Enski boltinn

Solanke dýrastur í sögu Spurs
Tottenham hefur fest kaup á enska framherjanum Dominic Solanke frá Bournemouth. Hann er dýrasti leikmaður í sögu Spurs en kaupverðið gæti farið upp í 65 milljónir punda.

Carsley tekur tímabundið við enska landsliðinu
Eins og við var búist hefur Lee Carsley verið ráðinn þjálfari enska karlalandsliðsins í fótbolta til bráðabirgða.

Samfélagsskjöldurinn verður á Vodafone Sport
Tímabilið í enska boltanum hefst formlega á morgun og verður hægt að horfa á leikinn um Samfélagsskjöldinn í íslensku sjónvarpi.

Richarlison vildi ekki fara til Sádi-Arabíu
Framherji Tottenham, Richarlison, hafnaði því að fara til félags í Sádi-Arabíu þegar honum bauðst það.

Kaupa framherja sem skoraði ekki deildarmark í fyrra
Newcastle United hefur fest kaup á danska sóknarmanninum William Osula frá Sheffield United. Talið er að kaupverðið sé um fimmtán milljónir punda.

Old Trafford verður ekki rifinn og gæti fengið nýtt hlutverk
Ekki stendur til að rífa Old Trafford þegar nýr heimavöllur Manchester United rís á næstu árum. Kvennalið United, sem og yngri lið félagsins, gætu spilað á Old Trafford í framtíðinni.

Zaha gæti snúið aftur til Palace
Wilfried Zaha gæti snúið aftur til Crystal Palace aðeins ári eftir að hann yfirgaf félagið.

Arteta réði vasaþjófa til að stela af leikmönnum Arsenal
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, verður ekki sakaður um að hugsa ekki út fyrir kassann þegar kemur að því að hámarka árangur liðsins.

Fyrrum Englandsmeistari færir sig yfir í hnefaleikahringinn
Danny Simpson, fyrrum leikmaður Leicester City og Manchester United, lagði skóna á hilluna fyrr á árinu. Hann hefur nú ákveðið að skipta um íþrótt og gerast hnefaleikakappi. Fyrsti bardaginn verður þann 31. ágúst gegn YouTube-stjörnunni Danny Aarons.

Guardiola gerði grín að hárgreiðslu De Bruyne á fyrstu æfingunni
Kevin De Bruyne er mættur aftur til æfinga með Manchester City eftir sumarfrí. Þjálfarinn Pep Guardiola var glaður að sjá hann en gerði aðeins grín að honum fyrir nýju hárgreiðsluna sem svipar mikið til Erlings Haaland.

Carsley líklegastur til að stýra Englandi gegn strákunum hans Heimis
Lee Carsley, þjálfari enska U-21 árs landsliðsins, mun væntanlega stýra A-landsliðinu í næstu leikjum þess.

Hummels í ensku úrvalsdeildina?
Miðvörðurinn reyndi Mats Hummels gæti verið á leið í ensku úrvalsdeildina. Hann er án félags í kjölfar þess að samningur hans við Borussia Dortmund rann út í sumar.

Gagnrýnir fjárhagsreglurnar eftir að Chelsea seldi Gallagher
Enzo Maresca, nýráðinn stjóri Chelsea, gagnrýnir regluverk ensku úrvalsdeildarinnar sem hann segir hvetja félög til að selja uppalda leikmenn frá sér.

Julian Álvarez á leið til Atlético Madrid
Julian Alvarez, argentínskur framherji Manchester City, er sagður á leið til Atletico Madrid fyrir 81 milljón punda.

Füllkrug til West Ham
West Ham United hefur keypt þýska framherjann Niclas Füllkrug frá Borussia Dortmund.

Salah í stuði og Carvalho skoraði aftur þegar Liverpool vann Man. Utd
Liverpool vann 3-0 sigur á erkifjendum sínum í Manchester United í æfingarleik í Bandaríkjunum í nótt.

Fjögur norsk mörk í sigri Man. City á Chelsea
Manchester City vann 4-2 sigur á Chelsea í æfingarleik liðanna í kvöld en leikurinn fór fram í Columbus í Ohio fylki í Bandaríkjunum.

Malacia aftur meiddur og missir mikið úr
Tyrell Malacia, vinstri bakvörður hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United verður frá í að minnsta kosti tvo mánuði eftir að hafa meiðst aftur á hné.

Kveður Arsenal með hjartnæmu bréfi
Fulham gekk í gær frá kaupunum á Arsenal manninum Emile Smith Rowe sem yfirgefur nú uppeldisfélagið sitt.

Newcastle vill fá Guéhi í vörnina
Marc Guéhi, varnarmaður Crystal Palace og enska landsliðsins, er ofarlega á óskalista Newcastle United.

Ný taktík Arne Slot hjá Liverpool vekur athygli
Liverpool hefur unnið tvo fyrstu opinberu leiki sína undir stjórn hollenska stjórans Arne Slot og byrjar því undirbúningstímabilið vel.

Svar Klopp skýrt: Yrðu mesti álitshnekkir fótboltasögunnar
Jürgen Klopp, fyrrum knattspyrnustjóri Liverpool, er ekki tilbúin að segja hann sé hættur afskiptum af fótbolta. Hann lokaði engu að síður á möguleikann á því að taka við enska fótboltalandsliðinu.

Craig Shakespeare látinn
Fyrrverandi knattspyrnustjóri Leicester City, Craig Shakespeare, er látinn, sextugur að aldri.

Tilboð samþykkt í Gallagher en launakröfurnar gætu reynst of háar
Conor Gallagher vildi ekki skrifa undir samningsframlengingu við Chelsea og félagið hefur því samþykkt tilboð í hann frá Atletico Madrid. Gallagher er talinn spenntur fyrir skiptum til höfuðborgar Spánar en launakröfur hans gætu reynst of háar.

Meiðslin hrannast upp hjá Man. Utd
Æfingaferð Manchester United til Bandaríkjanna er að taka sinn toll því hver leikmaðurinn á fætur öðrum meiðist.

Fabio skoraði þegar Liverpool vann Arsenal
Liverpool tapaði kannski feluleiknum á móti Stefáni Teiti Þórðarsyni og félögum í Prestum en þeir byrja vel undir stjórn Arene Slot fyrir opnum dyrum.

Manchester City gengst við brotum
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City gegnst við því að hafa ítrekað brotið reglu L.33 í regluverki ensku úrvalsdeildarinnar. Reglan snýr að upphafstíma leikja sem og áframhaldi þeirra eftir hálfleikshlé. Félagið mun greiða sekt sem nemur rúmum tveimur milljónum punda.

West Ham leitar að framherja og vill fá Füllkrug
West Ham hefur hafið viðræður við Borussia Dortmund um kaup á þýska landsliðsframherjanum Niklas Füllkrug.

Staða Toney í uppnámi
Staða enska framherjans Ivan Toney, sóknarmanns enska úrvalsdeildarfélagsins Brentford, hefur gjörbreyst eftir að maðurinn sem félagið hafði hugsað sér sem arftaka hans meiddist á hné og verður lengi frá.

Man. Utd. kaupir danska undrabarnið sem skoraði tíu mörk gegn Liverpool
Sextán ára gamall Dani að nafni Chido Obi-Martin er við það að ganga til liðs við Manchester United frá Arsenal, þar sem hann hefur verið undanfarin tvö ár og raðað inn mörkum með unglingaliðinu.