Efnahagsmál „
1 2 3 4 5 6 … 73 ›
„Sjóðurinn er gjaldþrota og því falla kröfurnar á ríkið“ Fjármálaráðherra segir að það muni taka þjóðarbúið áratugi að greiða upp þá ríflega sex hundruð og fimmtíu milljarða króna sem Íbúðalánasjóður skildi eftir. Hann vonar þó að tillögur starfshóps um uppgjör verði samþykktar af kröfuhöfum og á Alþingi. Viðskipti innlent 10.3.2025 19:08
Lausn máls ÍL-sjóðs loks í sjónmáli Viðræðunefnd fjármála- og efnahagsráðherra og ráðgjafar lífeyrissjóða hafa saman mótað tillögur um uppgjör HFF-bréfa sem greiða mun fyrir slitum ÍL-sjóðs, áður Íbúðalánasjóðs. Framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs fagnar því að lausn ÍL-sjóðsmálsins gæti verið í sjónmáli. Viðskipti innlent 10.3.2025 12:34
Sækja 540 milljarða til að gera upp skuldir ÍL-sjóðs Viðræðunefnd fjármála- og efnahagsráðherra og ráðgjafar lífeyrissjóða hafa saman mótað tillögur um uppgjör HFF-bréfa sem greiða mun fyrir slitum ÍL-sjóðs, áður Íbúðalánasjóðs. Hljóti tillögurnar samþykki kröfuhafa og Alþingis mun ríkið slá lán upp á 540 milljarða króna til þess að gera upp skuldir. Viðskipti innlent 10.3.2025 09:13
Trump útilokar ekki samdrátt í kjölfar efnahagsaðgerða sinna Donald Trump Bandaríkjaforseti útilokaði ekki í viðtali sem birtist á Fox News í gær að Bandaríkjamenn horfðu fram á samdrátt í kjölfar aðgerða hans í efnahagsmálum. Erlent 10.3.2025 07:16
Versta sviðsmyndin að „klemmast á milli“ í tollastríði stórvelda Mikil óvissa ríkir á alþjóðasviðinu eftir aðgerðir Bandaríkjaforseta í tollamálum. Komi til tollastríðs milli ríkja Evrópusambandsins og Bandaríkjanna er versta sviðsmynd Íslendinga að „klemmast einhvern veginn á milli“ að sögn framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Innlent 7.3.2025 20:24
Íbúðaskorturinn veldur því að séreignastefnan er á „hröðu undanhaldi“ Nú er svo komið að um fimm prósent landsmanna, nánast einvörðungu þeir sem eru fimmtíu ára og eldri, eiga um þrjátíu prósent allra íbúða á landinu með markaðsvirði sem nemur um helmingi af stærð lífeyrissjóðakerfisins, segir framkvæmdastjóri Aflvaka þróunarfélagsins. Vegna lóða- og íbúðaskorts fjölgar ört þeim einstaklingum sem ná ekki að eignast húsnæði, sem veldur því að þeim tekst ekki að byggja upp eigið fé, og afleiðingin er sú að séreignastefnan er á „hröðu undanhaldi.“ Innherji 7.3.2025 11:38
Þróun á fasteignamarkaði eykur verulega misskiptingu auðs á Íslandi Þróunin á fasteignamarkaði undanfarin ár, sem hefur einkennist af lóða- og íbúðaskorti og vaxandi erfiðleikum yngra fólks við að eignast þak yfir höfuðið, hefur breytt samfélagi okkar til verri vegar. Eignastaðan á fasteignamarkaði ræður því hvort íslenskur almenningur hefur efnahagslega stöðu á síðari hluta ævinnar til að styðja sína afkomendur og bæta lífsgæði sín. Þróunin á fasteignamarkaði leiðir til þess að bilið breikkar hratt á milli þeirra sem eiga og eiga ekki. Umræðan 7.3.2025 10:05
Meirihluti fólks á barneignaraldri verði brátt „leiguliðar þeirra sem eldri eru“ Á undanförnum tveimur áratugum hefur hlutfall íbúða í eigu fólks á barneignaraldri lækkað talsvert á sama tíma og það fjölgar verulega í hópi þeirra sem eru fimmtíu ára og eldri sem fjárfesta í íbúðum til viðbótar þeirri sem þeir búa í, að sögn framkvæmdastjóra Aflvaka þróunarfélags. Samkvæmt gögnum sem hann hefur dregið fram má sjá að öll aukningin í viðbótaríbúðum sem hafa bæst á markaðinn á því tímabili hafa farið til þeirra sem eldri eru. Innherji 5.3.2025 12:08
