Formúla 1

Button hefur ekki áhyggjur af stigastöðunni
Jenson Button, heimsmeistarainn í Formúlu 1 hefur ekki áhyggjur af því þó hann sé búinn að missa af forystunni í heimsmeistaraamótinu í Formúlu 1. Hann var kominn með forystu eftir tvo sigra, en Mark Webber hefur tekið við því hlutverki að leiða meistaramótið ásamt Sebastian Vettel.

Fyrrum meistarar spá Webber titlinum
Ástralarnir Jack Brabham og Alan Jones, báðir fyrrum meistarar spáir landa sínum Mark Webber meistaratitilinum í Formúlu 1 ár árinu, eftir tvo sigra hans í röð. Webber vann í Mónakó um helgina og á Spáni vikuna á undan.

Mercedes hættti við Schumacher áfrýjun
Mercedes liðið hefur dregið tilbaka áætlun sína að áfrýja ákvörðun dómara í Mónakó kappakstrinum, þar sem Michael Schumacher var færður úr sjöttta sæti í það tólfta.

Renault vill halda Kubica frá Ferrari
Formúlu 1 lið Renault vill ekki missa Robert Kubica frá sér, en Ferrari virðist hafa áhuga á að bjóða Kubica starf á næsta ári við hlið Fernando Alonso. Hann tæki þá sæti Felipe Massa, samkvæmt frétt a autosport.com.

Alonso: Verðum að vinna mót
Spánverjinn Fernando Alonso klúðraði gullnu tækifæri á góðum árangri á götum Mónakó um helgina, þegar hann keyrði á vegg á lokaæfingu fyrir tímatökuna. Hann gat ekki tekið þátt í tímatökunni og ræsti í 24 sæti af stað og vann sig upp í sjötta sæti.

Renault á möguleika á sigri
Eric Bouiller hjá Renault telur að lið hans sé farið að standa nærri Ferrari og framar Mercedes eftir góða frammistöðu Robert Kubica í mótinu í Mónakó í gær.

Red Bull vill halda í blómstrandi Webber
Mark Webber hefur trúlega innsiglað framtíð sína með Red Bull liðinu austurríska eftir tvo sigra í röð, en hann er efstur í stigamóti ökumanna ásamt Sebastian Vettel.

Webber. Einn besti dagur lífs míns
Mark Webber hjá Red Bull var að vonum kampakátur með fyrsta sigur sinn í Formúlu 1 í dag í Mónakó.

Schumacher dæmdur brotlegur, Mercedes áfrýjar
Dómarar Formúlu 1 mótsins í Mónakó dæmdu Michael Schumacher á Merceedes brotlegan í brautinni eftir keppnina, en hann fór framúr Fernando Alonso í síðustu beygjunni, eftir endurræsingu í blálokin. Dómara telja að Schumacher hafi brotið keppnisreglur og Alonso kvaðst vera með það á hreinu líka.

Annar sigur Webbers í röð
Ástralinn Mark Webber vann góðan og öruggan sigur í Formúlu 1 mótinu í Mónakó í dag á Red Bull. Hann kom á undan liðsfélaga sínum Sebastian Vettel, en Webber vann á Spáni um síðustu helgi.

Mark Webber vann í Mónakó
Mark Webber sýndi frábæran akstur og vann kappaksturinn í Mónakó sem var að ljúka. Hann hóf keppni á ráspól og vann öruggan sigur.

Webber: Frábært að vera fremstur
Mark Webber var að vonum anægður að hafa náð besta tíma í tímatökunni í Mónakó í dag. Hann ræsir af stað við hlið Robert Kubica sem var fremur hissa á að ná öðru sætinu.

Webber fremstur á ráslínu í Mónakó
Ástralinn Mark Webber á Red Bull náði besta tíma í tímatökum fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Mónakó, sem fram fer á morgun. Webber varð á undan Robert Kubica frá Póllandi, en þriðji varð Sebastian Vettel á Red Bull.

Alonso missir af tímatökunni vegna óhapps
Spánverjinn Fernando Alonso keppir ekki um besta tíma í tímatökunni í Mónakó í hádeginu þar sem honum hlekktist á þegar hann ók á æfingunni í morgun og Ferrari liðinu tekst ekki að gera við bílinn í tæka tíð.

Kubica fljótastur á lokaæfingunni
Pólverjinn Robert Kubica var sneggstur allra á lokaæfingu keppnisliða í Mónakó í morgun á Renault. Hann varð aðeins 0.046 sekúndum á undan Felipe Massa á Ferrari, en Mark Webber á Red Bull varð þriðji.

Alonso: Þurfum að vera klókir í tímatökum
Spánverjinn Fernando Alonso hjá Ferrari náði besta tíma í b´ðaum æfingum á fimmtudag fyrir Mónakó kappaksturinn um helgina.

Kubica: Fullur sjálfstrausts eftir æfingar
Pólverjinn Robert Kubica á Renault ók vel á æfingu Formúlu 1 keppnisliða í Mónakó í gæt og gæti komið stórliðum McLaren, Ferrari og Mercedes í opna skjöldu í tímatökunni þegar 24 bílar þeysa brautina í kappa við klukkuna á morgun.

