Erlent
200 201 202 203 204 205 206 207 208 … 334 ›
Berjast um mikilvægan skaga við ósa Dniproár Yfirvöld í Úkraínu segjast ætla að reka rússneska hermenn frá mikilvægum skaga vestur af Kherson-borg. Úkraínskir sérsveitarmenn eru þegar sagðir berjast við rússneska hermenn á Kinburn-skaga við ósa Dniproár við Svartahaf. Erlent 23.11.2022 10:28
Segja byssumanninn í Koloradó kynsegin Lögmenn byssumanns sem skaut fimm manns til bana á næturklúbbi samkynhneigðra í Koloradó í Bandaríkjunum fullyrða að hann sé kynsegin. Hán gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir hatursglæp og á að koma fyrir dómara í fyrsta skipti í dag. Erlent 23.11.2022 08:41
Mótmælir formlega niðurstöðum kosninganna Jair Bolsonaro, fráfarandi forseti Brasilíu hefur sent formlega kvörtun til kosningayfirvalda þar í landi þar sem hann mótmælir niðurstöðum forsetakosninganna í október. Þar beið hann naumlega lægri hlut gegn Luiz Inacio „Lula“ da Silva. Erlent 23.11.2022 07:43
Fimmtán særðir eftir sprengjuárás í Jerúsalem Að minnsta kosti fimmtán eru særðir eftir að tvær sprengjuárásir voru gerðar í Jerúsalem í Ísrael í morgun. Erlent 23.11.2022 07:23
Hæstiréttur leggur blessun sína yfir afhendingu skattskýrslna Trump Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur heimilað þingnefnd að fá afhent afrit af skattskýrslum Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Demókratar hafa barist fyrir því í þrjú ár að komast yfir gögnin. Erlent 23.11.2022 06:56
Um tíu látnir eftir skothríð verslunarstjóra Walmart í Virginíu Allt að tíu eru látnir eftir að maður hóf skothríð inni í Walmart-verslun í Virginíu í Bandaríkjunum í nótt. Erlendir fjölmiðlar segja að talið sé að árásarmaðurinn sé verslunarstjóri verslunarinnar. Erlent 23.11.2022 06:49
Eignaðist tvíbura með þrítugum fósturvísum Hjón í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum eignaðust undir lok síðasta mánaðar tvíbura. Þau notuðust við fósturvísa sem höfðu verið frystir í apríl árið 1992. Um er að ræða heimsmet. Erlent 22.11.2022 19:00
Fordæmalaus sýn á andrúmsloft fjarreikistjörnu Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur birt nýjar mynd sem tekin var með James Webb geimsjónaukanum. Um er að ræða litrófsgreiningu af andrúmslofti fjarlægs gasrisa en greiningin hefur varpað ljósi á hvaða efni finna má í andrúmslofti reikistjörnunnar og er það í fyrsta sinn sem geimvísindamenn öðlast svo nákvæm gögn af þessu tagi. Erlent 22.11.2022 17:04
Njósnararnir í Stokkhólmi eru rússnesk hjón á sjötugsaldri Lögregluþjónar og hermenn handtóku í morgun rússnesk hjón í úthverfi Stokkhólms í Svíþjóð. Klukkan sex að staðartíma í morgun var tveimur herþyrlum flogið að heimili hjónanna og út streymdu menn sem handtóku þau en hjónin eru grunuð um njósnir í Svíþjóð og öðru ríki í um tíu ár. Erlent 22.11.2022 15:29
Ein forystukvenna mæðranna á Maítorgi látin Baráttukona sem átti þátt í að stofna samtökin Mæðurnar á Maítorgi sem kröfðust þess að fá að vita um afdrif fólks sem herforingjastjórn Argentínu lét hverfa er látin, 93 ára að aldri. Tveir synir hennar voru á meðal fórnarlamba stjórnarinnar. Erlent 22.11.2022 11:59
