
Enski boltinn

Ole Gunnar Solskjær með sögulegt tak á Pep Guardiola
Ole Gunnar Solskjær stýrði Manchester United til sigurs á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær og sá til þess að Pep Guardiola hefur aldrei áður upplifað annað eins tímabil á stjóraferli sínum.

Enginn leikmaður Everton fékk lægri einkunn en Gylfi
Íslenski landsliðsmaðurinn náði sér engan veginn á strik þegar Everton steinlá fyrir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.

Liverpool hjartað of stórt til að geta samið við Man Utd
Þýski knattspyrnumaðurinn Emre Can gat samið við Manchester United í janúar en gerði það ekki og fór frekar til Borussia Dortmund. Nú hefur hann sagt ástæðuna fyrir því að hann hafnaði tilboði United.

Hinn átján ára gamli Gilmour átti næstum því fimmtíu fleiri heppnaðar sendingar en Gylfi
Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson kom ekki vel út úr samanburðinum við Billy Gilmour í 4-0 skelli Everton á móti Chelsea á Stamford Bridge í gær.

Liverpool getur orðið enskur meistari áður en liðið spilar næst í deildinni
Tap Manchester City á móti Manchester United í gær þýðir að Liverpool liðið er komið enn nærri fyrsta enska meistaratitlinum í þrjátíu ár.

Gætu þurft að sýna enska boltann í opinni dagskrá ef leikirnir fara fram fyrir luktum dyrum
Enska úrvalsdeildin bannaði öll handabönd í leikjum helgarinnar en gæti þurft að grípa til enn frekari ráðstafana í næstu leikjum vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Eiður Smári sagði að sóknarleikur Man. City væri eins og kynlíf án fullnægingar
Eiður Smári Guðjohnsen var mjög sérstaka myndlíkingu þegar hann var beðinn um að lýsa sóknarleik Manchester City liðsins eftir 2-0 tap á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Solskjær: Forréttindi að fá að þjálfa þennan hóp
Manchester United er taplaust í tíu leikjum í röð.

Ancelotti: Það var allt að okkar frammistöðu
Gylfi Þór Sigurðsson er harðlega gagnrýndur í enskum fjölmiðlum eftir frammistöðu sína gegn Chelsea í dag. Liðsfélagar hans liggja sömuleiðis undir mikilli gagnrýni og Carlo Ancelotti, stjóri Everton, kveðst ekki hafa séð sitt lið jafn lélegt síðan hann tók við stjórnartaumunum í desember.

Enn er Manchester rauð
Manchester United vann nágranna sína í Manchester City öðru sinni á þessari leiktíð í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford í dag.

Derby rúllaði yfir Blackburn
Derby er fimm stigum frá umspilssæti í ensku B-deildinni í fótbolta eftir öruggan 3-0 sigur gegn Blackburn á heimavelli í dag.

Chelsea lék Gylfa og félaga grátt
Chelsea fór á kostum gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og landaði mikilvægum 4-0 sigri í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Nýr markahrókur Everton gerir langtímasamning
Enski sóknarmaðurinn Dominic Calvert-Lewin er ekki á förum frá Everton í bráð.

Klopp: Mun aldrei bera mig saman við Shankly
Liverpool vann sinn tuttugasta og annan heimaleik í röð með 2-1 sigri á Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni og bætti þar með met Liverpool frá árinu 1972.

Burnley og Tottenham skildu jöfn á Turf Moor
Burnley og Tottenham sættust á skiptan hlut í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Loks sigur hjá lærisveinum Campbell og Hermanns
Patrik Sigurður Gunnarsson varði mark Southend í ensku C-deildinni í fótbolta í dag.

Sheffield United bætti við sigri í Evrópubaráttunni | Newcastle vann í Southampton
Wolves urðu að sætta sig við markalaust jafntefli við Brighton í 29. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Fimm leikjum var að ljúka.

Leeds á toppinn í ensku B-deildinni
Leeds United trónir á toppi ensku B-deildarinnar þegar níu umferðum er ólokið.

Arsenal vann þriðja leikinn í röð
Arsenal vann í dag 1-0 sigur gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og hefur þar með unnið þrjá leiki í röð í deildinni.

Liverpool lenti undir en rétti úr kútnum
Liverpool er með 82 stig á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, 25 stigum á undan Manchester City, eftir 2-1 sigur gegn Bournemouth í dag.

United-menn æfir eftir að hraunað var yfir Lingard | Lögregla skoðar málið
Lítill hópur fólks gerði hróp að Jesse Lingard, leikmanni United, þegar hann var á leið upp í rútu liðsins eftir 3-0 sigurinn gegn Derby í ensku bikarkeppninni í vikunni.

Mourinho of latur fyrir eigin smekk
„Ég myndi ekki spila honum,“ sagði José Mourinho léttur í bragði á blaðamannafundi í dag þegar portúgalski knattspyrnustjórinn var spurður út í það hvernig leikmaður hann hefði verið á sínum tíma.

73 ára Hodgson stýrir Palace á næstu leiktíð
Hinn 72 ára gamla Roy Hodgson hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við Crystal Palace en þetta var staðfest í dag.

Tammy Abraham bæði valinn sá besti og sá efnilegasti
Tammy Abraham, sóknarmaður Chelsea, vann til tvennra verðlauna á Fótboltaverðalaunahátíð Lundúna sem haldin var í gær. Hann var bæði valinn besti leikmaður ársins og besti ungi leikmaður ársins. Aðeins þeir sem spila með liðum frá Lundúnaborg koma til greina í valinu.

Áfall fyrir Liverpool: Alisson missir af seinni leiknum á móti Atletico Madrid
Brasilíski markvörðurinn Alisson verður ekki Liverpool á móti Bournemouth á morgun og missir líka af seinni leiknum á móti Atletico Madrid í Meistaradeildinni í næstu viku.

Æsispennandi kapphlaup um Meistaradeildarsæti | Hverjir eiga auðveldasta leikjaprógrammið?
Meistaradeildarbaráttan í ensku úrvalsdeildinni hefur sjaldan verið jafn spennandi og á þessu tímabili. Nú þegar 10 leikir eru eftir af mótinu eru að minnsta kosti fimm lið sem eru að berjast um Meistaradeildarsæti.

United gæti verið án fyrirliðans í grannaslagnum
Óvíst er hvort að Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, verði klár í slaginn fyrir grannaslaginn gegn Manchester City um helgina.

Rio segir að United verði að fara taka ákvörðun varðandi Pogba
Rio Ferdinand, fyrrum leikmaður Manchester United, segir að félagið þurfi að taka ákvörðun hvort að það ætli að halda Paul Pogba eða ekki.

Engir krakkar fá að fylgja leikmönnum inn á Anfield um helgina
Liverpool hefur ákveðið að lukkudýrin á heimaleikjum liðsins séu komin í frí vegna Kórónuveirunnar.

Fyrrum úrvalsdeildarleikmaður var handtekinn af „vinalegustu lögreglu í heimi“ þegar hann var á Íslandi
Dave Kitson, fyrrum liðsfélagi Brynjars Björns Gunnarssonar og Ívars Ingimarssonar hjá Reading, var staddur á Íslandi á dögunum og lenti í ýmsum ævintýrum. Hann mætti meðal annnars á æfingu hjá HK og hitti lögregluna.