EM 2016 í Frakklandi

Draumabyrjun hjá Harry Kane
Landsliðsferill Harry Kane byrjaði með ótrúlegum látum. Það tók hann 80 sekúndur að skora sitt fyrsta landsliðsmark.

Rooney: Vonandi fáum við fleiri ár með Hodgson
Enski landsliðsfyriliðinn er ánægður með störf landsliðsþjálfarans.

Auðvelt hjá Englandi | Öll úrslit kvöldsins
England, Svíþjóð og Spánn unnu öll leiki sína í undankeppni EM í kvöld. Zlatan sá um vinnuna fyrir Svía og Harry Kane skoraði sögulegt mark fyrir England.

Birkir: Við erum fínir á þessu gervigrasi líka
Birkir Bjarnason segir alla í íslenska karlalandsliðinu í fótbolta spennta og tilbúna fyrir leikinn á móti Kasakstan á morgun.

Jón Daði: Gaman að vera með Eiði Smára í þessum hóp
Samkeppnin fyrir Jón Daða Böðvarsson og aðra sóknarmenn íslenska landsliðsins minnkaði ekki þegar Eiður Smári Guðjohnsen snéri aftur í íslenska landsliðið.

Lagerbäck: Eiður er enn með töfrafætur
Landsliðsþjálfarinn segir að Eiður Smári Guðjohnsen hefði aldrei verið valinn í landsliðið nema vegna góðrar frammistöðu hans með Bolton.

Frá íslensku, yfir á ensku og loks á rússnesku
Vandræðalegur blaðamannafundur íslenska landsliðsins í Astana í morgun.

Eiður Smári: Ætla ekkert að gera það að vana mínum að grenja í sjónvarpinu
Markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi „kvaddi“ fyrir hálfu öðru ári en snýr væntanlega aftur í liðið á morgun.

Heimir: Bera ekkert minni virðingu fyrir okkur heldur en Tékkum
„Við búumst við jöfnun leik og undirbúum okkur undir það," sagði Heimir Hallgrímsson á blaðamannafundi í morgun.

Vildu fá „selfie“ með Eiði Smára
Eiður Smári Guðjohnsen vinsæll hjá blaðamönnunum sem fylgdust með æfingu íslenska landsliðsins í Kasakstan.

Strákarnir sungu fyrir Aron og færðu honum köku
„Það var samt jafnframt erfitt að sætta sig við það að missa af þessu því auðvitað vildi ég vera þarna þegar sá litli fæddist,“ sagði Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði.

Jóhann Berg: Ég lenti í bölvuðu veseni en ég er klár núna
Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson er í frábæru formi, laus við meiðslin og líklegur til að fá sæti í byrjunarliðinu á móti Kasakstan á morgun.

Alfreð: Það skiptir ekki máli hvernig við vinnum
Alfreð Finnbogason og félagar í íslenska karlalandsliðinu í fótbolta ætla sér sigur og ekkert annað í leiknum á móti Kasakstan á morgun.

Því meiri pressa því betra
Gylfi Þór Sigurðsson er búinn að vera með verk í fætinum síðan í desember en hann lætur það ekki stöðva sig. "Ef við ætlum að fara lengra í þessari keppni þá verðum við að vinna,“ segir Gylfi um leikinn við Kasaka.

Mætir þegar maður er valinn í landsliðið
Það stóð ekki á svari frá Eiði Smára Guðjohnsen þegar hann fékk símtalið frá Heimi Hallgrímssyni.

Gríski dómarinn er yngri en Eiður Smári
Gríski dómarinn Anastasios Sidiropoulos mun dæma leik Íslands og Kasakstan í undankeppni EM 2016 en leikurinn fer fram á Astana-leikvanginum á laugardaginn.

Eiður Smári: Vonandi verð ég bara mættur þegar barnið kemur
Eiginkonur Eiðs Smára Guðjohnsen og Arons Einars Gunnarssonar áttu báðar von á sér þegar þeir fóru í langt flug til Kasakstan.

Nýi maðurinn ekki með gegn Íslandi
Alexander Merkel er meiddur og getur ekki mætt íslenska liðinu á laugardag.

Strákarnir fengu að fara í skoðunarferð í dag
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er búið að vera í Kasakstan síðan á þriðjudaginn en strákarnir hafa ekki séð mikið meira en hótelið og keppnisleikvanginn hingað til.

Alfreð: Þetta mark mun gefa mér mikið
Alfreð Finnbogason opnaði markareikning sinn í spænsku úrvalsdeildinni í síðasta leiknum sínum með Real Sociedad fyrir landsliðsferðina til Kasakstan og hann segir markið gera honum gott.

Jóhann Berg ekki mættur í fyrsta sinn til Kasakstan
Jóhann Berg Guðmundsson þekkir betur til í Kasakstan heldur en aðrir leikmenn íslenska karlalandsliðsins í fótbolta en flestir leikmannanna eru hér í fyrsta sinn.

Ragnar: Ekki auðveldara en gegn Tékkum, Hollendingum eða Tyrkjum
Varnarmaðurinn er óhræddur við leikinn gegn Kasakstan á laugardag og kallar hann skyldusigur.

Aron Einar varð faðir í morgun
Landsliðsfyrirliðinn missti af fæðingu sonar síns þar sem hann er staddur í Kasakstan.

Lars og Eiður ætla að enda ferilinn saman á EM
Lars Lagerbäck og Eiður Smári Guðjohnsen hafa talað saman um að enda saman glæsilega landsliðsferla sína á EM 2016 komist liðið þangað. Eiður Smári er kominn aftur inn í hópinn fyrir leik á móti Kasakstan.

Fyrst pirraðir og svo reyndum við að hlæja
Átta leikmenn íslenska liðsins biðu í átta tíma á flugvellinum í Astana eftir vegabréfsáritun.

Æðislegt að fá Eið Smára aftur í hópinn
Eiður Smári Guðjohnsen er mættur aftur í íslenska landsliðshópinn og strákarnir í liðinu eru ánægðir með að hafa endurheimt hann.

Viðar Örn: Algjör heiður að fá að vera hérna
Selfyssingurinn kom úr annarri átt til Astana en hinir strákarnir þar sem hann býr og spilar í Kína.

Aron Einar: Þetta er skyldusigur - svo einfalt er það
Landsliðsfyrirliðinn segir stráka búna að fara yfir hvað fór úrskeiðis gegn Tékkum og það á að bæta.

Strákarnir eru ánægðir með gervigrasið í Astana
Íslensku landsliðsmennirnir hafa æft einu sinni á gervigrasinu í Astana og þeir bera því góða söguna.

Kolbeinn: Ég er hundrað prósent klár
Kolbeinn Sigþórsson á von á erfiðum leik gegn Kasakstan sem Ísland verði að vinna.