Bandaríkin
103 104 105 106 107 108 109 110 111 … 334 ›
Eldflaugaskot Norður-Kóreumanna óásættanleg Norður-Kóreumenn skutu tveimur skammdrægum eldflaugum á loft í dag. Eldflaugarnar höfnuðu úti í sjó milli Norður-Kóreu og Japan og drifu um 350 kílómetra langt. Japanir segja tilraunirnar óásættanlegar. Erlent 8.10.2022 23:54
Leitað að hjálpartækjum ástarlífsins í afturenda Niemann fyrir skákeinvígi Skákmeistarinn Hans Niemann þurfti að þola nánari öryggisgæslu en aðrir keppendur á bandaríska meistaramótinu í skák í vikunni þegar leitað var sérstaklega í afturenda Niemann af hjálpartækjum ástarlífsins. Sport 8.10.2022 17:08
Söngkonan Jody Miller er látin Bandaríska söngkonan Jody Miller, sem er einna þekktust fyrir að sungið lagið Queen of the House, er látin, áttræð að aldri. Lífið 7.10.2022 14:22
Nýr sendiherra Bandaríkjanna afhenti forseta trúnaðarbréf Carrin Patman, nýr sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, afhenti Guðna Th. Jóhannessyni forseta trúnaðarbréf í gær. Sendiherralaust hefur verið frá því að umdeildur forveri Patman lét af embættinu í janúar í fyrra. Innlent 7.10.2022 10:37
Telja Trump enn vera með opinber gögn Starfsmenn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna telja Donald Trump, fyrrverandi forseta, enn hafa opinber gögn í vörslu sinni. Hann hafi ekki enn ekki skilað öllum þeim skjölum sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu á sínum tíma. Erlent 7.10.2022 10:10
Sagt upp því áfanginn var of erfiður Kennara við Háskólann í New York var nýlega sagt upp eftir að nemendur hans kvörtuðu yfir því að áfangi hans væri of erfiður. Samstarfsmenn kennarans hafa kvartað yfir uppsögninni. Erlent 7.10.2022 08:33
Óttast „ragnarök“ ef Pútín ákveður að nota kjarnorkuvopn Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur varað við því að heimsbyggðin gæti staðið frammi fyrir „ragnarökum“ ef Vladimir Pútín Rússlandsforseti ákveður að nota kjarnorkuvopn til að freista þess að vinna stríðið í Úkraínu. Erlent 7.10.2022 07:20
Fær frest til að semja endanlega um Twitter-kaupin Eftir að hafa barist fyrir því að kaupunum á samfélagsmiðlinum Twitter yrði rift fær auðjöfurinn Elon Musk nú frest til 28. október til að fjármagna kaupin. Umsamið kaupverð er 44 milljarðar bandaríkjadala en upphaflega stóð til að málið yrði tekið fyrir eftir 11 daga. Allar líkur voru taldar á því að Musk yrði gert að standa við upphaflegan samning en hann kveðst nú hafa vilja til að greiða, hann vanti aðeins tíma. Erlent 6.10.2022 23:54
Fyrrverandi þingmenn á Bandaríkjaþingi segja rödd Íslands mikilvæga Fyrrverandi þingmenn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings segja rödd Íslands skipta miklu máli á alþjóðavettvangi. Bandaríkjamenn geti margt lært af Íslendingum. Heimir Már hitti nokkra fyrrverandi fulltrúadeildarþingmenn í dag. Innlent 6.10.2022 20:01
Náðar þá sem hafa hlotið dóma fyrir neysluskammta af maríjúana Joe Biden Bandaríkjaforseti ætlar að náða þúsundir Bandaríkjamanna sem hafa hlotið dóma fyrir alríkisdómstólum fyrir vörslu á neysluskömmtum á maríjúana. Hann hvetur ríkisstjóra einstakra ríkja til að fara að fordæmi hans varðandi dóma fyrir ríkisdómstólum. Erlent 6.10.2022 19:36
