
Eldgos og jarðhræringar

„Aðeins“ 90 skjálftar mælst frá miðnætti
Rólegt hefur verið á slóðum skjálftahrinunnar við Fagradalsfjall. Frá miðnætti hafa tæplega 90 skjálftar mælst, allir í minni kantinum.

Telur eldgos spurningu um næstu daga frekar en vikur
Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur telur líklegra að eldgos brjótist út að nýju við Fagradalsfjall á næstu dögum fremur en á næstu vikum.

Skjálfti 3,9 að stærð skammt norðan við Trölladyngju
Snarpur jarðskjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu og suðvesturhorninu á þriðja tímanum í dag.

Skjálfti 3,4 að stærð í morgun
Skjálfti 3,4 að stærð varð um fjóra kílómetra norður af Krýsuvík klukkan 6:25 í morgun. Annar skjálfti, rétt rúmlega tveir að stærð, var rúmum tveimur mínútum síðar á sömu slóðum.

Grindvíkingar orðnir þreyttir á skjálftahrinunni
Jarðskjálftavirkni er enn mikil á Reykjanesi þó hafa jarðskjálftarnir í dag mælst minni að stærð en síðustu daga. Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir segir íbúa ýmsu vana en margir séu þó þreyttir á ástandinu.

Vísindaráð fundar: Undir það búin að eldgos geti hafist hvað úr hverju
Jarðskjálftavirkni er enn mikil á Reykjanesskaganum og mun vísindaráð almannavarna funda í dag til að fara yfir stöðuna og meta hverju megi eiga von á.

Jarðskjálfti upp á 3,6 fannst vel á suðvesturhorninu
Stór jarðskjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu nú laust fyrir klukkan hálf níu. Samkvæmt jarðskjálftatöflu Veðurstofunnar var skjálftinn 3,6 að stærð.

Fjölmargir minni skjálftar frá miðnætti
Rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi varð jarðskjálfti af stærðinni 3,5 um tvo kílómetra vestan við Kleifarvatn.

„Næstu 100-150 ár verður þetta í gangi“
Jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga hefur engan bilbug látið á sér finna yfir hátíðirnar. Spennan í efri skorpunni er að sögn eldfjallafræðings að gefa sig vegna þrýstings og líkur eru taldar hafa aukist á öðru gosi.

Skjálfti að stærð 3,5: Skjálftahrinan heldur áfram
Enn skelfur jörð á Reykjanesi en nú rétt fyrir klukkan ellefu varð skjálfti að stærð 3,5.

Virkja sms-kerfi vegna óróa við Fagradalsfjall
Almannavarnir og lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafa virkjað sms-kerfi sem sendir smáskilaboð á fólk sem fer inn á fyrirframskilgreint svæði vegna jarðskjálfta sem hafnir eru á ný við Fagradalsfjall á Reykjanesi. Ekki er loku fyrir það skotið að skilaboð berist á fólk að óþörfu.

Snarpir skjálftar við Kleifarvatn
Snarpir jarðskjálfti fundust víða á höfuðborgarsvæðinu á fjórða tímanum í dag. Fyrstu tölur gefa til kynna að skjálftarnir hafi verið 3,3 að stærð og 2,9 samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.

„Þetta er bara stórkostleg tilviljun“
„Þetta er bara stórkostleg tilviljun, það er engin tenging þarna á milli,“ segir Salóme Jórunn Bernharðsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni, um þá staðreynd að sama dag og hætti að gjósa í Fagradalsfjalli hafi eldgos hafist á La Palma á Kanarí, og að skömmu eftir að það hætti að gjósa á La Palma hafi skjálftahrina hafist að nýju á Reykjanesi.

Tíst um næturskjálftana: „Geðveikt næs að vera andvaka í miðjum heimsendi“
Tveir nokkuð kröftugir jarðskjálftar urðu klukkan 5:10 í morgun, 3,6 og 3,3 að stærð og mældust þeir báðir í grennd við Kleifarvatn á Reykjanesskaga. Svo virðist sem nokkur fjöldi fólks hafi vaknað af værum jólasvefni við skjálftana.

Jörð skalf nærri Kleifarvatni í morgun
Skjálfti 3,6 að stærð varð nærri Kleifarvatni á Reykjanesskaga klukkan 5:10 í morgun. Annar skjálfti, 3,3 að stærð, mældist tæpri mínutu síðar á sömu slóðum.

Líkur á gosi aukist með hverjum degi sem virkni helst óbreytt
Um þrjú þúsund skjálftar hafa mælst við eldstöðina í Fagradalsfjalli í dag. Það er svipaður fjöldi og hefur mælst dag hvern frá 21. desember. Líkur á eldgosi aukast með hverjum deginum sem líður með óbreyttu ástandi, að sögn náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands.

