Sterkari stuðningur við börn í grunnskólum Kópavogs Björg Baldursdóttir skrifar 24. apríl 2026 16:01 Grunnskólar í Kópavogi standa á sterkum grunni. Þar starfar öflugt fagfólk sem sinnir kennslu og uppeldi af metnaði og fagmennsku. Við getum verið stolt af því skólastarfi sem hefur byggst upp í bænum okkar. En þrátt fyrir þann góða árangur sem náðst hefur, blasa við okkur áskoranir sem við getum ekki litið framhjá. Við þurfum að huga að næstu skrefum. Sífellt fleiri merki benda til þess að líðan barna og ungmenna sé að versna. Hegðunarerfiðleikar aukast, kvíði og vanlíðan verða sýnilegri og álag á skólasamfélagið eykst. Kennarar og stjórnendur standa sig vel í erfiðum aðstæðum en það er ljóst að skólarnir geta ekki borið þessa þróun einir og sér. Við þurfum að styrkja innviði skólanna og auka faglegan stuðning við nemendur. Það er nauðsynlegt að fleiri sérfræðingar starfi innan hvers skóla, félagsráðgjafar, talmeinafræðingar, atferlisþjálfar og sálfræðingar sem geta gripið inn í snemma og unnið markvisst með börnum. En jafn mikilvægt er að horfa til fjölskyldnanna. Foreldrar standa oft frammi fyrir flóknum aðstæðum og þurfa stuðning til að geta stutt börnin sín. Samstaða foreldra skiptir hér sköpum, að við sem samfélag stöndum saman um skýr gildi, samskipti og sameiginlega ábyrgð á velferð barna. Skólinn og heimilið þurfa að vinna þétt saman og þar þurfa að vera raunveruleg úrræði til stuðnings, ekki aðeins góðar fyrirætlanir. Skólinn á að vera öruggur staður þar sem öllum börnum líður vel og þau fá tækifæri til að blómstra. Til þess að svo megi verða þurfum við að bregðast við með markvissum aðgerðum. Það felur í sér að setja velferð barna í forgang og tryggja að bæði skólarnir og fjölskyldurnar hafi þann stuðning sem til þarf. Ef við ætlum að halda áfram að byggja upp sterkt skólasamfélag í Kópavogi verðum við að horfa fram á við og styrkja stuðningskerfið í kringum börnin. Það er fjárfesting sem skilar sér margfalt – fyrir börnin, fjölskyldurnar og samfélagið allt. Höfundur skipar 2. sæti á lista Framsóknar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Skóla- og menntamál Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Grunnskólar í Kópavogi standa á sterkum grunni. Þar starfar öflugt fagfólk sem sinnir kennslu og uppeldi af metnaði og fagmennsku. Við getum verið stolt af því skólastarfi sem hefur byggst upp í bænum okkar. En þrátt fyrir þann góða árangur sem náðst hefur, blasa við okkur áskoranir sem við getum ekki litið framhjá. Við þurfum að huga að næstu skrefum. Sífellt fleiri merki benda til þess að líðan barna og ungmenna sé að versna. Hegðunarerfiðleikar aukast, kvíði og vanlíðan verða sýnilegri og álag á skólasamfélagið eykst. Kennarar og stjórnendur standa sig vel í erfiðum aðstæðum en það er ljóst að skólarnir geta ekki borið þessa þróun einir og sér. Við þurfum að styrkja innviði skólanna og auka faglegan stuðning við nemendur. Það er nauðsynlegt að fleiri sérfræðingar starfi innan hvers skóla, félagsráðgjafar, talmeinafræðingar, atferlisþjálfar og sálfræðingar sem geta gripið inn í snemma og unnið markvisst með börnum. En jafn mikilvægt er að horfa til fjölskyldnanna. Foreldrar standa oft frammi fyrir flóknum aðstæðum og þurfa stuðning til að geta stutt börnin sín. Samstaða foreldra skiptir hér sköpum, að við sem samfélag stöndum saman um skýr gildi, samskipti og sameiginlega ábyrgð á velferð barna. Skólinn og heimilið þurfa að vinna þétt saman og þar þurfa að vera raunveruleg úrræði til stuðnings, ekki aðeins góðar fyrirætlanir. Skólinn á að vera öruggur staður þar sem öllum börnum líður vel og þau fá tækifæri til að blómstra. Til þess að svo megi verða þurfum við að bregðast við með markvissum aðgerðum. Það felur í sér að setja velferð barna í forgang og tryggja að bæði skólarnir og fjölskyldurnar hafi þann stuðning sem til þarf. Ef við ætlum að halda áfram að byggja upp sterkt skólasamfélag í Kópavogi verðum við að horfa fram á við og styrkja stuðningskerfið í kringum börnin. Það er fjárfesting sem skilar sér margfalt – fyrir börnin, fjölskyldurnar og samfélagið allt. Höfundur skipar 2. sæti á lista Framsóknar í Kópavogi.
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar