Fréttir

Hafa auglýst stöðu sveitarstjóra lausa til umsóknar
Sveitarfélagið Múlaþing hefur auglýst stöðu sveitarstjóra lausa til umsóknar og gert gert ráð fyrir að nýr sveitarstjóri muni taka við um næstu áramót.

Lögmaður Yazans sakar yfirvöld um lögbrot
Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um mál Yazans Tamimi og fjölskyldu hans.

Símboðarnir sagðir koma frá ungversku skúffufélagi
Forsvarsmenn taívanska fyrirtækisins Gold Apollo, eins stærsta framleiðanda símboða heims, segjast ekki hafa framleitt tækin sem sprungu í Líbanon og Sýrlandi í gær. Þess í stað hafi tækin verið framleidd af ungversku fyrirtæki sem kallast BAC Consulting Kft. eftir að samningur var gerður milli fyrirtækjanna.

„Þetta er bara rétt að byrja“
Lögregluyfirvöld á Íslandi tóku þátt í fjölþjóðlegum aðgerðum á dögunum þar sem dulkóðaður samskiptamiðill var tekinn niður. Fulltrúi Íslands hjá Eurojust segir málið sýna mikilvægi þess að Ísland eigi fulltrúa hjá alþjóðlegum löggæslustofnunum.

Meta úthýsir rússneskum ríkisfjölmiðlum
Rússneskir ríkisfjölmiðlar eru ekki lengur velkomnir á samfélagsmiðlum Meta vegna óheiðarlegra vinnubragða þeirra við að breiða út áróður fyrir stjórnvöld í Kreml. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu um refsiaðgerðir gegn einum fjölmiðlinum í síðustu viku.

Um sjö milljónir söfnuðust í minningarsjóð með kertasölu
Afrakstur kertasölu og framlag verslanakeðja til minningar um Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem jarðsett var síðastliðinn föstudag nemur tæplega 6,9 milljónum króna. Skipuleggjandi sölunnar segir kærleikann áfram þurfa að vera eina vopnið í samfélaginu.

Arnar með stöðu sakbornings og boðaður í skýrslutöku
„Ég veit ekki alveg hvað hún vildi vita. Hún náttúrulega bara heldur áfram með það að reyna að fá okkur blaðamenn til að brjóta lög, því eins og þú veist þá gefum við ekki upp heimildarmenn.“

Forstjóri nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar úr stóriðjunni
Umhverfis-, orku og loftslagsráðherra hefur skipað Sigrúnu Ágústsdóttur í embætti forstjóra Náttúruverndarstofnunar og Gest Pétursson í embætti forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar.

Stærðarinnar sprengingar í vopnageymslu í Rússlandi
Íbúar í grennd við stóra vopnageymslu í Tver-héraði í Rússlandi, skammt frá Belarús, vöknuðu í nótt við kröftugar sprengingar og stendur vopnageymslan í ljósum logum. Úkraínumenn eru sagðir hafa gert umfangsmikla drónaárás á vopnageymsluna, sem þeir telja að hafi hýst eldflaugar og önnur hergögn frá Norður-Kóreu.

Ráðist í aðgerðir gegn samskiptaþjónustu sem glæpamenn notuðu
Lögregluyfirvöld á Íslandi áttu aðkomu að aðgerðum á dögunum sem miðuðu að því að taka niður dulkóðaðan samskiptamiðil sem notaður var til skipulagðrar glæpastarfsemi.

Telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir kafbátsslysið
Starfsmaður fyrirtækisins sem átti kafbátinn sem fórst nærri flaki Títanik í fyrra segir að hægt hefði verið að komast hjá slysinu ef hlustað hefði verið á varnarorð hans. Ein síðustu skilaboðin sem bárust frá áhöfninn voru „allt í góðu hér“.

Blöskrar markaðssetning á réttum: „Þetta eru eins og jólin fyrir okkur“
Bóndi lýsir yfir megnri óánægju sinni með markaðsetningu Icelandair á réttum gagnvart ferðamönnum. Réttir séu mikilvægur dagur fyrir alla bændur og því bagalegt ef ekki verður þverfótað fyrir ferðamönnum í almenningnum. Þá sé ekki síst mikilvægt að féð sé meðhöndlað af vönu fólki.

Íslendingum ekki boðið á sjónvarpsumræðu um öryggi á Norðurlöndum
Ríkisreknar sjónvarpsstöðvar Norðurlanda, að RÚV undanskildu, héldu í síðustu viku sérstakan sjónvarpsviðburð sem sýndur var á öllum stöðvunum. Þátturinn bar titilinn „Svar Norðurlanda við stríði Pútíns“ og sátu utanríkisráðherrar landanna fyrir svörum, auk sérfræðinga og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins.

„Reglur samfélagsins mega ekki vera ómanneskjulegar“
Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands segir lög sem heimili lögreglu að fara inn á spítala til að sækja barn um miðja nótt „ólög og ómanneskjuleg“. Guðrún segir tímabært fyrir samfélagið að staldra við og skoða betur hvernig það geti verið manneskjulegra og í meiri kærleika.

