Bandaríkin

Fimm dóu þegar hjálpargögn lentu á þeim
Að minnsta kosti fimm manns eru sagðir hafa látið lífið þegar hjálpargögn sem Bandaríkjamenn vörpuðu á Gasaströndina úr lofti í gær lentu á þeim. Fallhlíf allavega eins vörubrettis opnaðist ekki og það féll til jarðar á miklum hraða.

Stefnuræða Bidens: Fór hörðum orðum um Trump en nefndi hann aldrei á nafn
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, flutti í gær sína árlega stefnuræðu á bandaríska þinginu þar sem hann fór hörðum orðum um Donald Trump, fyrrverandi forseta og væntanlegan mótframbjóðanda hans, án þess þó að nefna hann á nafn. Þar að auki færði hann rök fyrir öðru kjörtímabili sínu og gagnrýndi Repúblikana harðlega.

Vara við árásum öfgamanna í Moskvu
Sendiráð Bandaríkjanna í Moskvu varaði við því í gærkvöldi að „öfgamenn“ hyggðu á árásir í borginni. Til stæði að ráðast á staði þar sem fólk kæmi saman, eins og á tónleikum, og voru Bandaríkjamönnum í Rússlandi ráðlagt að forðast mannmergð næstu tvo sólarhringa.

Murdoch trúlofaður fyrrverandi tengdamóður Abramovitsj
Bandaríski fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch hefur trúlofast hinni rússnesku Elenu Zhukova og stendur til að þau gangi í það heilaga í Kaliforníu í júní. Um verður að ræða fimmta hjónaband Murdoch.

Ábyrgð BNA á þjóðarmorðinu á Gaza
Framganga stjórnvalda í Bandaríkjunum (BNA), sem ítrekað hafa beitt neitunarvaldi innan Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um tafarlausa stöðvun árása á Gasa, er forkastanleg og ber skilyrðislaust að fordæma.

Bandaríkjamenn hyggjast reisa bráðabirgðahöfn á Gasa
Bandaríkjamenn hyggjast reisa tímabundna höfn við strendur Gasa til að greiða fyrir umfangsmiklum flutningum neyðargagna til svæðisins. Frá þessu greindi Joe Biden Bandaríkjaforseti í stefnuræðu sinni í gær.

Þriðja ferð Starship mögulega í næstu viku
Mögulegt er að starfsmenn SpaceX geri þriðju tilraun sína með geimskipið Starship í næstu viku. Fáist leyfi hjá þar til gerðum yfirvöldum og leyfi veður, stendur til að skjóta Starship á loft næsta fimmtudag.

Svíþjóð formlega gengin í NATO
Svíþjóð fékk klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma formlega aðild að Atlantshafsbandalaginu, þegar forsætisráðherrann undirritaði plagg þess efnis. Svíþjóð er þannig þrítugasta og annað ríki bandalagsins. Svíar sóttu um inngöngu í bandalagið fyrir tveimur árum, vegna innrásar Rússa í Úkraínu.

Stal gögnum frá Google og varð forstjóri í Kína
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að fyrrverandi starfsmaður Google hefði verið ákærður fyrir að stela iðnaðarleyndarmálum um þróun gervigreindar frá fyrirtækinu. Það er hann sagður hafa gert fyrir hönd tveggja fyrirtækja í Kína.

Hamas bæta við kröfur sínar og viðræðurnar í sjálfheldu
Viðræður milli Ísraelsmanna og Hamas um vopnahlé á Gasa virðast í sjálfheldu og heldur hefur dregið úr vonum að hlé verði gert á átökum fyrir Ramada, föstuhátíð múslima, sem hefst á sunnudag.

Trump skorar Biden á hólm í kappræðum
Donald Trump fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi frambjóðandi hefur skorað á Joe Biden sitjandi forseta í kappræður í sjónvarpi.

Þverpólitísk samstaða í Alabama um ný lög um notkun fósturvísa
Þingmenn í Alabama í Bandaríkjunum hafa samþykkt lög til að vernda heilbrigðisstofnanir og heilbrigðisstarfsmenn frá mögulegum sak- og lögsóknum, eftir að hæstiréttur ríkisins úrskurðaði að fósturvísar væru manneskjur og nytu sömu réttinda og börn.

Vopnavörðurinn fundin sek um manndráp af gáleysi
Vopnavörðurinn Hannah Gutierrez-Reed hefur verið fundin sek um manndráp af gáleysi vegna dauða kvikmyndatökustjórans Halyna Hutchins. Hutchins lést þegar skot hljóp úr byssu Alec Baldwin við upptökur á kvikmyndinni Rust árið 2021.

Birta tölvupósta frá Musk
Forsvarsmenn fyrirtækisins OpenAI segja auðjöfurinn Elon Musk hafa samþykkt að fyrirtækið sneri frá ætlunum um að starfa sem óhagnaðardrifið fyrirtæki. Því til stuðnings hafa áðurnefndir forsvarsmenn birt tölvupósta frá Musk, sem hefur höfðað mál gegn fyrirtækinu.

Haley hættir við
Nikki Haley, fyrrverandi ríkisstjóri Suður-Karólínu og fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, ætlar að hætta við forsetaframboð sitt. Henni hefur ekki gengið vel í forvali Repúblikanaflokksins gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta.