Skjálftahviða á gosstöðvunum
Skjálftahviða mældist við Fagradalsfjall klukkan hálf fjögur og stóð yfir í tæpa klukkustund. Að sögn náttúruvársérfræðings er ljóst að hreyfing er á kviku undir yfirborðinu en erfitt er að lesa nánar í aðstæðurnar.

Eldgosinu á La Palma lokið
Yfirvöld á spænsku eyjunni La Palma hafa lýst því yfir að eldgosinu sem hófst á eyjunni í september sé lokið, eftir tíu daga án gosvirkni.

Helst útlit fyrir gos við Meradali
Næstum því 1.400 skjálftar hafa verið á Reykjanesi frá miðnætti sá stærsti upp á 4,5. Náttúruvársérfræðingur segir kviku hafa færst norður og nú sé helst útlit fyrir að það gjósi við Meradali.

Myndir ársins 2021: Faraldur, fegurð og -hamfarir
Ljósmyndarar og myndatökumenn fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar fönguðu margt dýrmætt augnablikið í ár, eins og þeim einum er lagið. Sigrar og sorgir voru fest á filmu og í mörgum tilvikum sannaðist það fornkveðna; að mynd segir meira en þúsund orð.

Jarðskjálfti 4,2 að stærð: „Það er búið að skjálfa dálítið vel í nótt“
Jarðskjálfti, 4,2 af stærð, mældist suðsuðaustur af Fagradalsfjalli klukkan 7:25 í morgun en jörð hefur skolfið við Fagradalsfjall síðan á þriðjudaginn síðastliðinn. Ekkert lát virðist vera á jarðskjálftavirkninni en þónokkrir jarðskjálftar mældust yfir 4 að stærð í gær. Sá stærsti mældist á miðvikudaginn en hann var 4,9 að stærð.

Jörð skelfur á Reykjanesi
Jarðskjálfti af stærðinni 4,8 varð 2,5 kílómetra norðaustan af Grindavík klukkan 21:38 í kvöld. Skjálftinn varð á fimm kílómetra dýpi en hann er sá næststærsti sem hefur orðið í yfirstandandi skjálftahrinu sem hófst á þriðjudaginn.

Jarðskjálfti af stærðinni 4,7 mældist á Reykjanesskaga
Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu klukkan 15.03 í dag og samkvæmt mælingum Veðurstofunnar var hann 4,7 að stærð. Skjálftinn er sá stærsti frá upphafi nýlegrar jarðskjálftahrinu í Fagradagsfalli en hún hófst á þriðjudaginn síðastliðinn.

Skjálftavirkni við Fagradalsfjall: Eitt þúsund skjálftar frá miðnætti
Skjálftavirkni tók að aukast við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga í gærkvöldi eftir fremur rólegan gærdag. Um eitt þúsund skjálftar hafa mælst frá miðnætti en skjálftahrinan hefur staðið yfir síðan á þriðjudaginn.

Tvö þúsund skjálftar frá miðnætti
Skjálftavirkni við Fagradalsfjall mælist enn mikil. Frá miðnætti hafa um tvö þúsund skjálftar mælst á svæðinu og flestir þeirra nærri gosstöðvunum.

Magnaðar myndir RAX af gosstöðvunum í dag
Allt er með kyrrum kjörum við Geldingadali, það er að segja ef litið er á þá úr flugvél. Þar er þó jarðskjálftahrina enn í fullum gangi og gæti eldgos hafist á ný fyrirvaralaust. Ragnar Axelsson, RAX, flaug yfir Geldingadali í dag.

Ekki útilokað að landsmenn fái eldgos í jólagjöf
Enn er mikil skjálftavirkni í Geldingadölum en skjálftarnir koma nú í lotum. Gert er ráð fyrir að kvika sé á hreyfingu á svæðinu. Náttúruvársérfræðingur segir ekkert hægt að útiloka með tilliti til eldgoss og gæti sú atburðarrás verið hröð.

Gengur upp og niður með um klukkutíma löngum þyrpingum
Jarðskjálftavirknin í og við Fagradalsfjall hefur gengið upp og niður með um klukkutíma löngum þyrpingum á nokkurra klukkustunda fresti. Vísindamenn eru sammála um að ekki sé hægt að útiloka að kvika gæti komist upp á yfirborð með skömmum fyrirvara.

Þrjár myndarlegar hviður af skjálftum í nótt
„Virknin hefur gengið svolítið upp og niður,“ segir Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um skjálftavirkni á Reykjanesskaga í nótt. „Það hafa komið svona þrjár myndarlegar hviður af jarðskjálftum í nótt en inn á milli róast.“

Atburðarásinni svipar til aðdraganda gossins
Jarðskjálftahrinan á Reykjanesi er enn í fullum gangi þó stórum skjálftum hafi farið fækkandi með deginum. Skjálftavirknin á Reykjanesi er að færast til suðvesturs og er núna á nákvæmlega sama stað og kvikugangurinn sem myndaðist í vor áður en gos hófst í Geldingadölum.