Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur

Fréttamynd

„Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við

Málskotsréttur forseta hverfur ekki þó að Ísland myndi ganga inn í ESB en verður þó takmarkaður, að sögn Birgis Ármannssonar fyrrverandi þingforseta. „Salami-aðferð“ Evrópusambandsins í viðræðum gæti að hans mati gert Íslendingum erfiðara fyrir ef þeir vilja hætta við hugsanlega aðildarumsókn. „Flest mannanna verk eru nú þannig að það er hægt að snúa þeim við,“ segir hann samt.

Innlent
Fréttamynd

Ráðu­neytið birtir út­reikningana

Stjórnarráð Íslands hefur gefið út mat á kostnaði við aðild að Evrópusambandinu en þar kemur fram að hugsanleg nettóframlög Íslands til Evrópusambandsins orðið um átta til þrettán milljarðar. Áður hefur verið greint frá því að Áfram Ísland standi við útreikninga á að kostnaður Íslands að Evrópusambandinu muni hlaupa á fimmtíu milljörðum króna. Forsætisráðherra hefur fullyrt að upphæðin sé „ekki nándar nærri því sem gæti komið út úr þessum viðræðum.“

Innlent
Fréttamynd

Dóms­mála­ráð­herra valdi Ás­gerði í Hæsta­rétt

Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Ásgerður Ragnarsdóttir verði skipuð dómari við Hæstarétt frá og með 1. september 2026. Hún var einn fjögurra Landsréttardómara sem sóttu um embættið og voru metnir jafnhæfir til að hljóta skipun.

Innlent
Fréttamynd

Á­fram Ís­land vísar full­yrðingum Krist­rúnar á bug

Áfram Ísland stendur við útreikninga á að kostnaður Íslands að Evrópusambandinu muni hlaupa á fimmtíu milljörðum króna. Samtökin vísa á bug fullyrðingum forsætisráðherra um að upphæðin sé „ekki nándar nærri því sem gæti komið út úr þessum viðræðum.“

Innlent
Fréttamynd

Krist­rún skýtur fimm­tíu milljarðana niður

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir fundarferð sína um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðis ganga vel og skapa tækifæri fyrir kjósendur að hittast, ræða málin og heyra skoðanir hver annars. Hún tekur fyrir þær háu tölur sem nefndar hafa verið um kostnað Íslands við aðild og segir upphæðina í raun mun lægri. 

Innlent
Fréttamynd

Gott að Trump hafi opnað á um­ræðuna

Yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, sem er sömuleiðis yfirherforingi NATO, segir það jákvætt að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland hafi ýtt undir umræðu um mikilvægi varnarmála á Norðurslóðum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur heils hugar undir.

Innlent
Fréttamynd

Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts

Meirihluti landsmanna telur að boðuð skattahækkun stjórnvalda á íslenska banka muni hafa neikvæð áhrif á almenning, íslensk fyrirtæki, viðskiptavini bankanna og hluthafa þeirra. Landsmenn telja aftur á móti flestir að boðuð hækkun hefði jákvæð áhrif á ríkissjóð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þjóðin og valdið

Það voru ekki allir ánægðir með þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að treysta þjóðinni fyrir því hvort Ísland ætti að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks mótmæltu því einnig harðlega að Alþingi yrði ekki að störfum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þingmenn ættu að eiga frumkvæðið í umræðunni og takast á um málið á Alþingi.

Skoðun
Fréttamynd

Bændur í bar­áttu­hug á leið í her­ferð um landið

Bændur búa sig undir baráttu gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Búnaðarþing hefur hafnað því að aðildarviðræður verði teknar upp að nýju og á næstu dögum hefja Bændasamtökin fundarherferð um landið til að kynna sinn málstað.

Innlent
Fréttamynd

„Þjóðin á rétt á að vita“

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það skýrt eftir viðtal við utanríkisráðherra í Íslandi í dag að ríkisstjórnin vilji fyrst fá umboð þjóðarinnar og síðan ákveða endanleg samningsmarkmið. Guðrún segist treysta þjóðinni.

