

Bandaríska tennisdrottningin Serena Williams komst í nótt áfram í undanúrslit Opna bandaríska meistaramótsins í tennis en hún sló út eldri systur sína, Venus Williams, í þremur settum.
Lögreglan í New York staðfesti í dag að einstaklingur hefði verið handtekinn eftir að dróni brotlenti í stúku á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis. Enginn var staddur í stúkunni þegar atvikið átti sér stað.
Vitalia Diatchenko gafst upp vegna meiðsla í öðru setti en hún átti aldrei mögulega í Williams.
Meiri eftirspurn er eftir miðum á úrslitaleik kvenna en karla í fyrsta sinn í sögu Opna bandaríska meistaramótsins í tennis en Serena Williams gæti náð alslemmu takist henni að bera sigur úr býtum.
Eftir að hafa tapað átta sinnum í röð fyrir Novak Djokovic tókst Andy Murray loksins að leggja Serbann að velli.
Rafn Kumar Bonifacius vann föður sinn Raj K. Bonifacius í undanúrslitum á Íslandsmótinu í tennis utanhúss í gær, en sigurstigið var frábært.
Rafn Kumar Bnoifacius og Anna Soffía Grönhölm eru Íslandsmeistarar í tennis utanhúss eftir sigur í úrslitaviðureignum sínum í dag.
Rússneska tenniskonan er ein af sjö tennisleikmönnum sem eru á topp tíu listanum en Ronda Rousey er nýliðinn á listanum
Tennisparið Maria Sharapova og Grigor Dimitrov hafa slitið sambandi sínu.
Tapaði gegn Liechtenstein í lokaleik sínum í Davis-bikarnum.
Bernard Tomic baðst afsökunar á hegðun sinni á hóteli í Bandaríkjunum en hann á yfir höfði sér ákæru.
Afrek Wimbledon-meistarans Serenu Williams í tennis þykir stórkostlegt. Hinn 33 ára gamla Williams á einstakan keppnisferil að baki og er fyrir löngu búin að skrá sig á spjöld sögunnar. Hún er einn merkasti íþróttamaður samtímans og er ekki hætt.
Novak Djokovic varði titil sinn á Wimbledon mótinu í tennis með því að leggja Roger Federer að velli í úrslitum annað árið í röð.
Novak Djokovic fer fögrum orðum um andstæðing sinn í úrslitaleik Wimbledon mótsins í tennis, Roger Federer.
Þetta var 21. sigur Williams á risamóti en aðeins Margaret Court (24) og Steffi Graf (22) hafa unnið fleiri risamótstitla í einliðaleik kvenna.
Serena Williams og Garbine Muguruza mætast í dag í úrslitum Wimbledon mótsins í tennis. Muguruza vann Williams á Opna franska í fyrra.
Hafði betur gegn heimamanninum Andy Murray í þremur settum. Mætir Novak Djokovic í úrslitunum.
Serbinn Novak Djokovic er kominn í úrslitaleikinn á Wimbledon-mótinu eftir öruggan sigur á Frakkanum Richard Gasquet.
Serena Williams vann Mariu Sharapova í undanúrslitum Wimbledon-mótsins og mætir Garbine Muguruza í úrslitum.
Richard Gasquet tryggði sér sæti í undanúrslitunum gegn Novak Djokovic.
Hvorugur lenti í teljandi vandræðum með andstæðinga sína í dag.
Fjórðungsúrslit í einliðaleik karla fara fram í dag. Undanúrslitin hjá konunum hefjast á morgun og þá hefjast beinar útsendingar á Stöð 2 Sport.
Hefur nú unnið 15 af 26 viðureignum sínum gegn Venus sem atvinnumaður.
Spánverjinn tapaði gegn spilara fyrir utan topp 100 fjórða skiptið í röð á Wimbledon-mótinu í gær.
Sjáðu Roger Federer lyfta boltanum yfir mótherja sinn með skoti á milli fóta sér.
Í tíunda sæti á styrkleikalista Wimbledon-mótsins sem var gefinn út í dag.
Roger Federer sýndi af hverju hann er einn allra besti tennisleikari sögunnar á móti í Þýskalandi í gær.
Spánverjinn Rafael Nadal tryggði sér í dag sigur á Mercedes Cup mótinu í tennis en hann var rækilega sleginn út af Novak Djokovic á Opna franska meistaramótinu fyrr í mánuðinum.
Vefsíðan tennisworldusa.org hefur tekið saman fimm flottustu tennisskotin í gegnum tíðina. Mörg þau eru mögnuð og ótrúlegt skot Federer var valið það besta.
Einn besti tenniskappi heims, Roger Federer, féll úr leik í átta manna úrslitum opna franska meistaramótsins í tennis í gær.