Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður

Fréttamynd

„Skyn­sam­legt að spyrja þjóðina“

Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra, segir skynsamlegt að sjá hvað byðist þjóðinni í viðræðum um Evrópusambandsaðild. Hann vildi ekki gefa skýrt svar um hvort hann greiddi atkvæði með því að halda viðræðum áfram í haust.

Innlent
Fréttamynd

Hvað kostar mögu­leg aðild Ís­lands að Evrópu­sam­bandinu?

Viljum við Íslendingar halda áfram að ráða yfir eigin auðlindum, eigin peningamálum, eigin stjórnsýslu og hafa eigin sjálfstæða rödd á alþjóðavettvangi, þar á meðal gagnvart Norðurskautsráðinu, eða breyta stjórnarskránni og framselja fullveldi þjóðarinnar í mikilvægum greinum inn í kerfi þar sem ákvarðanir eru teknar af fulltrúum 27 ríkja?

Umræðan
Fréttamynd

Ekki sann­færð um aðild en kallar eftir kjöl­festu í um­ræðu

Halla Hrund Logadóttir þingkona Framsóknarflokksins telur mikilvægt að þjóðin fái að kjósa um það hvort að halda eigi aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Hún segist ekki á móti Evrópusamvinnu en hún sé ekki sannfærð um að aðilda sé rétta svarið. Hún segir skorta kjölfestu í umræðu svo hún geti farið fram á heilbrigðan hátt og kallar eftir kjölfestu frá stjórnvöldum. 

Innlent
Fréttamynd

Vill fresta at­kvæða­greiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun

Forstjóri Icelandair telur að með markvissum aðgerðum sé hægt að koma í veg fyrir að Seðlabankinn sjái sig knúinn til að hækka stýrivexti í maí og hann lækki í stað vexti. Til þess þyrfti að umbylta vinnumarkaðsmódelinu, efla valdheimildir Ríkissáttasemjara og leggja alla áherslu á að lækka ríkisútgjöld. Til að sýna áherslurnar í verki mætti fresta þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB um ár.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gert ráð fyrir að aðildar­við­ræður klárist á kjör­tíma­bilinu

Samþykki Íslendingar að fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið er gert ráð fyrir að þær verði kláraðar fyrir lok kjörtímabilsins og að ráðist verði í stjórnarskrárbreytingar fyrir næstu kosningar. Utanríkisráðherra sat fyrir svörum á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun. Ráðherra segir engar viðræður hafnar.

Innlent
Fréttamynd

Sig­mundur Davíð helsti áhrifa­valdur á af­stöðu Össurar í ESB-málinu

Hin hatramma umræða um aðildarviðræður við Evrópusambandið, en þjóðaratkvæðagreiðsla er fyrirhuguð 29. ágúst, er nú hafin og skeytin fljúga vinstri hægri og fer þar ýmislegt á milli mála. Er þá ekki best að heyra í manninum sjálfum sem var í miðju átakanna þegar hlé var gert á viðræðunum á sínum tíma?

Innlent
Fréttamynd

Ræddu „fjóra strámenn“, von­brigði og hags­muna­á­rekstra

„Við þurfum að vita nákvæmlega hvaða samtöl hafa verið í gangi og um hvað,” sagði Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag þar sem hún ræddi frétt Morgunblaðsins um meint orð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Af og frá að við­ræður séu hafnar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir af og frá að viðræðurnar við Evrópusambandið séu hafnar. Hún telur rétt að koma þessu skýrt á framfæri við þjóð sína í ljósi umræðu undanfarna daga.

Innlent
Fréttamynd

Það sem skiptir máli

Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar, spurði þeirrar einföldu spurningar hér á Vísi í gær: „Skiptir máli að Jens Garðar sé á þingi?“. Svarið við því er einfalt; já.

Skoðun
Fréttamynd

Að­lögun að ESB sé þegar hluti af dag­legu lífi

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir það hafa angrað sig í umræðunni um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu að minni hlutinn á Alþingi láti eins og þjóðin viti ekki sínu viti. Aðlögun að regluverki Evrópusambandsins sé hluti af daglegu lífi þjóðar og þings og ekkert myndi breytast í þeim efnum með áframhaldandi aðildarviðræðum.

Innlent
Fréttamynd

Leggur til að at­kvæða­greiðslunni verði frestað

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun leggja til breytingu á þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið, meðal annars þess efnis að atkvæðagreiðslunni verði frestað fram í október.

Innlent
Fréttamynd

Fyrri um­ræðu um þjóðar­at­kvæði lokið

Alþingismenn luku í gærkvöldi fyrri umræðu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Þingfundur stóð fram til að verða ellefu þar sem tekist var á um málið en að endingu lauk umræðunni og fer málið nú í síðari umræðu og til meðferðar hjá utanríkismálanefnd Alþingis.

Innlent
Fréttamynd

Fauk í Krist­rúnu í fyrirspurnartíma

Það fauk í Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi nú fyrir stundu en hún velti fyrir sér hvers kyns leikrit væri í gangi í þingsal; stjórnarandstaðan þráspyrði um sömu atriðin.

Innlent
Fréttamynd

Guð­mundur Ingi snýr aftur á þing í dag

Guðmundur Ingi Kristinsson tekur sæti á ný á Alþingi mánudaginn 16. mars. Þá víkur varaþingmaður hans, Grétar Mar Jónsson, af þingi. Greint var frá því í upphafi desember að hann væri kominn í veikindaleyfi vegna hjartaaðgerðar.

Innlent
Fréttamynd

Stakar styrk­veitingar taldar með í upptökutölfræðinni

Fyrrverandi forstöðumaður lagaskriftstofu EFTA segir að ekki sé hægt að líta á aðildarferli að Evrópusambandinu sem framsal réttarkerfisins. Með því að stilla landslögum upp gegn Evrópulögum sé ryki þyrlað í augu fólks og leikur að innleiðingartölfræði sé ekki gagnlegur.

Innlent
Fréttamynd

Orðhengils­háttur vill ein­kenna ESB-um­ræðuna

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er önnum kafinn einstaklingur en hún heldur áfram að koma á óvart hvað varðar viðtöl við fjölmiðla. Hún var mætt í Brennsluna á FM 957 í morgun í ítarlegt viðtal um ESB og kosningarnar um aðildarviðræður.

Innlent
Fréttamynd

Segir Ís­land geta klárað við­ræður á einu og hálfu ári

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, segir að Ísland gæti orðið 28. aðildarríki Evrópusambandsins. Hægt yrði að klára aðildarviðræður, verði þær samþykktar í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst, á einu og hálfu ári. Þá þyrfti að halda aðra atkvæðagreiðslu um aðild að sambandinu.

Erlent
Fréttamynd

Sjái þegar merki um að for­spá um klofningu þjóðarinnar standist

Prófessor í fjölmiðlafræði segist þegar sjá skautun á samfélagsmiðlum vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst og bendir á að bæði meiri- og minnihluti hafi talið atkvæðagreiðsluna muna skipta þjóðinni í fylkingar. Rannsóknir sýni fram á að sífellt færri leiti frétta úr ólíkum áttum.

Innlent
Fréttamynd

Krafði Sig­mund svara varðandi MAGA og upp­skar skammir

Þingmenn stjórnarandstöðunnar brugðust ókvæða við því þegar Dagur B. Eggertsson sagði Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum varðandi ætluð tengsl við MAGA-hreyfinguna svokölluðu. „Ælir út úr sér óhróðri og drullu!“ sagði Þorgrímur Sigmundsson Miðflokki til að mynda.

Innlent
Fréttamynd

Ráð­leggur Þor­gerði fram að þjóðar­at­kvæða­greiðslu

Heiða Kristín Helgadóttir, fyrrverandi varaþingmaður, hefur verið ráðin ráðgjafi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra fram að þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið, sem stefnt er á að halda í lok ágúst.

Innlent