Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar 24. ágúst 2026 10:50 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ruglaði nokkrum sinnum saman Íslandi og Grænlandi í ræðu í Davos í janúar sl. – mánuði þegar við stóðum frammi fyrir lang alvarlegustu ógn við sjálfstæði okkar síðan á tímum kalda stríðsins, hið minnsta. En við höfum algjörlega gleymt þessu í umræðunni um Evrópusambandið sem enn stendur yfir. Hver bjargaði Grænlandi í janúar sl.? Fjárhagslegt vald Evrópusambandsins, sem kom af stað viðbrögðum á alþjóðamörkuðum stöðvaði Donald Trump á þeim tíma. Það má segja að með því hafi Evrópusambandið óbeint einnig bjargað sjálfstæði Íslands. Ef Bandaríkin myndu ráðast á Grænland er NATO úr sögunni og eyja okkar berskjölduð í miðju Norður-Atlantshafinu. Atburðarásin í janúar 2026 sýndi fram á að öryggi Íslands þarf að hvíla á tveimur stoðum: hernaðarafli (NATO) og fjárhagslegu afli (ESB). Aðra stoðina vantar nú. NATO mun veita örugga vörn gegn ógn frá Kína – og vonandi einnig gegn ógn frá Rússlandi – en bandalagið getur ekkert gert gegn popúlisma innan eigin raða. Þess vegna þurfum við á ESB að halda sem viðbótarvörn. Fyrr á þessu ári útskýrði fjármálaráðherra Svíþjóðar í stuttu máli að núverandi öryggisástand mælti með upptöku evrunnar. Hvenær gerum við okkur grein fyrir að öryggisumhverfi Íslands hefur einnig breyst? Þjóðaratkvæðagreiðslan þann 29. ágúst snýst í raun um að afla tilboðs frá öryggisþjónustuaðila. Danir – sem fyrir tíma Trump 2 voru sú þjóð innan ESB sem var langjákvæðust í garð Bandaríkjanna – voru mjög ánægðir með að hafa tryggt sig hjá ESB árin 2025 og 2026. Og Danir fengu margar undanþágur frá ESB! Með það í huga að Trump stefnir að því að ná tökum á Grænlandi í síðasta lagi árið 2029 ættum við kaupa Íslandi tíma. Öryggisumhverfi okkar breytist gríðarlega hratt. Við skulum bíða þar til Trump er á leiðinni út eða hefur látið af embætti áður en við höldum seinni þjóðaratkvæðagreiðsluna. Kaupum Íslandi tíma. Já til að sjá! Höfunður er ráðgjafi og alþjóðastjórnmálafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ruglaði nokkrum sinnum saman Íslandi og Grænlandi í ræðu í Davos í janúar sl. – mánuði þegar við stóðum frammi fyrir lang alvarlegustu ógn við sjálfstæði okkar síðan á tímum kalda stríðsins, hið minnsta. En við höfum algjörlega gleymt þessu í umræðunni um Evrópusambandið sem enn stendur yfir. Hver bjargaði Grænlandi í janúar sl.? Fjárhagslegt vald Evrópusambandsins, sem kom af stað viðbrögðum á alþjóðamörkuðum stöðvaði Donald Trump á þeim tíma. Það má segja að með því hafi Evrópusambandið óbeint einnig bjargað sjálfstæði Íslands. Ef Bandaríkin myndu ráðast á Grænland er NATO úr sögunni og eyja okkar berskjölduð í miðju Norður-Atlantshafinu. Atburðarásin í janúar 2026 sýndi fram á að öryggi Íslands þarf að hvíla á tveimur stoðum: hernaðarafli (NATO) og fjárhagslegu afli (ESB). Aðra stoðina vantar nú. NATO mun veita örugga vörn gegn ógn frá Kína – og vonandi einnig gegn ógn frá Rússlandi – en bandalagið getur ekkert gert gegn popúlisma innan eigin raða. Þess vegna þurfum við á ESB að halda sem viðbótarvörn. Fyrr á þessu ári útskýrði fjármálaráðherra Svíþjóðar í stuttu máli að núverandi öryggisástand mælti með upptöku evrunnar. Hvenær gerum við okkur grein fyrir að öryggisumhverfi Íslands hefur einnig breyst? Þjóðaratkvæðagreiðslan þann 29. ágúst snýst í raun um að afla tilboðs frá öryggisþjónustuaðila. Danir – sem fyrir tíma Trump 2 voru sú þjóð innan ESB sem var langjákvæðust í garð Bandaríkjanna – voru mjög ánægðir með að hafa tryggt sig hjá ESB árin 2025 og 2026. Og Danir fengu margar undanþágur frá ESB! Með það í huga að Trump stefnir að því að ná tökum á Grænlandi í síðasta lagi árið 2029 ættum við kaupa Íslandi tíma. Öryggisumhverfi okkar breytist gríðarlega hratt. Við skulum bíða þar til Trump er á leiðinni út eða hefur látið af embætti áður en við höldum seinni þjóðaratkvæðagreiðsluna. Kaupum Íslandi tíma. Já til að sjá! Höfunður er ráðgjafi og alþjóðastjórnmálafræðingur.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar