Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran

Fréttamynd

Einum úr á­höfninni bjargað

Íranski herinn skaut bandaríska herflugvél af gerðinni F-15 yfir miðhluta landsins í dag. Leit að áhöfninni stendur yfir en öðrum áhafnarmeðlimi af tveimur hefur verið bjargað.

Erlent
Fréttamynd

Segir NATO „pappírstígur“ og í­hugar að hætta

Donald Trump segist íhuga það alvarlega að Bandaríkin hætti í Atlantshafsbandalaginu. Trump hefur lengi talað gegn bandalaginu og hefur hann virst reiður út í bandalagsríki Bandaríkjanna fyrir að aðstoða ekki við árásir á Íran og koma ekki askvaðandi þegar hann bað um aðstoð við að opna Hormússund aftur.

Erlent
Fréttamynd

Segir að að­gerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkjamenn munu „yfirgefa“ Íran innan tíðar og að hernaðaraðgerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur. Þá segir hann aðalmarkmiðum hafa verið náð, það er að segja að koma í veg fyrir að Íranir eignuðust kjarnavopn.

Erlent
Fréttamynd

Blaða­manni rænt í Írak

Erlendum blaðamanni hefur verið rænt í Írak en innanríkisráðuneytið þar hefur staðfest mannránið. Það gat ekki veitt nokkrar upplýsingar um hver blaðamaðurinn er eða hverslenskur. 

Erlent
Fréttamynd

„Banda­ríkin verða ekki lengur til staðar fyrir ykkur“

Donald Trump segir að þau ríki heims sem skorti eldsneyti vegna lokunar Hormússunds og hafi neitað að aðstoða Bandaríkin í stríðinu gegn Íran, standi ein. Forsetinn nefnir Bretland sérstaklega og segir að Bandaríkin verði ekki lengur til staðar fyrir þessi ríki.

Erlent
Fréttamynd

Skoðar að enda stríðið án þess að opna Hormússund

Donald Trump hefur sagt ráðgjöfum sínum í Hvíta húsinu að hann sé tilbúinn til að binda enda á stríð Bandaríkjanna gegn Íran, án þess að opna Hormússund fyrir skipasiglingar á nýjan leik. Forsetinn og ráðgjafar hans eru sagðir þeirrar skoðunar að það yrði of tímafrekt að opna sundið með hervaldi og þess vegna vilji hann halda í hluta af upprunalegu markmiðum sínum um að útrýma flota Íran og valda skaða á eldflaugaframleiðslu þar og binda enda á árásir á næstunni.

Erlent
Fréttamynd

Hyggjast tollleggja skipaumferð um Hormuz-sund

Íranskir miðlar hafa greint frá því að þingnefnd hafi samþykkt tillögu um að heimta toll af skipaumferð um Hormuz-sund. Samkvæmt fréttastofunni Fars verður sundið lokað skipum frá Bandaríkjunum, Ísrael og öðrum ríkjum sem hafa beitt Íran refsiaðgerðum.

Erlent
Fréttamynd

Segir við­ræður ganga stór­vel en hótar stríðsglæpum

Bandaríkjamenn eiga í viðræðum við „nýja og skynsamari“ ríkisstjórn í Íran um að binda enda á árásir á landið. Þessar viðræður hafa skilað miklum árangri, eftir því Donald Trump Bandaríkjaforseti, segir en hann hótar þó umfangsmiklum stríðsglæpum gegn Íran, náist samningar ekki fljótt og verði Hormússund ekki opnað fyrir skipasiglingar á nýjan leik.

Erlent
Fréttamynd

Enn fer ekki saman hljóð og mynd

Donald Trump Bandaríkjaforseti heldur áfram að hafa í hótunum við stjórnvöld í Íran, á sama tíma og hann segir samningaviðræður eiga sér stað, beint og óbeint, og lýsir nýrri forystu landsins sem „sanngjarnri“ (e. reasonable).

Erlent
Fréttamynd

Íranir búa sig undir á­rásir landherliðs

Íranir segjast tilbúnir að bregðast við árásum bandarískra landgönguliða sem þeir telja í farvatninu hjá Bandaríkjaher. Forseti íranska þingsins sakar Bandaríkjamenn um að skipuleggja slíkar árásir á sama tíma og þeir þykist opnir fyrir friðarviðræðum.

Erlent
Fréttamynd

Hútar gerðu aðra á­rás á Ísrael

Uppreisnarhópur Húta í Jemen skaut eldflaugum og drónum á nokkur skotmörk í suðurhluta Ísrael í sinni annarri loftárás á landið í dag. Talsmaður Húta segir árásirnar hafa beinst að mikilvægum hernaðarinnviðum. 

Erlent
Fréttamynd

Heimta enn að­stoð sem þeir segjast ekki þurfa

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tekur undir með Donald Trump, forseta, um að bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu þurfi að gera meira þegar kemur að því að opna Hormússund fyrir umferð olíuflutningaskipa á nýjan leik. Rubio segir Bandaríkjamenn sífellt beðna um að styðja Úkraínu og hjálpa til í stríði sem sé á annarri heimsálfu. Þegar Bandaríkjamenn þurfi á aðstoð að halda hafi Trump fengið neikvæð svör.

Erlent
Fréttamynd

Segir við­semj­endur ekki þora að gangast við við­ræðum

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stjórnvöld í Íran áfjáð í að komast að samkomulagi til að binda enda á árásir Bandaríkjanna og Ísrael en að þau séu hrædd við að viðurkenna það. Viðsemjendur Bandaríkjanna óttist að vera myrtir af eigin stjórn. „Þeir eru líka hræddir um að verða drepnir af okkur,“ sagði forsetinn í gær.

Erlent
Fréttamynd

Sjálf­skipaður Yoda okkar Ís­lendinga hefur rangt fyrir sér

Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma.

Lífið
Fréttamynd

Íranir hafna friðartillögu Banda­ríkja­manna

Íranir hafa hafnað tillögu Bandaríkjamanna um friðarsamkomulag vegna yfirstandandi stríðs Ísraela og Bandaríkjamanna á hendur Írönum. Þetta hefur íranski ríkismiðillinn Press TV eftir embættismanni þar í landi.

Erlent
Fréttamynd

Hafa á­hyggjur af hús­næðis- og byggingamarkaði

Það er áhyggjuefni að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands hversu mjög hefur hægst á sölu eigna á byggingamarkaði, bæði sölu á eignum í nýbyggingum og nú einnig eldri íbúðum. Seðlabankastjóri segir góðærinu að einhverju leyti lokið en að viðnámsþróttur í hagkerfinu sé með ágætum.

Innlent
Fréttamynd

Lán­veit­endur þurfa að vera vakandi fyrir „aukinni á­hættu“ í bygginga­geiranum

Vaxandi óvissa í alþjóðamálum samhliða versnandi verðbólguhorfum og væntingum um hærri vexti og hægari efnahagsumsvif gæti haft þau áhrif að það mun reyna á fjármálastöðugleika hér á landi, að mati Seðlabankans, en þjóðarbúið og fjármálakerfið stendur sterkt til að mæta þeim áskorunum. Fjármálastöðugleikanefnd brýnir einnig lánveitendur til að vera vakandi fyrir „aukinni áhættu“ í byggingageiranum en skuldir hafa þar farið vaxandi.

Innherji
Fréttamynd

Íranir segja engar við­ræður í gangi þvert á yfir­lýsingar Trumps

Fulltrúar Írans hjá Sameinuðu þjóðunum hafa ítrekað að olíuskip sem eru á vegum þjóða sem eru ekki óvinir Írans geti vel siglt um Hormus sund þrátt fyrir hótanir þeirra um að loka sundinu fyrir óvinum sínum. Talsmaður hersins hafnar því að viðræður við Bandaríkjamenn standi yfir.

Erlent
Fréttamynd

Sendir líka fall­hlífar­her­menn til Mið-Austurlanda

Forsvarsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna eru sagðir undirbúa það að senda um þrjú þúsund fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda. Hlutverk þeirra yrði að styðja við aðgerðir gegn Íran. Einnig er verið að senda landgönguliða á svæðið.

Erlent
Fréttamynd

Ísraelar hyggjast her­nema suður­hluta Líbanon

Stjórnvöld í Ísrael hyggjast taka yfir suðurhluta Líbanon að ánni Litani, það sem þau kalla „öryggissvæði“. Áin liggur í um 30 kílómetra fjarlægð frá landamærum Ísrael og Líbanon. Að sögn utanríkisráðherrans Israel Katz munu Ísraelar einnig stjórna þeim brúm yfir ána sem enn standa.

Erlent