
Erlent

Kennari í Uvalde segir lögreglumenn „raggeitur“
Lögreglumenn sem biðu í klukkustund áður en þeir létu loks til skarar skríða á meðan byssumaður myrti nítján börn og tvo kennara í bænum Uvalde í Texas eru „raggeitur“, að sögn kennara sem særðist í árásinni. Hann segist aldrei geta fyrirgefið lögreglunni.

Biles á meðal fimleikakvenna sem krefja FBI um milljarð dollara
Hópur fyrrverandi ólympíufimleikakvenna í Bandaríkjunum, þar á meðal gullverðlaunahafinn Simone Biles, ætla að krefja alríkislögreglunar FBI um meira en milljarð dollara í skaðabætur vegna mistaka hennar í máli Larrys Nassar sem misnotaði hundruð fimleikakvenna.

„Hættulegasti maður Noregs“ tekinn höndum
Norska lögreglan hafði hendur í hári Stigs Millehaugen sem hafði verið á flótta í viku. Millehaugen afplánaði fangelsisdóm fyrir tvö morð og honum er lýst sem „hættulegasta manni Noregs“.

Rúmlega tuttugu látnir í lestarslysi í Íran
Að minnsta kosti tuttugu og einn er látinn og tugir til viðbótar slasaðir eftir að farþegalest fór út af sporinu í austanverðu Íran. Viðbragðsaðilar segja að lestin hafi rekist á skurðgröfu og hrokkið út af.

Einn látinn og fleiri slasaðir eftir að bíl var ekið inn í hóp fólks í Berlín
Einn er látinn og minnst tólf aðrir slasaðir eftir að bifreið var ekið inn í hóp gangandi vegfarenda í Berlín í morgun. Samkvæmt lögreglu er óljóst á þessari stundu hvort um hafi verið að ræða viljaverk. Ökumaður grunaður um verknaðinn hefur verið handtekinn og er nú í gæsluvarðhaldi.

Vaktin: Stríðið kosti Rússa 300 hermenn á dag
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir í viðtali við Financial Times að pattstaða í stríðinu við Rússa sé ekki valkostur og að Úkraína verði að hafa sigur á vígvellinum. Hann segir skort á vopnum hamla gagnsókn Úkraínuhers.

Vantraust á ráðherra fellt og sænska stjórnin situr áfram
Dómsmála- og innanríkisráðherra Svíþjóðar stóð af sér vantrauststillögu í sænska þinginu í dag. Magdalena Anderson forsætisráðherra hafði hótað því að ríkisstjórnin segði af sér ef vantrausti yrði lýst á ráðherrann.

Líf sænsku stjórnarinnar í húfi í atkvæðagreiðslu um vantraust
Úrslit atkvæðagreiðslu um vantrauststillögu á hendur dómsmálaráðherra Svíþjóðar sem fer fram í sænska þinginu í dag gætu ráðið örlögum ríkisstjórnar Magdalenu Anderson forsætisráðherra. Útlit er fyrir að ráðherrann standi tillöguna af sér naumlega.

Umhverfisráðherrann skotinn til bana á skrifstofunni af æskufélaga
Ráðherra umhverfis- og auðlindamála í Dóminíska lýðveldinu var skotinn til bana á skrifstofunni sinni af nánum vini sínum í gær.

Flugu í átt að landamærum Norður-Kóreu
Um tuttugu herþotur frá Suður-Kóreu og Bandaríkjunum fóru í morgun á loft og flugu í átt að landamærunum að Norður-Kóreu. Flugferðin átti að sýna Norður-Kóreumönnum glöggt hernaðarmátt sunnanmanna sem njóta liðsinnis Bandaríkjanna.

Hvergi nærri öruggur í embætti
Þrátt fyrir að þingflokkur Íhaldsflokksins hafi fellt vantrauststillögu á hendur Boris Johnson, forsætisráðherra og leiðtoga flokksins, í gær er Johnson hvergi nærri öruggur í embætti sínu að mati margra álitsgjafa BBC.

Vaktin: Segja sex hundruð Úkraínumenn í „pyndingarklefum“ í Kherson
Vassily Nebenzia, sendifulltrúi Rússlands við Sameinuðu þjóðirnar, gekk út af fundi öryggisráðsins í gær þegar forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins sakaði Rússa um að nota matvælabirgðir sem „leyniflaugar“ gegn þróunarríkjum heims.

Felldu vantrauststillögu á hendur Boris Johnson
Þingflokkur Íhaldsflokksins felldi í dag vantrauststillögu á hendur Boris Johnson, forsætisráðherra og leiðtoga flokksins. 148 þingmenn greiddu atkvæði með tillögunni en 211 studdu formanninn, sem samsvarar einungis 59 prósentum þingmanna flokksins.

Enn einn rússneskur herforingi felldur
Roman Kutuzov, rússneskur undirhershöfðingi, er sagður hafa verið felldur í árás á Donbas sem hann fór fyrir frá Donetsk-héraði. Rússneskir ríkismiðlar greina frá falli herforingjans og úkraínski herinn hefur einnig staðfest fall hans.

Telja sig nær því en áður að ná saman um viðbrögð við skotárásum
Þverpólitískur hópur öldungadeildarþingmanna á Bandaríkjaþingi sem vinnur að tillögum til að bregðast við mannskæðum skotárásum síðustu vikna telur sig nú hafa meiri meðbyr en eftir fyrri slíka harmleiki. Hugmyndirnar sem eru til umræðu gagna mun skemur en Joe Biden forseti kallaði eftir á dögunum.

Einn stofnenda Bon Jovi látinn
Alec John Such, upphaflegur bassaleikari og einn stofnenda glysrokksveitarinnar Bon Jovi, er látinn, sjötugur að aldri. Jon Bon Jovi sjálfur segir Such hafa leikið lykilhlutverk í myndun sveitarinnar.

Að minnsta kosti 50 látnir eftir skotárás á kaþólska kirkju
Óttast er að meira en 50 séu látnir eftir skotárás byssumanna á kaþólska kirkju í Suðvestur-Nígeríu á hvítasunnudag. Árásarmennirnir komu keyrandi á mótórhjólum og hófu skothríð á kirkjugesti sem höfðu safnast saman á hvítasunnudag í St. Francis Catholic Church, segir í umfjöllun AP í Nígeríu um málið.

Selenskí að vígstöðvunum á meðan harðir bardagar geisa
Harðir bardagar geisa nú við borgina Severodonetsk í austurhluta Úkraínu. Volodímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti hermenn á austurvígstöðvunum til að stappa í þá stálinu í gær.

Af hverju er gíraffinn með svona langan háls?
Vísindamenn telja sig hafa fundið nýja skýringu á því af hverju gíraffar eru með svona langan háls. Og eins og svo oft í líffræðinni þá er skýringin af kynferðislegum toga.

Íhaldsmenn greiða atkvæði um vantraust á Johnson
Atkvæðagreiðsla um vantrauststillögu á hendur Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, verður haldin innan þingflokks Íhaldsflokks hans í dag eftir að meiri en 15% þingmannanna óskuðu eftir henni.

Lavrov kemst ekki til Serbíu eftir að nágrannaríkin lokuðu lofthelgi sinni
Fyrirhugaðri ferð Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, til Serbíu hefur verið aflýst eftir að nágrannaríki Serbíu bönnuðu flugvél hans að ferðast um lofthelgi sína.

Telja fimmtíu hafa fallið í árás í Hvítasunnumessu
Talið er að meira en fimmtíu hafi fallið í árás á kaþólska kirkju í suðvesturhluta Nígeríu í dag. Árásarmennirnir skutu fólk á færi og sprengdu sprengjur inni í kirkjunni.

Á fimmta tug látnir eftir sprengingu í Bangladess
Minnst 49 eru látnir og hundruðir eru slasaðir eftir mikla sprengingu og eldsvoða á gámasvæði í Bangladess. Talið er að fjöldi látinna muni aukast á næstu sólarhringum.

Ráðgátan um útbreiðslu Covid-19 í Norður-Kóreu
Stjórnvöld í Norður-Kóreu eru sögð hvetja íbúa til þess að sjóða greni og drekka saltvatn til að vinna bug á Covid-veikindum. Lyf eru af skornum skammti í landinu og íbúar óbólusettir, en stjórnvöld hafa hafnað allri aðstoð frá alþjóðaheilbrigðisstofnuninni.

Apabólutilfelli utan Afríku hafa þrefaldast á einni viku
Alls hafa 780 greinst smitaðir af sjúkdómnum apabólu utan Afríku. Fjöldi þeirra hefur tæplega þrefaldast á aðeins einn viku en fyrir einni viku síðan höfðu 257 greinst smitaðir af sjúkdómnum.

Öskugos hafið á Filippseyjum
Öskugos hófst á Filippseyjum í morgun í fjalli suðaustur af Maníla, höfuðborg landsins. Öskuskýið frá fjallinu nær um kílómeter upp í himininn og ösku hefur rignt yfir nærliggjandi bæi.

Pútín hótar Vesturlöndum með nýjum skotmörkum
Vladimir Pútín Rússlandsforesti hótar að Rússir geri árásir á ný skotmörk innan Úkraínu ef Bandaríkin útvega Úkraínu langdrægar eldflaugar, segir í ríkismiðli Rússlands.

Þrír látnir og ellefu særðir eftir skotárás í Fíladelfíu
Þrír eru látnir og að minnsta kosti ellefu særðir eftir skotárás sem átti sér stað skömmu fyrir miðnætti í miðbæ Fíladelfíu-borgar í gærkvöldi.

Rússar beina sjónum sínum að Kænugarði
Einn særðist eftir eldflaugaárás Rússa á Kænugarð í morgun, segir Vitali Klitschko, borgarstjóri höfuðborgarinnar. Þá er hart barist í borginni Sjevjeródonetsk þar sem þúsundir almennra borgara hafa leitað sér skjóls í kjöllurum.

Skrifa undir samning um nýja ratsjárstöð NATO í Færeyjum
Landsstjórn Færeyja og ríkisstjórn Danmerkur hafa náð samkomulagi um uppsetningu nýrrar ratsjárstöðvar NATO á Sornfelli í Færeyjum. Áformað er að utanríkisráðherra Færeyja, Jenis av Rana, og varnarmálaráðherra Danmerkur, Morten Bødskov, undirriti samninginn í Hoyvík næstkomandi fimmtudag í tengslum við fund Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, með leiðtogum Færeyinga og Grænlendinga í Þórshöfn í vikunni.