Sigldu frá Síberíu til Alaska til að flýja herkvaðninguna Tveir rússneskir karlmenn óskuðu eftir hæli í Bandaríkjununum eftir að þeir sigldu yfir Beringshaf og tóku land á afskektri eyju undan ströndum Alaska. Þeir segjast hafa flúið herkvaðningu rússneskra stjórnvalda vegna innrásinnar í Úkraínu. Erlent 6.10.2022 18:50
Vill gefa Reykjavík risaeðlu Nýr og tiltölulega óvenjulegur eldri borgari mun mögulega bætast við íbúahóp Reykjavíkur á næstunni. Þar er um að ræða um 65 milljóna ára gamla risaeðlu, nánar tiltekið þríhyrnu, sem fimm ára stúlka fann. Innlent 6.10.2022 16:51
Felldu enn einn háttsettan ISIS-liða Bandarískir sérsveitarmenn réðust í nótt til atlögu gegn háttsettum leiðtoga Íslamska ríkisins í Sýrlandi. Hermennirnir voru fluttir með þyrlum til þorpsins Muluk Saray, sem er skammt frá Qamishli og er á yfirráðasvæði Bashars al Assads, forseta Sýrlands. Erlent 6.10.2022 14:01
Anna Sorokin úr „Inventing Anna“ laus úr fangelsi Hinni rússnesku Önnu Sorokin, sem þekkt er fyrir að hafa svikið háar fjárhæðir frá fólki í New York í Bandaríkjunum, hefur verið sleppt úr fangelsi. Hún hefur verið flutt í stofufangelsi, verið gert að vera með ökklaband og meinað að vera á samfélagsmiðlum. Erlent 6.10.2022 13:18
Flugu herþotum að Suður-Kóreu Tólf herþotum var flogið frá Norður-Kóreu að landamærum Suður-Kóreu í morgun. Í suðri voru þrjátíu orrustuþotur sendar til móts við hinar en mikil spenna er á svæðinu vegna ítrekaðra eldflaugaskota frá Norður-Kóreu síðustu daga og heræfinga í Suður-Kóreu. Erlent 6.10.2022 12:25
Musk vildi þrjátíu prósenta afslátt Fulltrúar Elons Musks og Twitter eiga enn í viðræðum um kaupsamkomulag auðjöfursins á samfélagsmiðlafyrirtækinu. Viðræður um að Musk fengi allt að þrjátíu prósenta afslátt á kaupverðinu sem segir til um í kaupsamningi sem hann skrifaði undir í apríl. Viðskipti erlent 6.10.2022 11:23
Ian líklega mannskæðasti fellibylur Flórída frá 1935 Fellibylurinn Ian er líklega sá mannskæðasti sem gengið hefur yfir Flórída frá árinu 1935. Fjöldi dauðsfalla er enn á reiki og tala miðlar vestanhafs um að allt að 120 dauðsföll vegna fellibylsins hafi verið staðfest. Enn er verið að leita í rústum húsa. Erlent 6.10.2022 10:27
Bandaríkjamaður fékk ekki að hitta páfann og trylltist Bandarískur karlmaður braut tvær styttur er hann ferðaðist til Vatíkansins í gær. Maðurinn krafðist þess að fá að hitta páfann en þegar hann fékk ekki að gera það snöggreiddist hann. Maðurinn er nú í haldi ítölsku lögreglunnar. Erlent 6.10.2022 06:35
Saka samtök olíuútflutningsfyrirtækja um að styðja Rússa OPEC+ samtök olíuútflutningsríkja ákváðu í dag að draga verulega úr olíuframleiðslu til að bregðast við lækkandi olíuverði. Áhrifin á heimshagkerfið eru talin mikil og búist er við hækkunum á olíuverði eftir langþráðar lækkanir síðustu vikur. Ákvörðunin er högg fyrir Joe Biden Bandaríkjaforseta sem segir ákvörðunina til marks um skammsýni og sakar samtökin um að styðja Rússa með ákvörðuninni. Erlent 6.10.2022 00:12
Telja Úkraínumenn hafa myrt dóttur ráðgjafa Pútíns Bandaríska leyniþjónustan telur að útsendarar úkraínskra stjórnvalda hafi staðið að bílsprengjuárás í Rússlandi sem varð dóttur ráðgjafa Vladímírs Pútín forseta að bana í sumar. Úkraínumenn eru sagðir hafa fengið skömm í hattinn frá bandamönnum sínum vegna tilræðisins. Erlent 5.10.2022 18:55
