Skoðun: Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Fréttamynd

Full­yrðingar og raun­veru­leikinn

Fullyrðingar andstæðinga Evrópusambandsins á Íslandi eru ekkert annað en skáldskapur. Þær eru ekki byggðar á neinu öðru en þeirra eigin ímyndun um hvað gæti gerst en ekki hver raunveruleikinn er. Slíkur málflutningur er eingöngu ætlað til þess að blekkja fólk til þess að fá það til þess að segja nei, gegn þeirra eigin hagsmunum. Þegar andstæðingar Evrópusambandsins á Íslandi eru krafðir svara og dæma um það sem þeir fullyrða, þá koma engin svör og engin dæmi. 

Skoðun
Fréttamynd

Krist­rún Frostadóttir sam­mála nei-sinnum

Kristrún Frostadóttir sagði nýlega í bresku hlaðvarpi að ef þjóðin segði já í lok ágúst tæki við aðildarferli sem „soga myndi allt súrefni úr stjórnkerfinu“. Með þessu orðum viðurkenndi hún í raun þá mikilvægu röksemd nei-sinna, að aðildarferlið snúist um annað og meira en að kanna hvað Íslandi standi til boða innan Evrópusambandsins. Væri aðeins um slíkar þreifingar að ræða, nægði að fela fámennri nefnd að vinna skýrslu. Þess í stað lýsir forsætisráðherra verkefni sem myndi leggja meginhluta stjórnsýslunnar undir sig árum saman.

Skoðun
Fréttamynd

Brestur í mann­gæsku - ESB og flótta­fólk

Á seinustu 15-16 árum hefur átt sér stað gríðarlega ör breyting á nálgun Evrópusambandsins í málefnum flóttafólks. Lengi hefur sambandið ekki sýnt áhuga á að gera eitthvað fyrir þennan hóp. Ákveðið var að nota fólk á flótta sem dyggðarskreytingu fyrir sambandið til að sýna hvað það væri gott að taka til sín fólkið sem flúði glundroða og eyðileggingu sem sambandið hefur alltaf stutt við í sinni utanríkisstefnu. Meira var planið ekki.

Skoðun
Fréttamynd

Evra eða króna?

Ég er fylgjandi aðild að Evrópusambandinu þó að ég slái þann varnagla að ég myndi ekki samþykkja hvaða samning sem er. Aðalástæða skoðunar minnar eru gjaldmiðla- og gengismál. Ég gef mér þá forsendu að einhliða upptaka annars gjaldmiðils sé óraunhæfur kostur, lánveitandi til þrautarvara sé nauðsynlegur þáttur fyrir öll myntsvæði og þá á öllu svæðinu. Það er önnur umræða hvort sá möguleiki sé til staðar að semja við seðlabanka tiltekins myntsvæðis um að vera banki bankanna á Íslandi en mér finnst það óraunhæft.

Skoðun
Fréttamynd

Auð­valdinu best borgið í Brussel -  ekki þjóðinni

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti í pallborðið á landsþingi Viðreisnar síðastliðið haust og talaði jákvætt um inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Eins nokkru síðar þegar hann lýsti ánægju sinni með makrílsamninginn sem ríkisstjórnin gerði en hann fól í sér mikla eftirgjöf á makrílkvóta landsins til að greiða fyrir inngöngu í sambandið.

Skoðun
Fréttamynd

Er hið gamla alltaf gott?

Ég er ein af þeim sem eiga mjög erfitt með að henda hlutum sem virka ennþá vel. Ég get ekki látið frá mér flíkur sem eru nánast ónotaðar þótt ég komist ekki lengur í þær, því það mun breytast, er það ekki? Þessi gamla tíska mun koma aftur og svo hafa dætur mínar verið duglegar að slá í gegn í gömlum fötum frá mömmu, ömmu og jafnvel langömmu.

Skoðun
Fréttamynd

RKV- eða ESB-ranglætið?

Við Austfirðingar höfum heldur betur fengið að kenna á Reykjavíkurvaldinu (RKV) í gegnum tíðina vegna áhrifa þess á Alþingi Íslendinga. Rödd Austurlands heyrist í ræðustól Alþingis, en fjarar jafnskjótt út og bergmál ræðumanns hættir að hljóma í salnum. Þeir Reykjavíkurþingmennirnir sem sitji í salnum láta slíkt „fjas“ sem vind um eyru þjóta.

Skoðun
Fréttamynd

„Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess

Það er stundum talað eins og þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snúist um hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. Það er rangt. Hún snýst um hvort Ísland eigi að hefja á ný og ljúka aðildarviðræðum, fá samningsniðurstöðu í hendurnar og leyfa þjóðinni síðan að taka endanlega afstöðu.

Skoðun
Fréttamynd

Af hverju er svona erfitt að vera heiðar­legur við sjálfan sig?

Ég hef oft velt því fyrir mér hvenær sjálfsvinnan mín byrjaði fyrir alvöru. Hún byrjaði ekki þegar ég hætti að drekka, né heldur þegar ég fór að lesa sálfræði og lærði um áföll, skömm og varnarhætti. Allt það skipti máli og breytti miklu, en ef ég þarf að nefna eitt augnablik sem breytti því hvernig ég lít á sjálfan mig, þá gerðist það á broti úr sekúndu. Ég sat með góðum vini sem var að ganga í gegnum erfitt tímabil og við ræddum um vanmátt og stjórnleysi, um þá undarlegu reynslu að vilja breyta lífi sínu, en enda samt aftur og aftur á sama stað

Skoðun
Fréttamynd

Það sem Ís­land mun berjast fyrir í samninga­við­ræðum við ESB

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði nýverið grein sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hún reynir af veikum mætti að stilla þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið í lok mánaðar upp þannig að hún sé úlfur í sauðagæru. Með aðildarviðræðum sé ekki bara verið að semja og fá fram upplýsingar, heldur felist í þeim önnur og alvarlegri skuldbinding.

Skoðun
Fréttamynd

Slag­orð í stað gagna: Grein Snorra Más­sonar um ESB-aðild

Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, birti nýlega grein þar sem hann rökstyður andstöðu sína við aðild Íslands að Evrópusambandinu. Greinin er skrifuð af pólitískri sannfæringu en er nánast laus við gögn, tölur eða tilvísanir í rannsóknir. Hún byggir á tilfinningalegum fullyrðingum sem hljóma vel í eyrum þeirra sem þegar eru á móti en standast ekki skoðun þegar þær eru bornar saman við raunveruleikann. Hér verða greindar helstu fullyrðingar greinarinnar, ein í einu.

Skoðun
Fréttamynd

Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Kon­ráðs S. Guð­jóns­sonar

Grein Konráðs S. Guðjónssonar, hagfræðings og höfundar greiningar sem Áfram Ísland kynnti á dögunum, birtist hér á Vísi 28. júlí undir fyrirsögninni „Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað“. Stór orð. Greinin fellur ekki undir hefðbundin skoðanaskipti hagfræðinga um túlkun gagna eða hagfræðilegra niðurstaðna. Hún er ásökun um fagleg óheilindi.

Skoðun
Fréttamynd

Að neita að leita

Ég væri ekki lengi að fá falleinkunn í skóla ef ég skrifaði niðurstöðuna áður en ég opnaði bók eða kynnti mér heimildir. Þess vegna er kennt í öllum skólum landsins að opna bókina, kanna staðreyndir, fá gögnin, lesa gögnin og greina þau síðan. Og fyrst eftir þá vinnu, ætti ég að mynda mér endanlega skoðun. Ég ætti alls ekki að gera þetta í öfugri röð.

Skoðun
Fréttamynd

ESB um­ræðan og gervigreindin

Ég hef tekið eftir því víða á netinu að fólk er farið að styðjast mikið við gervigreindina í skrifum sínum og rökræðum. Gervigreindin getur verið nytsamlegt tæki við gagnavinnslu, sem uppflettirit og við margar aðrar aðgerðir.

Skoðun
Fréttamynd

Af hverju já?

Evrópusambandið hefur á undanförnum áratugum markað sér sérstöðu á heimsvísu með því að leggja mikla áherslu á neytendavernd, umhverfisvernd, loftslagsmál og félagsleg réttindi.

