Air Atlanta

Fréttamynd

„Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“

Hartnær sexhundruð manns, þar af um eitthundrað og fimmtíu Íslendingar, eru að störfum fyrir Atlanta-flugfélagið á áhrifasvæði stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Forstjóri Air Atlanta segir félagið fara að öllu með gát og allt sé gert til að tryggja öryggi starfsfólksins.

Innlent
Fréttamynd

Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna

Þegar Air Atlanta tók að sér viðamikið pílagrímaflug fyrir Saudia-flugfélagið árið 1993 lét Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda félagsins, hanna og sauma sérstaka flugfreyjabúninga. Í þættinum Flugþjóðin lýsa fyrrverandi og núverandi starfsmenn íslenskra flugfélaga því hvernig var að starfa undir vökulum augum trúarlögreglu í Sádí-Arabíu.

Innlent
Fréttamynd

Urðu vitni að því þegar maður var háls­höggvinn

Starfsmenn íslenskra flugfélaga, sem sinntu pílagrímaflugi í Sádí-Arabíu á árum áður, urðu sumir fyrir þeirri óhugnanlegu lífsreynslu að verða vitni að opinberri aftöku. Þetta kemur fram í þætti Sýnar um pílagrímaflugið í nýrri þáttaröð um Flugþjóðina.

Innlent
Fréttamynd

Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug

„Þetta var núllpokaflug,“ var svarið sem flugfreyjurnar Edda Björk Friðriksdóttir og Eva María Hilmarsdóttir gáfu eftir lendingu Dash 8 Q400-vélar Icelandair á Akureyri þegar spurt var hvort einhverjir ælupokar voru notaðir í fluginu frá Reykjavík. Í flugstjórnarklefanum sátu þeir Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður.

Innlent
Fréttamynd

Boeing 777-fraktþotur bætast í flota Atlanta

Flugfélagið Air Atlanta í Kópavogi hefur gert langtímasamning um rekstur á tveimur Boeing 777-fraktþotum. Atlanta hafði áður tekið Boeing 777-farþegaþotur í notkun vorið 2023 og varð þá fyrst íslenskra flugfélaga til að hefja rekstur á þessum stærstu tveggja hreyfla breiðþotum heims.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Keyptu glæsihús Atlanta-hjónanna á undir­verði

Hjónin Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju, og Edda Björk Kristjánsdóttir, mannauðsstjóri Húsasmiðjunnar, hafa fest kaup á glæsilegu húsi við Stórakur í Garðabæ. Kaupverðið var 370 milljónir króna.

Lífið
Fréttamynd

Þú finnur Ís­lendinga út um allan heim í fluginu

„Þetta er dálítið magnað hvað þú rekst á Íslendinga víða í þessum alþjóðlega flugrekstri. Þeir eru eiginlega út um allt. Þú rekst á Íslendinga ótrúlega víða,“ segir Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta.

Innlent
Fréttamynd

Risaþotan flaug aftur yfir Reykja­víkur­svæðið

Áhöfn Boeing 747-júmbóþotu Air Atlanta flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið í kvöld og var hún yfir borginni um klukkan 18:50. Flugvélin var að koma með 240 starfsmenn félagsins og maka frá Casablanca í Marokkó og lenti í Keflavík upp úr klukkan 19.

Innlent
Fréttamynd

Risaþota flaug í lág­flugi yfir Reykja­vík

Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747 verður um klukkan tvö í dag. Flogið verður í lágflugi yfir Reykjavík í tilefni dagsins og þaðan í sérstakt kveðjuflug með starfsmenn félagsins til Casablanca í Marokkó í Norður-Afríku.

Innlent
Fréttamynd

Þegar við tölum um ís­lenskt flugævintýri þá er það í dag

„Miðað við stærð þjóðar þá erum við með mjög marga flugmenn á Íslandi og gríðarlega mikinn flugrekstur,“ segir Sigrún Bender, flugstjóri hjá Icelandair, í viðtali í þáttaröðinni Flugþjóðin, sem hefur göngu sína á Stöð 2 næstkomandi mánudagskvöld 2. september.

Innlent
Fréttamynd

Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu

Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Selur húsið í Garða­bæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar

Hann­es Hilm­ars­son einn af eigendum flugfélagsins Atlanta og eig­in­kona hans, Guðrún Þrá­ins­dótt­ir, hafa sett einbýli sitt við Stórakur í Garðabæ á sölu. Nýverið festu hjónin kaup á glæsivillu við Mávanes sem áður var í eigu Ingu Lindar Karlsdóttur sjónvarpskonu og eiganda Skot Productions. Ásett verð fyrir húsið er 450 milljónir.

Lífið
Fréttamynd

Flug­vél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad

Stjórnendum Boeing 747 þotu íslenska flugfélagsins Air Atlanta varð á í messunni þegar taka átti á loft frá flugvellinum í Ríad í Sádi-Arabíu á dögunum. Nauðhemla þurfti þegar í ljós kom að röng beygja hafði verið tekin inn á akstursbraut í stað flugbrautar í aðdraganda flugtaks. Flugvélin staðnæmdist um þrjátíu metrum frá enda akstursbrautarinnar.

Erlent
  • «
  • 1
  • 2