PISA-könnun
1 2 3 4 … 4 ›
Útgjöldin há en niðurstaðan rýr Ísland er á meðal neðstu PISA-þjóða þegar tekin er saman tölfræði um fylgni á milli útgjalda ríkisins til menntamála og stigafjölda í PISA-rannsókninni. Útgjöld til menntamála á Íslandi eru á meðal þeirra hæstu í heimi á hvern nemanda en peningarnir virðast ekki nýtast kerfinu til að búa til afburðanemendur. Innlent 9.9.2026 19:02
„Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Formaður Félags leikskólakennara segir orð Ingu Sæland ráðherra í Reykjavík síðdegis ekki hafa verið góða byrjun á því samtali að fjölga kennurum á leikskólastiginu. Þau hafi ekki farið vel í leikskólakennara en að henni verði fyrirgefin þessi yfirsjón. Innlent 9.9.2026 15:43
„Fólk er bara slegið“ Leikskólakennarar eru alvöru kennarar segir formaður svæðadeildar leikskólakennara í Reykjavík og segir fólk í stéttinni slegið yfir orðum barna- og menntamálaráðherra í gær. Þá segir hún að breyta þurfi því viðhorfi að gott sé að fara að vinna í leikskóla til að læra íslensku. Innlent 9.9.2026 13:10
Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Bilið á milli stúlkna og drengja í stærðfræði eykst samkvæmt niðurstöðum PISA-rannsóknarinnar. Árangur stúlkna versnar umtalsvert á milli kannanna en stærðfræðin er það fag þar sem minnstu munar á árangri íslenskra nemenda og nemenda annarra OECD-ríkja. Innlent 9.9.2026 07:30
Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Niðurstöður PISA-könnunarinnar sýna að einungis 28 prósent nemenda af erlendum uppruna búa yfir grunnhæfni í lesskilningi. Munurinn minnkar þegar tekið er tillit til félags- og efnahagslegrar stöðu en hverfur ekki. Niðurstöður sýna að algengt sé að nemendur úr hópi innflytjenda standi verr að vígi en aðrir nemendur með engan erlendan bakgrunn, sama hvort litið er til læsis, vísinda eða stærðfræði. Innlent 8.9.2026 22:02
Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Þá höfum við séð nýjustu niðurstöðurnar úr PISA könnuninni sem lögð var fyrir nemendur í 10.bekk 2025. En PISA kannanir eru lagðar fyrir á vegum OECD og byggja á því að nemendur nýti þekkingu sína og rökhugsun við lausn fjölbreyttra verkefna. Það sem kemur fyrst upp í huga minn sem hugsanlegar skýringar fyrir slöku gengi eru vangaveltur um gæði námsefnis, þá leiðsögn sem fagnámskrár eiga að gefa og um fagþekkingu kennara í PISA greinum. Skoðun 8.9.2026 20:33
Endurreisa þarf Kennaraháskólann Ný Pisa-könnun. Nú er hrópað „frammistaða barna á Íslandi hafi hrunið“. Þeim líður samt vel. Háskólasamfélgið og menntayfirvöld bera hér mikla ábyrgð á menntunarstiginu, en börnin eru þolendur sem bera mistökin til næstu kynslóðar. Þegar Kennaraháskólinn var lagður niður 2008 og námið og þróunarstarfið lagt inn í Háskóla Íslands var við þessu varað. Skoðun 8.9.2026 19:31
Við vissum að þetta myndi gerast Nýjar PISA-niðurstöður eru slæmar fyrir Ísland. Það er engin ástæða til að milda það. Skoðun 8.9.2026 15:32
„Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Formaður Kennarasambands Íslands segir niðurstöður í kjarnagreinum PISA-könnunarinnar valda áhyggjum. Hann segist taka undir orð ráðherra sem tjáði sig um niðurstöðurnar á blaðamannafundi og treystir á að tekið verði undir ákall kennara um semfélagslegt samtal um skólamál. Innlent 8.9.2026 13:52
Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður Árangur íslenskra nemenda í PISA-könnuninni heldur áfram að versna samkvæmt niðurstöðum nýjustu könnunarinnar sem kynntar voru í morgun. Menntavísindasvið Háskóla Íslands kynnir skýrslu sína um niðurstöðurnar á fundi í Háskólanum og verður hann í beinu streymi á Vísi. Innlent 8.9.2026 13:32
PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir PISA-niðurstöðurnar ekki koma sér neitt á óvart. Hann hafi verið búinn að spá fyrir um hrap í mælingum. Hann segir þörf á samfélagsátaki til að bregðast við. Ráðherra boðaði fjölda aðgerða í kynningu sinni fyrr í dag. Innlent 8.9.2026 13:19
Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, segir Ísland með rauða spjaldið þegar kemur að námsárangri barna. Þessu verði að snúa við og hennar von sé að í næstu PISA-könnun verði hægt að sjá betri niðurstöður. Til að bregðast við niðurstöðunum verður lagður um hálfur milljarður í gerð nýrra námsgagna og aukin áhersla á ákveðin kjarnafög. Innlent 8.9.2026 11:52
Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar Mennta- og barnamálaráðuneytið hélt blaðamannafund klukkan 11:00 þar sem nýjar niðurstöður PISA voru kynntar. Fundurinn fór fram í Safnahúsinu við Hverfisgötu og verður streymt beint frá fundinum á Vísi. Innlent 8.9.2026 10:03
Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Árangur íslenskra nemenda í lesskilningi, stærðfræðilæsi og náttúruvísindum heldur áfram að versna samkvæmt niðurstöðum nýrrar PISA-könnunar. Bein útsending verður á Vísi frá blaðamannafundi barna- og menntamálaráðuneytisins klukkan 11 þar sem farið verður yfir niðurstöðurnar. Innlent 8.9.2026 07:30
Gleðilegan dag læsis Á degi læsis í ár verða niðurstöður PISA 2025 kynntar. Þær gefa okkur meðal annars mikilvægar upplýsingar um stöðu íslenskra nemenda í lestri og lesskilningi. Mikilvægt er að hafa í huga að PISA prófið er lagt fyrir nemendur við lok grunnskóla. Niðurstöðurnar segja því ekki aðeins til um stöðu þeirra á prófdeginum heldur endurspegla þær að miklu leyti þau tækifæri, stuðning og þá kennslu sem nemendur hafa fengið í gegnum skólagöngu sína. Skoðun 8.9.2026 07:30
Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Um próf og einkunnir. Þegar fjallað er um próf og einkunnir í skólastarfi, m.a. í grunnskóla, tel ég miklu skipta að ræða hvaða hlutverkum prófin eigi að þjóna því hlutverkin hafa breyst í áranna rás. Skoðun 4.9.2026 08:33
STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Niðurstöður íslenskra nemenda í alþjóðlegu PISA könnuninni hafa á síðustu árum orðið eitt stærsta umræðuefni íslenskra menntamála. Skoðun 8.6.2026 09:03
PISA: Eru forsendurnar þær sömu í öllum löndum? Mikið hefur verið rætt um slakan árangur íslenskra barna í PISA-könnunum. Það er eðlilegt. Ef lesskilningur, stærðfræði og grunnfærni veikist, þá er það auðvitað áhyggjuefni. Skoðun 3.6.2026 07:47
Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Ný og, því sem næst, svört skýrsla Þróunarsjóðs námsgagna sýnir að fjármagn til námsgagnagerðar hafi rýrnað til muna síðustu tvo áratugi. Formaður sjóðsins segir ósanngjarnt að í umræðunni sé kennurum kennt um lakari námsárangur barna þegar þeir hafi ekki sömu kennslutól og kennarar á hinum Norðurlöndunum Innlent 22.5.2026 20:16
Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Stjórn Þróunarsjóðs námsgagna kallar eftir því að fjármagn verði aukið til framleiðslu námsgagna án tafar, að miðlæg námsgagnaveita verði sett á stofn og að staðan á námsgögnum verði kortlögð. Skólastarf eigi verulega undir högg að sækja á öllum skólastigum vegna skorts á námsgögnum. Íslensk börn standi ekki jafnfætis börnum á Norðurlöndum og alþjóðlegar mælingar á námsárangri staðfesti það. Innlent 22.5.2026 08:32
