Formúla 1

Telur að um sé að ræða nýtt upphaf í baráttunni gegn kynþáttafordómum
Í gær var Derek Chauvin, lögreglumaðurinn sem myrti George Floyd, fundinn sekur í öllum þremur ákæruliðum. Sir Lewis Hamilton, heimsmeistari í Formúlu 1, telur að dómarinn sé nýtt upphafi í baráttunni gegn kynþáttafordómum.

Sló til Bottas eftir árekstur á Imola
George Russell, ökumaður Williams, virtist slá til Valtteri Bottas á Mercedes eftir árekstur þeirra í ítalska kappakstrinum í gær.

Verstappen sigraði Emilia Romagna kappaksturinn
Mikil rigning í upphafi keppninnar setti sinn svip á keppnina í dag, en Lewis Hamilton, sem var á ráspól, þurfti að klóra sig aftur upp í annað sætið eftir sjaldgæf mistök.

Formúla 1 mætir til Miami
Formúla 1 verður haldin í fyrsta sinn í Miami í Flórída á næsta ári. Borgin og Formúla 1 gerðu tíu ára samning um keppni í borginni.

Sonur Schumachers 95 prósent ánægður með fyrsta kappaksturinn í Formúlu 1
Mick Schumacher, sonur goðsagnarinnar Michaels Schumacher, þreytti frumraun sína í Formúlu 1 í gær. Hann var að mestu ánægður með hvernig hún gekk.

Ný skýrsla um árekstur Romain Grosjean bendir á yfir 20 hluti sem mætti laga
Romain Grosjean lennti í hörðum árekstri í Formúlu 1 sem haldin var í Barein 29. nóvember síðastliðinn. Í nýrri skýrslu kemur fram að líkami Grosjean hafi þurft að þola 67 G ásamt því að sitja lengi í alelda bílnum.

Lewis Hamilton segir aðalmarkmið sitt á árinu vera að berjast fyrir jafnrétti
Lewis Hamilton, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, skrifaði undir eins árs framlengingu á samningi sínum við Mercedes Benz nýverið. Hann er þó með fleiri markmið á árinu en að verða heimsmeistari í áttunda sinn.

„Ég var nánast ekkja í tvær mínútur og 43 sekúndur“
Þann 29. nóvember 2020 lenti ökuþórinn Romain Grosjean í ansi alvarlegum árekstri sem endaði með því að bíll hans varð alelda. Heima sat kona hans með börnum þeirra og tengdaforeldrum og fylgdist með.

Formúlustjarnan lenti í hjólreiðaslysi í Ölpunum
Fernando Alonso ætlaði að snúa aftur í formúlu eitt í mars eftir tveggja ára fjarveru en gæti nú misst af byrjun formúlu eitt tímabilsins eftir að hafa lent í óhappi í Ölpunum.

Lewis Hamilton heiðraður á nýju ári
Lewis Hamilton, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, verður Sir Lewis Hamilton á nýju ári.

Verstappen vann síðustu keppni ársins
Hollenski ökuþórinn Max Verstappen vann síðustu Formúlu 1 keppni ársins. Heimsmeistarinn Lewis Hamilton sneri aftur eftir að hafa greinst með kórónuveiruna og endaði í 3. sæti.

Lewis Hamilton verður með um helgina
Heimsmeistarinn í Formúlu 1 snýr aftur fyrir kappakstur helgarinnar eftir að hafa greinst með kórónuveiruna og misst af síðasta kappakstri sem fram fór í Barein.

Schumacher keppir fyrir Haas á næstu leiktíð
Mick Schumacher, sonur þýsku goðsagnarinnar Michael Schumacher, hefur skrifað undir hjá Haas og mun keppa með liðinu í Formúlu 1 á næsta keppnistímabili.

Lewis Hamilton með COVID-19 og missir af næsta kappakstri
Nýkrýndur heimsmeistari í formúlu eitt verður fjarri góðu gamni í Barein kappakstrinum um næstu helgi.

Ber sig vel eftir hálfa mínútu í skíðlogandi bíl
Romain Grosjean sat í hálfa mínútu í brennandi Formúlu 1 bíl sínum en ber sig vel eftir slysið ógvænlega í Barein um helgina.

Slapp ómeiddur úr rosalegum árekstri í Formúlu 1
Formúlu 1 kappaksturinn í Bahrain fór ekki beint vel af stað en kviknaði í bíl Romain Grosjean strax á fyrsta hring er hann reyndi að koma sér í ákjósanlega stöðu.

Lewis Hamilton verður Sir Lewis Hamilton
Heimsmeistarinn í Formúlu 1, Lewis Hamilton, verður sæmdur riddaratign.

Hamilton heimsmeistari í sjöunda skipti | Jafnar met Schumacher | Myndband
Lewis Hamilton varð í dag heimsmeistari í Formúlu 1 í sjöunda skipti á ferlinum. Jafnar hann aþr með met goðsagnarinnar Michael Schumacher.

Hamilton segir ekkert öruggt með framtíð sína
Lewis Hamilton, einn besti ökumaður Formúlu 1 frá upphafi,hefur gefið til kynna að hann gæti hætt keppni er þessu keppnistímabili lýkur.

Enn einn sigur Hamilton kom á Ítalíu
Lewis Hamilton, ríkjandi heimsmeistari, vann enn einn sigurinn í formúlunni en hann kom fyrstur í mark á Ítalíu er kappaksturinn fór þar fram um helgina.

Schumacher yngri heiðraði Hamilton | Myndband
Lewis Hamilton, ökumaður Mercedes í Formúlu 1 kappakstrinum, jafnaði í dag met goðsagnarinnar Michael Schumacher er hann vann sinn 91. kappakstur í Formúlu 1.

Hamilton jafnaði met Schumacher
Lewis Hamilton jafnaði í dag met Michael Schumacher yfir flesta sigra í Formúlu 1.

Schumacher þreytir frumraun sína á næstu vikum
Mick Schumacher – sonur Michael Schumacher – mun þreyta frumraun sína í Formúlu 1 kappakstrinum í næsta mánuði.

Nýr samningur mun brúa bilið milli liða í Formúlu 1
Öll tíu liðin sem keppa í Formúlu 1 hafa skrifað undir samning sem mun brúa bilið milli liðanna.

Hamilton nálgast með Schumacher eftir enn einn sigurinn
Lewis Hamilton sýndi og sannaði yfirburði sína í Formúlu 1 í dag en hann landaði sínum fjórða sigri á tímabilinu en aðeins hefur verið keppt sex sinnum til þessa.

Hamilton marði sigur á sprungnu dekki | Myndband
Lewis Hamilton kom fyrstur í mark í Formúlu 1 kappakstri helgarinnar sem fór á Silverstone-brautinni í Englandi. Kom Hamilton í mark á sprungnu dekki.

Fyrsti Formúlu 1-ökuþórinn greinist með veiruna
Sergio Pérez getur ekki keppt í breska kappakstrinum um helgina eftir að hann greindist með kórónuveiruna. Nico Hülkenberg hleypur í skarðið fyrir Mexíkóann.

Hamilton um baráttu Formúlu 1 gegn rasisma: „Þetta er vandræðalegt“
Formúlu 1 stjarnan, Lewis Hamilton, er allt annað en sáttur með mörg lið innan formúlunnar sem og formúlusambandið. Hann er ekki sáttur með framgöngu þeirra í baráttunni gegn rasisma.

Hamilton nálgast met Schumacher eftir sigur dagsins
Eftir sigur í Formúlu 1 kappakstri dagsins er Bretinn Lewis Hamilton aðeins sex sigrum frá því að jafna met goðsagnarinnar Michael Schumacher.

Alonso snýr aftur í Formúlu 1 á næsta ári
Tvöfaldi heimsmeistarinn Fernando Alonso hyggur á endurkomu í Formúlu 1 á næsta ári.