Vopnaframleiðendur beðnir um að bretta upp ermarnar Ráðamenn á Vesturlöndum hafa áhyggjur af því hve mikið vestrænir herir hafa þurft að ganga á skotfærabirgðir sínar vegna vopnasendinga til Úkraínu. Vopnaframleiðendur hafa verið beðnir um að bretta upp ermarnar og auka framleiðslu á vopnum og skotfærum og sérstaklega með tilliti til þess að stríðinu í Úkraínu mun líklega ekki ljúka á næstunni. Erlent 22.11.2022 11:27
Fjölmörg skólabörn í hópi látinna í Indónesíu Fjölmörg skólabörn eru í hópi látinna eftir að mikill jarðskjálfti varð á indónesísku eyjunni Jövu í gær. Börnin voru stödd í skólum sem hrundu til grunna þegar skjálftinn reið yfir. Erlent 22.11.2022 11:04
Snjókoma raskar daglegu lífi Svía og Dana Óvenjumikil snjókoma hefur raskað lífi Dana og Svía síðustu daga. Nokkuð hefur nú dregið úr ofankomunni, en snjóveðrið hefur verið að færa sig í norðurátt. Erlent 22.11.2022 10:24
Tveir handteknir fyrir njósnir í Svíþjóð Svíar hafa handtekið tvo grunaða njósnara. Hinir meintu njósnarar voru handteknir í Stokkhólmi en annar þeirra er grunaður um njósnir gegn bæði Svíþjóð og öðru landi. Hinn er grunaður um að aðstoða þann fyrri við hinar meintu njósnir. Erlent 22.11.2022 09:58
Tæklaði árásarmanninn en tapaði tengdasyninum Miðaldra fyrrverandi hermanni hefur verið hampað sem hetju eftir að hann afvopnaði og yfirbugaði árásarmann sem hóf skotárás á hinsegin skemmtistað í Colorado í Bandaríkjunum um helgina. Hann segist hafa farið ósjálfrátt í stríðsham þegar kúlunum byrjaði að rigna. Tengdasonur hermannsins er á meðal þeirra sem lést í árásinni. Erlent 22.11.2022 08:29
Milljónir í hættu á að deyja sökum kulda Milljónir Úkraínumanna eru í hættu á að deyja í vetur sökum kulda, segir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin. Helmingur orkuinnviða landsins er skemmdur eða ónýtur og um 10 milljón manns án rafmagns. Erlent 22.11.2022 08:19
43 ár á valdastóli og með 99 prósent atkvæða Flokkur Teodoro Obiang, forseta Miðbaugs-Gíneu, hefur tryggt sér 99 prósent atkvæða í kosningunum þar í landi. Það stefnir allt í að þaulsetnasti forseti heims sitji áfram á valdastóli. Erlent 22.11.2022 00:00
Fjöldi látinna orðinn 162 Fjöldi látinna eftir jarðskjálftann í Indónesíu er nú orðinn 162. Rúmlega tvö hundruð manns eru slasaðir en þrettán þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Enn er tugi manna saknað. Erlent 21.11.2022 17:41
Surovikin undir þrýstingi eftir undanhald frá Kherson Sergei Surovikin, sem stýrir innrás Rússa í Úkraínu, er undir þrýstingi um að ná árangri eftir að hafa hvatt til þess að rússneski herinn hörfaði frá vesturbakka Dniproár og Kherson-borg. Herforinginn þarf að geta sýnt fram á að ákvörðunin hafi verið rétt og geti skilað Rússum árangri annarsstaðar í Úkraínu. Erlent 21.11.2022 17:05
Uppgjöf varð að blóðbaði Ráðamenn í Rússlandi hafa á undanförnum dögum sakað úkraínska hermenn um stríðsglæp í austurhluta Úkraínu þar sem minnst ellefu rússneskir hermenn voru skotnir til bana. Hermennirnir voru umkringdir og að gefast upp þegar þeir voru skotnir af stuttu færi, eftir að einn þeirra skaut á úkraínsku hermennina. Erlent 21.11.2022 13:46
Stjarna að fæðast í stundaglasi Frumstjarna í hjarta stundaglasslaga gasskýs sem James Webb-geimsjónaukinn náði nýlega mynd af er sögð veita innsýn í hvernig sólin og sólkerfið okkar leit út í frumbernsku sinni. Hún er talin á fyrsta stigi í myndunarferli sínu. Erlent 21.11.2022 13:00
Kínverjar minnka losun en toppnum enn ekki náð Losun gróðurhúsalofttegunda í Kína hefur dregist saman frá því í fyrra en ekki er útlit fyrir að hún hafi enn náð hámarki sínu. Niðurstaða nýrrar rannsóknar er að núverandi stefna kommúnistastjórnarinnar samræmist ekki að fullu loftslagsmarkmiðum hennar. Erlent 21.11.2022 12:13
Bein útsending: Flogið upp að tunglinu Orion-geimfarið sem sent var til tunglsins í fyrsta geimskoti Artemis-áætlunarinnar stefnir nú hraðbyr að tunglinu. Þyngdarkraftur tunglsins verður notaður í dag til að koma því á háa sporbraut en myndefni frá geimfarinu er streymt til jarðarinnar. Erlent 21.11.2022 10:52
Mannskæður skjálfti í Indónesíu Minnst 46 eru sagðir hafa dáið og minnst sjö hundruð eru slasaðir eftir að sterkur skjálfti skók eyjuna Jövu í Indónesíu í morgun. Tugir bygginga munu hafa skemmst í skjálftanum og íbúar Jakarta, höfuðborgar Indónesíu flúðu út á götu í massavís. Erlent 21.11.2022 09:54
Mismunun að fá ekki að kjósa fyrr en átján ára Hæstiréttur Nýja-Sjálands hefur úrskurðað að það feli í sér mismunun að fá fyrst að kjósa þegar maður er orðinn átján ára. Erlent 21.11.2022 07:38
Íranskar kvikmyndastjörnur fangelsaðar Tvær Íranskar kvikmyndaleikkonur hafa verið handteknar í heimalandi sínu sakaðar um undirróðurstarfsemi gegn íranska ríkinu og fyrir að styðja við mótmælaölduna sem riðið hefur yfir landið síðustu mánuði. Erlent 21.11.2022 07:30
Selenskí segir Rússa hafa gert 400 árásir í austurhluta landsins í gær Vólódímir Selenskí Úkraínuforseti sagði í daglegu ávarpi sínu í gærkvöldi að Rússar hefðu gert 400 loftárásir á skotmörk í austurhluta landsins frá því um morguninn. Harðast væri barist í Donetsk en Úkraínumenn væru að sækja fram í Luhansk. Erlent 21.11.2022 07:30
Veikari texti en fyrir ári séu vonbrigði Ráðherra sem fór fyrir Íslands hönd á COP27-loftslagsráðstefnuna fagnar því að sögulegur samningur um loftslagshamfarasjóð hafi náðst á ráðstefnunni, einkum í ljósi þess að á tímabili hafi verið tvísýnt hvort samningur næðist yfir höfuð. Það séu þó vonbrigði að ekki hafi tekist að herða á orðalagi í samkomulagi ríkja heims um að draga úr losun. Erlent 20.11.2022 22:18
Tyrkir hefna fyrir hryðjuverkaárás með loftárásum Tyrkir hafa hafið banvænar loftárásir yfir borgir í sjálfstjórnarhéröðum Kúrda í norðurhluta Sýrlands og Írak. Tyrkir segja árásunum beint er að hersveitum Kúrda sem þeir segja að beri ábyrgð á hryðjuverkaárás sem gerð varí Istanbúl, stærstu borgar Tyrklands, í síðustu viku. Erlent 20.11.2022 20:25
Börn látin eftir íkveikju í Nottingham Morðrannsókn er hafin eftir að tvö börn létust bruna í Nottingham í Bretlandi, sem talinn er hafa verið kveiktur af ásetningi. Erlent 20.11.2022 18:28