Bólusetningar
17 18 19 20 21 22 23 24 25 … 52 ›
Aðgerðir ekki hertar: Flest smit undanfarna daga af delta-afbrigðinu Frá 1. júlí hafa 23 einstaklingar greinst með Covid-19 hér innanlands, flest af völdum delta-afbrigðisins svokallaða. Sóttvarnalæknir er ekki með tillögur að hertum sóttvarnaraðgerðum að svo stöddu, en það gæti breyst. Innlent 15.7.2021 11:30
Bólusetning með breyttu sniði í haust Í gær fór fram síðasta fjöldabólusetningin í Laugardalshöll og hér eftir verður bólusetning á höfuðborgarsvæðinu með breyttu sniði. Innlent 15.7.2021 11:29
Hætt að afhenda lögreglu vottorð hælisleitenda í bili Óvissa er uppi um hvort Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu megi afhenda lögreglu bólusetningarvottorð einstaklinga eins og stofnunin gerði í tilfelli tveggja Palestínumanna sem voru sendir úr landi í síðustu viku. Heilsugæslan hefur ákveðið að verða ekki við fleiri slíkum beiðnum lögreglunnar fyrr en skorið verður úr um þetta atriði. Innlent 15.7.2021 06:00
Sjokk fyrir alla að bólusettur hafi smitast Rekstrarstjóri Bankastræti Club, þar sem upp kom smit hjá starfsmanni sem var á vakt á föstudags- og laugardagskvöld, segir það hafa verið mikið sjokk að bólusettur starfsmaður hafi smitast. Hún telur ekki að smitið muni hafa áhrif á rekstur staðarins en hann verður opinn um næstu helgi. Lífið 14.7.2021 20:50
Langþráð frí eftir „vertíð“ í bólusetningum Gleði og tilhlökkun var einkennandi hjá starfsfólki í Laugardalshöll sem stóð sína síðustu vakt þar í dag – að öllu óbreyttu. Fjöldabólusetningum er nú lokið og þó bólusetningum verði framhaldið þá verða þær með breyttu sniði í haust. Innlent 14.7.2021 19:15
Afgangsbóluefni fer til landa sem á þurfa að halda Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að bóluefni sem verði afangs verði gefið þeim þjóðum sem á þurfi að halda. Innlent 14.7.2021 15:39
Hefur áhyggjur af Íslendingum á rauðum svæðum Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að þau fimm smit sem greindust utan sóttkvíar í gær minni okkur á að veiran sé úti í samfélaginu. Fjöldi Íslendinga sem staddur sé erlendis á svokölluðum rauðum svæðum sé einnig áhyggjuefni. Innlent 14.7.2021 13:11
Fimm smit utan sóttkvíar og á annað hundrað í sóttkví Í gær greindust fimm COVID-19 smit innanlands, allir utan sóttkvía, þrír eru full bólusettir en tveir ekki bólusettir að fullu. Innlent 14.7.2021 11:01
Verða með „björgunarlínu“ í bólusetningu meðan á fríinu stendur Búist er við um 1.700 manns í endurbólusetningu með bóluefni Moderna í Laugardalshöll í dag, síðasta bólusetningardaginn fyrir sumarfrí Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þá hafa 2.000 manns verið boðaðir í bólusetningu með AstraZeneca, en búist er við einhverjum afföllum úr þeim hópi. Þrátt fyrir frí verður ekki ómögulegt að fá bólusetningu á höfuðborgarsvæðinu í sumar. Innlent 14.7.2021 10:54
Fjöldi útlendinga hefur tafið bólusetningar í dag Ljúka átti bólusetningardeginum í dag klukkan tvö en aðsókn hefur verið nokkuð meiri en heilsugæslan gerði ráð fyrir að sögn Ragnheiðar Óskar Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjá heilsugæslunni. Innlent 13.7.2021 14:42
Ætla að blanda bóluefni eins og enginn sé morgundagurinn Um sjö þúsund skammtar af bóluefni Pfizer verða gefnir í endurbólusetningu, þar sem fólk fær seinni skammt af bóluefninu, í Laugardalshöll í dag. Þá er opið fyrir aðra í fyrri bólusetningu, og birgðastaðan góð þannig að auðvelt ætti að vera að anna eftirspurn. Innlent 13.7.2021 11:42
Læknar fordæma niðurfellingu aðgerða á Englandi Samtök breskra lækna segja þá ákvörðun Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, að fella niður allar sóttvarnaraðgerðir í Englandi vera óábyrga og hættulega. Johnson tilkynnti í síðustu viku að allar aðgerðir yrðu felldar niður þann 19. júlí og það þrátt fyrir að smituðum færi hratt fjölgandi á Englandi. Erlent 13.7.2021 11:38
Tveir bólusettir greindust utan sóttkvíar Tveir greindust með kórónuveiruna utan sóttkvíar hér á landi í gær. Báðir voru bólusettir. Innlent 13.7.2021 11:12
Aldrei fleiri dáið í Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi skráðu 780 dauðsföll vegna Covid-19 í gær. Það er mannskæðasti dagurinn frá upphafi faraldurs nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19. Alls greindust 24.702 smitaðir. Erlent 13.7.2021 10:50
Helmingur íbúa Evrópusambandsins fullbólusettur Meira en helmingur allra fullorðinna einstaklinga í Evrópusambandinu er nú fullbólusettur. Þetta tilkynnti Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á Twitter-reikningi sínum í morgun. Erlent 13.7.2021 08:53
Græðgi ráði för hjá þeim sem vilja gefa þriðja skammtinn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) er ekki hrifin af áherslum lyfjaframleiðandans Pfizer á að fá leyfi fyrir því að gefa þriðja skammt bóluefnis síns gegn Covid-19. Yfirmaður stofnunarinnar segir að það sé græðgi bóluefnaframleiðenda að kenna hve mikil mismunun hefur orðið í dreifingu bóluefnaskammta. Erlent 13.7.2021 07:43
Vara við taugasjúkdómi sem aukaverkun af bóluefni Janssen Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur ákveðið að bæta taugasjúkdóminum Guillain-Barré á lista yfir mögulegar aukaverkanir af notkun bóluefnis Janssen. Eftirlitið segir þó að líkur á að fá sjúkdóminn séu mjög litlar. Erlent 12.7.2021 18:52
Síðustu sprautur fyrir sumarfrí Á morgun og á miðvikudag eru síðustu bólusetningardagar Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir sumarfrí. Að fríinu loknu verða bólusetningar með öðru sniði en verið hefur síðustu mánuði, en hvernig þeim verður háttað er ekki komið á hreint. Innlent 12.7.2021 07:21
Gömlu góðu en löngu innritunarraðirnar komnar aftur Langar raðir mynduðust við innritunarborð Leifsstöðvar í morgun og varð seinkun á öllu morgunflugi frá vellinum. Svo langar innritunarraðir hafa ekki sést lengi á vellinum, bæði vegna heimsfaraldursins en einnig vegna þess að við ástandið í dag er ekki hægt að nota sjálfsinnritunarvélar, sem var komið fyrir á vellinum fyrir örfáum árum. Innlent 10.7.2021 11:53
Sækja um að gefa þriðja skammtinn ári eftir seinni skammtinn Lyfjaframleiðandinn Pfizer hefur sótt eftir leyfi fyrir því að gefa þriðja skammtinn af Covid-19 bóluefni sínu. Pfizer segir að frumniðurstöður rannsókna bendi til að mótefni hjá fólki fimm- til tífaldist eftir þriðja skammtinn. Erlent 9.7.2021 07:48
Barnahópur kominn í sóttkví eftir íþróttaæfingu Hópur ellefu og tólf ára barna á höfuðborgarsvæðinu er nú kominn í sóttkví, eftir að barn sem hafði verið með hópnum á íþróttaæfingu greindist með kórónuveiruna í gær. Ekkert bóluefni hefur fengið markaðsleyfi fyrir börn undir tólf ára aldri. Innlent 8.7.2021 12:53
Fjórar milljónir dánar: Yfirmaður WHO skýtur fast á ríkari þjóðir heims Skráð dauðsföll vegna Covid-19 eru nú komin yfir fjórar milljónir. Rúmt eitt og hálft ár er síðan faraldur nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19, hófst í Kína. Þessi áfangi, ef svo má kalla, náðist í gær en yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og sérfræðingar segja raunverulegu töluna vera hærri. Erlent 8.7.2021 09:04
Tilfellum fjölgar enn þrátt fyrir útgöngubann Þrátt fyrir að útgöngubann hafi verið í gildi í Sydney í Ástralíu í tvær vikur vegna aukinnar útbreiðslu kórónuveirunnar halda tilfellinn áfram að hrannast upp og í gær voru fleiri greindir smitaðir á einum sólarhring en í fjórtán mánuði þar á undan. Erlent 8.7.2021 07:11
Fólk búið að sleppa fram af sér beislinu Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur að vel gangi að halda kórónuveirufaraldrinum í skefjum innanlands en leggur áherslu á að veirulausa ástandið sem nú ríki sé nýtilkomið. Innlent 8.7.2021 07:01
Börn geta smitast í útlöndum: Mælir gegn fjölskylduferðum með óbólusett börn Sóttvarnalæknir mælir með því að Íslendingar fari ekki óbólusettir til útlanda og gilda þau tilmæli einnig um börn. Þar með er í raun mælt gegn fjölskylduferðum með óbólusett börn. Innlent 7.7.2021 14:03
Víðir bólusettur: „Þetta er meiriháttar“ „Þetta er meiriháttar,“ sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, eftir að hann var bólusettur með bóluefni Janssen í Laugardalshöllinni klukkan 11 í morgun. Innlent 7.7.2021 11:48
Milljón bóluefnaskammtar óhreyfðir í dönskum kælum Yfir ein milljón bóluefnaskammta frá Janssen og AstraZeneca standa óhreyfð í kælum Sóttvarnastofnunar Danmerkur, þrátt fyrir að ekki sé reiknað með að bólusett verði með skömmtunum í landinu. Erlent 7.7.2021 10:03
„Opið hús og allir velkomnir“ í Janssen í dag Bólusett verður með bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni í Laugardalshöll klukkan 10 til 13 í dag. Um er að ræða opinn bólusetningardag - „opið hús og allir velkomnir,“ segir á vef heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Innlent 7.7.2021 06:21
Vara við því að óbólusett börn ferðist til útlanda Margir Íslendingar stefna á ferðalög í sumar, bæði innanlands og utan, og er fólk farið að flykkjast út á Keflavíkurflugvöll til að halda í frí til útlanda. Einhverjir hafa þó velt fyrir sér ágæti þess að taka börnin með í frí en börn undir 16 ára aldri hafa flest hver ekki verið bólusett þó svo að fullorðna fólkið hafi nær allt verið það. Innlent 6.7.2021 10:45
Segja virkni bóluefnis Pfizer minnka Ísraelar segjast hafa mælt samdrátt í virkni bóluefnis Pfizer gegn Covid-19. Sérstaklega varðandi það að koma í veg fyrir smit og að smitaðir sýni einkenni. Bóluefnið komi þó áfram vel í veg fyrir alvarleg veikindi. Erlent 6.7.2021 10:45