Bandaríkin
101 102 103 104 105 106 107 108 109 … 334 ›
Kallaði nýja forsætisráðherrann Rashee Sanook Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, var ekki með nafn Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, á hreinu þegar hann óskaði honum til hamingju með nýja starfið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem seinheppni forsetans þegar kemur að orðavali vekur athygli. Erlent 25.10.2022 18:21
Ashton Carter er látinn Ashton Carter, einn varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í forsetatíð Barack Obama, er látinn, 68 ára að aldri. Carter skilur eftir sig eiginkonu og tvö börn. Erlent 25.10.2022 17:30
Vildi ekki binda sig við ríkisstjórastólinn Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, vill ekki heita því að sitja heilt kjörtímabil sem ríkisstjóri, nái hann endurkjöri í kosningunum í næsta mánuði. Charlie Crist, mótframbjóðandi hans, gagnrýndi ríkisstjórann í kappræðum þeirra í gær og sagði hann ekki hafa áhuga til að sinna embættinu áfram. Öll hans athygli beindist að mögulegu forsetaframboði. Erlent 25.10.2022 14:07
James Corden baðst afsökunar í beinni: „Þegar þú gerir mistök verður þú að axla ábyrgð“ „Í síðustu viku heyrðust sögur af því að ég væri bannaður á veitingastað,“ sagði þáttastjórnandinn James Corden í beinni útsendingu í sjónvarpsþætti sínum í gærkvöldi. Eigandi Balthazar, eins þekktasta veitingahúss New York borgar, hafði þá sett Corden í straff frá staðnum. Corden væri að hans mati versti kúnninn í sögu staðarins. Lífið 25.10.2022 12:30
Bandarískur flugmaður sem vann í Kína handtekinn í Ástralíu Bandarískur maður sem var flugmaður í landgönguliði Bandaríkjanna var nýverið handtekinn í Ástralíu og stendur til að framselja hann í Bandaríkjunum. Kínverjar eru sagðir hafa leitað til vestrænna flugmanna varðandi þjálfun í Kína. Erlent 25.10.2022 11:54
Adidas slítur samstarfi við West vegna hegðunar hans Þýski íþróttavöruframleiðandinn Adidas ætlar að slíta samstarfi sínu við tónlistarmanninn Kanye West vegna endurtekinnar særandi hegðunar hans. West hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum og í viðtölum og spúið gyðingahatri. Viðskipti erlent 25.10.2022 10:25
Vilja að öryggisráðið ræði staðlausar áhyggjur af„skítugri sprengju“ Rússnesk yfirvöld hafa ekki gefist upp á að halda því fram að Úkraínumenn ætli sér að sprengja geislavirka sprengju, þrátt fyrir verulegar efasemdir vestrænna ríkja. Þeir vilja að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna taki málið fyrir. Erlent 25.10.2022 07:28
Bandaríkjamenn saka Kínverja um njósnir Bandaríkjamenn hafa sakað þrettán kínverska ríkisborgara um njósnir og ólögleg afskipti. Dómsmálaráðherra greindi frá meintum tilraunum Kínverja á blaðamannafundi í dag. Erlent 24.10.2022 23:28
Segja Littlefeather hafa logið til um ættir sínar Systur aðgerðarsinnans Sacheen Littlefeather segja hana hafa logið til um að vera af ættum innfæddra í Bandaríkjunum. Faðir hennar eigi ekki rætur að rekja til Apache- og Yaqui-þjóðflokkanna, heldur sé hann frá Mexíkó. Erlent 24.10.2022 23:19
Þrír látnir eftir skotárás í skóla í Bandaríkjunum Þrír eru látnir og sex særðir eftir skotárás í skóla í Missouri í Bandaríkjunum. Meintur árásarmaður er meðal látinna. Erlent 24.10.2022 22:41
