Stangveiði

Opið hús SVFR í kvöld
Félagsmenn SVFR fagna að venju þegar fyrsta Opna Hús vetrar er haldið hverju sinni enda alltaf glatt á hjalla þar á bæ á þessum dögum.

Er ísdorgið búið?
Ég man þá tíð þegar ég var dreginn út á frosin vötn í æsku minni til að dorga í gegnum ís en ég heyri varla af þessu lengur.

Heilræðabók Fluguveiðimannsins
Stefán Jón Hafstein var að gefa út bók fyrir fluguveiðimenn sem heitir Fluguveiðiráð og er, eins og nafnið bendir til, stútfull af góðum ráðum til þeirra sem eru nýbyrjaðir sem lengra komnir í fluguveiði.

Bíldsfell kom vel út í sumar
Svæðið kennt við Bíldsfell í Soginu er eitt af vinsælustu veiðisvæðunum sem SVFR býður félögum sínum uppá enda svæðið annálað fyrir flotta laxa og oft mikið af bleikju.

Uggur í veiðimönnum vegna breytinga í Þingvallavatni
Nokkur óánægja er meðal veiðimanna um þær breytingar sem hafa verið kynntar um veiðitilhögum á vinsælum urriðasvæðum fyrir sumarið 2014.

Veiðikortið 2014 komið út
Veiðikortið 2014 er komið út að venju fyrir jól enda er kortið orðið vinsæll jólapakki til margra veiðimanna.

Tungufljót komið til Fiská
Ein vinsælasta sjóbirtingsá landsins, Tungufljót í Skaftafellssýslu, var boðin út í haust og nú hefur verið samið við nýjan leigutaka.


Laxá í Dölum fer til Hreggnasa
Það halda áfram að berast fréttir af útboðsmálum laxveiðiánna og nú síðast var það að koma í ljós hver verður með Laxá í Dölum næstu árin.

Gekkstu vel frá veiðidótinu þínu?
Á hverju vori þegar fyrsti veiðidagurinn rennur upp stekk ég niður í bílskúr og gríp með mér veiðitöskuna mína og stöng til að nota þann daginn, fullur tilhlökkunar um fyrsta fisk sumarsins.

Veiðimenn huga að sumrinu 2014
Síðustu stangirnar eru varla þornaðar eftir liðið sumar þegar stangveiðimenn eru farnir á stúfana með bókanir fyrir næsta sumar.

Síðasta rjúpnahelgin framundan
Næsta helgi er síðasta helgin þar sem rjúpnaveiði verður leyfð og það verður að segjast eins og er að veðrið er klárlega að gera veiðimönnum erfitt fyrir.

SVFR framlengir ekki samning um Laxá í Dölum
Það er skammt stórra högga á milli í veiðiheiminum og þá sérstaklega í leigumálum laxveiðiánna en í dag er það ljóst að SVFR er að ljúka áralöngu samstarfi við Veiðifélag Laxdæla.

Veiddi betur meðan bókin súrraði í kolli hans
Stefán Jón Hafstein bætist nú í hóp snjallra penna og veiðimanna og sendir frá sér veiðibók þetta árið en hún er ætluð meðaljóninum í fluguveiðinni.

Ennþá mikið af gæs í Landeyjum
Þrátt fyrir að rjúpnaveiðitíminn sé nú í hámarki eru ennþá margar skyttur að skjóta gæs á suðurlandi enda er mikið af gæs ennþá á mörgum ökrum og túnum.

Fölsuðu tölur um laxalús
Ákæruvaldið í Noregi hefur dæmt laxeldisfyrirtækið Grieg Seafood fil að greiða háa sekt fyrir efnahagsbrot og að hafa falsað tölur um umfang laxalúsar í laxeldisstöðvum.

Enginn virðisaukaskattur af stangveiðileyfum
Enginn virðisaukaskattur er innheimtur af sölu stangveiðileyfa þar sem sala á veiðileyfum flokkast undir fasteignaleigu. Þetta kemur fram í svari Frosta Sigurjónssonar, formanns efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, við fyrirspurn á vefnum spyr.is.

Nessvæðið í Laxá í Aðaldal til Hreggnasa
Það eru nánast fréttir daglega um breytingar á leigumálum laxveiðiánna þessa dagana og í dag er það ljóst að nýr leigutaki tekur við svæðinu kenndu við Nes.

Varaáætlun um jólamat!
Þessi grein ætti kannski frekar að vera undir Lífið hér á Vísi en hér er ekki verið að skrifa um hvernig á að elda heldur HVAÐ á að elda ef engar rjúpur verða á borðum fyrir jólin.

Enn ein áin í útboð
Það hefur verið mikið að gerast í útboðsmálum laxveiðiánna í haust og margar góðar veiðiár hafa verið að skipta um leigutaka en veiðimenn bíða bara eftir því að sjá hvað gerist með verðið.

20-30% verðlækkun í Breiðdalsá
Veiðimenn sem þessa dagana eru að bóka árnar fyrir næsta sumar hljóta að taka því fagnandi þegar um töluverða verðlækkun verður að ræða í einni af fallegri ám landsins.

Hvar má ég veiða rjúpu?
Á hverju hausti velta þeir sem eru nýkomnir með byssupróf og veiðikort því fyrir sér hvar þeir mega ganga til rjúpna án þess að vera á veiðum í óleyfi.

Að velja réttar þrengingar
Það getur skipt sköpum að vera með réttar þrengingar þegar farið er til veiða enda eru færin oft misjöfn eftir veðri og aðstæðum.

Rysjótt rjúpnavertíð
Nú er önnur helgin í rjúpnaveiðum framundan og veðurspáin er veiðimönnum ekki hagstæð en spáð er leiðindaveðri á norður-, austur- og vesturlandi. Besta veðrið verður líklega frá Snæfellsnesi austur að Mýrdalsjökli og það má reikna með töluverðri umferð veiðimanna á þessu svæði.

Æsingur magnast með rjúpuveiðimönnum
Rjúpnaveiðitímabilið hefst á laugardaginn og mæna veiðimenn nú spenntir til fjalla

Fleyga laxastiga í klappir Úlfarsár
Veiðifélag Úlfarsár hefur óskað eftir leyfi til að fleyga úr klöpp í Úlfarsá til að auðvelda göngu lax upp ána.

Kostaði fimm milljónir að veiða refi
317 refir og 125 minkar voru unnir í Skagafirði á veiðiárinu sem endaði 31. ágúst.

Ríkið borgi refarannsókn fyrir vestan
Félag refa- og minkaveiðimanna deilir áhuga Náttúrufræðistofnunar á markvissri skráningu og rannsóknum á veiddum refum á Vestfjörðum í samstarfi við Melrakkasetur Íslands og fleiri aðila.

Bandarískt stórblað fjallar um Miðfjarðará - Draumaá stútfull af laxi
Bandaríska stórblaðið The New York Times fer lofsamlegum orðum um Miðfjarðará. Yfirskrift pistilsins er A Dream River in Iceland.

Stærsti laxinn úr Elliðaám í sumar
Garðar Örn Úlfarsson dró stórlax úr Elliðaám í gær og vill tileinka afa sínum fiskinn en Garðar veiddi laxinn á gamla Hardy-stöng úr fórum hans.