Innlent
Fréttamynd

Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja

Bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar segir að það komi í ljós eftir hálfan mánuð hvort hægt verði að nota nýja vatnslögn til Eyja sem nú er verið að leggja. Lögnin skemmdist við útlagningu síðustu helgi. Vestmanneyjarbær hafi nú þegar greitt yfir milljarð vegna verkefnisins en samningar við ríkið um hver beri heildarkostnaðinn standi yfir.

Innlent
Fréttamynd

„Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“

Utanríkisráðherra segist ekki ætla að láta stilla sér upp við vegg þegar hún var spurð að því hvort hún myndi ráðleggja þjóðinni að hafna aðildarsamningi, ef ekki fáist undanþágur í sjávarútvegi, þrátt fyrir þann mikla öryggislega ávinning sem hún telur að felist í aðild að Evrópusambandinu. 

Innlent
Fréttamynd

„Ég get ekki orða bundist“

Ingibjörgu Davíðsdóttur, þingmanni Miðflokksins og fyrrverandi sendiherra, þykir utanríkisráðuneytið fara yfir strikið með því að deila grein sem utanríkisráðherra ritar í Bændablaðið í dag. Ráðuneytið bendir henni á að löng hefð sé fyrir því að skrifum utanríkisráðherra sé deilt á miðlum ráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

Óraði ekki fyrir að á­kvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja

Dæmdum morðingja í einu alræmdasta morðmáli Íslandssögunnar hefur verið sleppt á reynslulausn og vísað úr landi eftir að hafa afplánað þriðjung dóms síns. Fyrrverandi dómsmálaráðherra segir að sig hafi ekki órað fyrir því að bráðabirgðaákvæði dómsmálaráðherra myndi leysa menn úr haldi eftir svo alvarlega glæpi. 

Innlent
Fréttamynd

„Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, verður til viðtals í Ísland í dag strax að loknum kvöldfréttum Sýnar þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan verður til umræðu. Viðtalið verður aðgengilegt öllum landsmönnum.

Innlent
Fréttamynd

Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu

Angjelin Sterkaj, sem var árið 2023 dæmdur til sextán ára fangelsisvistar í Hæstarétti fyrir morðið á Armando Beqirai fyrir utan heimili hans í Rauðagerði árið 2021, hefur þegar fengið reynslulausn og verið vísað úr landi. Hann sætir endurkomubanni til landsins og inn á Schengen-svæðið.

Innlent
Fréttamynd

Krist­rún þurfi að stíga upp – Ólafur beri á­byrgð á Nei-inu

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir Já-hreyfinguna hafa farið hægt af stað og skorta skýra leiðtoga. Traustur sigur náist ekki nema Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra beiti sér af fullum þunga. Á sama tíma hafi Ólafur Ragnar Grímsson orðið nánast óskoraður leiðtogi Nei-hreyfingarinnar og bundið pólitíska arfleifð sína við úrslitin.

Innlent
Fréttamynd

Ekki hægt að gefa „neinn af­slátt af raun­vaxta­stiginu“ við þessar að­stæður

Við núverandi aðstæður getur peningastefnunefnd Seðlabankans ekki „gefið neinn afslátt“ af raunvaxtastiginu ef það á að takast á ná verðbólgunni niður í markmið, að mati sérfræðinga Acro verðbréfa. Þeir telja að nefndin sé því „nauðbeygð“ til að hækka vextina á næsta fundi og vara við því að verðbólgan geti farið upp í sex prósent síðar á árinu.

Innherji
Fréttamynd

Ekki mót­fallin aðildarviðræðum væru samnings­mark­mið skýrari

Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS segir samtökin vilja skýrari samningsmarkmið og að rauð lína verði lögð um eignarhald á fiskveiðiauðlind áður en haldið er í samningsviðræður við Evrópusambandið. Sé það gert setji SFS og sjávarútvegsgrein sig ekki á móti því að það verði haldið áfram með viðræður.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vill að vinnu við gerð á­hættu­mats verði flýtt

Kristín María Birgisdóttir, Grindvíkingur, fyrrverandi bæjarfulltrúi, kallar eftir því að vinnu við áhættumat í Grindavík verði flýtt. Hún segir Grindvíkinga sem vilja flytja heim ekki geta beðið lengur í óvissu. Leikskólar séu þegar opnir og skólahald að hefjast í grunnskóla.

Innlent