Stór hópur foreldra taki skólaskyldu ekki alvarlega Ragnheiður Stephensen grunnskólakennari í Garðaskóla gagnrýnir „niðurrifsumræðu“ um skólamál. Hún segir þurfa betri samræmd námsviðmið, betri námsgögn og að foreldrar taki ábyrgð á námi barna sinna. Allt of margir foreldrar sinni ekki námi barna sinna og taki þau jafnvel úr skóla í lengri tíma. Innlent 11.5.2026 09:58
Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, segir unnið hörðum höndum að því í ráðuneyti hennar að bregðast við slakri grunnhæfni skólabarna á Íslandi. Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir nauðsynlegt að prófað sé í öllum viðmiðum í öllum skólum, ekki bara einstökum viðmiðum. Þau eru sammála um að þörf sé á þjóðarsátt. Innlent 5.5.2026 23:12
Ætti Ísland að taka þátt í PISA? Á síðustu áratugum hafa alþjóðleg próf haft sífellt meiri áhrif á menntastefnu ríkja um allan heim. Þar hefur PISA könnunin, sem er framkvæmd af OECD, orðið eitt þekktasta og áhrifamesta mælitæki til að bera saman frammistöðu nemenda á milli landa. Ísland hefur tekið þátt í PISA frá upphafi en umræða um gagnsemi þátttökunnar hefur orðið sífellt háværari. Skoðun 2.5.2026 14:03
Dönsk börn fá sem nemur fjórum auka kennsluárum Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, vill lengja skólaár íslenskra grunnskólanemenda og fjölga kennslustundum. Fjöldi kennsludaga og kennslustunda í grunnskólum á Íslandi er einn sá minnsti í Evrópu. Á sama tíma eru útgjöld á hvern nemanda þau mestu innan OECD en árangur nemenda í íslenskum grunnskólum undir meðaltali. Innlent 27.3.2026 19:05
Árangur skólanna, hvað veist þú um hann? Eins og þjóð veit eru svo gott sem engar samræmdar árangursmælingar í íslenskum grunnskólum. Á þriggja ára fresti berast þó PISA niðurstöðurnar og yfirvöldum kemur alltaf á óvart að þær versni. Ekki dettur þeim í hug að fara upp úr hjólfarinu. Í staðinn er sömu stefnu og sömu sýn haldið og vonast eftir betri útkomu næst, á kostnað barnanna okkar. Skoðun 15.10.2025 11:00
„Sultaról rithöfunda enn hert“ í fjárlögum Niðurskurðarhnífur stjórnvalda nær til bókasafnssjóðs rithöfunda að þessu sinni samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2026 sem kynnt voru í morgun. Arndís Þórarinsdóttir rithöfundur, sem skrifað hefur fjölda barna- og unglingabóka, segir þetta kaldar kveðjur á degi læsis. Innlent 8.9.2025 15:52
Vonbrigði að tillögu um símabann og samræmd próf hafi verið vísað frá Tillögu Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn um fimm aðgerðir í menntamálum var vísað frá af borgarstjórnarmeirihlutanum á fundi borgarstjórnar í dag. Hildur Björnsdóttir, oddviti flokksins, segir það mikil vonbrigði að ekki hafi verið hægt að greiða atkvæði um tillögurnar hverja fyrir sig. Umræða um tillöguna varði í um fjórar klukkustundir. Innlent 2.9.2025 20:32
Alvarlegt hversu mörg börn skorti samkennd Vanda Sigurgeirsdóttir lektor í tómstunda- og félagsmálafræði við menntavísindasvið Háskóla Íslands og fyrrum formaður Knattspyrnusambands Íslands, segir meira agaleysi meðal barna og minni samkennd. Það hafi alvarleg áhrif á möguleika þeirra til að læra. Innlent 26.8.2025 09:09
Kópavogsbær tekur aftur upp samræmd próf Nemendum í grunnskólum Kópavogsbæjar verður skylt að taka samræmt námspróf frá og með vorinu 2026 að sögn bæjarstjóra. Aðgerðin er ein af sextán umbótatillögum sem svara eiga ákalli kennara, nemenda og foreldra í málefnum grunnskóla. Innlent 20.8.2025 10:11
Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Já, ég hef verið að velta þessu töluvert fyrir mér að undanförnu, það vantar víða súrefni í kerfin okkar. Það er nóg af taka þegar það kemur að því að forgangsraða verkefnum. Skoðun 9.7.2025 20:02