Rósa Líf Darradóttir

Björgun hvala og orðræðan sem máli skiptir
Á Íslandi var viðburðarík vika fyrir hvali, fréttir bárust af því að háhyrningur hefði strandað í Grafarvogi, að Norræna hefði siglt á hnúfubak og stór grindhvalavaða strandað við Ólafsfjörð.

Við stöndum með Anahitu og Elissu
Við, undirrituð samtök, lýsum yfir stuðningi við Anahitu og Elissu, sem sæta nú ákæru vegna friðsamlegra mótmæla. Réttlætisbarátta hefur jafnan verið leidd af fólki með hugrekki til að mótmæla þegar valdakerfi voru úr takti við siðferðileg viðmið samtímans. Anahita og Elissa gerðu nákvæmlega það.

Hættum að bregðast íslensku hryssunni
Ítrekað hefur verið sýnt fram á kerfisbundið dýraníð í blóðmerahaldi á Íslandi. Nýtt myndefni, sem nú hefur verið birt, dregur fram hvernig dýralæknar sem starfa fyrir Ísteka bregðast hlutverki sínu sem er að tryggja velferð fylfullra hryssa við blóðtöku.

Háhyrningadans - hörmungar í Loro Parque
Nýleg umfjöllun Vísis undir yfirskriftinni „Hann kann að dansa, maður minn!“ og „Höfrungar og háhyrningar að leik á Tenerife“ gefur tilefni til að minna fólk á dapurlegu tilveru þessa stórbrotnu dýra sem haldið er föngnum við óboðlegar aðstæður í dýragarðinum Loro Parque á Tenerife.

Enginn á að vera hryggur um jólin
„Getur verið að samanlagðar sálir geti einhverju breytt?” -Björn Jörundur Friðbjörnsson.

Bleikir hvolpar
Svínum líður best í hópum þar sem þau mynda sterka félagsleg heild. Hóparnir samanstanda gjarnan af nokkrum gyltum og grísum þeirra.

Þarf alltaf að vera svín 2024
Svín eru með greindustu dýrum og sýnt hefur verið fram á að þau hafi vitsmuni á við þriggja ára börn og eru greindari en hundar. Þau er mannelsk og leikglöð. Í vísindalegri samantekt Lori Marino og Christina Colvin “Thinking Pigs: A Comperative Review of Cognition, Emotion and Personality in Sus domesticus” kemur fram að svín búa yfir eiginleikum sem sýna fram á mikla og flókna vitsmunagreind.

Mun Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir banna hvalveiðar?
Mun Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir banna hvalveiðar eða gefa út nýtt leyfi?Staðan í dag er sú að Matvælastofnun sem sektaði Hval hf. fyrir brot á dýravelferðarlögum þegar 30 mínútur liðu milli skota á langreyði september í fyrra vinnur nú að skýrslu um veiðarnar á síðasta ári. Væntanlega verður hún gefin út fljótlega.

Velferð dýra framar atvinnufrelsi til pyntinga
Álit umboðsmanns Alþingis um frestun hvalveiða liggur nú fyrir. Umboðsmaður metur svo að útgáfa reglugerðar hafi ekki, miðað við þær aðstæður sem uppi voru, samrýmst kröfum um meðalhóf eins og þær leiða af almennum reglum stjórnsýsluréttar.

Jólahugvekja um aðbúnað svína
Samtök um dýravelferð á Íslandi (SDÍ) standa nú annað árið í röð fyrir auglýsingaherferð sem hvetur fólk til þess að kaupa ekki hamborgarhrygg í jólamatinn. Þessi grein er hugvekja um það efni. Einhverjum kann að þykja þetta frekleg afskipti af jólahefðum fjölskyldunnar.

Er haframjólk full af eiturefnum?
Undanfarna daga hefur haframjólk verið í umræðunni. Því miður hefur umræðan einkennst af ónákvæmum og villandi upplýsingum þar sem hræðsluvekjandi fullyrðingum hefur verið haldið fram um innihaldsefni í haframjólk. Hér skal staðreyndum um haframjólk haldið til haga.

Litlir karlar drepa ljúfa risa
Langreyður er næst stærsta dýr á jörðinni á eftir frænku sinni, steypireyðinni. Hún er skíðishvalur sem nærist að mestu á svifkrabbadýrum. Langreyður er farhvalur og er útbreidd um heimsins höf. Þær eru hvala hraðskreiðastar og geta synt á 45 km/klst hraða.

Um blóðtökur úr fylfullum hryssum
Blóðtökur úr fylfullum hryssum hafa verið stundaðar á Íslandi um áratuga skeið. Tilgangur iðnaðarins er að framleiða hormónið PMSG sem notað er í kjötiðnaði erlendis til að auka frjósemi dýra umfram það sem náttúrulegt er.

Gasklefar á Íslandi
Í mánuðinum birtist grein í Bændablaðinu um kvalafullan dauða svína í erlendum sláturhúsum. Umfjöllunin kemur í kjölfar birtingu myndbanda úr sláturhúsum sem sýna hóp svína engjast um í gasklefum. En það er ekki bara í útlöndum þar sem menn fara illa með dýr.

Rangfærslur Ísteka
Í Reykjavík síðdegis þann 17.11.2022 var tekið viðtal við Arnþór Guðlaugsson, framkvæmdastjóra Ísteka, um blóðmerahald fyrirtækisins. Samtök um dýravelferð á Íslandi (SDÍ) vilja koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum við málflutning framkvæmdastjórans.

Vond staða hjá Dýraverndarsambandi Íslands
Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) er aldargamall málsvari dýra í landinu, stofnað 1914. Félagið lyfti grettistaki í dýravelferðarmálum hér á landi og á sér merka sögu.

Blóðmerahald – Hvað segja vísindin?
Markmiðið með þessari grein er að sýna fram á það á vísindalegum grunni að blóðtaka úr fylfullum hryssum ein og sér er dýraníð. Óháð meðhöndlun, meðferð eða nýtingu afurða.