Dómsdagsklukkan færð fram Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 28. janúar 2026 17:02 Það styttist og enn meira en á myndinni sem er frá því í fyrra. Kayla Bartkowski/Getty Images Hin svokallaða dómsdagsklukka hefur verið færð fram og stendur nú í 85 sekúndum frá miðnætti, sem er met. Í fyrra var hún í 89 og færðist því fjórum sekúndum nær endalokunum milli ára. Dómsdagsklukkan er tæki vísindamanna til að sýna fram á það hve nálægt mannkynið er heimsendi.
Í umfjöllun CNN kemur fram að um sé að ræða mælikvarða sem vísindamenn á vegum Bulletin of the Atomic Scientist tímaritsins, sem upphaflega tóku þátt í þróun kjarnavopna fyrir Bandaríkin hafa nýtt sér frá 1947 til að mæla hve stutt er í heimsendi af mannavöldum. Klukkan var í upphafi stillt á sjö mínútur í miðnætti og hefur færst fram og til baka allar götur síðan. Þannig var hún sem dæmi færð lengst í burtu frá miðnætti árið 1991 eftir að Bandaríkin og Sovétríkin undirrituðu sáttmála sín á milli um fækkun langdrægna kjarnavopna. Þá stóð hún í heilum 77 mínútum frá miðnætti. Gervigreind og kjarnorkuvopnakapphlaup Meðal þess sem vísindamenn tímaritsins vísuðu til vegna breytinganna nú er ófullnægjandi árangur mannkynsins í að berjast gegn alþjóðlegum áskorunum á borð við kjarnorkuógnina, loftlagsvánna, líffræðilegar ógnir og framfarir í tækni á borð við gervigreind. Þá var einnig nefnd til sögunnar sem ógn við mannkynið útbreiðsla rangra upplýsinga og samsæriskenninga. „Mannkynið hefur ekki náð nægilegum árangri í að takast á við þær tilvistarógnir sem ógna okkur öllum,“ sagði Alexandra Bell, forseti og forstjóri Bulletin, um ástæðuna fyrir breytingunni í ár. „Dómsdagsklukkan er tæki til að miðla því hversu nálægt við erum því að tortíma heiminum með tækni sem við höfum sjálf skapað. Áhættan sem við stöndum frammi fyrir vegna kjarnorkuvopna, loftslagsbreytinga og umbreytandi tækni fer sífellt vaxandi. Hver sekúnda skiptir máli og tíminn er að renna út. Það er erfitt að heyra þetta en þetta er veruleikinn.“ Þá er haft eftir öðrum vísindamanni á vegum tímaritsins að staða alþjóðamála sé ógnvænleg. Stórveldi verði árásarhneigðari og þjóðernissinnaðri. Fjöldi hernaðaraðgerða hafi fjölgað árið 2025 þar sem ríki sem eiga kjarnorkuvopn áttu í hlut. Þá renni síðasti samningurinn sem eftir er um kjarnorkuvopn út þann 4. febrúar næstkomandi á milli Bandaríkjanna og Rússlands. Í fyrsta sinn í meira en hálfa öld verði ekkert til að koma í veg fyrir stjórnlaust kjarnorkuvopnakapphlaup.
Kjarnorkuvopn Gervigreind Loftslagsmál Hernaður Bandaríkin Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira