Eldgos og jarðhræringar

Fréttamynd

Engar vís­bendingar fundist en form­legri leit lokið

Leitinni að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík árið 2024 er formlega lokið. Engar vísbendingar hafi fundist sem varpað gætu ljósi á hvar jarðneskar leifar Lúðvíks sé að finna. Ekki verði ráðist í frekari leitaraðgerðir.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka

Landris mælist áfram á stöðugum hraða við Svartsengi en jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni er áfram lítil. Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss er áfram líklegasta sviðsmyndin. Engin gögn benda til þess að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka.

Innlent
Fréttamynd

Nota rústa­mynda­vél við leit að Lúð­vík

Formleg leit að Lúðvík Péturssyni, sem féll í sprungu í Grindavík þann 24. janúar 2024, hófst í morgun. Fyrstu sigmennirnir sigu niður í sprunguna á tólfta tímanum en meðal annars verður notast við myndavélabúnað frá rústabjörgunarsveitinni til að kanna aðstæður.

Innlent
Fréttamynd

Mark­mið að kanna að­stæður en ekki björgun

Í dag fer fram afmörkuð leitaraðgerð í Grindavík vegna Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í janúar 2024. Ekki er um að ræða björgun heldur er markmið leitaraðgerðar að kanna aðstæður samkvæmt tilkynningu lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

„Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“

Leit verður hafin nú í morgunsárið að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. Bróðir hans gagnrýnir hversu langan tíma hefur tekið að hefja leit og telur að rannsaka þurfi aðdraganda þess að Lúðvík féll í sprunguna betur. Fjölskyldan voni að hann finnist í dag og þau geti jarðað hann. Rætt var við Elías í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Hefja leit að Lúð­vík í fyrra­málið

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum verður á morgun með aðgerð sem miðar að leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024.

Innlent
Fréttamynd

„Tárin streymdu niður vangana á mér“

„Tárin streymdu niður vangana á mér. Pabbi kveikti á útvarpinu og stillti á fréttirnar sem fjölluðu næstum því bara um Grindavík og jarðskjálftana. Út um gluggann horfði ég á hraunið okkar. Mér hafði alltaf þótt það fallegt en nú var það líka óhugnanlegt.“

Lífið
Fréttamynd

Fangelsi undir Vatna­jökli

Grímsvötn nefnist nýr leikvangur í hinum heimsfræga tölvuleik Overwatch. Spilarar geta þar etið kappi í skálduðu hámarksöryggisfangelsi í samnefndri eldstöð í Vatnajökulsþjóðgarði. 

Leikjavísir
Fréttamynd

Öflugur jarð­skjálfti í Bárðar­bungu

Jarðskjálfti 4,7 að stærð reið yfir í Bárðarbunguöskju klukkan 17:28 síðdegis í dag. Skjálftar af þessari stærð verða reglulega í Bárðarbunguöskjunni en engin merki eru um gosóróa.

Innlent
Fréttamynd

Röð skjálfta ekki á­hyggju­efni út af fyrir sig

Skjálfti sem lét finna fyrir sér á höfuðborgarsvæðinu í nótt átti upptök sín í Brennisteinsfjöllum en náttúruvársérfræðingur segir sprungur á svæðinu hrökkva reglulega. Verið sé að bíða eftir stórum skjálfta á svæðinu en enginn gosórói hafi mælst og því ekki endilega útlit fyrir eldgos í náinni framtíð.

Innlent
Fréttamynd

Skjálfti upp á 3,4

Jarðskjálfti upp á 3,4 reið yfir rétt austan við Hamarinn á Vatnajökli nú í hádeginu.

Innlent
Fréttamynd

Höfuð­borgar­svæðið skalf

Jarðskjálfti fannst víða um höfuðborgarsvæðið nú um klukkan tuttugu mínútur í eitt eftir miðnætti. Hann fannst bæði í vesturbæ Reykjavíkur, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og á Álftanesi svo dæmi séu tekin.

Innlent
Fréttamynd

Katla skelfur

Nokkrir skjálftar hafa mælst í Mýrdalsjökli í kvöld, þá aðallega í Kötluöskju.

Innlent
Fréttamynd

Eld­gos á­fram lík­legasta sviðs­myndin en ó­ljóst hve­nær það yrði

Nýtt hættumat tók gildi í dag, þann 30. september, en hættuvægi vegna sprungna og jarðfalls innan Grindavíkur hefur verið endurmetið með tilliti til sprunguviðgerða. Við breytinguna lækkar heildarhættustig fyrir Grindavík en heildarhætta er áfram metin töluverð. Nýtt kvikuhlaup gæti endað með eldgosi en það er ekki hægt að segja til um hvenær það gæti orðið.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt á­hættu­mat: Bjóða Grind­víkingum að kaupa húsin til baka

Niðurstöður endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík benda til þess að forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík séu ásættanlegar að því gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og nauðsynlegar öryggisráðstafanir virkar. Ríkisstjórnin mun hefja vinnu við að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum.

Innlent
Fréttamynd

Stór skjálfti í Lang­jökli fannst víða

Stór skjálfti varð í vestanverðum Langjökli klukkan átján mínútur yfir tvö í dag. Skjálftinn mældist 4,2 að stærð og hafa nokkrir eftirskjálftar fylgt, sá stærsti 2,3 að stærð.

Innlent
Fréttamynd

Fékk nóg og er hættur á Facebook

Jón Frímann Jónsson sem haslað hefur sér völl með skeleggum skrifum um jarðhræringar á samfélagsmiðlinum Facebook hefur ákveðið að segja skilið við miðilinn. Hann segir fréttir af gervigreind og auglýsingasölu fyrirtækisins þar sem kynferðisofbeldi gegn börnum bregði fyrir sé um að kenna. Jón vonar að lesendur muni fylgja honum yfir á nýja samfélagsmiðla.

Innlent
Fréttamynd

„Ég átti aldrei að lifa þetta af“

Haukur Grønli slökkviliðsmaður hefur stofnað stuðningshóp fyrir fólk sem hefur lent í heilablóðfalli. Fyrsti fundurinn er á morgun. Sjálfur er Haukur að jafna sig eftir slíkt áfall í október 2024. Hann segir að eftir áfallið sé hann eins og Dóra í Nemó og að hann hafi upplifað mikla auðmýkt eftir veikindin. 

Innlent
Fréttamynd

Rýmdi grunn­skólann augna­blikum áður en skyndiflóð skall á

Tugir skólabygginga voru eyðilagðar og skoluðust burt þegar skyndiflóð og skriður ruddust niður fjalladali í Nepal og Tíbet þann 26. ágúst en þúsunda er enn þá saknað og tala látinna fer hækkandi. Skólastjóri í Nepal rýmdi skólann og skipaði um níu hundruð börnum að færa sig á hærra svæði örskömmu áður en flóðið skall á skólabyggingunni.

Erlent
Fréttamynd

Hundrað skjálfta hrina við Eld­ey

Tæplega hundrað jarðskjálftar hafa mælst í jarðskjálftahrinu við Eldey í nótt. Hrinan hófst á stórum skjálfta klukkan 03:38. Fyrsti skjálftinn var 4,1 að stærð en sumir eftirskjálftar hafa verið yfir 3,0.

Innlent