Stórfelld tilfærsla fasteigna milli kynslóða Á sama tíma og þeim fækkar hratt sem eiga eigið húsnæði og eru undir fimmtugu fjölgar stórlega í hópi þeirra sem eru yfir fimmtugu og eiga tvær íbúðir eða fleiri. Umræðan 5.3.2025 10:24
Ekki óvanalegt að kennarar fengju meiri hækkanir Forsætisráðherra segir ekki óvanalegt að kennarar hafi fengið launahækkanir umfram það sem samið var um á almennum markaði síðasta vor. Um sérstaka stöðu hafi verið að ræða eins og áður hafi komið upp hjá ræstingafólki og fiskvinnslufólks. Innlent 3.3.2025 11:01
Óttast launaskrið og aukna verðbólgu Nýr kjarasamningur kennara gæti leitt til aukinnar verðbólgu og vaxtahækkunar að mati aðalhagfræðings Íslandsbanka sem óttast launaskrið vegna samninganna. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir ríkið þurfa að koma til móts við sveitarfélög til að standa undir auknum kostnaði. Innlent 27.2.2025 19:02
Nýjar verðbólgutölur gefa von um hraðari lækkun vaxta Verðbólga hefur ekki verið minni hér á landi í fjögur ár en hún mælist nú 4,2 prósent. Aðalhagfræðingur Landsbankans segir þetta auka líkur á að Seðlabankinn stígi stærri skref í stýrivaxtalækkunarferli sínu. Ákveðin óvissa fylgi þó yfirlýsingum Bandaríkjaforseta um að leggja tolla á vörur frá Evrópusambandinu. Viðskipti innlent 27.2.2025 12:22
Verðbólga 4,2 prósent og ekki minni í fjögur ár Verðbólga mælist nú 4,2 prósent og hefur ekki verið minni í fjögur ár. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur hækkað um 2,7 síðust tólf mánuði. Viðskipti innlent 27.2.2025 09:22
Atvinnuleysi eykst Í janúar 2025 voru 11.300 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 4,8 prósent, sem er aukning um heila prósentu milli mánaða. Viðskipti innlent 26.2.2025 09:14
Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Hafrannsóknastofnun og útgerðir loðnuskipa hafa ákveðið að efna til nýrrar loðnuleitar, þeirrar fjórðu frá áramótum. Þetta er sérstök aukaleit í von um að finna meiri loðnu og verður lagt af stað á tveimur skipum frá Austfjarðahöfnum strax í kvöld. Viðskipti innlent 24.2.2025 11:39
Örkvóti í loðnu gæti skilað milljarði í útflutningstekjur Hafrannsóknastofnun tilkynnti í dag að loðnustofninn hefði mælst nægilega sterkur til að óhætt væri að heimila veiðar, en þó mjög takmarkaðar. Kvótinn, sem ráðherra gaf út síðdegis, gæti skilað yfir einum milljarði króna í útflutningstekjur. Viðskipti innlent 20.2.2025 22:22
Rannsaka gögnin sem skera úr um hvort það verði loðnuvertíð Eftirvænting ríkir í loðnugeiranum um hvort nýafstaðin loðnuleit skili nægilegu magni til að unnt sé að gangsetja síðbúna loðnuvertíð. Vonin er talin veik en þó einhver. Viðskipti innlent 19.2.2025 21:42
Árstekjur starfsmanna lækkuðu um fimmtung vegna loðnubrests Launagreiðslur Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum og íslenskra dótturfélaga drógust saman um tuttugu prósent á milli áranna 2024 og 2023. Stærsta og í raun eina skýring þessa mismunar er loðnubrestur ársins 2024. Viðskipti innlent 19.2.2025 10:51
Samruninn skili ekki aukinni samkeppni Fjármálaráðherra telur samruna Íslandsbanka og Arion banka ekki koma til með að auka samkeppni á fjármálamarkaði. Skoða verði heildarhagsmuni allrar þjóðarinnar. Viðskipti innlent 17.2.2025 21:00
Undirbúa söluna áfram þrátt fyrir yfirlýsingu Arion banka Ríkið mun halda áfram að vinna að undirbúningi á sölu á hlut sínum í Íslandsbanka í almennu og opnu útboði, þrátt fyrir að Arion banki hafi tilkynnt um áhuga á að sameinast Íslandsbanka. Viðskipti innlent 17.2.2025 12:14
Áttar sig ekki á bjartsýni Arion Fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra segist ekki skilja hvers vegna Arion leggi í að reyna að sameinast Íslandsbanka. Nánast útilokað sé að samruninn muni ganga í gegn. Viðskipti innlent 17.2.2025 12:12
