess að erfiðara væri að fá sjónræna staðfestingu á gosi með myndavélum. Innlent 21.11.2023 13:58
Gætum nýtt raforku átta prósent betur Nýta má raforku á Íslandi betur en nú er gert. Alls eru tækifæri til bættrar orkunýtni um 1.500 gígavattstundir á ári, eða sem nemur um átta prósent af núverandi raforkunotkun þjóðarinnar. Innlent 21.11.2023 13:46
Fjölda flugferða aflýst eða flýtt Miklum fjölda flugferða sem var á áætlun til og frá Keflavíkurflugvelli í dag hefur verið aflýst vegna veðurs. Innlent 21.11.2023 13:27
Gunnar Bragi ráðgjafi Miðflokksins en ekki kominn aftur í pólitík Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, hefur verið skráður sem starfsmaður þingflokks Miðflokksins. Innlent 21.11.2023 13:17
Nokkur fjöldi án hitaveitu Nokkur fjöldi húsa í Grindavík eru enn án hitaveitu en unnið er að lagfæringum á dreifikerfinu. Þá er unnið að því að koma upp varavatnsbóli sem getur nýst íbúum og fyrirtækjum á Reykjanesi komi til eldgoss við Svartsengi. Innlent 21.11.2023 13:06
Bein útsending: Engin orkusóun Landsvirkjun, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Orkustofnun hafa látið vinna ítarlega skýrslu um orkunýtni á Íslandi. Niðurstöður könnunarinnar verða kynntar í beinu streymi. Innlent 21.11.2023 13:00
Tilkynntar nauðganir ekki færri í þrettán ár Umtalsverð fækkun hefur verið á tilkynningum um kynferðisbrot til lögreglu. Ekki hafa færri nauðganir verið tilkynntar á síðustu þrettán árum. Verkefnastjóri hjá lögreglunni segir tölurnar líkjast því sem sást í Covid-faraldrinum. Innlent 21.11.2023 13:00
Flutti 140 pakkningar af dópi til landsins innvortis Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann á fertugsaldri í sautján mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla 800 grömmum af kókaíni og hálfu kílói af hassi til landsins. Innlent 21.11.2023 12:52
Hvað vilja Grindvíkingar? Innviðaráðherra segir stóran lið í lausn á húsnæðisvanda Grindvíkinga að átta sig á því hvað Grindvíkingar vilji. Þar hjálpi náttúran og óvissan hennar vegna ekki til. Ríkið ráði vel við þann kostnað sem fylgi slíku verkefni. Innlent 21.11.2023 12:29
Niðurfellingar skulda og vaxta séu í skoðun Forsvarsmenn stóru viðskiptabankanna þriggja líta svo á að þau úrræði sem þeir hafi þegar boðið Grindvíkingum séu aðeins byrjunin; frekari aðgerða sé að vænta, að sögn formanns efnahags- og viðskiptanefndar sem fundaði með bankastjórum í morgun. Frekari niðurfellingar skulda og vaxta séu í skoðun. Innlent 21.11.2023 11:47
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar fjöllum við áfram um ástandið í Grindavík. Innlent 21.11.2023 11:38
Ákærður fyrir að nauðga börnum og greiða þeim fyrir Karlmaður hefur verið ákærður fyrir fjölda kynferðisbrota í garð barna, sem og önnur brot líkt og vændiskaup og vörslu á barnaníðsefni. Öll meint brot mannsins áttu sér stað á þessu ári, og nánast öll í júlímánuði. Innlent 21.11.2023 11:25
Ætla að fylgjast grannt með aðgerðum bankanna Þingmaður Framsóknarflokksins segir Alþingi munu fylgjast vel með aðgerðum bankanna er varða fólk og fyrirtæki í Grindavík. Gripið verði til aðgerða þyki þinginu bankarnir ekki standa sína vakt. Innlent 21.11.2023 11:15
Mega hýsa síðu sem kortleggur gyðinga Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað öllum kröfum samtakanna Anti Defamation League, ADL, um ógildingu ákvörðunar sýslumanns, um að hafna beiðni um lögbann við hýsingu vefsíðu þar sem má finna „kortlagningaráætlun“ yfir gyðinga og lögpersónur tengdar þeim. Innlent 21.11.2023 11:02
Taka upp sjálfvirkt meðalhraðaeftirlit í Dýrafjarðargöngum Sjálfvirkt meðalhraðaeftirlit verður tekið upp í Dýrafjarðargöngum á fimmtudaginn. Markmið eftirlitsins er að auka umferðaröryggi. Innlent 21.11.2023 11:00
Boða til samstöðufundar fyrir Grindvíkinga við Landsbankann Verkalýðsfélag Grindavíkur og VR boða til samstöðufundar við nýjar höfuðstöðvar Landsbankans á fimmtudag. Krafa er um að bankar komi betur til móts við Grindvíkinga sem eru í erfiðri stöðu og þurfi að finna sér nýtt húsnæði með tilheyrandi kostnaði. Innlent 21.11.2023 10:50
Troðfullt á bráðamóttöku Á bráðamóttökunni í Fossvogi er þessa stundina mikið álag og margir sem bíða eftir þjónustu. Það er því rík ástæða fyrir fólk sem er ekki í bráðri hættu að hringja fyrst í 1700 eða leita upplýsinga á netspjalli Heilsuveru áður en leitað er þangað. Innlent 21.11.2023 10:16