Microsoft segir rússneskt tröllabú á bak við falsáróður um Harris
Rannsóknir Microsoft hafa leitt í ljós að „tröllabúið“ Storm-1516, rússneskur hópur tölvuþrjóta hliðhollur stjórnvöldum í Moskvu, sé að baki myndskeiði þar sem Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, er sökuð um að hafa ekið á stúlku og svo á brott.

Allt að 17 stig á Austurlandi
Nú er lægð á leið norðaustur yfir land með rigningu víða og mildu veðri, en þurru og hlýju á Austurlandi framan af degi. Hiti verður á bilinu sex til 17 stig og hlýjast austantil. Svo snýst í norðvestan golu eða kalda seinnipartinn, þá styttir upp sunnan- og vestanlands og kólnar í veðri.

Neitað um lausn gegn tryggingu og á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi
Tónlistar- og athafnamaðurinn Sean Combs, betur þekktur sem Diddy eða Puff Daddy, neitaði sök þegar hann var dreginn fyrir dómara í New York í gær.

169 börn sem fæddust eftir 7. október á lista yfir látnu
Heilbrigðisráðuneyti Gasa hefur gefið út skjal þar sem borin eru kennsl á 34.344 einstaklinga sem hafa látist í árásum Ísraelsmanna. Um er að ræða 80 prósent þeirra sem sagðir eru hafa fallið frá því að átök brutust út í kjölfar árása Hamas á byggðir í Ísrael 7. október síðastliðinn.

Settu sprengjur í símboðana
Ísraelsmenn standa að baki árás á Hezbollah sem framin var í dag, þegar um 2.800 manns slöðuðust eftir að símboðar sprungu í Líbanon, Íran og Sýrlandi. Símboðarnir voru gerðir í Taívan en átt var við þá áður en þeir voru fluttir til Líbanon.

Látin eftir hákarlaárás suður af Kanaríeyjum
Þýskur ferðamaður er látinn eftir hákarlaárás undan ströndum Kanaríeyja. Um var að ræða konu á fertugsaldri. Hún missti fótlegg í árásinni.

„Við erum mjög uggandi yfir stöðunni“
Umboðsmaður barna segist uggandi yfir löngum biðlistum hvað varðar úrræði fyrir börn með vanda. Ekkert sé mikilvægara en að hlúa að börnunum.

Talinn hafa nauðgað konu og tekið það upp
Karlmaður búsettur í Reykjavík hefur verið ákærður fyrir nauðga konu í bíl á óþekktum stað í Kópavogi þann 18. júlí 2018.

Spáir viðvarandi skorti á raforku næstu fimm ár
Ný raforkuspá Landsnets gerir ráð fyrir viðvarandi orkuskorti í landinu næstu fimm árin og að raforkuskerðingar verði áfram við lýði fram eftir þessum áratug.

Stjórnarandstaðan notuð til uppfyllingar á Alþingi
Þingmenn Vinstri grænna hafa lagt fram þingsályktun með stuðningi þingmanna Pírata og Samfylkingar um að ríkisstjórnin beiti sér fyrir alþjóðlegum viðskiptaþvingunum gagnvart Ísrael. Engin stjórnarmál voru á dagskrá Alþingis í dag.

Sjálfstæðisflokkurinn þríklofinn um samgöngusáttmála
Sjálfstæðisflokkurinn þríklofnaði í atkvæðagreiðslu um uppfærðan samgöngusáttmála í borgarstjórn í dag. Einn borgarfulltrúi greiddi atkvæði með uppfærslu sáttmálans, fjórir gegn henni og einn sat hjá.

„Það er hula yfir sólinni“
Sjö hafa farist í miklum gróðureldum sem geisa í Portúgal og á sjötta tug hafa slasast. Íslendingur í Portó segir gulleitan reykjarmökk hafa legið yfir borginni í dag og í gær. Hún hafi aldrei upplifað annað eins.

Banaslys á byggingarsvæði í Árborg
Banaslys varð á byggingarsvæði í Árborg fyrr í dag. Karlmaður um fimmtugt lést þegar hann féll niður af nýbyggingu.

Tók rúmlega ár að fá „nei“ við einfaldri fyrirspurn
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar var ekki upplýst um að undirgöngum við Nauthólsveg hefði verið lokað á síðasta ári. Fyrirspurn um hvort ráðið hefði fengið upplýsingar um þetta var lögð fram í ágúst á síðasta ári. Formlegt svar, sem var eitt orð, barst fyrir nokkrum dögum.

Norskur læknir grunaður um að nauðga 88 konum
Fyrrverandi heimilislæknir í bænum Frosta í Noregi hefur verið ákærður fyrir að brjóta á 96 konum, og nauðga 88 þeirra.

Spenna innan ríkisstjórnarinnar og mannskæðir gróðureldar
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, segir lögreglu ekki ætla að eyða tíma í að eltast við sögusagnir í Krýsuvíkurmálinu þegar engar ábendingar eða sönnunargögn liggi fyrir um annað en það sem faðirinn hefur sjálfur sagt hafa gerst. Farið verður yfir stöðu málsins í kvöldfréttum Stöðvar 2.