Vilja dæla vopnum til Taívans Ráðamenn í Bandaríkjunum vilja koma fyrir miklum birgðum af vopnum í Taívan ef ske kynni að Kínverjar reyndu að gera innrás þar. Markmiðið er að gera eyríkinu kleift að verjast innrás þrátt fyrir að Kínverjar einangri Taívan um langt skeið. Erlent 5.10.2022 17:09
Bein útsending: Geimfarar sendir af stað til geimstöðvarinnar Bandaríska fyrirtækið SpaceX mun skjóta fjórum geimförum af stað til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar í dag. Geimförunum verður skotið á loft um borð í Dragon-geimfari SpaceX með Falcon-9 eldflaug. Erlent 5.10.2022 15:01
Tökur hefjast að nýju eftir samkomulag við fjölskylduna Framleiðendur kvikmyndarinnar Rust hafa komist að samkomulagi við dánarbú kvikmyndatökukonunnar Halynu Hutchins um að fjölskylda hennar falli frá málsókn vegna dauða hennar. Hluti samkomulagsins felur í sér að framleiðsla kvikmyndarinnar fer aftur af stað. Erlent 5.10.2022 14:59
Kanye West svarar fyrir sig eftir gagnrýni á „White Lives Matter“ boli Rapparinn Kanye West sætir mikilli gagnrýni um þessar mundir fyrir að hafa klæðst bol með áletruninni „White Lives Matter“ á tískusýningu í París í vikunni. Þá fullyrti hann að „Black Lives Matter“ hafi verið svik og sagði fólk taka þátt í að „rífa niður svartan mann fyrir að hafa aðra pólitíska skoðun.“ Lífið 5.10.2022 14:51
Hljóta Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á sviði smellefnafræði Efnafræðingarnir Carolyn R. Bertozzi frá Bandaríkjunum, Morten Meldal frá Danmörku and K. Barry Sharpless frá Bandaríkjunum hljóta Nóbelsverðlaunin í efnafræði í ár. Þeir fá verðlaunin fyrir rannsóknir sínar á sviði smellefnafræði. Erlent 5.10.2022 09:52
Suður-Kóreumenn svöruðu fyrir sig en báðust síðan afsökunar Fjórum eldflaugum var skotið frá Suður-Kóreu seint í gærkvöldi. Talið er að með eldflaugunum hafi Suður-Kóreumenn, ásamt Bandaríkjamönnum, verið að svara fyrir eldflaug sem nágrannar þeirra í norðri skutu í gær yfir Japan. Herinn baðst síðar afsökunar á einni eldflauginni. Erlent 5.10.2022 08:42
Trump biður Hæstarétt um að skerast í leyniskjalaleikinn Lögmenn Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, báðu Hæstarétt Bandaríkjanna um að láta gerðardómara fara yfir aragrúa leyniskjala sem Trump hafði með sér úr Hvíta húsinu. Trump hefur áður haldið því fram að hann hafi haft vald til þess að aflétta leynd af skjölunum með því einu að hugsa um það. Erlent 4.10.2022 22:00
Twitter samþykkir kauptilboð Musk Samfélagsmiðlafyrirtækið Twitter hefur ákveðið að samþykkja kauptilboð auðjöfursins Elon Musk fyrir 41 milljarð bandaríkjadala. Tíðindin bárust í tilkynningu frá fyrirtækinu rétt í þessu. Viðskipti erlent 4.10.2022 19:50
Musk til í að standa við kaupin Elon Musk segist til í að standa við fyrirhuguð kaup á samfélagsmiðlinum Twitter. Musk hafði áður neitað að standa við kaupin en tvær vikur eru í að fyrirhuguð réttarhöld vegna meintra samningsbrota fari fram. Stjórn Twitter ætlar að hugsa málið. Viðskipti erlent 4.10.2022 17:59
Neitar því að hafa borgað þungunarrof kærustu Herschel Walker, frambjóðandi Repúblikanaflokksins til annars öldungadeildarþingsætis Georgíu-ríkis, þvertekur fyrir það að hafa greitt fyrir þungunarrof fyrrverandi kærustu sinnar árið 2009. Því hefur verið haldið fram í fjölmiðlum vestanhafs en Walker segist mikill andstæðingur þess að konur eigi rétt á þungunarrofi. Erlent 4.10.2022 16:32