Skoðun
Fréttamynd

Ó­reiða á sam­viskunni

Óhætt er að segja að umræðan í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB hafi að verulegu leyti einkennst af lygabrigslum. Nei-sinnar saka þau sem eru jákvæð kerfisbundið um upplýsingaóreiðu.

Skoðun
Fréttamynd

Full­veldi fyrir hvern?

Heimssýn og aðrir andstæðingar ESB-viðræðna vara við því að Ísland gefi eftir yfirráð yfir löggjafarvaldi, framkvæmdavaldi og dómsvaldi. Það er sjónarmið sem skal taka alvarlega. En þá þarf líka að segja alla söguna.

Skoðun
Fréttamynd

Við­ræðurnar snúast um að­lögun

Fram kemur skýrt í greinargerðinni með þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um fyrirhugað þjóðaratkvæði að verði niðurstaðan í því já hefjist viðræður sem snúist um aðlögun að reglum Evrópusambandsins. Þannig segir þar: „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“

Skoðun
Fréttamynd

Krist­rún skýrði loksins hvað verður kosið um

Viðtal forsætisráðherra við breska hlaðvarpið The Rest Is Politics hefur vakið mikla athygli og ekki að ástæðulausu. Að mínu mati var þar í fyrsta sinn dregið fram með fullum skýrleika hvað ríkisstjórnin er í raun að biðja kjósendur um að taka afstöðu til.

Skoðun
Fréttamynd

Með óttann einan að vopni

Margir eru smeykir við hið óþekkta. Óttinn er áróðursbragð hjá þeim sem vilja vinna gegn tilteknu málefni, sérstaklega þegar almenningur þekkir lítið til þess. Þegar bent er á að þeir fari ekki með rétt mál er sagt: „En það gæti gerst einhvern tíma í framtíðinni!“

Skoðun
Fréttamynd

Merki­legur tví­skinnungur

Áður en gengið var frá spurningunni, sem lögð verður fyrir þjóðina, að ljúka viðræðum við ESB um hugsanlega aðild Íslands, var fallist á ábendingu frá Sjálfstæðisflokknum að leita til Feneyjarnefndarinnar um orðalag hennar.

Skoðun
Fréttamynd

Þjóðin á að njóta vafans

Kjarni heilbrigðrar og þjóðlegrar stjórnmálastefnu á okkar tímum er að skapa þannig umgjörð fyrir samfélagið að hún þjóni heildarhagsmunum þjóðarinnar en ekki aðeins afmörkuðum hagsmunum fjármagnsins. Með því er ekki horfið frá frjálsu markaðshagkerfi en þó viðurkennt að þessir hagsmunir fara ekki alltaf saman. Þegar þeir rekast á, skal þjóðin njóta vafans.

Skoðun
Fréttamynd

ESB og skoðana­bræður þínir

Ég hef fylgst vel með umræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar og það má greina ágætlega hvernig fólk skiptist í fylkingar — og ekki síður hvað liggur að baki afstöðu þess.

Skoðun
Fréttamynd

Á hug­mynda­fræði­legt of­beldi heima í kosninga­bar­áttu?

Í dag er mánuður í að Íslendingar gangi til kosninga og svari spurningunni um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Eins og gefur að skilja hefur umræða um kosningarnar tekið mikið pláss í samfélagsumræðunni og á það einungis eftir að aukast hér eftir.

Skoðun
Fréttamynd

Gervi­greindar­skrif Hall­dórs Jör­gen Olesen

Þeir sem hafa fylgst vel með skoðanagreinum á Vísi og víðar undanfarnar vikur ættu að þekkja Halldór Jörgen Olesen. Hann birtir reglulega pistla þar sem markmiðið er að sannfæra lesanda að kjósa að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið í ágúst.

Skoðun
Fréttamynd

Kíkt í pakkann

Hver man ekki eftir farandsölumönnunum sem hér á árum áður gengu í hús í Reykjavík með alfræðirit, uppþvottabursta og jafnvel ryksugur og höfðu allir sama formálann: Það kostar ekkert að skoða.

Skoðun