Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir, Steinþór Hreinsson og Þröstur Sverrisson skrifa 23. apríl 2026 11:16 Hvað þarf til þess að sveitarfélög ákveði að neita eigin íbúum um velferðarþjónustu? „Stjórn samþykkir samhljóða að veita starfsmönnum byggðasamlagsins ekki heimild til að skipuleggja eða veita þjónustu til aðila sem eru með ótilgreint lögheimili. Forsendur fyrir þjónustu Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs[SVÁ] er skráning lögheimilis í íbúðarhúsnæði.“ Á hvaða lagagrundvelli byggðist þessi samþykkt? Eftirfarandi stjórnarmenn SVÁ samþykktu ofangreint samhljóða á fundi 24. september 2025: Hulda Kristjánsdóttir, sveitarstjóri Flóahrepps, formaður Jón Bjarnason, oddviti Hrunamannahrepps Fjóla S. Kristinsdóttir, sveitarstjóri Grímsness- og Grafningshrepps Ása Valdís Árnadóttir, oddviti Grímsness- og Grafningshrepps Helgi Kjartansson, oddviti í Bláskógabyggð Haraldur Þór Jónsson, oddviti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Sylvía Karen Heimisdóttir, sveitarstjóri í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Ástæðan sem gefin var upp er sú að beiðnum hafi fjölgað og að aukin krafa hafi komið fram um að velferðarþjónustan haldi utan um endurhæfingarlífeyri. Því miður voru viðbrögðin ekki þau að skoða hvernig mætti tryggja réttindi fólks eða bæta þjónustu. Þvert á móti samþykkti stjórnin samhljóða að starfsmenn skyldu hafna því að: staðfesta lögheimilisskráningu þar sem um er að ræða ótilgreint lögheimili staðfesta að einstaklingar með ótilgreint lögheimili búi einir vinna að endurhæfingaráætlunum einstaklinga með ótilgreint lögheimili Í einföldu máli var ákveðið að stjórnsýslan skyldi ekki sinna ákveðnum verkefnum fyrir fólk vegna þess hvernig lögheimili þeirra er skráð í þjóðskrá. En hér gleymist grundvallaratriði: ótilgreint lögheimili er lögleg skráning samkvæmt íslenskum lögum. Hún er hluti af því kerfi sem löggjafinn hefur sjálfur sett upp þegar ekki er hægt, af ýmsum ástæðum, að skrá einstakling á tiltekið heimilisfang. Ótilgreint lögheimili má ekki þýða ótilgreind réttindi Þegar sveitarfélög byrja að mismuna íbúum sínum eftir tegund lögheimilis sem lögin sjálf heimila er farið út á varhugaverða braut. Margt bendir til þess að stjórn SVÁ hafi farið út fyrir valdheimildir sínar. Ein af þeim aðgerðum sem starfsmönnum var bannað að vinna að eru endurhæfingaráætlanir, sem eru oft forsenda þess að einstaklingur geti fengið endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun. Þetta er ekki formsatriði, þetta snýst um aðgang að tekjum. Það að sveitarfélag ákveði að slík vinna fari ekki fram fyrir ákveðinn hóp íbúa er það í reynd að loka á möguleika þeirra til framfærslu. Þetta er ákvörðun sem getur þannig haft bein áhrif á lífsviðurværi fólks. Þegar einstaklingur býr í sveitarfélagi og greiðir þar útsvar er erfitt að sjá hvernig hægt er að réttlæta að viðkomandi sé útilokaður frá stjórnsýslu eða þjónustu vegna formsatriða í skráningu lögheimilis. Á fundi stjórnar SVÁ 11. febrúar 2026 var þessari framkvæmd breytt að hluta og samþykkt að börn og ungmenni undir 18 ára aldri skyldu fá þjónustu óháð búsetuformi þeirra. Hins vegar var jafnframt ákveðið að þjónusta til annarra einstaklinga með ótilgreint lögheimili væri háð samþykki viðkomandi sveitarfélags. Þá vaknar einföld spurning: af hverju taldi stjórnin í lagi að útiloka fullorðna íbúa frá þessari þjónustu til að byrja með? Búsetufrelsi, samtök fólks með fasta búsetu í heilsárshúsi í Grímsnes- og Grafningshreppi sendi í mars sl. inn beiðni um lögmætisathugun til innviðaráðuneytis vegna þessarar samþykktar SVÁ. Erindi samtakanna fellur undir eftirlitshlutverk ráðuneytisins. Slík mál eru tekin til skoðunar þegar tilefni er til. Stjórn SVÁ brást við kvörtun Búsetufrelsis til innviðaráðuneytisins og benti á að erindið sé ekki stjórnsýslukæra og að óvíst sé hvort ráðuneytið taki málið til skoðunar. Það breytir þó engu um kjarna málsins. Það sem vekur mesta athygli er að í þessum viðbrögðum er ekki vísað til neinnar lagaheimildar fyrir ákvörðuninni.Þess í stað er reynt að þrengja hana eftir á og tengja við fólk sem „kýs að dvelja í frístundahúsum“. Það breytir þó ekki því sem stendur í fundargerðinni: að ákveðinn hópur íbúa skyldi ekki njóta þjónustu. Og sú staða er í raun enn við lýði, þar sem þjónusta til fullorðinna er háð samþykki sveitarfélaga. Í álitum Umboðsmanns Alþingis hefur verið bent á að sveitarfélög geti ekki með almennum reglum útilokað hópa íbúa frá meðferð mála eða þjónustu nema skýr lagaheimild sé fyrir því. Þess vegna stendur spurningin enn: Hvar er lagaheimildin? Ef hún er ekki til, þá er þetta ekki bara umdeild ákvörðun heldur ólögmæt stjórnsýsla. Höfundar skipa stjórn Búsetufrelsis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar