Mál Lucy Letby

Handtóku stjórnendur sjúkrahússins vegna ætlaðra barnsdrápa
Breska lögreglan handtók og yfirheyrði þrjá stjórnendur Greifynjusjúkrahússins í Chester vegna gruns um að þeir gætu borið ábyrgð á dauða barna sem hjúkrunarfræðingur við spítalann var dæmdur sekur um að hafa drepið. Efasemdir hafa komið fram um sekt hjúkrunarfræðingsins og hvort börnin hafi raunverulega verið drepin.

Vilja endurskoða dóm hjúkrunarfræðings vegna barnadauða
Lögmenn Lucy Letby, bresks hjúkrunarfræðings sem var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að drepa sjö ungbörn, kröfðust þess í dag að mál hennar yrði tekið upp aftur. Sérfræðingar hafa gagnrýnt túlkun á sönnunargögnum sem voru notuð til þess að sakfella hana.

Sérfræðingi í rannsókn Letby hafi snúist hugur
Lögmenn Lucy Letby, sem dæmd hefur verið fyrir að bana sjö ungbörnum á tveggja ára tímabili, segja sérfræðingnum sem var yfir rannsókn á máli hennar hafa snúist hugur. Hann muni biðja um að mál hennar verði tekið upp á ný.

Rannsókn hafin en efasemdir uppi um sekt Letby
Rannsókn er hafin á því hvernig hjúkrunarfræðingnum Lucy Letby tókst að myrða sjö börn á tveggja ára tímabili án þess að það kæmist upp. Rannsóknin hefur verið gagnrýnd fyrirfram í kjölfar efasemda um sekt Letby.

Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi
Bandarískt tímarit hefur lokað fyrir aðgang að nýrri grein sem fjallar á gagnrýninn hátt um sakfellingu yfir hjúkrunarfræðingi fyrir barnadráp á sjúkrahúsi í Bretlandi. Fyrrverandi ráðherra gagnrýnir að lokað sé á umfjöllun um málið með dómsúrskurði.

Ákærð fyrir að að reyna að bana enn einu kornabarninu
Breski hjúkrunarfræðingurinn Lucy Letby verður leidd fyrir dómara á ný ákærð fyrir tilraun til að drepa enn eitt ungbarnið. Letby var nýlega dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa banað sjö börnum á sjúkrahúsinu í Chester árunum 2015 og 2016.

Mun aldrei sleppa úr fangelsi
Dómari í Bretlandi dæmdi í morgun hjúkrunarfræðinginn Lucy Letby í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa banað sjö börnum og reynt að bana sex til viðbótar á barnadeild sjúkahúss í Chester á árunum 2015 og 2016.

Lucy Letby sakfelld fyrir að hafa banað sjö ungbörnum
Dómstóll í Manchester í Bretlandi hefur sakfellt hjúkrunarfræðinginn Lucy Letby fyrir að hafa banað sjö ungbörnum – fimm drengjum og tveimur stúlkum – og gert tilraun til að bana sex til viðbótar.

Sögð hafa gert tilraun til þess að myrða sama nýburann fjórum sinnum
Þriðji dagur réttarhalda yfir breska hjúkrunarfræðingnum Lucy Letby fóru fram í dag. Letby er sökuð um að hafa myrt sjö nýbura og gert tilraun til þess að myrða tíu til viðbótar á nýburadeild spítala sem hún vann á. Verknaðurinn er sagður hafa átt sér stað á milli júní 2015 og 2016.

Breskur hjúkrunarfræðingur grunaður um að hafa myrt sjö ungabörn
Réttarhöld eru hafin á Bretlandseyjum yfir hjúkrunarfræðingi sem er sakaður um að hafa myrt sjö nýfædd börn og reynt að myrða tíu önnur á Countess of Chester-sjúkrahúsinu í Chester.