Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020

Trump hótar að loka samfélagsmiðlum
Ákvörðun Twitter um að setja fyrirvara við tíst Donalds Trump Bandaríkjaforseta um meint kosningasvik í gær urðu forsetanum tilefni til þess að hóta því að loka samfélagsmiðlum eða setja reglur á þá í dag. Þetta var í fyrsta skipti sem Twitter beitti slíkri merkingu á ósannindi sem Trump dreifði á miðlinum.

Trump hunsaði óskir ekkils um frið fyrir samsæriskenningum
Óskir ekkils konu sem lést af slysförum fyrir tveimur áratugum um að Donald Trump hætti að dreifa samsæriskenningum um dauða hennar féllu á dauf eyru hjá Bandaríkjaforseta, framboði hans og blaðafulltrúa Hvíta hússins í gær.

Varði helginni í golf, móðganir og morðásakanir
Donald Trump varði helginni í að spila golf, í fyrsta sinn um nokkurt skeið, og að tísta móðgunum, lygum og alls konar dylgjum um andstæðinga sína.

Segja póstatkvæði brjóta á rétti kjósenda og höfða mál gegn Kaliforníu
Þrenn samtök Repúblikana, og þar á meðal Landsnefnd Repúblikanaflokksins, hafa höfðað mál gegn Gavin Newsom, ríkisstjóra Kaliforníu. Tilefni málaferlanna er að hann hefur gefið út þá tilskipun að kjörseðlar verði sendir til allra skráða kjósenda í ríkinu í kosningunum í nóvember.

Biden biðst afsökunar á „yfirlætislegum“ ummælum
Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla í viðtali í gær. Þar sagði hann að þeldökkir kjósendur sem íhuguðu að kjósa Donald Trump, núverandi forseta, væru ekki raunverulega þeldökkir.

Hæstiréttur stöðvar afhendingu Mueller-gagna
Hæstiréttur Bandaríkjanna kom í dag í veg fyrir að þingmenn fengu aðgang að skýrslu Robert Mueller úr Rússarannsókninni svokölluðu og önnur undirliggjandi gögn.

Trump hótar ríkjum sem auðvelda fólki að kjósa í faraldrinum
Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði í dag tveimur ríkjum Bandaríkjanna að hann myndi stöðva fjárveitingar alríkisstjórnarinnar til þeirra ef þau hættu ekki við áform um að bjóða upp á utankjörfundar- og póstatkvæði til að draga úr smithættu vegna kórónuveirufaraldursins í kosningum á þessu ári.

Læknarit gagnrýnir Trump harðlega fyrir viðbrögð hans við faraldrinum
Ritstjórn breska læknaritsins Lancet sakar Donald Trump Bandaríkjaforseta um „mótsagnarkend og sundurlaus“ viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum og að hafa ýtt sóttvarnayfirvöldum til hliðar. Hún hvetur Bandaríkjamenn til að kjósa sér forseta sem skilur að flokkapólitík ætti ekki að stjórna lýðheilsumálum.

Endurskrifa söguna í máli Michael Flynn
Rúmum þremur árum eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, rak Michael Flynn, þáverandi þjóðaröryggisráðgjafa sinn, fyrir að ljúga að Mike Pence, varaforseta, og starfsmönnum Alríkislögreglu Bandaríkjanna, sem er glæpur, eru Trump-liðar nú að reyna að endurskrifa söguna.

Trump sakar fjölda andstæðinga sinna um glæpi og jafnvel morð
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur varið miklum tíma á Twitter síðustu daga. Þar hefur hann meðal annars sakað þáttastjórnanda um morð og fjölmarga pólitíska andstæðinga sína um allskonar glæpi.

Óttast að missa tökin á öldungadeildinni
Kannanir sýna að Demókrötum hefur vaxið ásmegin og viðbrögð Donald Trump, forseta, vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar hafa verið harðlega gagnrýnd.

Vill að Biden taki lygapróf vegna ásakana um kynferðisofbeldi
Tara Reade, fyrrverandi starfsmaður á skrifstofu Joe Biden, segist hafa orðið fyrir árásum stuðningsmanna hans eftir að hún steig fram og greindi frá meintu kynferðisofbeldi af hans hálfu.

Lögmaður ásakanda Biden styrkti framboð Trump
Kona sem sakar Joe Biden, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, um kynferðislega árás þegar hún vann á skrifstofu hans á Bandaríkjaþingi fyrir tæpum þrjátíu árum hefur ráðið þekktan lögmann sem styrkti forsetaframboð Donalds Trump forseta fjárhagslega árið 2016. Í viðtali í gær skoraði konan á Biden að hætta framboði sínu í forvali Demókrataflokksins.

Sérfræðingum ýtt til hliðar
Ítarlegar leiðbeiningar, sem samdar voru af helstu farsóttarsérfræðingum Bandaríkjanna og áttu að hjálpa ríkis- og borgarstjórum, eigendum verslana, trúarleiðtogum og öðrum að draga úr félagsforðun í skrefum, verða ekki birtar.

Biden hótar knattspyrnusambandinu
Joe Biden, tilvonandi forsetaefni Demókrataflokksins, hvetur heimsmeistarana í bandaríska kvennalandsliðinu í fótbolta til að gefast ekki upp í kjarabaráttu sinni fyrir dómstólum.

Biden ræddi ásökun fyrrverandi starfsmanns í fyrsta sinn
Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og væntanlegur forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, vísaði ásökunum konu sem vann fyrir hann á Bandaríkjaþingi um að hann hefði ráðist á hana kynferðislega á bug í dag. Yfirlýsing og sjónvarpsviðtal Biden í dag eru fyrsta skiptið sem frambjóðandinn svaraði ásökunum konunnar opinberlega.

Trump-stjórnin sögð grafa undan WHO á bak við tjöldin
Bandaríkjastjórn hefur ekki aðeins stöðvað fjárframlög til Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) í miðjum kórónuveiruheimsfaraldri heldur eru Donald Trump forseti og nánustu ráðgjafar hans sagðir grafa undan stofnuninni á nokkrum vígstöðvum á bak við tjöldin. Undirróðurinn er sagður geta veikt stofnunina til lengri tíma litið.

Tengja sjö smit við umdeildar kosningar í Wisconsin
Að minnsta kosti sjö manns eru taldir hafa smitast af nýju afbrigði kórónuveiru þegar þeir tóku þátt í forvalskosningum í Wisconsin í Bandaríkjunum 7. apríl.

Trump með rúmlega 27 milljarða króna forskot á Biden
Framboð Donalds Trump Bandaríkjaforseta byrjar kosningabaráttu fyrir forsetakosningarnar í haust með 187 milljóna dollara, jafnvirði ríflega 27 milljarða króna, forskot á Joe Biden, frambjóðanda Demókrataflokksins samkvæmt nýjustu tölum um fjáröflun framboðanna.

Framboð Biden vísar ásökunum fyrrverandi starfsmanns á bug
Ásakanir konu um að Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hafi beitt hana kynferðislegu ofbeldi þegar hún vann á skrifstofu hans á Bandaríkjaþingi fyrir tæpum þrjátíu árum eiga við engin rök að styðjast, að sögn framboðs Biden. Rannsókn bandarískra fjölmiðla á réttmæti ásakana konunnar er ekki afdráttarlaus.

Obama styður vin sinn Joe Biden
Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur lýst yfir stuðningi við Joe Biden.

80 prósent greiddu atkvæði utan kjörfundar
Útlit er fyrir að met hafi verið sett varðandi fjölda utankjörfundaratkvæða í umdeildum kosningum í Wisconsin í Bandaríkjunum í síðustu viku.

Bernie Sanders hættir framboði sínu
Bernie Sanders hefur ákveðið að hætta þátttöku sínu í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum í nóvember.

Repúblikanar í Wisconsin telja sig hagnast á faraldrinum
Þrátt fyrir að kosningum hafi verið frestað í fjölmörgum ríkjum Bandaríkjanna vegna nýju kórónuveirunnar, munu mjög umdeildar kosningar fara fram í Wisconsin í dag.

Hæstiréttur Wisconsin hafnaði frestun forvals Demókrata
Forval Demókrataflokksins í Wisconsin-ríki fyrir forsetakosningarnar í nóvember mun fara fram á morgun, þrátt fyrir tilraunir ríkisstjóra og frambjóðanda til þess að því frestað vegna kórónuveirunnar. AP greinir frá.

Demókratar fresta landsfundi sínum vegna faraldursins
Landsfundi Demókrataflokksins þar sem velja á forsetaframbjóðanda flokksins verður frestað fram í miðjan ágúst til að auka líkurnar á að hægt verði að halda hann með hefðbundnu sniði. Upphaflega átti fundurinn að fara fram í Milwaukee í júlí.

Sanders vill að forvalinu í Wisconsin verði frestað
Bernie Sanders hefur kallað eftir því að kjörstjórn í Wisconsin fresti þeim hluta forval sem á að fara fram í ríkinu 7. apríl vegna smithættu.

Sanders tekur stöðuna eftir afhroð gærdagsins
Eftir að Joe Biden náð afgerandi sigrum í forvali Demókrataflokksins í Flórída, Illinois og Arizona í gær, hefur þrýstingur á Bernie Sanders, mótframbjóðanda hans aukist.

Biden vann stórsigur í þremur ríkjum
Forkosningar fóru fram í Flórída, Illinois og Arizona í gær, en upphaflega stóð til að forkosningar færu einnig fram í Ohio, en ákveðið var að fresta þeim vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Kórónuveiran varpaði ljósi á muninn milli Biden og Sanders
Greinendur og sérfræðingar eru heilt yfir þeirrar skoðunar að Biden hafi komið betur út úr kappræðunum en Sanders.