Schumacher og Rosberg bjartsýnir
Nico Rosberg og Michael Schumacher hjá Mercedes báru sig vel eftir æfingar keppnisliða á brautinni í Mónakó í dag. Rosberg náð næst besta tíma og Schumacher varð var með fimmta besta tíma dagsins í dag, aðeins 0.239 sekúndum frá tíma Fernando Alonso hjá Ferrari sem var fljótastur.

Alonso lætur ekki að sér hæða
Spánverjinn Fernando Alonso kann vel við sig á götum furstadæmisins í Mónakó. Hann náði aftur besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða í dag, en Nico Rosberg á Mercedes varð í öðru sæti á Mercedes. Sebastian Vettel á Red Bull náði þriðja sæti á undan Felipe Massa á Ferrari. Undir lok æfingarinnar fór að kræla á regndropum, en það háði ökumönnum lítið.

Brotabrot á milli fyrstu manna í Mónakó
Aðeins 0.089 sekúndur skildu að fyrsta og þriðja ökumanna á fyrstu æfingu keppnisliða fyrir kappaksturinn í Mónakó, sem verður á sunnudaginn. Ökumenn æfðu í dag, en það er hefð í Mónakó að keyra á fimmtudegi, en svo er frí á föstudeginum, en tímatakan á laugardag og kappaksturinn á sunnudag.

Button: Tímatakan í Mónakó verður erfið
Forystumaður stigamótsins í Formúlu 1, Jenson Button hjá McLaren telur að tímatakan í Mónakó verði mjög erfið, sérlega fyrsta umferðin þar sem 24 keppendur munu aka í brautinni á sama 20 mínútna kafla.

Mercedes afskrifar ekki titilsókn
Nick Fry hjá Mercedes segir alltof snemmt af afskrifa titilsókn, þó liðið hafi ekki unnið neitt af fimm fyrstu mótunum. Liðið er í fjórða sæti í stigamótinu, en fyrir síðustu keppni var Nico Rosberg í öðru sæti í stigakeppni ökumanna, en er nú fallin í það fimmta og er 20 stigum á eftir Jenson Button.

McLaren vill sextánda sigurinn í Mónakó
Martin Whitmarsh hjá McLaren segir að lið sitt stefni á sigur í Mónakó, en Lewis Hamilton var í öðru sæti í síðustu keppni þegar felga brotnaði og hvellsprakk hjá honum í næst síðasta hring. Þetta kom á daginn í dag eftir rannsókn í tæknimiðstöð McLaren. McLaren hefur unnið 15 sinnum á götum Mónakó og þekkir því hvað til þarf.

Massa ekki sáttur við frammistöðuna
Felipe Massa hjá Ferrari var ekki ánægður með eigin frammistöðu í Formúlu 1 mótinu í Barcelona um helgina. Fernando Alonso stóð sig betur og varð annar, en Massa sjötti og var aldrei með í toppslagnum.

Schumacher búinn að finna neistann
Nick Fry hjá Mercedes segir að Michael Schumacher sé búinn að finna neistann aftur í Formúlu 1, eftir að hann var hálf ráðvilltur eftir Kína kappaksturinn þar sem honum gekk miður vel. Schumacher fékk endurbættan og lengri bíl í hendurnar um helgina á Spáni og náði fjórða sæti.

Óhapp Hamiltons í skoðun hjá McLaren
Lewis Hamilton var óheppinn í spænska kappakstrinum í gær þegar virtist hvellspringa, eða felga brotna á fullri ferð þegar hann var í næst síðasta hring. Í sjónvarpsútsendingu sást eitthvað spýtast upp frá vinstra framhjólinu og skömmu síðar varð dekkið vindlaust og Hamilton sveif útaf

Webber: Sigur liðsheildar Red Bull
Mark Webber var kampakátur á blaðamannafundi með sigurinn á Barcelona brautinni í dag, en hann varð á undan Fernando Alonso hjá Ferrari og liðsfélaganum Sebastian Vettel.

Webber vann, en dramatík hjá Hamilton
Ástralinn Mark Webber á Red Bull vann fimmta Formúlu 1 kappakstur ársins, sem fór fram á Barcelona brautinni á Spáni í dag. Hann leiddi mótið frá upphafi til enda, en Lewis Hamilton á McLaren féll úr leik þegar hvellsprakk á bíl hans í næst síðasta hring.

Alonso: Red Bull líklegt til sigurs
Heimamaðurinn Fernando Alonso hjá Ferrari telur ekki líklegt að keppinautar Red Bull eigi stóran sjéns í liðið á heimabraut Spánverjans. Mark Webber og Sebastian Vettel náðu afburðartímum í tímatökunni.

Webber: Svefnleysi skilaði árangri
Lítil svefna aðstoðarmanna Mark Webber varð til þessa að hann náði besta tíma í tímatökum í Barcelona í dag. Webber sagði sína menn hafa unnið mikið í bílum hans og Sebastian Vettel tvær síðustu nætur og það hafi skilað árangri.