

Sjö breskir þingmenn tilkynntu í gær að þeir hefðu sagt sig úr Verkamannaflokknum og myndu í staðinn sitja á þingi sem bandalag óháðra þingmanna. Í hópnum eru til að mynda fjórir skuggaráðherrar.
Þingmennirnir eru ósáttur með stefnu leiðtofa flokksins vegna Brexit og hvernig hann hefur tekið á ásökunum um meinta andgyðinglega afstöðu flokksins.
Greidd verða atkvæði um ályktun um að lýsa stuðningi við áframhaldandi viðræður May forsætisráðherra við Evrópusambandið. Harðlínumenn í Íhaldsflokknum gætu fellt ályktunina.
Seðlabankastjóri Bretlands lýsir Brexit án samnings sem efnahagslegu áfalli fyrir landið og mögulega hagkerfi heimsins.
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, mun óska eftir því við breska þingið að fá lengri tíma til að semja um breytingar á útgöngusamningi við Evrópusambandi, einkum hvað varðar umdeildustu þætti samningsins er varða landamæri Norður-Írlands. Hún hyggist leita til þingsins í vikunni eftir að hafa reynt að sannfæra yfirvöld í Brussel um að gera breytingar fyrirliggjandi samningi á skömmum tíma.
"Horft er til Íslands vegna kynjajafnréttis og loftslagasmála,“ segir Ed Miliband, þingmaður breska verkamannaflokksins. Miliband hrósar Jeremy Corbyn, núverandi leiðtoga flokksins, fyrir að rétta Theresu May, forsætisráðherra, hjálparhönd varðandi vandasama úrgöngu Breta úr Evrópusambandinu.
New Economics Foundation kalla eftir "nýju hagkerfi“ og öðruvísi og grænni leiðum til að skipuleggja það. Framkvæmdastýra segir að breytingarnar verði að vera í samráði við fólk og að ávallt þurfi að gæta að félagslegu jafnr
Færri treysta leiðtoga Verkamannaflokksins til að taka réttar ákvarðanir í Evrópumálum en May forsætisráðherra. Það gerist þrátt fyrir að vinsældir May séu litlar.
Samningaviðræðum er lokið á milli EFTA-ríkjanna innan EES, Íslands, Noregs og Liechtenstein, við Bretland um áframhaldandi búseturéttindi borgara ef útgöngusamningur Bretlands og Evrópusambandsins verður ekki samþykktur
Ekki er búist við miklum árangri af nýjustu viðræðum breska forsætisráðherrans við evrópska ráðamenn í dag.
Fundur Tusks og Varadkars snerist um Brexit.
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, segir sérstakan stað í helvíti fyrir þá sem hvöttu til útgöngu Breta úr Evrópusambandinu, án þess að hafa hugmynd hvernig ætti að gera það á öruggan hátt.
Menntamálaráðherra Noregs og Íslands eru ósammála um hvort óhætt sé að sækja um nám í breskum háskólum eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Fulltrúar breska háskólasamfélagsins segja að þrátt fyrir óvissu sé lítið að óttast. Bæði ESB og Bretland vilji tryggja gott samstarf á sviði menntunar og rannsókna.
Breski forsætisráðherrann er sagður ætla að brýna fyrir evrópskum leiðtogum nauðsyn þess að þeir fallist á breytingar á svonefndri baktryggingu á írsku landamærunum.
Japanski bílaframleiðandinn Nissan hefur dregið til baka áform sín um að framleiða nýja gerð X-Trail bíla í bresku borginni Sunderland. Brexit er ástæðan fyrir breytingunni.
Kaldastríðsáætlanir um öryggi konungafjölskyldunnar hafa verið endurvaktar ef óeirðir brjótast út í London eftir útgöngu úr ESB án samnings.
Þrátt fyrir að leiðtogar ESB hafi útilokað að semja um írsku baktrygginguna svonefndu segist breski forsætisráðherrann ætla til Brussel með endurnýjað umboð, hugmyndir og ákveðni.
Graham Brady, formaður hinnar áhrifamiklu 1922-nefndar breska Íhaldsflokksins, sagðist í gær vel geta sætt sig við að útgöngudegi yrði frestað ef þörf væri á stuttum tíma til viðbótar til þess að koma útgöngusamningi í gegnum þingið.
Í viðtali við BBC segir breski utanríkisráðherrann að ef nýr samningur næst rétt fyrir fyrirhugaðan útgöngudag gæti þurft að seinka honum á meðan mikilvægar lagabreytingar væru samþykktar.
Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, neitar að breyta Brexit samkomulaginu.
Meirihluti þingmanna breska þingsins samþykkti tillögu þess efnis að fella út svokallað Backstop ákvæði úr úrsagnarsamningi Bretlands úr Evrópusambandinu. Theresa May hefur nú umboð til að semja á ný við ESB en forseti Evrópuráðsins segir að ekki sé í boði að semja upp á nýtt.
Fimmtán breytingartillögur við lagafrumvarp um útgöngusamning Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, úr Evrópusambandinu verða til umræðu á breska þinginu í dag. Líkurnar á því að Bretar hætti í Evrópusambandinu án samnings eru taldar aukast á hverjum degi.
Spár bresku ríkisstjórnarinnar gera ráð fyrir að vöruflutningar um Ermarsund gætu dregist saman um 87% gangi Bretar úr Evrópusambandsins án samnings.
Elísabet II Englandsdrottning hefur biðlað til þjóðar sinnar um að virða ólík sjónarmið og að finna sameiginlega leið.
Brexit-hópur Evrópuþingsins sagði að þingið myndi ekki samþykkja útgöngusamning ríkisstjórnar Bretlands við ESB ef umdeilt ákvæði um varúðarráðstöfun fyrir fyrirkomulag landamæra Írlands og Norður-Írlands verður fjarlægt.
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, kom fyrir fulltrúadeild Breska þingsins í dag og ræddi áform ríkisstjórnarinnar í Brexit málinu.
Theresa May, forsætisráðherra Breta, mun í dag kynna næstu skref varðandi Brexit eftir að breska þingið hafnaði útgöngusamningnum sem ríkisstjórn hennar og Evrópusambandið náðu samkomulagi um á síðasta ári.
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, og Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, ræddust í gær við í síma um næstu skref í Brexit-málinu.
Formaður Verkamannaflokksins segir viðræður forsætisráðherra um framhaldið í Brexit-málinu sýndarmennsku. Vill að samningslaus útganga sé fyrst tekin af borðinu. Það vill May ekki gera.
Aðildarríki Evrópusambandsins vinna að því að stilla saman strengi ef Bretlandi yfirgefur sambandið án samnings um framtíðarsamskipti.