Leslie Jordan er látinn Bandaríski leikarinn Leslie Jordan er látinn, 67 ára að aldri. Jordan lést í dag eftir bílslys í Hollywood. Hann var sjálfur að aka þegar banaslysið átti sér stað en talið er að hann hafi misst meðvitund við aksturinn og ekið á byggingu. Bíó og sjónvarp 24.10.2022 20:14
Réttarhöldin gegn fyrirtæki Trumps hefjast Réttarhöld í skattsvikamáli New York-ríkis gegn Trump Organization, fyrirtækis Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hefjast í dag. Fyrsta verkefnið í dómsal mun að öllum líkindum reynast gífurlega erfitt en það er að finna ellefu kviðdómendur sem hafa ekki sterka skoðun á forsetanum fyrrverandi. Erlent 24.10.2022 15:07
Gæti átt 140 ár í fangelsi í vændum Kvikmyndaframleiðandinn og Hollywood mógúllinn Harvey Weinstein er enn og aftur mættur fyrir dómara í Bandaríkjunum sakaður um kynferðisofbeldi. Weinstein gæti átt yfir höfði sér allt að 140 ára dóm en hann afplánar nú 23 ára fangelsisdóm fyrir kynferðisofbeldi og nauðgun. Erlent 24.10.2022 09:01
Blindur á öðru auga og máttlaus í hendi eftir árásina Rithöfundurinn Salman Rushdie missti sjón á öðru auga og allan mátt í annarri hendinni eftir hnífaárás. Ráðist var á rithöfundinn á meðan hann hélt fyrirlestur í New York í ágúst. Erlent 23.10.2022 16:40
„Það er mjög alvarleg staða komin upp“ Rússar hafa lagt sérstaka áherslu á orkuinnviði í árásum sínum í Úkraínu síðustu daga. Kynding er af skornum skammti í landinu og veturinn nálgast óðfluga. Prófessor segir að mjög alvarleg staða sé komin upp. Erlent 23.10.2022 15:01
Lést vegna heilaétandi amöbu Unglingur í Nevada í Bandaríkjunum lést nýlega af völdum heilaétandi amöbu. Dýrið er talið hafa farið inn í nef og upp í heila unglinsins þegar hann baðaði sig í stöðuvatni í fylkinu. Erlent 22.10.2022 11:46
Háleynileg gögn um Íran og Kína á heimili Trumps Flugskeytaáætlun Írans og upplýsingaöflun bandarísku leyniþjónustunnar um Kína eru á meðal þess sem Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hafði með sér við lok forsetíðar sinnar til heimilis hans í Flórída, Mar-a-Lago. Erlent 21.10.2022 20:42
Miðnætursöngvar Taylor Swift opinbera þráhugsanir og drauma Ný plata Taylor Swift „Midnights“ birtist á helstu tónlistarveitum í nótt. Platan er stútfull af nýjum lögum, nánar til tekið tuttugu talsins. Platan einkennist af einskonar rafpoppi og er uppfull af einstakri textasmíð Swift sem aðdáendur og aðrir áhugasamir ættu að geta tengt við. Tónlist 21.10.2022 16:29
Bannon dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi Bandarískur alríkisdómstóll dæmdi Steve Bannon, fyrrverandi skrifstofustjóra Hvíta húss Donalds Trump, í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hunsa stefnu nefndar Bandaríkjaþings í dag. Nefnd sem rannsakar árás stuðningsmanna Trump á þinghúsið stefndi Bannon til að bera vitni en hann óhlýðnaðist henni. Erlent 21.10.2022 15:27
Spacey sýknaður af því að hafa misnotað leikara Kviðdómur í New York sýknaði Kevin Spacey af ásökunum um að hann hefði reynt að nauðga leikaranum Anthony Rapp þegar sá síðarnefndi var táningur á tíunda áratug síðustu aldar. Lögmaður Rapp sakaði Spacey um að ljúga fyrir dómi. Erlent 21.10.2022 13:53
Ætluðu að nota Tiktok til að njósna um ákveðna einstaklinga Móðurfélag kínverska samfélagsmiðilsins Tiktok er sagt hafa ætlað sér að nota miðilinn til þess að fylgjast með staðsetningu ákveðinna bandarískra notenda án vitundar þeirra eða samþykkis. Bandaríkjastjórn hefur rannsakað hvort kínversk stjórnvöld gætu komist yfir persónuupplýsingar Bandaríkjamanna í gegnum miðilinn. Erlent 21.10.2022 12:25
Diplómatafrú viðurkenndi að hafa ekið á breskan pilt Eiginkona bandarísks diplómata viðurkenndi að hún hefði orðið táningspilt að bana með því að aka bíl sínum ógætilega fyrir breskum dómstól í gær. Málið olli milliríkjadeilu á milli bandarískra og breskra stjórnvalda. Erlent 21.10.2022 08:42
Niemann stefnir Carlsen og krefst 15 milljarða króna Skákmaðurinn umtalaði, Hans Niemann hefur birt lögsókn sína gegn öflum innan skákheimsins vegna skemmda sem aðilarnir eru sagðir hafa unnið á orðspori Niemann. Meðal þeirra aðila sem lögsóttir eru eru skákmaðurinn Magnus Carlsen og skákvefurinn Chess.com. Sport 20.10.2022 22:48
Trump bar vitni í nauðgunarmáli í dag Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, bar í dag vitni vegna málaferla rithöfundarins E. Jean Carroll, sem hefur sakað hann um nauðgun. Þetta var í fyrsta sinn sem lögmenn hennar gátu spurt forsetann fyrrverandi spurninga þar sem hann er eiðsvarinn. Erlent 19.10.2022 23:31
Hafa áhyggjur af lýðræðinu en setja það ekki í forgang Mikill meirihluti bandarískra kjósenda segir lýðræðinu vera ógnað þar í landi. Það að verja lýðræðið er þó ekki í forgangi hjá þeim og hafa kjósendur meiri áhyggjur af efnahagsmálum vestanhafs. Erlent 19.10.2022 22:32
Uppskerubrestur í Flórída ýtir verði á appelsínusafa í methæðir Verð á appelsínusafa í Bandaríkjunum hefur aldrei verið hærra vegna þess uppskerubrests sem er nú í kortunum. Fellibylurinn Ian sem gekk yfir Flórída í Bandaríkjunum fyrir tæpum mánuði síðan er helsta ástæðan, að því er fjölmiðlar vestra greina frá. Nánast öll appelsínuframleiðsla Bandaríkjanna á uppruna sinn í sólskinsríkinu Flórída. Innherji 19.10.2022 19:12
Bandarískir uppgjafarherforingjar flykkjast í þjónustu krónprinsins Tugir uppgjafarherforingja og flotaforingja eru á meðal hundruð bandarískra hermanna sem drýgja eftirlaun sín með því að vinna fyrir erlendar ríkisstjórnir, aðallega í löndum þar sem mannréttindabrot og kúgun er daglegt brauð. Fjöldi þeirra er í þjónustu krónprins Sádi-Arabíu og fjölgaði þeim eftir hrottalegt morð á blaðamanninum Jamal Khashoggi. Erlent 19.10.2022 11:01
Heitir því að festa Roe í lög ef demókratar ná meirihluta Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur heitið því að festa niðurstöðu Roe gegn Wade í lög ef demókratar ná meirihluta í báðum deildum í þingkosningunum sem fara fram í nóvember. Erlent 19.10.2022 07:53
Einangraður og umdeildur eftir röð hatursfullra ummæla Rapparinn Kanye West á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir en ummæli hans og hegðun síðastliðnar vikur hafa vakið talsverða athygli. Samfélagsmiðlar hafa lokað á aðgang hans og fyrirtæki slitið öll tengsl við hann. Ekkert lát virðist vera á hatursfullum ummælum hans en af ýmsu er að taka. Lífið 18.10.2022 21:01
Corden aftur velkominn eftir skít og skammir gærdagsins Þáttastjórnandinn og grínistinn James Corden er aftur velkominn á veitingastaðinn Balthazar eftir að hafa beðist afsökunar. Eigandi staðarins setti Corden í straff í gær og lýsti honum sem versta og dónalegasta kúnnanum í 25 ára sögu staðarins. Bannið varði aðeins í nokkrar klukkustundir og grínaðist eigandinn með að aflétta banninu fengi hann að taka við þætti Cordens í níu mánuði. Lífið 18.10.2022 11:22