Innlent

Dagbjört eyddi færslu eftir hörð viðbrögð
Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, birti í dag færslu á Facebook þar sem hún tjáði sig um mál Yazan Tamimi og að félags- og vinnumarkaðsráðherra hafi hringt í ríkislögreglustjóra í tengslum við málið. Hún eyddi færslunni nokkrum klukkutímum eftir birtingu þegar hún vakti hörð viðbrögð í athugasemdakerfinu.

Meðalaldur bænda er 66 ár - Tryggja þarf nýliðun
„Það er mikill kraftur í tengslum við allt í kringum íslenskan landbúnað“, segir formaður Bændasamtaka á Íslands á sama tíma og hann leggur áherslu á nýliðun í bændastéttinni en meðal aldur bænda er 66 ár í dag.

Vonast til að ná árangri áður en aðgerðir hefjast
„Auðvitað verðum við vör við umræðu um það að fólk sé uggandi út af aðgerðum en við vissum það nú fyrir fram. Það vill enginn fara í aðgerðir og alla síst þeir sem hafa hagsmuni af því að mæta í skólann sinn.“

Áður farið af sporinu sem dragi alltaf dilk á eftir sér
„Ég er auðvitað ósammála þessari nálgun á málið. Ég held að almenningur allur sé sammála um það að það sé kjarnahlutverk Orkuveitunnar að sjá borgarbúum fyrir vatni og orku. Það er í kringum þá starfsemi sem Orkuveitan er stofnuð. Staðreyndin er sú að í sögulegu samhengi þá hefur félagið áður farið út af sporinu og ráðist í verkefni sem eru ekki í þágu borgarbúa með beinum hætti og þessi verkefni hafa alltaf dregið dilk á eftir sér.“

Óvissa um framtíð ríkisstjórnarinnar og milljarðasamningur í Kína
Framtíð ríkisstjórnarsamstarfsins er ekki ljós, en forystumenn stærstu stjórnarandstöðuflokkanna segjast tilbúnir í kosningar. Þeir útiloka ekki að mynda ríkisstjórn hvor með öðrum, fái þeir til þess umboð kjósenda.

Engin ummerki um ísbirni
Leit að ísbjörnum, sem tilkynnt var um að væru mögulega á ferð í nágrenni Laugarfells, norðaustan við Snæfell í gær, hefur verið hætt.

Útkall vegna bílveltu í uppsveitum Árnessýslu
Björgunarsveitir, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, hafa verið kallaðar út vegna bílveltu í uppsveitum Árnessýslu þar sem einn slasaðist.

Of vandræðalegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að halda áfram
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins gerir ráð fyrir því að Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hafi óskað eftir umboði flokks síns til þess að slíta samstarfi ríkisstjórnarinnar á fundi þingflokksins í Valhöll í gær. Í ljósi yfirlýsinga innan úr VG væri of vandræðalegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að halda áfram samstarfinu.

Karlmaður um sextugt lést í vinnuslysi
Karlmaður um sextugt lést í vinnuslysi í Stykkishólmi í gær. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og hann var úrskurðaður látinn á vettvangi.

Vatnsleki í Skeifunni
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins aðstoðar nú Veitur við að dæla upp vatni sem lekur í Skeifunni í Reykjavík.

Nýtt björgunarskip Landsbjargar formlega afhent
Fjórða björgunarskip sem Slysavarnafélagið Landsbjörg lætur smíða í Finnlandi var í gær afhent formlega.

„Mér fannst mjög eðlilegt að ég myndi hringja í ríkislögreglustjóra“
Félags- og vinnumarkaðsráðherra segist aðeins hafa hringt í ríkislögreglustjóra til þess að afla upplýsinga nóttina sem senda átti Yazan Tamimi og fjölskyldu úr landi. Hann hafi ekki farið fram á að ríkislögreglustjóri stöðvaði brottflutninginn. „Mér fannst mjög eðlilegt að ég myndi hringja í ríkislögreglustjóra,“ segir hann.

Tvö kvenfélög taka á móti karlmönnum
„Valkyrjur milli fjalls og fjöru” er yfirskrift fertugasta landsþings Kvenfélagasambands Íslands, sem fer fram um helgina á Ísafirði. Um 230 konur af öllu landinu taka þátt í þinginu.

Bein útsending: Ávarp Sigmundar Davíðs á flokksráðsfundi
Sjötti flokksráðsfundur Miðflokksins er haldinn í dag, laugardaginn 12. október, að Hótel Selfossi. Ávarp formanns flokksins má sjá hér á Vísi.

Staðan á ríkisstjórninni og félagsmálaráðherra svarar fyrir símtalið
Formaður Framsóknar segir samstarfsflokka hans hafa nokkra sólarhringa til að ákveða sig, svo vinnufriður geti skapast. Farið verður yfir stöðuna á ríkisstjórnarsamstarfinu í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan 12.

Veitir samstarfsflokkunum nokkurra sólarhringa frest
„Ef hinir stjórnarflokkarnir treysta sér ekki til að standa við og vinna að stjórnarsáttmálanum verður það að koma fram á allra næstu sólarhringum,“ segir formaður Framsóknarflokksins.

Lokaleit að ísbjörnum með dróna
Þyrla Landhelgisgæslunnar er ekki tiltæk í leit að ísbjörnum, sem erlendir ferðamenn tilkynntu að væru á slóðum Laugarfells, norðaustan við Snæfell í gær. Lokaleit verður því gerð með dróna í dag.

Ríkisstjórnin á hengiflugi
Formenn stjórnarflokkanna munu að öllum líkindum nota dagana fram að reglulegum ríkisstjórnarfundi á þriðjudag til að ræða óróleikann í stjórnarsamstarfinu. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sagði eftir skyndifund þingflokks Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í gær að afstaða Vinstri grænna til frekari breytinga á útlendingalögum væri „vandamál.“

Slysið í Stykkishólmi alvarlegt
Lögreglan á Vesturlandi hefur alvarlegt slys sem varð í gær til rannsóknar. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang í gær en afturkölluð áður en hún komst á leiðarenda.

Ellefu tímar sárþjáður á bráðamóttöku
Þingmaður Flokks fólksins lýsir þrautagöngu vinar síns og skjólstæðings, sem þurfti að bíða sárþjáður í sjö klukkustundir á bráðamóttöku Landspítalans. Hann segir neyðarástand blasa við í heilbrigðismálum.

Ísland má ekki vera söluvara erlendra glæpagengja
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins vill að allir þeir sem koma að landmærum Íslands til að sækja um hæli verði tafarlaust sendir til baka. Þeir missi jafnframt réttinn til að sækja um vernd á Íslandi. Þá væri ekki hægt að ætlast til að Íslendingar aðlagi sig að menningu og siðum þeirra sem hingað flytja, heldur verði fólk sem vilji búa hér að aðlaga sig að íslensku samfélagi.

Barn ógnaði lögreglumanni með eftirlíkingu af skammbyssu
Sextán ára piltur var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt fyrir að miða skammbyssu að lögreglumanni. Byssan reyndist vera eftirlíking af skammbyssu.

Safnast í kvikuhólfið en ómögulegt að segja hvenær gýs
„Ég les nú í þetta að ef við notum líkingu frá jarðeldunum á Reykjanesi að þá er augljóst, og það má öllum vera augljóst, að það er að safnast meira og meira fyrir í kvikuhólfið en hins vegar hvenær gýs, er ómögulegt að segja. Það er hratt landris sem mun enda með gosi.“

Örfáar raddir nýti sér Kveik sem vopn gegn skátum
„Þetta eru einhverjar örfáar raddir sem virðast nýta sér Kveik sem einhvers konar vopn gagnvart okkur í einhverri óánægju. Þetta er högg sem kom okkur á óvart og við fundum okkur knúin til að svara fyrir það áður en það færi eitthvað lengra. Mér finnst sorglegt ef Kveikur ætlar að gera sér einhver eldsmat úr þessu. Við höfum heyrt að þau séu að leita sérstaklega af einhverjum sem hafi liðið nægilega illa þarna í ferðinni til að tala við. Mér finnst það mjög ósmekklegt að ráðast þannig að ungmennum.“

Vonast til að fleiri fái niðurgreiðslu á sprautunni
Kona sem sprautar sig með þyngdarstjórnunarlyfinu Wegovy vill að lyfið verði niðurgreitt í meira mæli. Hún fær enga niðurgreiðslu og sér fram á að borga rúmlega 300 þúsund á ári fyrir lyfið.

Netverjar keppast við að tjá sig um fundinn
„Eftir mikið haverí verður stærsta fréttin úr Valhöll þennan sólarhringinn hvort MR eða Versló vinnur ræðukeppni.“

Talið að snjór hafi villt um fyrir ferðamönnum
Leit eftir tveimur hvítabjörnum við Laugarfell, norðaustan við Snæfell, sem erlendir ferðamenn tilkynntu um fyrr í dag hefur verið hætt. Lögreglan segir að mögulega hafi ferðamönnunum missýnst. Til að gæta fyllsta öryggis verður leit haldið áfram í birtingu í fyrramálið.

Kornbændur á Suðurlandi bera sig vel
Sunnlenskir kornbændur bera sig vel með uppskeru haustsins þrátt fyrir leiðinlegt vor og sumar. Unnið er að uppskeru á fullu þessa dagana.

Þyrlan kölluð út vegna tilkynningar um hvítabirni
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á sjötta tímanum í dag eftir að lögreglan á Austurlandi óskaði eftir aðstoð til að kanna hvort að tveir hvítabirnir leyndust á hálendinu við Laugarfell, norðaustan við Snæfell.

„Meðvituð um að það eru veikleikar í stjórnarsamstarfinu“
„Við erum auðvitað að leggja okkar mat á stöðu flokksins og okkar mat á stöðu stjórnarsamstarfsins sem að margir segja að standi veikt og við erum meðvituð um að það eru veikleikar í stjórnarsamstarfinu. Okkar verkefni er að auðvitað að ná árangri í okkar málaflokkum fyrir þjóðina. Það er eðlilegt að við ræðum það þegar það er spenna í samstarfinu eins og allir sjá að hafi verið og getur oft gerst í aðdraganda kosninga.“