Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar 25. ágúst 2026 07:13 Sem kjörinn fulltrúi í borgarstjórn er það skylda mín að gæta hagsmuna Reykvíkinga. Nú þegar borgarfulltrúar og borgarbúar allir velta fyrir sér ESB-aðild er eðlilegt að spyrja hvaða áhrif hún gæti haft á Reykjavíkurborg. Í vor lagði Samfylkingin fram tillögu í borgarstjórn um að láta kanna þessi áhrif til hlítar en hún var því miður felld af meirihlutanum. Sem betur fer liggur þó ýmislegt fyrir um þessi mál. Höfum eitt á hreinu: Brussel mun ekki taka yfir daglegan rekstur sveitarfélaga komi til Evrópusambandsaðildar. Ein af grundvallarstoðum ESB er svokölluð nálægðarregla, sem kveður á um að ákvarðanir skuli alltaf teknar eins nálægt borgurunum og mögulegt er. Ákvarðanir um að tvöfalda verð á máltíðum fyrir lífeyrisþega, hætta við frítt í strætó fyrir börn, snjómokstur, sorphirðu, leikskólamál, félagsþjónustu og hvar næstu 40 þúsund íbúar borgarinnar eiga að búa verða því áfram teknar í Ráðhúsi Reykjavíkur án þess að Brussel skipti sér af. En þjónusta borgarinnar hangir saman við efnahagslega rammann í kringum reksturinn. Á tímum þar sem við veltum við hverri einustu krónu í stjórnsýslunni, hagræðum í rekstri, skerum niður og segjum upp fólki, blasa við okkur margir milljarðar sem fara á hverju ári í vaxtagreiðslur. Þar stendur loðfíll í stofunni sem allt of lítil umræða er um: vaxtastigið, verðbólga og fjármagnsliðir hins opinbera. Íslenska krónan og óþarflega háir vextir gera alla áætlanagerð erfiða. Vaxtastig á evrusvæðinu hefur sögulega verið mörgum prósentustigum lægra en á Íslandi. Lægra vaxtastig og aukinn stöðugleiki er því ekki fjarlæg óskhyggja heldur raunhæfur möguleiki sem til lengri tíma myndi styrkja stöðu borgarsjóðs umtalsvert. Gæti Reykjavík sparað 30 milljarða á kjörtímabili í vaxtagjöld? Skoðum tölurnar í stórum dráttum: Vaxtaberandi skuldir samstæðu Reykjavíkurborgar hlaupa á um 400 milljörðum króna, þar af eru vaxtaberandi skuldir A-hlutans (eiginlegs reksturs borgarinnar) um 180 milljarðar króna. Þó svo að eignir og tekjur borgarinnar hafi hækkað í takt við vaxtarskeið síðustu ára þá kosta vextir okkur allt of mikið. Hér skiptir hver einasta vaxtaprósenta gríðarlegu máli. Ef okkur tekst til lengri tíma að færa okkur nær því vaxtastigi sem þekkist á evrusvæðinu, þá þýðir jafnvel hófleg 2% vaxtalækkun á A-hlutanum um 3,6 milljarða króna árlegan sparnað – eða 14,4 milljarða króna á einu kjörtímabili. Fyrir samstæðuna alla er sparnaðurinn 30 til 40 milljarðar króna á sömu fjórum árum. Þetta eru peningar sem gætu farið beint í að reisa nýja leikskóla, greiða fyrir máltíðir lífeyrisþega, efla íþróttir, tómstundir og velferðarþjónustu, flýta uppbyggingu Þjóðarhallarinnar eða bæta götur borgarinnar. Reykjavík er hér aðeins dæmi um heildarmyndina; svipaður eða meiri efnahagslegur ábati er í húfi fyrir önnur sveitarfélög (sem almennt eru enn skuldsettari en Reykjavík), fyrirtæki og heimili landsins, sem búa við sömu vaxtabyrði. Það sama gildir um stærstu innviðafjárfestingu sögunnar, Samgöngusáttmála sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, sem áætlað er að muni kosta um 310 milljarða króna. Þó svo að verkefnið sé metið verulega arðbært og muni skila þjóðhagslegum ábata mun þurfa að fjármagna það með lántöku að hluta. Ef um 200 milljarðar króna verða fjármagnaðir með lánum þýðir 2% vaxtalækkun um 4 milljarða króna árlegan sparnað í vaxtakostnað – sem gerir um 80 milljarða króna sparnað fyrir ríkið og sveitarfélögin yfir 20 ára lánstíma. Eigum við ekki skilið að fá samning upp á borðið? Hvert einasta prósent sem sparast í vaxtakostnaði hjá hinu opinbera hefur beina tengingu við lífsgæði okkar. Það sama á við um heimilisbókhald landsmanna, íslensk fyrirtæki og ekki síst nýsköpunarfyrirtæki. Verðtryggða íslenska krónan er frábær ef þú átt hana, en hún er hræðileg ef þú skuldar hana. Þessa miklu hagsmuni þarf að hafa í huga í lok mánaðarins. Þjóðaratkvæðagreiðslan snýst í grunninn um að fá samning á borðið og meta hann svo af yfirvegun. Samningsstaða okkar er sterk og við eigum að mæta til leiks með kassann úti. Þurfum við ekki að fá að sjá á spilin til að komast að upplýstri niðurstöðu? Ef samningurinn þjónar ekki hagsmunum okkar þá fellum við hann einfaldlega í seinni þjóðaratkvæðagreiðslunni. En að hafna því að skoða hvort hér leynist tækifæri til að létta milljarða vaxtabyrði af borgarsjóði, heimilum og sveitarfélögum væri hreinlega óábyrgt. Þessa hagsmuni ættum við að hafa í huga þegar við kjósum á laugardaginn. NEI þýðir algjörlega óbreytt ástand, en með JÁ gætu falist spennandi tækifæri. Höfundur er borgarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pétur Marteinsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar