Leiðin út úr PISA-lægðinni Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar 10. september 2026 10:31 Nýjustu niðurstöður PISA sýna að námsárangur 15 ára nemenda í OECD-ríkjum hefur aldrei mælst lakari. Árangur hefur versnað í öllum þremur greinum prófsins og sérstaklega í lesskilningi og stærðfræði. Ísland fylgir þessari þróun en sker sig jafnframt skýrt úr. Hér hefur árangurinn versnað mun meira en annars staðar og er Ísland nú langt undir meðaltali OECD-ríkja í öllum þremur greinum PISA, ólíkt því sem var fyrir um tveimur áratugum. Hvað skýrir hnignunina? Ýmislegt kann að skýra alþjóðlega hnignun námsárangurs. Ein stærsta breytingin á umhverfi barna síðasta áratuginn er tilkoma snjalltækja og áhrif þeirra. OECD bendir á tengsl stafrænnar truflunar, skjánotkunar og veikari námsárangurs, enda samkeppnin um athygli barna aukist mikið. Samsetning nemendahópsins hefur einnig breyst. Börnum með erlendan bakgrunn hefur fjölgað hratt í mörgum Evrópuríkjum og þau standa að jafnaði verr í PISA. Skýringarnar á því eru fjölþættar, en börn innflytjenda koma til landsins á ólíkum aldri, kunna málið sem kennt er misvel, hafa ólíka fyrri skólagöngu og eru að jafnaði verr sett félagslega og efnahagslega. Hvorug þessara skýringa dugir þó til að skýra hrunið sem hefur orðið í námsárangri á Íslandi. Árangurinn hér á landi er mun verri en í öðrum OECD-ríkjum og lækkunin meiri. Í lesskilningi hefur Ísland lækkað um 60 stig á áratug, sem jafngildir þremur glötuðum árum af skólagöngu. Þessi lækkun er meiri en í nokkru öðru OECD-ríki og Ísland skorar lægst allra Evrópulanda innan OECD þegar kemur að lesskilningi. Mælingar og forgangsröðun vantar Hætt var að nota samræmd próf við inntöku í framhaldsskóla árið 2009 og prófin aflögð árið 2022. Ítrekað hefur komið fram að lokaeinkunnir grunnskóla eru ekki samanburðarhæfar milli skóla og nýr matsferill, sem ekki felur í sér samræmt lokamat, leysir aðeins hluta vandans. Án samræmdra mælinga er ekki hægt að sjá hvar kennsla skilar árangri, hvar vandamál liggja og hvar þarf að grípa inn í. Á sama tíma hefur verkefnum skólans fjölgað og aðalnámskráin orðið umfangsmeiri. OECD hefur bent á hættuna af „ofhleðslu námskrár“, þegar nýjum markmiðum er bætt við án þess að önnur víki. OECD hefur jafnframt bent á að Ísland verji minni tíma í suma lykilþætti náms en mörg önnur lönd og að umfangsmikil námskrá geti dreift athyglinni frá grunnfærni. Einfalda þarf námskrána, setja skýrari markmið og auka áherslu á kjarnafög. Jöfn tækifæri krefjast ólíkra úrræða Staða barna innflytjenda er sérstaklega slæm á Íslandi. Í PISA 2025 fengu nemendur án erlends bakgrunns 440 stig í lesskilningi en fyrsta kynslóð innflytjenda aðeins 321 stig. Munurinn þar á milli jafngildir sex ára skólagöngu. Barn sem skilur aðeins brot af kennslunni þarf fyrst og fremst öfluga íslenskukennslu þar til það getur fylgt almennu námi. Stefna um skóla án aðgreiningar byggir á því að sem flestum þörfum nemenda sé mætt innan almennrar kennslustofu. Jafnræði felst hins vegar ekki í því að öll börn sitji alltaf í sama bekk heldur að hvert barn fái kennslu sem hæfir stöðu þess. Þrjú skref til betri vegar Það er jákvætt að stjórnvöld séu farin að bregðast við, meðal annars með snjallsímabanni, endurkomu tölustafaeinkunna og boðaðri endurskoðun aðalnámskrár. En ganga þarf lengra. Til að snúa þróuninni við þarf að fylgja þessari stefnubreytingu eftir með þremur skýrum breytingum á grunnskólakerfinu: 1. Taka aftur upp samræmd próf. Prófin þurfa að vera regluleg og samanburðarhæf milli skóla og ára svo hægt sé að sjá hvar nemendur standa, hvaða skólar ná árangri og hvar þarf að grípa inn í. Samræmd próf eiga jafnframt að liggja til grundvallar inntöku í framhaldsskóla. 2. Einfalda aðalnámskrá. Taka þarf út það sem hefur bæst við á kostnað kjarnans og setja lestur, ritun, íslensku, stærðfræði og vísindi aftur í forgang. Markmiðin eiga að vera færri, skýrari og mælanlegri. 3. Falla frá skóla án aðgreiningar. Það er ekki raunhæft að allar þarfir allra nemenda séu alltaf leystar innan sama almenna bekkjar. Byggja þarf upp sterkari sérhæfð úrræði og tryggja að nemendur með takmarkaða íslenskukunnáttu fái öfluga íslenskukennslu þar til þeir hafa færni til að taka fullan þátt í almennu námi. Ísland á ekki að sætta sig við að heill árgangur barna nái mun lakari árangri en jafnaldrar þeirra í flestum samanburðarlöndum. Vandinn hefur þróast yfir langan tíma og verður ekki leystur með einni aðgerð. Nú þarf að horfast í augu við stöðuna, mæla árangurinn og setja grunnfærni barna aftur í forgang. Höfundur er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Brynjúlfur Björnsson PISA-könnun Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar