Formúla 1

Verstappen kom fyrstur í mark og bætti metið
Tvöfaldi heimsmeistarinn Max Verstappen fagnaði sigri í ítalska kappakstrinum í Formúlu 1 í dag þegar hann kom fyrstur í mark á Monza. Hann hefur nú unnið tíu keppnir í röð, fleiri en nokkur annar í sögu Formúlu 1.

Sainz á ráspól í ítalska kappakstrinum
Carlos Sainz, ökumaður Ferrari, verður á ráspól þegar ljósin slökkna og farið verður af stað í ítalska kappakstrinum í Formúlu 1 á morgun. Tvöfaldi heimsmeistarinn Max Verstappen ræsir annar.

Hamilton hjá Mercedes út árið 2025
Sjöfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Lewis Hamilton hefur skrifað undir nýjan samning við Mercedes út tímabilið 2025.

Alonso segir fólk vanmeta afrek Verstappens
Tvöfaldi heimsmeistarinn Max Verstappen jafnaði í gær met Þjóðverjans Sebastians Vettel er hann vann sinn níunda kappakstur í röð í Formúlu 1 í gær. Hinn margreyndi Fernando Alonso segir fólk vanmeta afrek og yfirburði Hollendingsins undanfarna mánuði.

Samantekt frá Formúlu 1 keppninni í Hollandi
Max Verstappen fór með sigur af hólmi í Formúlu 1 keppni helgarinnar sem fram fór í Hollandi. Með sigrinum sló hann met Sebastian Vettel yfir flesta sigra í röð.

Max Verstappen með níunda sigurinn í röð og jafnaði met Sebastian Vettel
Ekkert lát er á yfirburðum Max Verstappen í Formúlu 1 þetta árið en hann vann sinn 9. sigur í röð þegar hann kom fyrstur í mark á Zandvoort brautinni í Hollandi. Með sigrinum jafnaði hann met Þjóðverjans Sebastian Vettel yfir flesta sigra í röð.

Max Verstappen á ráspól í rigningunni í Hollandi
Max Verstappen verður á ráspól á Zandvoort brautinni í Hollandi á morgun eftir glæsilegan lokahring í tímatökum í dag. Þetta er þriðja árið í röð sem Verstappen verður á ráspól í Hollandi og í áttunda skiptið í ár sem hann ræsir fyrstur.

„Þetta mun lifa með mér þangað til ég dey“
Fyrsta Formúlu 1 keppnin eftir sumarfrí hefst á morgun með tímatökunni. Helstu sérfræðingar landsins í sportinu eru spenntir fyrir komandi keppnum.

Býr sig undir að geta skákað Verstappen þegar tímapunkturinn kemur
Lewis Hamilton, ökumaður Mercedes og sjöfaldur heimsmeistari ökumanna í Formúlu 1 segist vera að undirbúa sig á þá leið að þegar hann er með rétta bílinn í höndunum, muni hann geta skákað ríkjandi heimsmeistaranum Max Verstappen, ökumanni Red Bull Racing.

Crashgate skandallinn vindur upp á sig: „Titlinum var rænt af honum“
Lögmenn fyrrum Formúlu 1 ökuþórsins Felipe Massa eru reiðubúnir að höfða skaðabótamál fyrir skjólstæðing sinn á hendur fyrrum stjórnendum Formúlu 1 sem og Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) vegna meints samsæris sem kostaði Massa heimsmeistaratitil ökumanna tímabilið 2008.

Þrettándi sigur Red Bull í röð þegar Verstappen kom fyrstur í mark í Belgíu
Lið Red Bull hefur nú unnið hvert einasta mót á árinu sem og síðasta mót ársins 2022, svo að sigrarnir eru orðnir þrettán í röð. Max Verstappen kom fyrstur í mark þrátt fyrir að hafa misst ráspólinn vegna breytinga á bílnum.

Heimsmeistarinn muni fá á sig refsingu
Max Verstappen, ríkjandi heimsmeistari ökumanna í Formúlu 1 og forystusauðurinn í stigakeppninni á yfirstandandi tímabili mun fá fimm sæta refsingu fyrir komandi kappakstur á Spa Francorchamps brautinni í Belgíu sem fram fer á sunnudaginn.

Vill aflýsa keppni helgarinnar ef ekki verði hægt að tryggja öryggi ökumanna
George Russell, ökumaður Mercedes, segir að stjórn FIA verði að setja öryggi ökumanna í forgang og aflýsa keppninni á Spa-Francorchamps í Belgíu ef aðstæður verði ekki öruggar um helgina. Tvö banaslys hafa orðið á brautinni á síðustu fjórum árum.

