Stangveiði
81 82 83 84 85 86 87 88 89 … 93 ›
Fréttir úr Syðri Brú í Soginu Þeir hjá Lax-Á heyrðu í Sigurði Vilhjálmssyni stórveiðimanni en hann var við veiðar í Syðri Brú í einn dag 2. Ágúst. Sigurður setti í 9 laxa og landaði 8 af þeim, þar af var einn 87cm en honum var sleppt aftur. Veiði 5.8.2011 16:27
Blanda gefur enn vel Þrátt fyrir að lónið uppi á hálendi sé að fyllast er fantagóð veiði á svæðum eitt, tvö og þrjú í Blöndu. Veiði 5.8.2011 09:08
Gott í Víðidalnum Hollið sem hóf veiðar í Víðidalnum seinnipart þriðjudags hafði landað rétt yfir 30 löxum við enda dags í gær. Mest veiddist á neðstu svæðunum á gárutúbur en stór hlut aflans var lúsugur. Veiði 4.8.2011 11:51
Topp 10 listinn yfir aflahæstu árnar Þá er kominn nýr listi frá Landsambandi veiðifélaga þar sem við sjáum stöðuna í ánum. Veiðin hefur verið góð en það vekur þó smá eftirtekt hvað Rangárnar eru langt á eftir veiðinni í fyrra. Ágúst hefur þó alltaf verið gífurlega sterkur í þeim og það má alveg reikna með yfir 2000 löxum veiddum úr hvorri á í þessum mánuði. Veiði 4.8.2011 11:02
Veiðisaga úr Hrolleifsá Vorum með þrjár stangir í Hrolleifsá um verslunarmannahelgina. Veiðin var ljómandi góð en það veiddist einn 8 punda lax, en það er ekki algengt að það veiðist lax í þessari á. Einnig komu á land nokkrir smáir staðbundnir urriðar og í kringum 20 sjóbleikjur. Bleikjurnar voru allar kringum 1 og hálft pund til 3 pund en þar fyrir utan veiddi hinn ungi veiðimaður Rúnar Ingi Freyr Róbertsson 6 punda bleikju. Laxinn tók á maðk en bleikjurnar veiddust flestar á litlar púpur og maðk. Nóg er af silung í ánni en einnig sáust fleiri laxar. Veiði 4.8.2011 10:18
Fluguveiðiskóli SVAK að hefjast aftur Fyrir þá sem ætla að bæta köstin fyrir komandi veiðitúr þá eru þeir hjá SVAK með námskeið sem hefst 9. ágúst. Það eru nokkur pláss laus svo við hvetjum ykkur til að skrá ykkur því það er alltaf hægt að læra meira þegar kemur að fluguköstum. Veiði 4.8.2011 10:07
Veiðislóð 3 tbl. komið út Veftímaritið Á Veiðislóð er komið út og er þetta þriðja tölublað. Í blaðinu má finna skemmtilegar greinar og viðtöl við veiðimenn. Það er alltaf fagnaðarefni að fá meira lesefni fyrir veiðimenn enda höfum við gaman af því að lesa um það efni sem sameinir okkur í dellunni. Veiði 4.8.2011 09:56
Breiðdalsá komin í 450 laxa Frábær veiði hefur verið í Breiðdalsá það sem af er tímabili og nú eru 450 laxar komnir á land og tveir bestu mánuðurnir framundan. Ef þetta heldur svona áfram stefnir allt í nýtt met í ánni. Uppistaðan í veiðinni er tveggja ára lax sem kemur vel haldin úr sjó en samkvæmt Þresti Elliðasyni leigutaka Breiðdalsár þá er smálaxinn aðeins farinn að sýna sig síðustu daga. Veiði 3.8.2011 15:19
Flottar bleikjur úr Kleifarvatni Halldór Gunnarsson skellti sér í Kleifarvatnið 1. ágúst og fékk mjög fallegar bleikjur á Peacock púpu með kúluhaus. Bleikjurnar voru allt upp í 5 pund (2,4 kg). Veiðivísir hefur heyrt af nokkrum sem hafa gert fína veiði í vatninu en menn hafa verið afskaplega tregir við að gefa upplýsingar hvar þeir hafa verið að veiða þessa fiska. Veiði 3.8.2011 14:38
Flott veiði í Hólsá og Ármóti Mikil laxgengd er núna á í Hólsá og neðri svæðum Eystri Rangár og menn að gera frábæra veiði á svæðinu. Hólsársvæðið Eystra telur frá bænum Ármóti og niður að ós Hólsár að austanverðu. Þarna fer allur fiskurinn í gegn sem fer uppí Eystri Rangá og miðað við veiðitölur úr báðum ánum síðustu daga er veisla framundan. Veiði 3.8.2011 13:26
Ytri Rangá komin yfir 1100 laxa Ytri Rangá skreið yfir 1100 laxa í gær en alls veiddust 75 laxar yfir daginn. Helgin var fín í Ytri, á föstudag veiddust 63 laxar, laugardag 61 og á sunnudeginum og mánudag veiddust 62 laxar. Það var nóg af fiski að ganga og því var sterkasta veiðisvæðið ásinn þar sem Staurinn og Straumey voru að gefa best. Veiði 3.8.2011 12:56
Laxar á lofti við ósa Korpu Þrátt fyrir að ágúst sé gengin í garð og á venjulegu ári ætti mesti krafturinn að vera farinn úr laxagöngunum þá er nú staðan bara allt önnur. Það er ennþá lax að ganga í Norðurá og stöðugar göngur virðast vera í flestum ánum þessa dagana. Veiði 3.8.2011 11:06
Góð skot á Tannastaðatanga Það er víðar en í stóru ánum sem menn setja í laxa þessa dagana. Sindri Már Pálsson gerði ágætis túr í Sogið, nánar tiltekið á Tannastaðatanga, um daginn þegar hann og afi hans lönduðu tveimur flottum löxum og misstu einhverja. Núna þegar Sogið er aðeins seinna í gang en í venjulegu ári eru menn í góðri laxavon á þessu svæði og þeir sem lenda í göngum geta gert góða veiði. Veiði 2.8.2011 16:24
126 laxa dagur í gær í Eystri Rangá Í gær veiddust 126 laxar í Eystri Rangá og er áin þá komin í 955 laxa. Núna eru kröftugar göngur í ánna og má reikna með að hún verði fljót upp í 2000 laxa þegar flestir dagarnir framundan ættu að skila yfir 100 löxum. Veiði 2.8.2011 10:49
24 laxar á einum degi í Svalbarðsá Ótrúlegur gangur er í Svalbarðsá þessa dagana en hollið sem byrjaði veiðar í gær er komið í 32 laxa eftir eina og hálfa vakt og þar af veiddust 24 laxar í dag. Vert er að taka fram að í hópnum er ungir og efnilegir fluguveiðimenn sem eiga bróðurpartinn af aflanum. Meðfylgjandi myndir eru af ungum veiðimönnum sem eru í skýjunum með árangurinn eftir fyrsta einn og hálfa daginn. Veiði 2.8.2011 09:49
"Veðurguðir greiða gamla skuld" Ástþór Jóhannsson leigutaki og staðarhaldari við Straumfjarðará hefur þann skemmtilega sið að senda okkur ca tvær skýrslur á hverju sumri þar sem hann tekur saman gang mála. Að þessu sinni ríkir mikil gleði í pistlinum! Veiði 2.8.2011 09:34
Veiðitölur úr Andakílsá Nú þegar að um þriðjungur veiðitímans er liðinn í Andakílsá hafa veiðst rúmlega 70 laxar. Heita má að þetta séu eðlilegar veiðitölur úr ánni. Veiði 2.8.2011 09:32
1.715 laxar komnir úr Norðurá Mjög góð veiði hefur verið í Norðurá í Borgarfirði síðari hluta júlímánaðar og hafa hollin verið að fá 100-150 laxa á þremur dögum. Enn er lax að ganga. Veiði 1.8.2011 19:05
Tröllin farin að sýna sig á Nessvæðinu Í morgun veiddist 25 punda hængur á Nesveiðum. Nú er farið að bera nokkuð á stórlöxunum sem einkenna þetta magnaða veiðisvæði. Veiði 1.8.2011 19:03
Hugleiðingar um netaveiði á vatnasvæði Ölfusár og Hvítár Þessa grein er að finna á vef þeirra Lax-Á manna og er góð lýsing á því sem velflestir veiðimenn sem leggja leið sína árnar á þessu vatnasvæði eru að hugsa: Veiði 1.8.2011 10:48
60-80 laxar á dag úr Eystri Rangá Eystri Rangá hefur verið að skila 60-80 löxum á land á dag þrátt fyrir að áin sé stundum lituð hluta úr degi. Ef áin væri hrein allann daginn væru 100 + laxa dagarnir orðnir margir því mikið af laxi hefur verið að ganga síðustu daga. Veiði 1.8.2011 09:24
63 laxar á eina stöng í Grímsá Veiði hefur glæðst til muna í Borgarfjarðaránum eftir vætutíð að undanförnu og er Grímsá þar engin undantekning. Góð veiði hefur verið í ánni að undanförnu en fáir hafa sennilega gert betur en bræðurnir Eggert og Þórir Halldórssynir frá Stykkishólmi sem fengu 63 laxa á ,,rúmlega“ eina stöng dagana 23. til 26. júlí sl. Þeir bræður veiða víða en Grímsáin er í sérstöku uppáhaldi enda hefur hún reynst þeim gjöful í áranna rás. Veiði 1.8.2011 09:16
54 laxar komnir úr Andakílsá Holl sem lauk veiðum þann 28 júlí fékk sjö laxa á tveimur dögum og þar af voru sex laxar lúsugir. Þessir laxar komu úr Nátthagahyl, Efri Foss og nýjum veiðistað. Laxar sáust varla á öðrum stöðum í ánni. Veiði 31.7.2011 13:01
Frábær skilyrði og góð veiði í Kjósinni. Mikið af laxi í Langá Félagarnir Sævar Haukdal og Rögnvaldur Jónsson voru í síðasta holli í Laxá í Kjós og enduðu með 21 lax á stöngina. Skilyrðin í ánni voru að þeirra sögn frábær. Áin í góðu vatni og fiskur að ganga af krafti, en sérstaklega var mikið af laxi á frísvæðinu frá Káranesfljóti og upp fyrir Hurðarbakshyl. Efsta svæðið hefur verið rólegast en er þó að koma hægt og rólega inn núna þegar fiskurinn dreifir sér um ánna. Veiði 31.7.2011 08:36
300 laxa vika í Selá Veiðin í Selá heldur áfram að vera eins og hún hefur verið frá opnun, alveg ótrúlega góð! Síðasta vika gaf 300 laxa sem er alveg ótrúleg tala miðað við það sem er að gerast í ánum í kring og í raun á landinu öllu. Áin var ekki sein til eins og víða og tveggja ára laxinn er ennþá rúmlega helmingur aflans. Veiði 31.7.2011 08:32
9 kg lax úr Eystri Rangá í morgun Eystri Rangá var í 59 löxum í gærdag og hefur náð að hreinsa sig síðan í byrjun vikunar. Í morgun var búið að skrá 25 laxa í bók og veiðimenn en eftir að skila sér niðri veiðihús. Það má einnig bæta við að 9kg lax veiddist í morgun og er það stærsti lax sumarsins hingað til í Eystri en við fáum því miður ekki mynd af drekanum fyrr en í kvöld eða á morgun. Veiði 29.7.2011 16:47
Góðir kostir í veiðileyfum um helgina Núna þegar veðurspá helgarinnar liggur fyrir fara margir að hugsa um hvert þeir eigi að fara og veiða. Það eru margir spennandi kostir í boði og það þarf ekki að kosta mikið. Við tókum saman nokkra veiðileyfasala og skoðunum hvaða spennandi kostir eru í boði um helgina, og þá sér í lagi það sem kostar ekki mikið Veiði 29.7.2011 14:28
Klaus Frimor bætir við flugukastnámskeiðum Klaus Frimor bætir við nokkrum flugukastnámskeiðum á Rauðavatni í ágúst. Það komust færri að en vildu á námskeiðin í vor og nú bætir hann við einhendunámskeiðum 18 og 20 ágúst og tvíhendunámskeiði 19 ágúst. Veiði 29.7.2011 14:23
Fréttir frá veiðisvæðunum í Borgarfirði Holl sem lauk veiðum á aðalsvæði Hítarár þann 27/7 hjó nærri veiðimeti árinnar því 81 lax veiddist í hollinu. Mjög góður gangur er í ánum á Vesturlandi. Veiði 29.7.2011 10:03
80 laxa dagur úr Ytri Rangá Ytri Rangá og vesturbakki Hólsár voru í 80 löxum í gærdag þrátt fyrir leiðindarok seinnipart dags. Matti veiðivörður sagði okkur að svæði sjö væri komið í gang ásamt því að Gullfossbreiðan á svæði tíu er alltaf að gefa meira og meira. Veiði 29.7.2011 09:21
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti