Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Eiður Þór Árnason skrifar 1. október 2026 17:53 Halla Bergþóra Björnsdóttir var lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins í rétt tæp sex ár áður en hún færði sig í embætti ríkislögreglustjóra. Vísir/Vilhelm Enn á eftir að skipa nýjan lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu og ekki liggur fyrir hvenær valið liggur fyrir. Hátt í hálft ár er liðið frá því að Halla Bergþóra Björnsdóttir, þáverandi lögreglustjóri, færði sig yfir í embætti ríkislögreglustjóra þann 20. apríl.
Lítil hreyfing var á ráðningarferlinu í sumar en nú er búið að skipa hæfnisnefnd sem mun meta hæfi þeirra sex einstaklinga sem sóttu um stöðuna í júní. Í svari frá dómsmálaráðuneytinu segir að umsækjendur hafi verið kallaðir í viðtal og hæfnisnefndin geri ráð fyrir að skila niðurstöðu sinni „á næstu vikum“. Það kemur svo í hlut Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra að skipa nýjan lögreglustjóra en hún vill að lögregluembættum landsins verði fækkað úr níu í þrjú. Hyggst hún leggja fram lagafrumvarp í nóvember þar sem kveðið er á um eitt embætti á suðvesturhorninu, annað á norður- og vesturhluta landsins og það þriðja á suður- og austurhluta landsins. Lögreglustjórar sýndu áhuga Alls sóttu sex um stöðu lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu þegar staðan var auglýst í júní. Þeirra á meðal voru Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, og María Káradóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Sömuleiðis sótti Margrét Kristín Pálsdóttir, þá settur lögreglustjóri á Suðurnesjum, um stöðuna en hún hefur síðan verið skipuð lögreglustjóri í því umdæmi. Vera Dögg Guðmundsdóttir, nefndarmaður í Kærunefnd útlendingamála, og Serhii Duiko, sjúkraliði á Grund, sóttust einnig eftir embættinu. Í ljósi fyrirhugaðra breytinga gæti nýskipaður lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu fljótlega þurft að ganga í gegnum annað ráðningarferli eftir að embætti hans hefur verið lagt niður.
Lögreglan Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vistaskipti Tengdar fréttir Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Enn hafa engin viðtöl verið tekin vegna skipunar nýs lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu en vegna sumarleyfa lá ráðningarferlið niðri. Óljóst er hvenær nýr lögreglustjóri verður skipaður. 19. ágúst 2026 06:45 Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Úlfar Lúðvíksson fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum er meðal þeirra sem sóttu um starf lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. 29. júní 2026 09:39 Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur skipað Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, í embætti ríkislögreglustjóra. Hún tekur við embætti mánudaginn 20. apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðuneytisins. 15. apríl 2026 16:52 Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira
Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Enn hafa engin viðtöl verið tekin vegna skipunar nýs lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu en vegna sumarleyfa lá ráðningarferlið niðri. Óljóst er hvenær nýr lögreglustjóri verður skipaður. 19. ágúst 2026 06:45
Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Úlfar Lúðvíksson fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum er meðal þeirra sem sóttu um starf lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. 29. júní 2026 09:39
Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur skipað Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, í embætti ríkislögreglustjóra. Hún tekur við embætti mánudaginn 20. apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðuneytisins. 15. apríl 2026 16:52