Ragnar Þór leiðir aðgerðahóp Ingu Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað aðgerðahóp um bráðaaðgerðir í húsnæðismálum og úrbætur til lengri tíma. Í hópnum sitja þrír þingmenn, einn úr hverjum stjórnarflokki, auk fulltrúa frá ráðuneytinu og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Innlent 17.2.2025 11:14
Séríslenskar kvaðir á bankakerfið eru komnar „út fyrir öll velsæmismörk“ Það „blasir við“ að þörf er á meiri hagræðingu á fjármálamarkaði enda eru séríslenskar kvaðir, sem kosta heimili og fyrirtæki árlega yfir fimmtíu milljarða, komnar „út fyrir öll velsæmismörk“ og skaða samkeppnisstöðu íslenskra banka gagnvart erlendum keppinautum, fullyrðir forstjóri Stoða, stærsti einkafjárfestirinn í Arion og Kviku. Hann brýnir jafnframt nýja ríkisstjórn til að setja sérstök lög um nokkur lykilverkefni í virkjunarframkvæmdum til að vinna hratt upp orkuskortinn eftir langvarandi framtaksleysi í þeim efnum, að öðrum kosti muni innistæðulítil kaupamáttaraukning síðustu ára að lokum leiðréttast með gengisfalli og aukinni verðbólgu. Innherji 17.2.2025 07:02
Bankarnir áður svikið neytendur Formaður fjárlaganefndar Alþingis er ekki spenntur fyrir mögulegri sameiningu Arion og Íslandsbanka. Bankarnir hafi sýnt það í gegnum tíðina að neytendur séu ekki í forgangi hjá þeim, og efast hann um að það sé að breytast. Viðskipti innlent 16.2.2025 20:28
Árni Friðriksson í loðnu norður af Vestfjörðum Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson hefur fundið loðnu norður af Vestfjörðum. Ekki verður ljóst fyrr en eftir helgi hvort magnið sé nægileg viðbót til að unnt verði að gangsetja síðbúna loðnuvertíð og koma þannig í veg fyrir loðnubrest þennan veturinn. Viðskipti innlent 14.2.2025 21:42
Skattspor ferðaþjónustunnar metið allt að 180 milljarðar Skattaleg áhrif helstu greina ferðaþjónustunnar á Íslandi námu allt að 180 milljörðum króna árið 2023. Þar af eru svokölluð þröng skattaleg áhrif metin um 106,5 milljarðar en ef horft er til víðtækari áhrifa ferðaþjónustunnar nema skattaleg áhrif greinarinnar rúmum 180 milljörðum. Viðskipti innlent 12.2.2025 09:00
Lokatilraun til að bjarga loðnuvertíð Hafrannsóknastofnun í samvinnu við loðnuútgerðir gerir núna lokatilraun til að finna loðnu við landið í nægjanlegu magni svo unnt sé að gefa út veiðikvóta áður en loðnan hrygnir og drepst. Að öðrum kosti blasir við loðnubrestur, annað árið í röð. Viðskipti innlent 10.2.2025 10:51
Landsbankinn lækkar vexti Landsbankinn hefur tilkynnt um breytta vexti inn- og útlána og tekur ný vaxtatafla gildi 13. febrúar næstkomandi. Arion Banki, Indó, Íslandsbanki og nú Landsbankinn hafa allir lækkað vexti eftir að stýrivextir Seðlabankans lækkuðu um 0,5 prósentustig á miðvikudaginn. Viðskipti innlent 7.2.2025 18:59
Íslandsbanki tilkynnir vaxtabreytingu Íslandsbanki hefur ákveðið að breyta vöxtum inn- og útlána og taka mið af stýrivaxtalækkun Seðlabankans sem var kynnt í morgun og hljóðaði upp á 0,5 prósentustig. Breytingin mun taka gildi þann 12. febrúar næstkomandi. Viðskipti innlent 5.2.2025 21:50
Stór hópur komist nú í gegnum greiðslumat eftir 50 punkta lækkun Stýrivextir Seðlabanka Íslands standa í átta prósentum eftir að peningastefnunefnd bankans lækkaði vexti um 0,5 prósentustig. Nefndin var einróma í ákvörðun sinni. Annar tveggja eigenda Mikluborgar telur lækkunina munu auðvelda stórum hópi að komast í gegnum greiðslumat en segir um leið að betur megi ef duga skal. Viðskipti innlent 5.2.2025 20:03