Biden og Trump sópuðu að sér kjörmönnum en Haley tók Vermont
Joe Biden og Donald Trump komu, sáu og sigruðu í forvali Demókrataflokksins og Repúblikanaflokksins á svokölluðum „Ofur-þriðjudegi“ í gær.

Vaxandi áhyggjur af astmalyfi og áhrifum þess á börn og ungmenni
Frá árinu 2012 hafa Lyfjastofunin borist ellefu tilkynningar um aukaverkanir af völdum lyfsins montelukast. Meðal aukaverkanana má nefna skapsveiflur, martraðir, kvíða, þunglyndi og svefnörðugleika.

Bezos tekur aftur fram úr Musk
Jeff Bezos er aftur orðinn auðugasti maður heimsins. Hann hefur tekið aftur fram úr auðjöfrinum Elon Musk, sem náði efsta sæti á lista Bloomberg af Bezos haustið 2021. Virði Musks hefur dregist töluvert saman á undanförnum mánuðum.

Ríkjum ekki heimilt að útiloka Trump
Hæstiréttur Bandaríkjanna segir einstök ríki ekki geta meinað Donald Trump, fyrrverandi forseta og núverandi forsetaframbjóðanda, að vera á kjörseðlum þar á grundvelli fjórtánda ákvæðis stjórnarskrár ríkisins. Ákvörðunin mun hafa áhrif í Colorado, Maine og Illinois, þar sem Trump hafði verið bannað að bjóða sig fram.

Úrskurða líklega Trump í vil degi fyrir „ofurþriðudag“
Dómarar hæstaréttar Bandaríkjanna gáfu til kynna í gær að von sé á úrskurði um það hvort ráðamönnum Colorado sé heimilt að meina Donald Trump að vera á kjörseðlum í ríkinu. Forval í báðum flokkum fer fram í ríkinu, og fimmtán öðrum, á morgun en dagurinn er iðurlega kallaður „ofurþriðjudagur“.

Haley sigraði Trump í Washington D.C.
Nikki Haley varð í gær fyrsta konan til að sigra í forkosningum Repúblikanaflokksins í aðdraganda forsetakosninga í Bandaríkjunum þegar hún fór með sigur af hólmi gegn Donald Trump í Washington D.C.

Ísraelsmenn sniðgengu samningaviðræðurnar í gær
Ísraelsmenn eru sagðir hafa sniðgengið samningaviðræður um vopnahlé sem fram fóru í Kaíró í gær sökum þess að Hamas-samtökin neita að afhenda lista yfir þá gísla sem enn eru á lífi og í haldi samtakanna.

Rödd hrekkjalómanna og hláturmilda hirðfíflsins úr Star Wars látin
Mark Dodson, sem er þekktastur fyrir að hafa talsett fjölda hrekkjalóma í Gremlins-myndunum og hirðfíflið Salacious B. Crumb í hirð Jabba the Hutt, er látinn 64 ára að aldri.

Vonir bundnar við vopnahlésviðræður í dag
Búist er við að sáttasemjarar frá bæði Ísrael og Hamas gangi til vopnahlésviðræðna í Kaíró í dag. Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að Bandaríkin hygðust henda neyðarbirgðum úr lofti yfir Gasa.

Gifti sig á Íslandi og uppgötvaði gat á markaðnum
Hin bandaríska Ann Peters féll fyrir Íslandi í fyrstu heimsókn sinni til landsins árið 2010. Röð atvika leiddi til þess að hún settist að hér á landi og í dag rekur hún fyrirtæki sem sérhæfir sig í skipulagningu brúðkaupa fyrir erlenda ferðamenn.

Tískudrottingin Iris Apfel látin
Bandaríski innanhússhönnuðurinn og tískugoðsögnin Iris Apfel er látin. Hún var 102 ára.

Bandaríkin henda hjálpargögnum úr lofti yfir Gasa
Bandaríkin hyggjast henda hjálpargögnum úr lofti yfir Gasa svæðið á næstu dögum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Joe Biden Bandaríkjaforseta. Erfiðlega hefur gengið að koma hjálpargögnum til Gasa undanfarna daga, vikur og mánuði en gagnrýnendur segja aðferðina lélega og ónákvæma.

Bein útsending: Nóbelsverðlaunahafi um hagfræðina á 21. öldinni
Forsætisráðuneytið og menningar- og viðskiptaráðuneytið í samvinnu við Háskóla Íslands standa fyrir málþingi með Nóbelsverðlaunahafanum Joseph Stiglitz í dag. Málþingið fer fram í Veröld, húsi Vigdísar, og stendur frá klukkan 12 til 13:30. Sýnt er frá viðburðinum í beinni útsendingu.

Hætt við aftöku vegna ítrekaðra mistaka
Aftöku raðmorðingjans Thomas Eugene Creech í Idaho í Bandaríkjunum var frestað um óákveðinn tíma í gær. Sú ákvörðun var tekin eftir að læknateymi mistókst að finna æð sem hægt væri að dæla lyfjablöndunni sem átti að draga hann til dauða í.

Yfirvöld í Transnistríu biðla til Rússa um aðstoð
Bandaríkjamenn segjast fylgjast grannt með þróun mála í Transnistríu, eftir að yfirvöld á sjálfsstjórnarsvæðinu biðluðu til Rússa um „vernd“.