Líkfundarmálið

Ótrúleg óheppni í sögulegu sakamáli
Ótrúleg atburðarás fór af stað eftir að kafari fann fyrir algera tilviljun lík í höfninni í Neskaupstað. Fjölmiðlar fóru í kjölfarið hamförum í einu furðulegasta sakamáli síðari tíma sem einkennist af ótrúlegri óheppni.

Óhugnaleg stikla úr kvikmyndinni um líkfundarmálið
Undir Halastjörnu verður frumsýnd 12. október en myndin er byggð á Líkfundarmálinu sem vakti gríðarlega athygli hér á landi árið 2004.

Fjallar að mestu um bræðrasvik
Tökur á kvikmyndinni Mihkel hófust á mánudaginn, handritshöfundur og leikstjóri kvikmyndarinnar, Ari Alexander Ergis Magnússon, segir ferlið ganga vel en myndin verður frumsýnd haustið 2017.

Líkfundamaður snýr aftur - aftur
Litháinn Tomas Malakauskas, sem var dæmdur í líkfundarmálinu á Neskaupstað árið 2005 er snúinn aftur til Íslands. Hann var gripinn á Leifsstöð þegar hann kom hingað til lands frá Danmörku 25. september.

Viðtalið eftirminnilega við Jónas Inga
Jónas Ingi Ragnarsson, sem grunaður er um stórfellda amfetamínframleiðslu í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði, vakti þjóðarathygli þegar líkfundarmálið svokallaða bar sem hæst árið 2004. Þar var Jónas dæmdur ásamt tveimur öðrum fyrir að hafa komið líkinu af Vaidasi Juciviciusi fyrir í höfninni í Neskaupstað í febrúar í fyrra og fannst mikið af amfetamíni í líkinu.

Tveir á reynslulausn á meðal hinna handteknu
Líkt og Vísir hefur greint frá hefur lögreglan handtekið fjóra karlmenn í tengslum við fíkniefnaframleiðsluna í Hafnarfirði. Þrír hinna handteknu, sem allir eru íslendingar, eru á þrítugsaldri og einn á fertugsaldri.

16 mánaða fangelsisdómur Malakauskas staðfestur
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms yfir Litháanum Tomasi Malakauskas. Hann var dæmdur í 16 mánaða fangelsi fyrir að rjúfa endurkomubann með því að koma hingað til lands.

Malakauskas fékk 16 mánaða fangelsisdóm
Tomas Malakauskas, frægasti Lithái íslandssögunnar, var rétt í þessu dæmdur í 16 mánaða fangelsi fyrir að rjúfa endurkomubann með því að koma hingað til lands.

Malakauskas í farbann í stað gæsluvarðhalds
Hæstiréttur hefur numið úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Tomasi Malakauskas, Litháanum sem dæmdur var í líkfundarmálinu fyrir tveimur árum og var gripinn hér fyrir skemmstu.

Hvað vissu yfirvöld um Malakauskas og hvenær vissu þau það ?
Yfirvöld vilja ekki upplýsa hvort þau vissu um komu líkfundarmannsins Tomasar Malakauskas til Íslands. Hann er í endurkomubanni en kom hingað á vegabréfi með eftirnafni konu sinnar í byrjun september.

Líkfundarmaður var ólöglegur í landinu í þrjá mánuði
Tomas Malakauskas gæti átt von á allt að hálfs árs fangelsi fyrir að koma hingað til lands þrátt fyrir að vera í endurkomubanni vegna líkfundarmálsins svokallaða.

Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir líkfundarmanni framlengdur
Gæsluvarðhaldsúrkurður yfir Tomas Malakauskas var í dag framlengdur þangað til að dómur verður kveðinn upp i máli hans. Gert er ráð fyrir að það gerist föstudaginn 7. desember næstkomandi.

Líkfundarmaður ferðaðist á eftirnafni konu sinnar
Tomas Malakauskas sem fékk dóm í Líkfundarmálinu svokallaða ferðaðist hingað til lands á eftirnafni konu sinnar samkvæmt heimildum Vísis. Jón Bjartmarz yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra segir að greiningardeild embættisins hafi haft grunsemdir um að hann væri kominn hingað til lands og hafið leit að honum á mánudag ásamt sérsveit Ríkislögreglustjóra.

Líkfundarmálið í bíó
Ari Alexander Ergis Magnússon ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í sínu næsta verkefni. Hann er með kvikmynd í burðarliðnum sem byggð verður á líkfundarmálinu svokallaða, þegar lík hins litháenska Vaidas Jucevisius fannst í höfninni í Neskaupstað 11. febrúar árið 2004 með fíkniefni innvortis.

Út í hött, segir Grétar
Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir þremenningunum í líkfundarmálinu í Neskaupstað. Einn sakborninga, Grétar Sigurðsson, segir út í hött að hann skuli fá jafn þungan dóm og hinir tveir sakborningarnir, Jónas Ingi Ragnarsson og Tomas Malakauskas.

Dómur í líkfundarmáli óbreyttur
Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms yfir sakborningunum þremur í Líkfundarmálinu svokallaða fyrir stundu. Þeir fengu allir tveggja og hálfs árs dóm í héraði á síðasta ári.

Dómur í stórum málum
Nú klukkan fjögur mun Hæstiréttur kveða upp dóma í tveimur af helstu málum undanfarinna missera hér á landi: annars vegar Landssímamálinu svokallaða og hins vegar Líkfundarmálinu.

Líkfundarmál fyrir Hæstarétti
Sakborningarnir í líkfundarmálinu svokallaða krefjast allir sýknu af ákæru um að hafa ekki komið Vaidasi Juciviciusi til aðstoðar í neyð og fyrir að fara illa með líkið af honum. Tomas Malakauskas viðurkennir hlut sinn í smygli á fíkniefnunum sem Jucivicius var með innvortis. Aðalmeðferð þessa máls hófst fyrir Hæstarétti í morgun.

Segjast saklausir af nánast öllu
Sakborningarnir í líkfundarmálinu svokallaða krefjast sýknu af nánast öllum ákæruliðum. Verjandi eins þeirra segir hægt að hugsa sér verri meðferð á líki en hafi verið í þessu tilfelli og verjandi annars segir að fyrst fórnarlambinu hafi ekki verið ljós sú lífshætta sem við blasti hafi sakborningum ekki átt að vera hún ljós.

Þremenningarnir krefjast sýknu
Tveggja og hálfs árs refsingar er krafist yfir Jónasi Inga Ragnarssyni, Grétari Sigurðssyni og Tomasi Malakauskas í líkfundarmálinu svokallaða en aðalmeðferð í Hæstarétti hófst í gær.

Allir dæmdir í 2 1/2 árs fangelsi
Sakborningarnir í líkfundarmálinu svokallaða, Grétar Sigurðarson, Jónas Ingi Ragnarsson og Thomas Malakauskas, voru dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þeir voru ákærðir fyrir að koma Litháanum Vaidas Juceviciusi ekki til hjálpar í neyð, ósæmilega meðferð á líki hans og innflutning á tæplega 224 grömmum af amfetamíni.

Framburður Jónasar þótti ótrúlegur
Grétar Sigurðarson, Jónas Ingi Ragnarsson og Tomas Malakauskas, þremenningarnir í líkfundarmálinu, voru í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi. Þeir voru fundnir sekir um fíkniefnabrot, fyrir að koma manni í lífshættu ekki til hjálpar og fyrir illa meðferð á líki.

Krefst tveggja ára fangelsisdóms
Saksóknari í líkfundarmálinu krefst, að sakborningarnir þrír verði hver um sig dæmdir til að sæta að lámarki tveggja ára fangelsi, við lok aðalmeðferðar málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Enn fremur taldi saksóknari tveggja og hálfs árs fangelsi vera hæfilega refsingu.

2 1/2 árs fangelsi hæfilegt
Ríkissaksóknari telur hæfilegt að allir sakborningar í líkfundarmálinu verði dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi. Verjendur krefjast sýknu af flestum ákæruliðum. Aðalmeðferð í Héraðsdómi lauk rétt fyrir hádegi.

Vilja sjúkraskýrslur frá Litháen
Beiðni verjenda í líkfundarmálinu í Neskaupstað um að ákæruvaldið aflaði sjúkraskýrslna frá Litháen um hugsanleg veikindi Vaidasar Jucevicius, var hafnað af dómara Héraðsdóms Reykjavíkur í gær. Verjendurnir óskuðu eftir úrskurði í málinu.

Réttarhöld hefjast 18. október
Réttarhöld í líkfundarmálinu hefjast 18. október í Héraðsdómi Reykjavíkur. Dómurinn hafnaði í dag kröfu verjenda um að ákæruvaldið aflaði sjúkraskýrslna frá Litháen um hinn látna, Vaidas Jusevicius.

Margt líkt með málunum
Litháinn sem situr í gæsluvarðhaldi vegna tilraunar til fíkniefnasmygls, kemur frá sama bæ og Vaidas Jucivicius, sem fannst látinn í höfninni í Neskaupsstað í febrúar. Margt er líkt með málunum tveimur.

Stakk hann þrisvar
Grétar Sigurðarson, einn sakborninga í líkfundarmálinu, játaði fyrir héraðsdómi í dag, að hafa stungið lík Vaidasar Jusevisiusar þrisvar sinnum, en ekki fimm sinnum, eins og hann er ákærður fyrir. Grétar neitaði að öðru leyti sök í málinu, en það var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur kl. 14 í dag.

Þingfest í næstu viku
Mál vegna líkfundar Vaidasar Jucevicius í Neskaupstað verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur miðvikudaginn 16. júní næstkomandi.