Erlent

Segja mögulegt að skjóta niður bandaríska gervihnetti
Rússar segjast mögulega geta skotið niður gervihnetti Bandaríkjanna sem notaðir eru til að afla upplýsinga fyrir Úkraínumenn eða hjálpa þeim að öðru leyti.

Marsskjálftamælir nam stóran loftsteinaárekstur
Tvíeyki bandarískra geimkönnunarfara náðu í sameiningu að verða vitni að því þegar stór loftsteinagígur myndaðist á yfirborði Mars í fyrra. Það sem árekturinn leiddi í ljós gætti haft þýðingu fyrir mannaða leiðangra til reikistjörnunnar í framtíðinni.

Samkomulag um að banna nýja jarðefnaeldsneytisbíla í höfn
Evrópusambandið náði samkomulagi um lög sem myndu í reynd banna nýja bensín- og dísilbíla frá og með árinu 2035 í dag. Samkvæmt því þurfa bílaframleiðendur að ná 100% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda innan þrettán ára.

Varað við eldgosi á stærstu eyju Havaí
Yfirvöld á bandarísku Kyrrahafseyjunni Havaí vara íbúa við að Mauna Loa, stærsta virka eldfjall eyjanna, gæti verið við það að gjósa. Jarðskjálftavirkni við tind fjallsins hefur aukist að undanförnu en Mauna Loa gaus síðast fyrir tæpum fjörutíu árum.

Segir Rússa hafa gert þrjátíu drónaárásir á tveimur dögum
Volodomír Selenskí Úkraínuforseti sagði í reglulegu ávarpi sínu í nótt að Rússar hafi gert fleiri en þrjátíu árásir með drónum á Úkraínskar borgir síðustu tvo dagana.

Sleppir loftslagsráðstefnunni og ýtir embættismönnum úr stjórninni
Rishi Sunak, nýr forsætisráðherra Bretlands, ætlar ekki að taka þátt í loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Egyptalandi í næsta mánuði. Tilkynningin kemur í kjölfar þess að hann ýtti bæði forseta ráðstefnunnar og loftslagsráðherranum út úr ríkisstjórninni.

Telja Kínverja hafa sett upp ólöglegar lögreglustöðvar í Hollandi
Utanríkisráðuneytið í Hollandi segist vera að rannsaka það hvort Kínverjar hafi sett upp ólöglegar lögreglustöðvar í Rotterdam og Amsterdam. Hollenskir miðlar hafa fjallað um málið síðustu daga og telja kínverska ríkið bera ábyrgð á stöðvunum.

Segir næsta áratug þann hættulegasta frá seinni heimsstyrjöldinni
Heimsbúar standa frammi fyrir hættulegasta áratug heimsins frá seinni heimsstyrjöldinni. Þetta sagði Vladimír Pútín, forseti Rússlands, í ræðu sem hann flutti í dag þar sem hann sakaði meðal annars Vesturlönd um að bera ábyrgð á innrás hans í Úkraínu og valda usla í heiminum.

Fannst látin í lendingarbúnaði flugvélar
Starfsmenn Lufthansa fundu lík í lendingarbúnaðsrými flugvélar flugfélagsins eftir lendingu í Frankfurt. Flugvélin hafði verið að fljúga frá Teheran, höfuðborg Íran.

Einn látinn og leikmaður Arsenal meðal særðra eftir hnífaárás í verslunarmiðstöð
Pablo Marí, leikmaður Arsenal sem nú er á láni hjá ítalska félaginu Monza, var stunginn þegar maður gekk berserksgang í verslunarmiðstöð á Ítalíu fyrr í kvöld. Leikmaðurinn er ekki talinn alvarlega slasaður, en í það minnsta einn er látinn eftir árásina.

Önnur árás framin á meðan forsetahjónin heiðruðu fórnarlömb
Forsetahjón Íslands eru í opinberri heimsókn í Slóvakíu þessa dagana. Í morgun lögðu þau kerti á minnisvarða um tvö fórnarlömb skotárásar sem framin var fyrir framan skemmtistað hinsegin fólks í landinu á dögunum. Á sama tíma og þau gerðu það bárust fregnir af annarri árás á hinsegin hjón.

Skildu eftir sig skjöl sem varpa ljósi á vandræði Rússa
Þegar hersveitir Rússa hörfuðu með hraði frá austanverðu Kharkív-héraði í Úkraínu í september, skyldu þeir ýmislegt eftir sig. Þar á meðal mikið magn þungavopna eins og skrið- og bryndreka auk stórskotaliðsvopna. Þeir skyldu þó einnig eftir sig mikið magn gagna.

Telja að orkukreppan geti hraðað orkuskiptunum
Hækkandi orkuverð vegna stöðu efnahagsmál og stríðsins í Úkraínu gæti leitt til þess að heimsbyggðin skipti hraðar yfir í endurnýjanlega orkugjafa, að mati Alþjóðaorkumálastofnunarinnar. Hún spáir nú í fyrsta skipti að útlit að losun vegna jarðefnaeldsneytis nái hámarki um miðjan áratuginn.

Herða bann við „hinsegin áróðri“ í Rússlandi
Rússneska þingið samþykkti að herða núgildandi bann við svonefndum „hinsegin áróðri“ þannig að það nái ekki lengur aðeins til barna og ungmenna heldur fólks af öllum aldri. Þannig verður nú hægt að sekta vegna viðburða, kvikmynda eða vefsíða sem eru talnar auglýsa samkynhneigð.

Ye vísað á dyr í höfuðstöðvum Skechers
Tónlistarmanninum og fatahönnuðinum Ye, áður Kanye West, var vísað á dyr þegar hann mætti óboðinn í höfuðstöðvar Skechers í Los Angeles í gær. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu segir að Ye og föruneyti hans hafi verið fylgt út eftir stutt samtal.

Selenskí segir hegðun Rússa brjálæðislega
Volodomír Selenskí Úkraínuforseti sakar rússneska herforingja úr innrásarliðinu um brjálæðislega hegðun þegar kemur að því að reyna að ná bænum Bakhmut á sitt vald.

Kaka á andlit konungs, götulokanir og eignaspjöll
Samtökin Just Stop Oil hafa nú mótmælt 26 daga í röð framleiðslu ríkja á jarðefnaeldsneyti. Meðlimir samtakanna hafa gert ýmislegt til að vekja athygli fólks á málstað sínum.

Óttast dreifingu ebólu í höfuðborg Úganda
Sex börn úr sömu fjölskyldunni í Kampala, höfuðborg Úganda, hafa greinst með ebólu. Yfirvöld óttast að útbreiðslan verði hraðari nú þegar hún hefur náð til þéttbýlli svæða landsins.

Pýtonslanga gleypti konu í Indónesíu
Pýtonslanga gleypti konu á sextugsaldri á eyjunni Súmötru í Indónesíu á sunnudagskvöld. Atvikið átti sér stað á plantekru þar sem konan starfaði.

Nunnur og prestar horfi á klám, sem þó sé verkfæri djöfulsins
Frans páfi, æðsti maður innan kaþólsku kirkjunnar, hefur varað við því að prestar og nunnur horfi á klám á netinu. Hann segir klám vera til þess fallið að veikja prestshjartað, auk þess sem það sé verkfæri djöfulsins.

Fundinn sekur í öllum ákæruliðum eftir skrautleg réttarhöld
Hinn bandaríski Darrell Brooks hefur verið fundinn sekur um sex morð að yfirlögðu ráði, þegar hann ók bifreið sinni inn í jólaskrúðgöngu í Waukesha, úthverfi Milwaukee í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum, í nóvember á síðasta ári. Réttarhöldin yfir honum vöktu mikla athygli, en hann kaus að verja sig án aðstoðar lögmanns.

Sakfelldir fyrir ráðabrugg um að ræna ríkisstjóra
Þrír karlmenn á þrítugs og fimmtungsaldri voru sakfelldir fyrir að leggja á ráðin um að ræna Gretchen Whitmer, ríkisstjóra Michigan. Mennirnir tilheyrðu vopnaðri öfgasveit sem mislíkaði aðgerðir Whitmer til að stemma stigu við kórónuveirufaraldrinum.

Skutu á mótmælendur við leiði Amini
Vitni segja öryggissveitir í Íran hafa skotið á syrgjendur sem komið höfðu saman við gröf Masha Jina Amini í dag. Þar hafði fólk komið saman vegna þess að fjörutíu dagar eru liðnir síðan hún dó í haldi lögreglunnar.

Styrkur metans aldrei aukist eins mikið frá upphafi mælinga
Hlutfall gróðurhúsalofttegundarinnar metans í andrúmslofti jarðar hefur aldrei aukist jafna mikið og í fyrra frá því að mælingar hófust. Styrkur þriggja helstu gróðurhúsalofttegundanna í lofthjúpnum náði methæðum árið 2021.

Útlitið dökknar fyrir demókrata á lokasprettinum
Merkjanleg sveifla í átt að Repúblikanaflokknum er í skoðanakönnunum fyrir þingkosningar í Bandaríkjunum sem fara fram eftir tvær vikur. Demókratar óttast nú að tapa yfirráðum í báðum deildum þingsins.

Skaut tvo til bana en var með sex hundruð skot: „Þetta hefði getað farið mun verr“
Ungur maður sem skaut kennara og fimmtán ára stúlku til bana í St. Luis í Bandaríkjunum í vikunni var vopnaður hálfsjálfvirkum riffli og var með sex hundruð skot. Sjö nemendur særðust eða slösuðust einnig í árásinni áður en lögregluþjónar skutu hinn nítján ára gamla Orlando Harris til bana.

Eitt fyrstu verka Sunaks að hringja til Úkraínuforseta
Rishi Sunak nýr forsætisráðherra Bretlands hét forseta Úkraínu í gær áframhaldandi stuðningi Breta í baráttunni gegn innrás Rússa. Forseti Þýskalands dáðist af hughrekki Úkraínumanna í heimsókn til Kænugarðs í gær og lofaði aukinni hernaðaraðstoð.

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Vegnar vel á víglínunum en þurfa mikla aðstoð
Úkraínumönnum hefur vegnað ágætlega á víglínunum síðustu vikur en árásir Rússa á innviði og borgaraleg skotmörk hafa kostað sitt. Ráðamenn í Úkraínu og Vesturlöndum segja ríkið þurfa mikla fjárhagslega aðstoð á komandi árum.

Telja keisaramörgæsina nú í útrýmingarhættu
Bandarísk stjórnvöld settu keisaramörgæsina á lista yfir dýrategundir sem eru taldar í hættu á útrýmingu í gær. Hnattræn hlýnun og bráðnun hafíss við Suðurskautslandið er talin ógna þessari stærstu mörgæsartegund jarðar.

Stefnir í tveggja og hálfrar gráðu hlýnun á meðan ríki draga lappirnar
Útlit er fyrir að hnattræn hlýnun nái tveimur og hálfri gráðu fyrir lok aldarinnar ef ríki heims auka ekki metnað sinn í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Það er heilli gráðu meira en stefnt er að með Parísarsamkomulaginu til þess að forðast verstu afleiðingar loftslagsbreytinga.