Samgöngur

Sex ára lokun Gömlu Hringbrautar hefur töluverð áhrif á leiðir Strætó
Gjaldskrá Strætó hækkar um fjögur prósent um áramótin.

Tvísýnt um skipagöngin sem þykja dýr fyrir norska ríkið
Bakslag er komið í áform Norðmanna um að grafa fyrstu skipagöng heims. Pólitísk hrossakaup til að viðhalda lífi norsku ríkisstjórnarinnar veittu göngunum þó gálgafrest og komu í veg fyrir að þau yrðu slegin af.

Vegtollum ætlað að fara í sérfélag um flýtiverkefnin
Tekjur af veggjöldum eiga ekki að renna í ríkissjóð heldur inn í sérfélag sem hafi það eina hlutverk að greiða tiltekin verkefni og þegar þau eru uppgreidd verður innheimtu hætt.

Ungir ökumenn aldrei staðið sig jafn vel og nú
Umferðarslysum sem ungir ökumenn eiga aðild að hefur farið fækkandi undanfarin ár og miðað við tölur fyrstu átta mánaða ársins heldur sú þróun áfram. Samskiptastjóri Samgöngustofu segir ýmsar ástæður að baki þessari þróun.

Fjárveitingar miða við leiðarval um Teigsskóg
Fjárveitingar í samgönguáætlun til Vestfjarðavegar miða við leið um Teigsskóg, sem er fullfjármögnuð, og að framkvæmdir hefjist á næsta ári. Ákvörðun um aðra leið er sögð þýða margra ára töf.

Kristinn hneykslaður á "ótrúlegri sérhagsmunagæslu“ og segir skýrslu ekki pappírsins virði
Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi Alþingismaður og ritstjóri Bæjarins besta á Ísafirði, segir nýja skýrslu verkfræðistofunnar Viaplan um Vestfjarðaleið ekki pappírsins virði.

Costco-gaurinn brotinn á báðum, úlnliðsbrotinn og krambúleraður
Jólaundirbúningurinn í klessu hjá Sigurði Sólmundarsyni eftir árekstur.

Vegagerðinni ekki haggað hvað veg um Teigsskóg varðar
Að mati Vegagerðarinnar er leið Þ-H um Teigsskóg á Vestfjarðaleið sá kostur sem helst kemur til greina við uppbyggingu stofnvegakerfis um sunnanverða Vestfirði

Taka vel í hugmyndir um upptöku veggjalda
Bæjarstjórar Akraness og Árborgar eru jákvæðir gagnvart hugmyndum um veggjöld og telja þær einu leiðina til að fjármagna löngu tímabærar samgönguúrbætur. Fram kom í haust að ekki stæði til að taka upp veggjöld á Reykjanesbraut.

Akurnesingar fagna og kalla vegtollana flýtigjöld
Bæjarstjórn Akraness fagnar fyrirhuguðum veggjöldum, sem Skagamenn kalla flýtigjöld, sem taka á upp á öllum stofnbrautum út frá Reykjavík og í öllum jarðgöngum landsins.

Ný skýrsla blæs á fjögurra milljarða króna mun á leiðum
Brú yfir mynni Þorksafjarðar, svokölluð R-leið, er vænlegasta leiðin fyrir Vestfjarðarveg samkvæmt niðurstöðu skýrslu verkfræðistofunnar Viaplan.

Samkomulag náðist um að ljúka samgönguáætlun á nýju ári
Samkomulag hefur náðst um að ljúka samgönguáætlun fyrir 1. febrúar

Vaxtakostnaður 700 milljónir
Vaðlaheiðargöng verða opnuð 12. janúar en vonast er til að umferð verði hleypt um göngin fyrir jól. Áætlað er að kostnaður við verkið endi í um 17 milljörðum króna. Vaxtakostnaður mun nema hundruðum milljóna króna.

Spyr um kjark ráðherra þegar komi að upptöku veggjalda
Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýna að koma eigi veggjöldum inn í samgönguáætlun í miklum flýti. Ekkert liggi á og nauðsynlegt sé að ræða málið betur.

Samgönguáætlun sögð stríðshanski inn í þingið
Áform stjórnarflokkanna um að ná vegtollum inn í samgönguáætlun fyrir jólahlé Alþingis eru í uppnámi eftir að stjórnarandstæðingar hótuðu málþófi.

Göngin borgi sig upp á 28 árum
Vaðlaheiðargöng verða formlega opnuð þann 12. janúar næstkomandi, rúmlega tveimur árum á eftir áætlun. Vonir standa til að hægt verði að hleypa umferð í gegn fyrir áramót.

Veggjöld: Bákn í bákninu eða jákvætt og lofandi mál
Stjórnarmaður í samtökum um bíllausan lífstíl segir að veggjöld hafi reynst vel annars staðar en framkvæmdastjóri FÍB segir að verið sé að búa til bákn í bákninu.

„Rassvasabókhald um tugmilljarða framkvæmdir“
Nokkrir þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu vinnubrögð meirihlutans á þingi við samgönguáætlun undir liðnum störf þingsins í dag.

Vaðlaheiðargöng opnuð 12. janúar og ferðin kostar 1500 krónur
Formleg opnun Vaðlaheiðarganga verður 12. janúar næstkomandi. Vegggjöld verða innheimt rafrænt en ekki í gjaldskýli.

Vegtollar og aukin vegagerð á hraðferð í gegnum Alþingi
Veggjöld verða tekin upp á stofnbrautum út frá Reykjavík og í jarðgöngum landsins, og framkvæmdir í samgöngumálum stórauknar, samkvæmt breytingartillögu við samgönguáætlun, sem gæti hlotið samþykki Alþingis fyrir lok vikunnar.

Veggjöld í breyttri samgönguáætlun
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata og áheyrnarfulltrúi í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, gagnrýnir að veggjöldum sé troðið í gegnum þingið á síðustu dögum haustþings, eins og hann kemst að orði.

Vikan í bílnum
Ég sat föst í umferðinni í morgun og fór þá að hugsa um hvað ég ver stórum hluta dags í bílnum.

Kostnaðaráætlanir Vegagerðarinnar standast nokkuð vel
Mikil umræða hefur verið í þjóðfélaginu um framúrkeyrslu kostnaðar í opinberum framkvæmdum.

Mun færri Kínverjar slasast í umferðinni
Kínverskum ferðamönnum og ungu fólki sem slasast í umferðinni hér á landi hefur fækkað verulega. Upplýsingafulltrúi Samgöngustofu segir gríðarlegum árangri hafa náðst með aukinni fræðslu og forvörnum.

Helmingsafsláttur landsbyggðarbúa væntanlegur árið 2020
Þá gæti kostnaður við þennan lið áætlunarinnar hlaupið á einum milljarði króna.

Mikil aukning á slysum vegna lyfjaaksturs
Á sjöunda tug hafa látist eða slasast í slysum sem má rekja til fíkniefnaaksturs fyrstu átta mánuði ársins. Samskiptastjóri Samgöngustofu segir þetta knýjandi verkefni sem samfélagið þurfi að taka á.

Ríkisstjórnin ætlar ekki að hlaupa undir bagga með WOW Air
Formaður viðreisnar vonar að ríkistjórnin sé tilbúin með viðbragðsáætlun fyrir Suðurnes vegna hópuppsagna á Keflavíkurflugvelli, ef þörf verði á.

Mikil tímamót fyrir Borgarlínu
Viðræðuhópur leggur til að Borgarlína og stofnvegaframkvæmdir verði felldar inn í samgönguáætlun. Borgarstjóri segir áfangann mikinn. Segir mikilvægt að samstaða ríki á milli ríkis og sveitarfélaganna.

Íbúar skammaðir fyrir snjómokstur
Akureyrarbær hefur gefið út tilkynningu til bæjarbúa um að þeim sé óheimilt að moka snjó frá heimilum sínum í botnlanga gatna, á gangstéttir eða aðra hluta gatna þar sem vegfarendur eiga leið um.

Skúli fundaði með samgönguráðherra
Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, fundaði með Sigurði Inga Jóhannssyni, samgönguráðherra, í samgönguráðuneytinu eftir hádegi í dag.