Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Reykja­vík ársins 2030

Við Reykvíkingar göngum að kjörkössunum þann 16. maí næstkomandi og veljum okkur þá fulltrúa sem munu leiða borgina okkar fram til ársins 2030. Því er stóra spurningin þessa dagana – hvernig viljum við að lífið í Reykjavík verði árið 2030?

Skoðun
Fréttamynd

Þegar mið­stýring er kölluð hag­ræðing

Ég ólst upp í 101 Reykjavík og þekki vel hvernig það er að hafa alla þjónustu innan seilingar. Fyrir rúmum tuttugu árum flutti ég hins vegar á Akranes og hef síðan þá verið stoltur íbúi landsbyggðarinnar. Það var meðvituð ákvörðun sem ég hef aldrei séð eftir.

Skoðun
Fréttamynd

Borgarlínan verður kosningamálið í vor

Kosningarnar í Reykjavík í vor munu að miklu leyti snúast um Borgarlínu. Þar stendur valið milli þess að halda áfram með umdeilt risaverkefni eða staldra við og endurmeta forsendur þess áður en lengra er haldið. Nú er í raun síðasta tækifærið til að hugsa framkvæmdina upp á nýtt áður en höfuðborgarsvæðið verður bundið til áratuga.

Skoðun
Fréttamynd

Fram­boð sem byggir á trú á Akur­eyri

Ég er 32 ára þriggja barna móðir. Börnin mín eru 10 ára, 2 ára og 3 mánaða. Eins og margar fjölskyldur á Akureyri finn ég daglega hvernig ákvarðanir sveitarfélagsins hafa raunveruleg áhrif á lífið okkar, hvort við fáum leikskólapláss, hvernig skólastarfi er háttað, hvernig opinber þjónusta er veitt, hvort hér sé húsnæði sem okkur hentar og að hér séu tækifæri og atvinnuöryggi.

Skoðun
Fréttamynd

Að hafa það sem þarf

Á Íslandi eru 62 sveitarfélög og jafn margar sveitarstjórnir, og sveitarstjórar. Á sviði sveitarstjórna eru ákvarðanir teknar sem hafa bein áhrif á lífsgæði og afkomu einstaklinga.

Skoðun
Fréttamynd

Kjósum mann sem klárar verkin!

Íbúar í Reykjavík kalla eftir raunverulegum breytingum í vor. Það er eitt að tala um breytingar, annað að kunna og best er að hafa gert.

Skoðun
Fréttamynd

Reykja­víkur­borg er ramminn, ekki mál­verkið

Næsti kafli Reykjavíkur snýst um að endurheimta traust borgarbúa. Það er kominn tími á önnur vinnubrögð, ferskar hugmyndir, nýja kynslóð. Öll þekkjum við vandamálin – leikskólarnir, umferðin, lóðaskorturinnn, útþanið báknið og óþarfi að tönglast á þeim einu sinni enn. Borg sem hefur þessi lykilatriði ekki í forgangi hefur misst sjónar af hlutverki sínu. Ef við réttum ekki kúrsinn heldur traust til borgarstjórnar áfram að vera ofan í kjallara.

Skoðun
Fréttamynd

Bærinn er fólkið

Um samtal, traust og framtíð HafnarfjarðarHafnarfjörður er einstakur bær. Hér mætast saga og framtíð, náttúra og bæjarbragur. Líkt og önnur sveitarfélög stöndum við frammi fyrir krefjandi verkefnum. Íbúar kalla eftir lausnum í húsnæðismálum, bættri þjónustu, ábyrgri fjármálastjórn og skýrri framtíðarsýn um hvernig bæjarfélagið eigi að þróast – fyrir börnin okkar, eldri borgara og alla þar á mill

Skoðun
Fréttamynd

Ef þetta er ekki þræla­hald – hvað er það þá?

Já, það er kannski besta orðið yfir þá sem hafa stjórnað þessu landi síðustu áratugina. Ég tek ekki svo sterkt til orða að jafnaði, þótt ég hafi mínar skýru skoðanir á þeim sem bjóða sig fram til að „stjórna okkur til góðs“.

Skoðun
Fréttamynd

Af hverju þurfa börn að borga í strætó?

Ég trúi því að lausnirnar við vandamálum dagsins í dag sé að finna í félagshyggju, þar sem lífsgæði og réttlæti eru í forgrunni. Ég trúi því að við eigum að leggja fram til samfélagsins út frá getu. Þess vegna finnst mér óréttlátt að ríkasta fólkið greiði ekki eins og aðrir í okkar sameiginlega sjóði.

Skoðun
Fréttamynd

Flótta­manna­vegurinn er loksins fundinn

Hvar er Flóttamannavegurinn var fyrirsögn greinar eftir fyrrverandi bæjarstjóra Hafnarfjarðar og núverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins, Rósu Guðbjartsdóttur sem birtist í byrjun vikunnar.

Skoðun
Fréttamynd

3,7 milljarða skatta­lækkun í Hafnar­firði

Síðan Sjálfstæðisflokkurinn tók við völdum í Hafnarfirði árið 2014 hefur hann markvisst lækkað fasteignagjöld á bæði atvinnu- og íbúðarhúsnæði. Ef ekkert hefði verið gert væru álögur á Hafnfirðinga um 3.700 milljónum hærri á árinu 2026 en þær voru þegar við tókum við 2014.

Skoðun
Fréttamynd

Á­stæða góðs árangurs í hand­bolta

Frábær árangur íslenska landsliðsins í handbolta veitir okkur Íslendingum ómælda gleði. Þjóðarstolt, samhug og spennu. Árangur í íþróttum hjá þjóðum er sameiningarafl.

Skoðun
Fréttamynd

Björg fyrir Reyk­víkinga

Flest höfum við skoðun á Reykjavík - borginni okkar því snertifletirnir eru endalausir. Göturnar, skólarnir, leikskólarnir, grænu svæðin, umferðin, skipulagið og þjónusta borgarinnar eru allt þættir sem móta daglegt líf okkar íbúanna.

Skoðun
Fréttamynd

Leið­togi með reynslu, kjark og mann­lega nálgun

Ég átti þess kost að vinna náið með Róberti Ragnarssyni tvö kjörtímabil í Grindavík. Ég tók meðal annars þátt í að ráða hann sem bæjarstjóra til starfa 2010 og síðar að endurráða hann 2014. Sú reynsla gefur mér sterkan grundvöll til að leggja orð í belg og lýsa þeirri forystu og fagmennsku sem Róbert hefur sýnt í störfum sínum.

Skoðun
Fréttamynd

Hruna­manna­hreppur 5 - Kópa­vogur 0

Í fótbolta væru þessar tölur sláandi, að sveitarfélag sem telur rétt um 900 íbúa ynni næst stærsta sveitarfélag landsins með rúmlega 40.000 íbúa sannfærandi. En þetta er ekki fótbolti heldur tölur yfir óhagnaðardrifnar leiguíbúðir sem eru í byggingu eða hafa verið byggðar í sveitarfélaginu. Í vor klárast bygging 5 leiguíbúða á vegum Bjargs íbúðafélag á Flúðum í Hrunamannahreppi en engin í Kópavogi.

Skoðun
Fréttamynd

Skipu­lag á að þjóna fólki, ekki pólitískum prinsippum

Skipulagsmál eru samofin lífsgæðum íbúa og hafa áhrif á daglegt líf fólks, heilsu þess og samfélagslega velferð. Ákvarðanir um hvernig land er nýtt, hvar byggt er, hvernig samgöngum er háttað og hversu mikið rými er fyrir græn svæði móta ekki aðeins daginn í dag heldur einnig framtíð komandi kynslóða. Því er brýnt að skipulagsákvarðanir byggi á þekkingu, raunhæfum sjónarmiðum og virðingu fyrir ólíkum þörfum íbúa.

Skoðun
Fréttamynd

Árangur byrjar í starfs­manna­hópnum

Það er auðvelt að ræða skólamál út frá stundaskrám, húsnæði og fjárhagsáætlunum. En kjarni árangurs í leik- og grunnskólum er alltaf sá sami; fólkið. Þegar starfsfólk upplifir traust, skýran ramma, faglegt sjálfræði og stuðning í krefjandi aðstæðum, eykst starfsánægjan.

Skoðun
Fréttamynd

Maðurinn sem ég kynntist í löggunni

Mín fyrstu kynni af Vilhjálmi Árnasyni, eða Villa, voru er við störfuðum saman í lögreglunni á Suðurnesjum um nokkurn tíma. Þegar maður vinnur með fólki við hin ýmsu verkefni innan lögreglunnar þá áttar maður sig á úr hverju fólk er gert.

Skoðun
Fréttamynd

Fyrir hverja eru leik­skólar

Leikskólinn er fyrsta skólastigið þar sem okkar minnstu og mikilvægustu samborgarar taka sín fyrstu skref í að verða hluti af samfélaginu. Þar er félagsfærni, málþroski og öryggi þeirra byggt upp undir vökulu auga starfsfólks sem hefur atvinnu af því að stuðla að öryggi og vellíðan barna í námi og leik. Leikskólar eru líka grundvallarforsenda þess að foreldrar ungra barna geti tekið þátt í atvinnulífinu.

Skoðun
Fréttamynd

Getum við munað

Í mínu lífi hefur pólitík alltaf verið mikið rædd hvort sem það er við matarborðið, í afmælum eða á vinnustaðnum og eftir því sem maður verður eldri og meðvitaðri fer maður að móta betur sínar eigin skoðanir og taka virkari þátt í umræðunni. Það getur verið gott að setja hlutina í samhengi en frá árinu 2010 þegar ég var þrettán ára gamall hafa sömu stjórnmálaöfl verið við stjórnvölinn nær sleitulaust í borginni.

Skoðun
Fréttamynd

Flótti ríkis­stjórnarinnar frá Flóttamannavegi

Flóttamannavegur, sem svo er kallaður, liggur eins og perlufesti yfir Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð og tengir sveitarfélögin saman. Við hann liggja nýbyggð sístækkandi hverfi sem gera hann að ákjósanlegri tengingu þessara bæjarfélaga. Einnig er hann eina leiðin að fjölsóttum útivistarperlum í Heiðmörk og á tvo golfvelli, Odd og Setbergsvöll.

Skoðun
Fréttamynd

Hvernig byggjum við upp há­gæða al­mennings­sam­göngur?

Hágæða almenningssamgöngur byggjast ekki á stærri og stífari kerfum, heldur á snjallvæðingu, sveigjanleika og aðlögun að ferðavenjum fólks. Í þróun samgangna á að fara frá stórum einingum yfir í minni og liprari lausnir þegar tæknin leyfir. Því minni og sveigjanlegri sem einingarnar eru, því betur er ferðalagið sniðið að þörfum farþegans í stað þess að farþeginn þurfi að laga sig að kerfinu.

Skoðun
Fréttamynd

Urðum ekki yfir stað­reyndir

Fyrr í dag birtist á Vísi grein frá frambjóðanda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ varðandi urðun í Álfsnesi. Frambjóðendum í prófkjörum hleypur oft kapp í kinn og ekkert við það að athuga. En í viðkomandi grein koma fram alvarlegar rangfærslur varðandi urðun í Álfsnesi sem nauðsynlegt er að leiðrétta strax.

Skoðun
Fréttamynd

Leysum leikskólamálin í Reykja­vík

Nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga byrja raddir að heyrast úr ýmsum áttum um leikskólamálin í Reykjavík. Meginstefið er hvernig laga megi það ástand sem er í leikskólakerfinu sem snýst í grunninn um mönnunarvanda.

Skoðun