Tók sex mánuði að búa til bikarinn sem brotnaði á F1 pallinum
Bikarinn sem brotnaði á verðlaunapalli formúlu eitt í Ungverjalandi um helgina var enginn venjulegur bikar.

Eyðilagði bikar Verstappen á verðlaunapallinum
Bretinn Lando Norris hefur verið að minna á sig með góðri frammistöðu í síðustu keppnum í formúlu eitt sem voru í Englandi og Ungverjalandi en hann stal fyrirsögnunum á annan hátt eftir verðlaunaafhendinguna í Ungverjalandi um helgina.

Red Bull sló þrjátíu og fimm ára gamalt met McLaren
Red Bull er hreinlega óstöðvandi í Formúlu 1 þessi misserin. Með sigri sínum í Ungverjalandi sló Red Bull 35 ára gamalt met McLaren yfir keppnir sigraðar í röð.

Lýsa Formúlunni áfram á Viaplay: „Spennan er mikil“
Þeir Kristján Einar Kristjánsson og Bragi Þórðarson munu áfram lýsa Formúlu 1 á Viaplay.

Madrid og Macron vilja halda kappakstur
Það er eftirsótt að halda Formúlu 1 keppni og nú vill Madrid að keppni varði haldin í spænsku höfuðborginni í framtíðinni. Þá vill Frakklandsforseti sömuleiðis fá formúlusirkusinn oftar til landsins.

Fer á láni til AlphaTauri
Daniel Ricciardo tekur við sem ökuþór AlphaTauri til loka yfirstandandi tímabils í Formúlu eitt. Nyck de Vries fer frá bílaframleiðandanum eftir lélegan árangur á sínu fyrsta tímabili keppni bestu ökuþóra heims.

Brad Pitt tók upp atriði í kvikmynd á formúlukeppninni um helgina
Það var nóg að gerast á Silverstone kappakstursbrautinni um helgina og þá erum við ekki bara að tala um breska formúlu eitt kappaksturinn sem ávallt fær sviðsljósið.

Verstappen eftir sjötta sigurinn í röð: „Byrjuðum skelfilega“
Þrátt fyrir enn einn sigurinn þá var Max Verstappen, ökumaður Red Bull í Formúlu 1, með hugann við skelfilega byrjun í kappakstri dagsins.

Sjötti sigurinn í röð hjá Verstappen
Það fær ekkert stöðvarð ökuþórinn Max Verstappen í Formúlu 1. Hann vann nú áðan sinn sjötta sigur í röð þegar hann kom fyrstur í mark á Silverstone brautinni í Bretlandi.

Heimsmeistarinn hótar að hætta í F1
Max Verstappen, ríkjandi heimsmeistari í formúlu eitt, er allt annað en ánægður með nýja uppröðun á keppnisdagatalinu á næsta ári.

Varar við mótmælum sem gætu valdið alvarlegum meiðslum eða dauða
Stuart Pringle, framkvæmdarstjóri breska Silverstone-kappakstursins í Formúlu 1, varar þá sem gætu ætlað sér að nýta kappaksturinn til mótmæla við því að hlaupa inn á brautina þar sem það gæti valdið alvarlegum slysum eða dauða.

Formúla 1 snýr aftur til Kína á lengsta tímabili sögunnar
Í fyrsta sinn síðan fyrir kórónuveirufaraldurinn mun Formúla 1 snúa aftur til Kína á næsta tímabili.

Verstappen í sérflokki í Austurríki
Max Verstappen kom, sá og sigraði í Formúlu 1 keppnum helgarinnar. Hann stóð uppi sem sigurvegari í kappakstri dagsins og er langefstur í keppni ökumanna.

Verstappen vann sprettinn í Austurríki
Max Verstappen kom fyrstur í mark í sprettakstri Formúlu 1 sem lauk í Austurríki nú áðan. Aðalkappakstur helgarinnar fer fram á morgun.

Banaslys í keppni á undirmótaröð Formúlu 1
18 ára gamall ökumaður lést í keppni á einni af undirmótaröðum Formúlu 1 í morgun. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem banaslys verður á Spa Francorchamps brautinn í Belgíu.

Hamilton og Verstappen ósammála um stóra reglubreytingu
Sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton vill að ný regla verði kynnt til leiks í Formúlu 1 sem segir til um hvenær lið megi byrja að vinna í bíl næsta tímabils. Tvöfaldi heimsmeistarinn Max Verstappen er þó ekki sammála.

Hollywood eigendur Wrexham hafa keypt sig inn í formúlu eitt lið
Leikararnir Ryan Reynolds og Rob McElhenney, sem eiga saman enska fótboltafélagið Wrexham, eru ekki hættir að eignast hlut í íþróttaliðum.